Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 28
HP kannar
tengsl á milli
starfsvals og
stjörnumerkja
Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðar-
bankans og Bogmaður.
Þeir, sem á annad bord taka mark
á stjörnuspádómsírœdum, haía
gjarnan á takteinum hnitmidadar
lýsingar á merkjunum tólf. Þessar
persónulýsingar eru sídan hermdar
upp á fólk eftir því hvenœr þad
fæddist í þennan heim, þó þad tak-
ist misvel ad fá slíkar alhœfingar til
að falla að staðreyndum. Öll þekkj-
um við eitthvað afslíkum merkimið-
um stjörnuspádómanna. Sagt er t.d.
að Hrútar séu sjálfselskir, Naut séu
þrjósk, Tvíburar séu lítt stöðuglynd-
ir, Meyjan sé snyrtimennskan upp-
máluð, Vogin taki sér óratíma í að
gera upp hug sinn og að Bogmenn
missi iðulega út úr sér sœrandi
sannleikskorn án þess að œtla sér
það.
„Það er ekkert til sem nefnist
lukka eða skapadómur. Það eru
aðeins einfeldningar sem slíku trúa.
Vér sköpun vor eigin forlög. Eins og
vér sáum munum vér uppskera. Það
er orsök fyrir sérhverri afieiðing.
Sérhver sá, sem les bók þessa og
fylgir ráðleggingum hennar ná-
kvæmlega mun öðlast frið, ham-
ingju og velmegun. Hinn rétti og
sanni vegur til lífsins, er hér sýndur.
Hugsandi og skynsömum mönnum,
sem keppa að betra takmarki vísa
þessi vísindi leiðina."
Þessar yfirlýsingar má lesa í æva-
gömlu riti um stjörnuspádóma, sem
rak á fjörur blaðamanns HP fyrir
skemmstu. Rit þetta er hin merki-
legasta lesning, en því miður vantar
titilsíðu þess eintaks sem við höfum
undir höndum. Þess vegna getum
við ekki sagt til um hvenær það var
gefið út, eða af hverjum. Við það
verður þó stuðst varðandi lýsingar á
persónueinkennum einstakra
stjörnumerkja og gamalli stafsetn-
ingu haldið.
Vörður staðinn um
bankastjóra
Það liggur í augum uppi, að ef
Valur Valsson, Vatnsberi og bankastjóri í
Iðnaðarbankanum.
lagður er trúnaður á kenningar
stjörnuspádóma, hljóta hin ýmsu
starfssvið að eiga misvel við fólk
eftir því í hvaða stjörnumerki það er
fætt. Við gerðum því könnun á
þremur starfsstéttum, sem áttu það
sameiginlegt að vera nokkuð af-
markaðar og þar af leiðandi þægi-
legar til notkunar í þessum tilgangi.
Þetta voru bankastjórar, sjónvarps-
fréttamenn óg þingmenn.
Þar sem alþingismenn eru með
starfsvali sínu orðnir hálfgerð al-
menningseign, var það ofureinfalt
mál að komast að fæðingardögum
þeirra. Fréttamenn sjónvarps reynd-
ust heldur ekki erfið viðfangsefni
hvað slíka upplýsingaöflun varðar.
Málið fór hins vegar heldur en ekki
að þæfast, þegar röðin kom að því
að kanna fæðingardag bankastjór-
anna. Um þessa menn er greinilega
staðinn dyggilegur vörður og þótti
hinum tryggu bankastarfsmönnum
mörgum of langt gengið að ætlast til
þess að þeir létu frá sér fara jafn per-
sónulegar upplýsingar og fæðingar-
dag yfirmanna sinna. 1 sumum til-
vikum var engu líkara en blaðamað-
ur hefði beðið um númerið á ávís-
anahefti bankastjórans — svo við-
kvæmt virtist málið vera og svo al-
varlegum augum var það litið!
Alls könnuðum við fæðingardaga
sextán bankastjóra við aðalbank-
ana á höfuðborgarsvæðinu, en þeir
reyndust dreifast á tíu stjörnumerki.
Sú staðreynd gerir auðvitað allar
kenningasmíðar erfiðar. Tvö merki
skáru sig þó örlítið úr, þrír banka-
stjórar voru bæði í Bogmanninum
og Vatnsberanum.
Bogfimi í bönkum
Þegar flett er upp á kaflanum um
Bogmanninn í fyrrnefndu stjörnu-
spádómsriti, sést að það er greini-
lega ekki svo galið fyrir fólk í þessu
merki að velja sér bankastörf og
stjórnun að ævistarfi:
„Fólk sem fætt er undir þessu
merki er eftirtektarvert á margan
hátt. í fyrsta lagi veit það oftast að
hverju það keppir og með hvaða
móti, og nær í flestum tilfellum tak-
markinu. Er vanalega framsýnt, sér
# Bankastjórar gjarnan
Bogmenn eða
Vatnsberar
# Sjónvarpsfréttamenn
helst Ljón eða
Tvíburar
# Meirihluti þingmanna
í Voginni,
Krabbanum,
Sporðdrekanum og
Tvíburamerkinu
Ragnar Arnalds, þingmaður — „ráðgáta
fyrir sina bestu vini'?
og veit oft hvernig endirinn verður
í byrjuninni. Fari það eftir eigin hug-
boði verður það sigursælt; en fylgi
það ráðleggingum annarra þá mis-
takast tilraunir þess. Mjög er það
hneigt til verzlunar og heilsa þess
og hamingja er undir því komin að
það sé sístarfandi. Fátt af því er latt,
heldur þvert á móti; það vekur
undran og eftirtekt annarra með at-
orku sinni og dugnaði. Einn af þess
bestu kostum er sá, hve vel það ræk-
ir sinn eigin starfa en lætur aðra
afskiftalausa. Mjög varkárt með alt,
er það hefir með höndum og vill
ljúka einu verkinu áður en það byrj-
ar á hinum. Afkastar meiru í heim-
inum en nokkurt annað fólk og
ávinnur sér frægð og auð.
Að náttúrufari er það þrifið og
reglubundið og mjög gætið í pen-
ingasökum, sparsamt en ekki nískt
eða smásálarlegt. Oftast hefir það
peningaafl vegna þess, að það legg-
ur fyrir til morgundagsins. — Skilur
vel, að „vegur til auðlegðar er eins
auðfarinn og vegurinn til sölutorgs-
ins". Hann samanstendur af tveim
orðum: iðjusemi og sparsemi. Með
öðrum orðum: það eyðir hvorki
tíma né peningum en færir sér í nyt
hvorttveggja."
Þessi ummæli áttu við um Bog-
menn, en því merki tilheyra banka-
stjórarnir Bragi Hannesson (Iðn-
aðarb.), Stefán M. Gunnarsson (Al-
þýðub.) og Stefán Pálsson (Búnað-
arb.). Það voru hins vegar einnig
þrír bankastjórar fæddir í Vatns-
beramerkinu. Þeir eru Valur Vals-
son (Iðnaðarb.), Geir Magnússon
(Samvinnub.) og Baldvin Tryggva-
son (Sparisj. Rvk. og nágrennis).
Hvað skyldu fræðin hafa að segja
um eiginleika þessara manna?
Jóhanna Siguíðardóttir fyllir fjölmennan
flokk Voga á þingi.
Vatnsberandi
bankastjórar
„Hið sterkasta og veikasta fólk
heimsins er fætt undir þessu merki
og stykur þess og vanmáttur er al-
gjörlega í þess eigin valdi, af þeirri
ástæðu, að það getur gjört sig
hvernig sem því helzt líkar. — Unnið
getur það hin mestu og beztu af-
reksverk, ef það vill, en því getur
líka algjörlega misheppnast. Að
náttúrufari er það vel gefið og mörg-
um hæfileikum gætt, og er því ein-
göngu sjálfu að kenna ef það ekki
kemst áfram í lífinu. Það reiðir sig of
mikið á aðra en hefur ekki nógu
mikið traust á sjálfu sér. Einkenni-
leiki þess er, að það leitar ráða til
annarra en fylgir þeim svo ekki;
spyr spurninganna en gleymir strax
svörunum."
Ekki virðist þessi lýsing eiga vel
við þann, sem skipar bankastjóra-
stöðu — svo ekki sé meira sagt. Síð-
ar i kaflanum um Vatnsberana, birt-
ir hins vegar til:
„Ekki er auðvelt að draga (Vatns-
bera) á tálar, því töluverðir mann-
þekkjarar er (þetta fólk). Þá er það
dregið úr þessum letidvala er það
mjög iðjusamt og framkvæmda-
samt. Það þekkir vel hve sparsemin
er áreiðanleg og hve alvarleg at-
hygli er nauðsynleg við hvað sem er.
Það borgar jafnan fyrir sig en safnar
ekki skuldum; veit að skuldir vekja
freisting í huga einstaklingsins og
gjöra hann að slava. Skuldir eru
mesta bölvun mannkynsins."
Þar hafa skuldarar þessa lands
það á hreinu hvaða augum framan-
greindir bankastjórar líta á skulda-
söfnun.
Þess má síðan geta, að tveir
bankastjórar voru í Tvíburamerkinu
og tveir í Ljónsmerkinu. Einn
bankastjóri var í hverju hinna
merkjanna, þó var enginn af þess-
um 16 bankastjórum Steingeit og
enginn var Hrútur.
Næsti starfshópur, sem rannsak-
aður var með tilliti til stjörnu-
merkja, var hinn fríði flokkur frétta-
manna hjá sjónvarpinu. Þeir reynd-
ust vera fimmtán talsins og skiptast
á sjö stjörnumerki. Sem sagt, minni
dreifing en hjá bankastjórunum.
Hins vegar skar ekkert stjörnu-
merki sig úr svo áberandi væri, þó
þrír fréttamenn væru í Ljónsmerk-
Ingvi Hrafn Jónsson, yfirljón á fréttastofu
sjónvarps.
inu (Einar Örn Stefánsson, Ingvi
Hrafn Jónsson og Ólafur H. Torfa-
son) og þrír væru Tvíburar (Helgi E.
Helgason, Ólafur Sigurðsson og Páll
Magnússon.
Fréttamenn Ljón inn við
beinið
Um Ljónsmerkið má lesa eftirfar-
andi fróðleik:
„Að eðlisfari er (fólk í Ljónsmerk-
inu) tilfinninga-næmt, séð og aðlað-
andi; kemst vanalega gegnum lífið
með hægu móti. Skemtið í viðræð-
um, segir vel sögur og fljótt að sjá
hvað eina; vegna þessarra hæfileika
er eftir því sótt af öllum. Það hefur
heillavæn áhrif á aðra. Þegar eigin-
leiki þessa merkis stjórnar fólkinu
þá gjörir hann það velhugsandi, ein-
lægt, öruggt, hreinhjartað og ríku-
legt. Það rannsakar vel eðli hlut-
anna, er hagsýnt og innblæs öðrum
að gjöra gott."
Einar Órn, Ingvi Hrafn og Ólafur
H. ættu samt ekki að láta þessa lýs-
ingu stíga sér til höfuðs, því um þá er
líka sagt:
„Þó það sé fljótt að þekkja annað
fólk, er samt vissara að gjöra ekki
ágizkan of fljótt."
Svo mörg voru þau orð.
Fréttamenn í Tvíbura-
merkinu
Þá var athugað hvernig það færi
saman að vera fæddur í Tvíbura-
merkinu og stunda sjónvarpsfrétta-
mennsku:
„Undir öllum merkjum sólmerkja-
hringsins finst ekki fólk ástúðlegra,
greiðviknara, óeigingjarnara né
meir fyrir að leggja í sölurnar fyrir
aðra heldur en (fólk í Tvíburamerk-
inu). Hugmyndaafl þess er mikið og
finnur oft efni í góða leiki og skáld-
sögur. Alt fagurt í náttúrunni hrífur
tilfinningar þess, sérstaklega kven-
fólksins. Útskýringar og þrætur eru
árangurslausar við það."
Helgi, Ólafur og Páll ættu þó ekki
28 HELGARPÓSTURINN