Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 21

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 21
r Þ essa dagana er verið að sýna í Stjörnubíói barnamyndina Ronju ræningjadóttur. Myndin er með ís- lensku tali og er það Hitt leikhúsið, sem á veg og vanda að þessu fram- taki. Þetta hefur að sjálfsögðu í för með sér aukakostnað og þvi fóru að- standendur Hins leikhússins þess á leit við Þorstein Pálsson fjármála- ráðherra og Sverri Hermannsson menntamálaráðherra og helsta tals- mann íslenskunar á erlendum texta, að felldir yrðu niður tollar af myndinni vegna kostnaðaraukans. Það fékkst ekki í gegn og þess vegna kostar hver miði kr. 190.00. . . l síðastaHPnefndum viðnokkra hugsanlega umsækjendur um starf RÚVAK-stjóra. Nú hefur nýtt nafn borið á góma, en það er enginn ann- ar en Stefán Jón Hafstein fyrr- verandi fréttamaður og núverandi fréttamaður útvarpsins í Bandaríkj- unum. Þá höfum við frétt, að yfir- stjórn útvarpsins vilji gjarnan sjá út- lenskt menntaðan mann í þessu starfi. Þannig gæti Stefán Jökuls- son einnig komið til greina, því hann var í fyrra um skeið í læri hjá BBC í London. . . Q meira um RUVAK. Nú þeg- ar Jón Baldvin Halldórsson fréttamaður er á leið suður yfir heiðar þarf að ráða nýjan mann í hans stað. Sá mun, eftir því sem við höfum heyrt, vera Gísli Sigur- gestsson núverandi ritstjórnarfull- trúi á Degi á Akureyri. . . A ii^^^uglýst hefur verið til leigu skrifstofuhúsnæði ,,á besta stað í bænum", eða í Kirkjuhvoli og horn- húsinu á milli Kirkjuhvols og Þórs- hamars, en það hús er í eigu Alþing- is. Munu margir hafa sýnt því áhuga að fá þarna leigt, enda húsnæðið í hjarta gamla miðbæjarins, beint á móti Dómkirkjunni og í kallfæri frá þinginu. Við höfum heyrt að Bandalag jafnaðarmanna hafi m.a. lagt inn fyrirspurn varðandi leigufjárhæð og kjör. . . er um endursýning- ar í sjónvarpinu um þessar mundir, þá sjaldan að það sendir út. Það hef- ur vakið athygli manna að það efni, sem endursýnt er, hefur gjarnan verið unnið af Hrafni Gunnlaugs- syni, Birni Björnssyni og Agli Edvarðssyni. Sem dæmi má nefna þátt með Savannatríóinu (en þar fengu Þórir Baldursson og Jónas R. Jónsson líka endursýningar- greiðslur upp í hendurnar), Undir sama þaki, Silfurtúnglið og þátt með Spilverki þjóðanna. í „spilverkinu" voru auðvitað ýmsir út Stuðmanna- genginu, m.a. Egiil mágur Hrafns. Já, það er munur að eiga frenner og venner. .. K ■i^kvikmyndafélagið Óðinn hefur verið lýst gjaldþrota, en það fékk ekki risið undir kostnaði við Atómstöðina. Félagið fékk að sjálf- sögðu styrk úr Kvikmyndasjóði, en hann dugði engan veginn til. Það virðist hins vegar lítið þurfa til að fá slíka styrki, því „sjóðsstjórar" snör- uðu út þremur og hálfri milljón til Hilmars Oddssonar (Björnsson- ar, leikritaskálds) í frumraun hans, Eins og skepnan deyr, eins og um- deilt varð. . . Þ að er ekki víst að allir geri sér grein fyrir þeim gífurlega kostnaði, sem fylgir því að senda sjónvarps- þætti beint út utan af landi. Þannig er talið, að kostnaðurinn vegna þátt- arins Á líðandi stundu, sem send- ur var frá Akureyri hafi kostað á aðra milljón króna. Að þættinum unnu um 20 manns, sem þurftu að dvelja á Akureyri í nokkra daga, upptökubílar, flutningar o.s.frv. . . Foreldrar! Komið með börnin í mat til okkar á sunnudögum og sparið! Öll börn 12 ára og yngri sem koma með foreldr- um sínum fá: Frían hamborgára m/frönskum t-ða 'h rétt dagsins i sleikjó. Munið góða barnahornið. tt kaffi, velur þú Hefur þú smakkað COLOMBIAKAFFIÐ okkar? Kaffibrennsla Akureyrar hf Hj ■ wtk í 'y/% iBi ^ Jj P ét Éf • ImI r-fei gj|ji l|pi fHs^. ijy l o Jfe ■Æt ^ á.. .. __M HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.