Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 32
Wk að er ekki laust við, að menn
hafi brosað í kampinn yfir hræsn-
inni í Davíð Scheving Thorsteins-
syni, þegar hann lýsti yfir því, að
hann væri reiðubúinn til að lækka
vörur fyrirtækis síns ef raunvextir
yrðu lækkaðir. Þannig er nefniiega
mál með vexti, að Davíð er stjórnar-
formaður Iðnaðarbankans, sem
er stór eigandi í fyrirtækinu Glitnir
hf. ásamt norska fyrirtækinu Nevi
AS og Eddu Helgason, sem á fyrir-
tækið Sleipner í London. Fyrirtæki
þetta sérhæfir sig í svokallaðri fjár-
mögnunarleigu og einmitt þessa
dagana er fyrirtækið að bjóða út
100 milljónir í skuldabréfum með
sjálfskuldarábyrgð Iðnaðarbank-
ans. Meðalávöxtunarkrafa á íslensk-
um markaði er í kringum 10,5%,
ríkið býður 9%, en ávöxtunarkrafa
Glitnis, þ.e. Davíðs og félaga er 12%.
Þannig hefur Davíð tekið þátt í því
að hækka raunvexti um 1%, því ljóst
er, að önnur fyrirtæki verða að
fylgja í kjölfarið. í Morgunblaðinu á
þriðjudag snuprar Þorsteinn Páls-
son Davíð fyrir yfirlýsingu sína og
nefnir hana sósíalista (skammaryrði
hið versta í munni Þorsteins), en
Þorsteinn hefði gjarnan mátt minna
Davíð á bréfaútboð Glitnis hf. . .
I
■ síðasta blaði veltum við vöng-
um yfir því hvort verið gæti, að póli-
tísk tengsl hafi ráðið því, að Nói og
Síríus (Geir Hallgrímssonar-fjöl-
skyldan) hafi fengið leyfi til sölu á
sæigæti á Keflavíkurflugvelli. Þessu
neitar Kristinn Björnsson harð-
lega á ritstjórnarsíðu blaðsins í dag.
En rétt er, að fram komi, að vanga-
veltur af þessu tagi eru ofureðlileg-
ar. Skal nefnt dæmi: í fyrra var ætl-
unin að setja á stofn McDonald's
hamborgarastaði á Keflavíkurflug-
velli. En af því varð ekki. Og ástæð-
an? Jú, sterkur pólitískur stuðnings-
maður Matthíasar Á. Mathiesen
núverandi utanríkisráðherra rekur
veitingastað af sams konar gerð og
óttaðist samkeppnina. Hann mun
því hafa farið þess á leit við pólitíska
vini sína, þeirra á meðal Matthías,
að McDonald's fengi ekki að opna
hamborgarastað á Vellinum og það
tókst. Þannig getur pólitík spilað inn
í svona mál hvað svo sem gerðist í
Nóa og Síríus dæminu. . .
lEins og menn hafa séð í blöð-
um keppast menn um að eigna sér
nýgerða samninga. Allt byrjaði
þetta með því, að stjórnarandstaðan
fór að tala um Garðastrætissamn-
ingana (þar sem VSÍ hefur aðsetur).
Steingrímur Hermannsson fór þá
upp á þing og kvaðst hafa átt frum-
kvæðið. Þessu reiddist Guðmund-
ur Jaki og talað var um pólitískan
áróður. Síðan gerist það, að Morgun-
blaðið eignar samningana Þor-
steini Pálssyni fjármálaráðherra
og Ásmundi Stefánssyni forseta
ASÍ hugmyndina að samningunum.
Síðasta útspilið í þessari keppni eru
ummæli Jóns Sigurðssonar þjóð-
hagsstofnunarstjóra, sem hefur
staðhæft í margra manna viðurvist,
að hugmyndin sé upphaflega komin
frá „litla bróður", Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaga. Hvað skyldi
koma næst?...
A
dögunum fór fram svokall-
að forval hjá Alþýðubandalaginu á
Akureyri. í fyrsta sæti lenti Sigríð-
ur Stefánsdóttir bæjarfulltrúi
flokksins, en í öðru sæti lenti ungur
heimspekingur, Þröstur Ás-
mundsson. En þessi úrslit voru
flokkseigendunum fyrir norðan
ekki að skapi og því var Þresti hent
neðarlega á listann og í hans stað
valinn verkalýðsskrifstofumaður,
Heimir Ingimarsson. Velta menn
nú vöngum yfir því hvers vegna Ak-
ureyrarallaballar hafi yfirleitt verið
að efna til forvals...
| Framsóknarflokknum eru uppi
miklar áhyggjur um framtíð flokks-
ins. Einkum er það unga fólkið og
kvenfólkið, sem hugsar um þessi
mál. Þó eru þrír þingmenn sem hafa
lýst áhyggjum sínum og eru það þeir
Steingrímur Hermannsson for-
maður, Halldór Ásgrímsson og
LAUGARDAG KL. 7-16
Laugalæk 2 — S: 686511
Guðmundur Bjarnason. Það er
vilji þessara manna að efla flokkinn
í þéttbýli, því ella gæti flokkurinn
dáið. Haraldur Olafsson fram-
sóknarþingmaður Reykvíkinga er
þessu að sjálfsögðu sammála, en
hann er sjaldnast talinn með þunga-
vigtarmönnum, þegar þessi mál ber
á góma. Vandi Framsóknarflokksins
er fólginn í afstöðu hinna 10 þing-
manna flokksins, sem allir eru dreif-
býlisþingmenn og vilja efla flokkinn
úti á landi á sama tíma og hann er
að deyja í þéttbýli. Til marks um
slappleikann í þéttbýlinu er gjarnan
bent á Reykjavíkurlistann fyrir
kosningarnar í vor. Þar er í efsta
sæti tiltölulega óþekkt kona Sigrún
Magnúsdóttir og í öðru sæti
Alfreð Þorsteinsson hjá Sölu-
nefnd varnarliðseigna, en hann
mun ekki vera vinsælasti maður á
þessari jörðu...
Þ
að hittist vel á fyrir Ómar
Ragnarsson, að engin útsending
verður hjá sjónvarpinu í kvöld, mið-
vikudag. Hann var nefnilega fyrir
löngu búinn að lofa að skemmta á
þorrablóti íslendinga, sem búsettir
eru í Kaliforníu, og þar er hann nú.
Til stóð að senda þáttinn út án Óm-
ars. Af Ómari er það annars að
frétta, að hann verður ekki með í
Sumargleðinni í sumar, eins og
mörg undanfarin sumur og verður
þetta í fyrsta skiptið, sem þessi vin-
sæli skemmtikraftur og sjónvarps-
maður fer í frí frá því árið 1959...
daginn, að bóndi einn við Eyjafjörð
hefði keypt upp heila sýningu á
Silfurtúnglinu til þess að tryggja,
að leikstjóri leikhóps á Grenivík
gæti verið viðstödd frumsýningu á
verki, sem hún hafði unnið að og
ekki síður til þess, að hún kæmist í
frumsýningarpartíið á eftir. Hér var
á ferðinni Sigurður Þórisson,
bóndi í Hléskógum og hefur HP
fregnað, að Sigurður hafi gengið í
digran sjóð, sem hann hefur safnað
sér til þess að komast í langa og
góða reisu til Kanaríeyja. Það eru
víst lítil takmörk fyrir því hvað
menn leggja á sig í þágu leiklistar-
gyðjunnar. . .
V,
ið skýrðum frá því um dag-
inn, að meðeigendur Tomma í
Tommahamborgurum væru allir
hættir að reka veitingastaðinn
Sprengisand með honum. Raunar
eiga þeir Úlfar Eysteinsson,
Sverrir Hermannsson og Ásgeir
Hannes Eiríksson pulsusali á
hættu að missa allar eignir sínar
vegna rekstrarörðugleika Sprengi-
sands. Kostnaður við staðinn mun
hafa verið um 50 milljónir króna og
að því er við höfum heyrt er fjár-
magnskostnaðurinn á mánuði 1700
þúsund krónur og reksturinn mun
víst ekki standa undir þessum út-
gjöldum einum. En okkur skilst jafn-
framt, að Tommi hafi með aðstoð
lögfræðings fengið niðurfelld opin-
ber gjöld...
l^^ikill hiti hljóp í Arnar-
flugsmenn vegna ummæla Sigurð-
ar Helgasonar stjórnarformanns
Flugleiða í þá veru, að Arnarflug
hefði verið illa rekið. í sömu ræðu
sagði Sigurður fleira. Meðal annars
vék hann að verkfalli flugfreyja fyrr
í vetur og taldi hann það hafa verið
ósæmilegt. Mun flugfreyjum vera
heitt í hamsi yfir þessum orðum þótt
ekki hafi þær rekið upp ramakvein
eins og Arnarflugsmenn...
s
jónvarpið sagði frá því um
\FRÐG4SLA
-góð vöm gegn
vetðhækkunum
VERÐIAGSSTOFNUN
32 HELGARPÓSTURINN