Helgarpósturinn - 27.03.1986, Síða 31
FRÉTTAPÓSTUR
Gerðardómslög á mjólkurfræðinga
Stjórnarflokkarnir tóku sig til á mánudagskvöldið og sam-
þykktu gerðardómslög á Mjólkurfræðingafélag íslands og
brutu þannig á bak aftur verkfall mjólkurfræðinga sem var
nýhafið. Þingmenn Alþýðubandalags og Kvennalista
greiddu atkvæði á móti, en þingmenn Alþýðuflokks og
Bandalags jafnaðarmanna sátu hjá. Samkvæmt þessum lög-
um skal kjaradómur, tilnefndur af hæstarétti, ákvarða um
kaup og kjör mjólkurfræðinga fyrir 1. maí og leggja til
grundvallar gildandi samninga miðað við þær launa- og
kjarabreytingar sem almennt hefur samist um á vinnu-
markaðinum.
124 ákærðir í okurmálinu
Gefin hefur verið út ákæra á hendur Hermanni Björgvins-
syni og 123 öðrum einstaklingum í kjölfar rannsóknarinn-
ar á svokölluðu „okurmáli". Hermanni er gefið að sök að
hafa 1984—1985 veitt 35 aðilum peningalán og tekið tæp-
lega 21 milljón króna umfram lögleyfða vexti. Hinir 123
ákærðu veittu Hermanni peningalán og fengu í sinn hlut
tæplega 42 milljónir króna alls umfram lögleyfða vexti.
Samtals gera þetta rúmlega 62,2 milljónir króna. Ríkissak-
sóknaraembættið hefur neitað enn sem komið er að upplýsa
nöfn hinna 123 einstaklinga, en segir þá úr öllum stéttum
þjóðfélagsins. Er haft eftir Jónatan Sveinssyni, saksóknara
að óþarfi sé að auka á hrellingar þessa fólks! Flest málin
verða höfðuð fyrir Sakadómi Reykjavíkur eða 73, en 28 í
Hafnarfirði, Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi.
Trilla með tveimur sjómönnum ferst
Fimmtudagskvöldið 20. mars fórst trillan Sigurður Þórðar-
son GK-91 út af Seltjarnarnesi og með henni tveir sjómenn.
Þeir hétu Jóhann Sveinbjörn Hannesson, 29 ára Sandgerð-
ingur og Þorbjörn E. Friðriksson, 32 ára Keflvíkingur. Jó-
hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá syni, en Þorbjörn var
ógiftur og barnlaus.
Káðning forstöðumanns Dalbrautar veldur deilum
Margrét Einarsdóttir, sjúkraliði og varafulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn, hefur verið ráðin forstöðumaður
þjónustuíbúða aldraðra við Dalbraut. Ráðningin hefur
mælst illa fyrir meðal fulltrúa minnihlutans, sem taldi að
annar umsækjandi, Hrönn Jónsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur, væri mun hæfari til starfans, hefði meiri menntun og
reynslu. Taldi minnihlutinn að sú staðreynd, að gengið
hefði verið framhjá Hrönn sýndi, að hér væri augljóslega
um pólitíska veitingu að ræða.
Verkfall rafeindavirkja óleyst
Hvorki gengur né rekúr í verkfalli rafeindavirkja, er unnu
hjá Ríkisútvarpinu og Pósti & síma. Símkerfi landsmanna
er mjög úr skorðum og sömuleiðis dagskrá rikisfjölmiðl-
anna. Þannig urðu útsendingar aðeins annan hvern dag í
síðustu viku og engar útsendingar þriðjudag, miðvikudag
og fimmtudag í þessari viku. Eru eigendur myndbanda-
fyrirtækja að vonum himinlifandi, enda aðsókn í hámarki.
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, hefur látið svo um
mælt í utandagsskrárumræðum á þingi, að ekki komi til
greina að ræða við rafeindavirkja sem eru í ólöglegu verk-
falli — þeir verði fyrst að snúa sér að sinum fyrri störfum.
Engin hlutafjáraukning hjá Flugleiðum
Á aðalfundi Flugleiða var tillaga stjórnarinnar um þreföld-
un hlutafjár með útgáfu jöfnunarbréfa felld í síðustu viku.
Tillagan þurfti að fá 80% atkvæða, en hlaut 75,5% gegn
24,5% mótatkvæðum. Á móti þessu munu einkum hafa ver-
ið fyrrverandi flugmenn Loftleiða — hópur sem kallar sig
Orlofsdvöl og segir sagan að andstaðan hafi stafað af þvi að
Dagfinnur Stefánsson hafi ekki náð kjöri í stjórn. Stjórn-
endur Flugleiða voru afar óánægðir með þessa afgreiðslu.
Hlutafé Flugleiða er nú 35 milljónir króna og þreföldun
hefði því þýtt 105 milljónir.
Taprekstur hjá Eimskipafélaginu
Tap á rekstri Eimskipafélagsins árið 1985 varð 46,7 milljón-
ir króna. 1984 varð einnig tap á rekstrinum, upp á 57 millj-
ónir króna. Heildartekjur fyrirtækisins 1985 urðu 2.714
milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtækisins í
síðustu viku og kom enn fremur fram að 3% samdráttur
varð á flutningum fyrirtækisins, flutningsgjöld fóru lækk-
andi og verðfall varð á skipum. Þó varð umtalsverð aukning
í strandflutningum og þreföldun á flutningi fersks fisks.
Samþykkt var að tvöfalda hlutabréf fyrirtækisins með út-
gáfu jöfnunarbréfa og að greiða 10% arð.
• Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, vill leggja á
sérstakan eignaskattsauka á hátekjumenn til að fjármagna
lokaframkvæmdir við Þjóðarbókhlöðuna á næstu þremur
árum. Slíkur eignaskattsaulci er fyrir hendi, en rennur til
Byggingasjóðs rikisins.
• Samkvæmt skoðanakönnun Hagvangs er Alþýðubanda-
lagið í talsverðri sókn um þessar mundir, sérstaklega þó í
Reykjavik og meðal kvenna. Skoðanakönnunin bendir til
þess að ríkisstjórnin hafi verulega styrkt sig í kjölfar kjara-
samninganna, niðurstaðan varð sú að 63,7% þeirra sem af-
stöðu tóku styðja rikisstjórnina en 36,3% voru á móti
henni.
• Kvennaframboðið á Akureyri hefur ákveðið að bjóða ekki
f ram til bæ jarst jórnarkosninganna þar, telja ekki þörf á því,
meðal annars i ljósi þess hversu margar konur væru á list-
um annarra framboða.
• í vikunni voru þrír tæplega þríbugir menn dæmdir i
2—3ja ára fangelsi og fésektir fyrir tilraun til að smygla
hassi, amfetamíni og kókaini inn til landsins frá Hollandi
með Lagarfossi árið 1983.
• Látin er Sigriður Einarsdóttir, hjúkrunarkona, á 92. ald-
ursári. Hún var gift Finnboga Rúti Þorvaldssyni og dóttir
þeirra er Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands.
og venjulego
TmL^NARSS0I
0 MIÐNÆTURRVif)/
“ EDDA og JÚLIUS
skemmta matargestum
ALLT ER FERTUGUM FÆRT
\irnonleQO
botö
23335
ponV'ð
eoQ
23333
00
V7
s\tn°
óogo
SSSS>*S
«0
Starmýri 2
Ný verslun á gömlum
páska,\bg'
Lifandi páskaungar
til sýnis fyrir börnin
Hangikjöt úrbeinaður frampartur kr.
London lamb úrbeinaður frampartur kr.
Svali Ó Nautakjöt ö mjög lögu verði:
_ Hakk kr.
69 kr. 6 í pakka
Heildósir af niðursoðnum óvöxtum
innanlæri
#9 kr. Allir fó að smakka
Góður afsláttur á kókómjólk.
Allt svínakjöt á lágu verði.
Starmýrl 2
S.30420 - 30425
Opið 9.—18.30 miðvikudag
10—16 laugardag.
HELGARPÓSTURINN 31