Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 27

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 27
v V ið heyrðum það á almanna- færi, að Magnús Hreggviðsson framkvæmdastjóri og eigandi út- gáfufyrirtækisins Frjáls framtaks væri kominn á kaf í bókhald Arnar- flugs á vegum þeirra DV-félaga Sveins R. Eyjólfssonar og Harð- ar Einarssonar. Þeir tveir ásamt nokkrum öðrum, svo sem Sam- vinnuferðum-Landsýn, eru nýir hlut- hafar í Arnarflugi. Hins vegar er all- ur varinn góður og því mun Magnús vera að stússa þetta fyrir þá. Þetta mál tengist annarri frásögn, sem við vorum með hér í blaðinu fyrir nokkru, en þá sögðum við, að Magnús hefði boðið Frjálsri fjölmiðl- un (Sveini og Herði) Frjálst framtak til kaups. Þessu til viðbótar fylgir svo sögunni, að til álita komi, að Magnús Hreggviðsson verði næsti framkvæmdastjóri Arnarflugs og ef af því verði kunni svo að fara, að þeir Sveinn og Hörður kaupi Frjálst framtak svona í leiðinni. Viðskipta- heimurinn getur verið skrýtinn... fjöllunum hærra, að kvensjúkdóma- læknir þar í bæ hafi haft nú nýlega einar litlar 700 þúsund krónur í tekj- ur á einum mánuði. Viðkomandi er læknir á Fjórdungssjúkrahús- inu, en hefur jafnframt stofu úti í bæ. Síðan tekur hann á móti kven- fólkinu á FSA sem prívatsjúklingum og þiggur laun í samræmi við það í opinberum sjúkrahúsvinnutíma sín- um... Þ eir eru harðir í útgáfumálun- um hjá Máli og menningu. Nú bjóða þeir upp á fimm nýjar uglur á næstunni í einum pakka, sem á að kosta 500 krónur, þ.e. 100 krónur bókin. I nýja pakkanum eru Stríð og friður eftir Tolstoj, fyrsta bindi, tveggja binda verk sem heitir Vitni deyr, eftir P.D. James, Veggjakrot og annar vísdómur, sem fjallar um alls kyns riss og krass á veggi (graff- iti) og loks Jörð í Afríku eftir Karen Blixen. Til stóð að prenta bækurn- ar erlendis, en Prentsmiðja G. Ben. náði verkefninu.. . ----------------------------------------------------- *■ " SB , i. w?' k líYiailUl'í Drekkum mjólk ’ Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna Til þess að bein líkamans vaxi eðlilega í œsku og haldi styrk sínum á efri árum þurfa þau daglegan skammt af kalki, Mjólkin er ríkasti kalkgjafi sem völ er á. Líkaminn framleiðir ekki kalk sjálfur en verður að treysta á að daglega berist honum nœgilegt magn til að halda eðllegri líkamsstarfsemi gangandi. 99% af kalkinu fertil beina og tanna; hjá börnum og unglingum til að byggja upp eðlilegan vöxt; hjá fullorðnu fólki til að viðhalda styrknum og hjá ófrískum konum og brjóstmœðrum til viðhalds eigin líkama auk vaxfar fóstursins og mjólkurframleiðslu í brjóstum, Kalkið gegnir því veigamiklu hlutverki og skortur á því getur haft slœmar afleiðingar. Algengasta einkennið er beinþynning, hrörnunarsjúkdómur sem veidur stökkum og brothcettum beinum auk breytinga á líkamsvexti. Með daglegri mjólkurneyslu má vinna gegn kalkskorti og afleiðingum hans, byggja upp sterk bein hjá börnum og unglingum og viðhalda styrknum hjá fullorðnu fólki. Afleiðingar beinþynningar HÆD 140 Helstu heimildir: Bæklinqurinn Kalk og betnjynning efír dr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutrition and Ptiysical Fitness, 11. útg., efbr Briggs og Calloway, Holt Reinhardt and Winston, 1984, ALDUR Hvernig beinþynning leikur útlitið A. Eðlileg Iðgun og eðlileg hœð B. Bogið bak og minni hœð C. Herðakistill og enn minni hœð MJÓLKURDAGSNEFND 0 RENAULT ÞÚ KAUPIR ÞÉR EINTAK í LAUSASÖLU OG SÍÐAN ERT ÞÚ ÁSKRIFANDI < KRISTINN GUÐNASON HF. £\ SUÐURLANDSBRAUT 20 — SÍMI686633 HELGARPÓSTURINN 27 I

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.