Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 8
AIDS-UMRÆÐAN HÆPIÐ AÐ TALA UM ÁHÆTTUHÓPA SEGIR ÓLAFUR ÓLAFSSON LANDLÆKNIR UM ÚTBREIÐSLU AIDS að fara í mótefnamælingu, allir þessir menn sem fara með samkyn- hneigð sína eins og mannsmorð og láta sér kannski nægja að keyra um Öskjuhlíðina í ieit að skyndikynn- um. Svo er það þetta með tvíkyn- hneigðina, karlmenn sem telja sig hrífast af báðum kynjum. Það er eins og þetta komi í bylgjum. Reynsla mín segir mér að talsvert margir unglingsstrákar í dag sofi hjá einstaklingum af báðum kynjum. Þeir hafa svo fleiri möguleika á að sofa hjá heldur en t.d. giftu laumu- hommarnir. En báðir hóparnir eru líklegir til að bera út smit.“ — Hvaö fleira finnst þér ámœlis- vert í málflutningi lœknanna? „Til dæmis þetta stöðuga tal þeirra um fjöllyndi. Nú síðast hamr- ar Haraldur Briem á því í viðtali við Heimsmynd. Hann segir réttilega að líkurnar á smiti séu alveg í hlut- falli við fjölda rekkjunauta. En svo segir hann orðrétt: „En ég ætla að menn þurfi að vera býsna fjöllyndir til þess að smitast.“ Þetta er ekki rétt. Menn geta líka verið óheppnir. Ekki var fjöllyndinu til að dreifa í mínu tilfelli. Læknum hlýtur aftur á móti að bera skylda til að greina fólki frá aðferðum til varnar smiti. Það er í sjálfu sér hægt að stunda öruggt kynlíf þótt menn séu „fjöl- lyndir“ í ástamálum." SMITIÐ LEGGST EKKI Á SÁLINA — Hvaöa augum líturðu framtíð- ina? „Ég er frekar jákvæður. Smitið leggst ekki á sálina í mér. Ég vil ekki gera það að mínu daglega brauði að velta mér upp úr þessu. Þá yrði ég andiega veikur. Þá berst ég frekar fyrir lífi mínu eins og ég hef vanist. Ég held að þeir sem eru smitaðir geti lengt mjög lífslíkur sínar með heilbrigðum lífsmáta. Þar að auki hef ég þá trú að iyf við sjúkdómnum eigi eftir að koma á markaðinn innan örfárra ára. Það hlýtur að vera metnaður lyfjafyrir- tækjanna að verða fyrst til að hljóta þann titil, að öllum mannúðarsjón- armiðum slepptum. Svo trúi ég líka á þann mátt sem fylgir því að samræma andlega og líkamlega krafta sína.“ -JS Hingað til hefur umrœðan um AIDS hér á landi einkum einkennst af fjórum atriðum. Fyrst var sjúk- dómnum slegið upp í œsifyrirsögn- um blaðanna sem ,,plágunni miklu", „svarta dauða nútímans“ ,,drepsótt meðal kynvillinga". Síðan var tekið til við að íslenska heiti hans en það hefur ekki borið árang- ur sem skyldi. Þá reyndi heilbrigðis- ráðherra að koma yfir hann lögum með því að flokka hann undir kyn- sjákdóm meö tilheyrandi skráning- arskyldu og refsiákvœöum. Það náði ekki fram að ganga á Alþingi. Þar við bœtist að með nokkuð reglu- legu millibili birtast viðtöl við smit- sjúkdómalœkna og ónœmisfrœö- inga sem œvinlega eru tilbúnir með nýjustu tölur smitaöra innan lands og utan, innan hinna svokölluðu áhœttuhópa, þ.e. homma, eiturlyfja- neytenda og dreyrasjúklinga. Þeir hafa verið óþreytandi við að vara við lauslœti og fjöllyndi sem þeir virðast telja að eigi hvað mestan þátt í útbreiðslu AIDS-veirunnar, og að hvetja fólk innan áhœttuhóp- anna til að koma í mótefnapróf svo hœgt verði að spá fyrir um fram- vindu sjúkdómsins. Og þegar DV spyr: Ertu hræddur við að fá AIDS? svara auðvitað aliir sakleysið uppmálað: Nei. Ég er ekki í neinum áhættuhópi. Víða hittir maður þá skoðun fyrir í ræðu og riti að AIDS sé eins konar refsivöndur á óæskilega einstaklinga. Allir hinir geti verið stikkfrí. Líka stjórnvöld sem á síðasta ári vörðu einungis 200 þúsundum króna til forvarnarstarfs, til uppiýsingar um hvernig megi hefta útbreiðslu AIDS, en það er í verkahring landlæknisembættisins að sjá almenningi fyrir slíkri fræðslu. Fyrir skömmu sótti Olafur Olafs- son landlæknir um 2 'h milljón króna aukafjárveitingu til að hrinda í framkvæmd forvarnaráætlun sem hann hefur verið að skipuleggja undanfarin misseri. Sú fjárveiting var veitt síðastliðinn þriðjudag. Kvöldið áður kom landlæknir fram í viðtali í fréttatíma sjónvarps með nýjar upplýsingar um útbreiðslu sjúkdómsins hérlendis og erlendis sem áreiðanlega hafa skotið mörg- um skelk í bringu. Þar tók Ólafur m.a. undir nýlegar yfirlýsingar er- lendra lækna þess efnis að í raun sé talsvert hæpið að tala um afmark- aða áhættuhópa í sambandi við AIDS, því smitaður maður úr áhættuhópi smitar annan sem er ekki í áhættuhópi og þannig koll af kolli. I þessu sambandi nefndi hann að AIDS-veiran hefði nýlega mælst í blóði karls og konu sem bæði eru eiturlyfjaneytendur og hafa þau að öllum líkindum smitað alímarga einstaklinga, og það ungt fólk sem ekki verður flokkað undir áhættu- hópa. I þessari umfjöllun er ætlunin að gefa smitsjúkdómalæknunum og ónæmissérfræðingunum frí en grennslast þess í stað fyrir um hvers eðlis það forvarnarstarf er sem heii- brigðisyfirvöld hafa á prjónunum í samráði við farsóttanefnd ríkisins. Auk þess verður rætt við þá Böðvar Björnsson og Þorvald Kristinsson fulltrúa Samtakanna '78 sem mjög eru viðriðin baráttuna gegn þessum skaðvænlega sjúkdómi, en hafa fengið fá tækifæri til að koma sjón- armiðum sínum á framfæri í fjöl- miðlum. Þeir hafa í félagi við aðra unnið þarft upplýsingastarf innan sinna samtaka og eru nú að leggja drög að bæklingi um öruggt kynlíf í samvinnu við landlæknisembættið. Þá fylgir þessari umfjöllun ítarlegt viðtal við ungan íslending sem er smitaður af AIDS, en hann upplýsir ýmislegt forvitnilegt um hina félags- legu hlið sjúkdómsins sem nánast ekkert hefur verið fjallað um í fjöl- miðlum hérlendis. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði í samtali við blaðið að þessa dagana væri embættið að fara út í mikla upplýsingaherferð í skólum og jafn- vel á vinnustöðum úti um landið. Ólafur Ólafsson landlæknir skipuleggur nú áróðursherferð f skólum: „Það verður að hefjast handa strax." Strax á næstu dögum muni læknar og læknanemar leggja leið sína í skóla á Reykjavíkursvæðinu til að leggja áherslu á það við unga fólkið að full ástæða sé til þess að það fari að ugga að sér í kynferðismálum. „Unga fólkið álítur nefnilega að ef það tilheyri ekki áhættuhópunum, hommum og eiturlyfjaneytendum, sé allt í lagi,“ sagði Olafur. „En það verður að gá að því að ef það hefur haft náin mök við einhvern sem hef- ur svo aftur haft náin mök við eitur- lyfjaneytanda sem er smitaður af ÁIDS, þó að liðin séu eitt, tvö eða þrjú ár, þá er viðkomandi í mikilli hættu. 1 ljósi þessa verður ungt fólk að endurskoða kynlífshegðun sína, að horfast í augu við að skyndi- kynni geta verið hættuleg ef maður hefur ekki nákvæma vitneskju um hvernig sá maður sem maður hefur náin kynni við hefur hagað sér í kynlífi sínu.“ Þá sagði Ólafur að reynsla Banda- ríkjamanna og Skandínava sýndi að þeir sem ættu ríkastan þátt í að dreifa AIDS-veirunni út fyrir áhættuhópana væru eiturlyfjaneyt- endur og þeir sem þeim tengjast. í þessu sambandi vildi hann líka benda á að yfirlýstir hommar hefðu margir hverjir breytt kynlífshegðan sinni með tilliti til smithættu. „En það sem við höfum þyngstar áhyggjur af núna er að allt bendir til þess að karl og kona sem eru smituð hafi haft náin kynni af allmörgum einstaklingum og þar af leiðandi náð að dreifa sjúkdómnum og þá jafnframt aðrir sem ekki vita að þeir eru smitberar. Þegar þú hittir huggulegan strák eða stúlku á dans- leik þá ber viðkomandi það auðvit- að ekki utan á sér að hann eða hún hafi verið í nánum kynnum við smitaðan eiturlyfjaneytanda fyrir tveimur árum eða svo,“ sagði Ólafur. Þá sagði hann að fjárskortur hefði staðið upplýsingastarfi embættisins nokkuð fyrir þrifum: „Nú hefur Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- ráðherra náð í 2'A milljón króna fjárveitingu sem mun nægja til að hrinda í framkvæmd þeirri áróðurs- herferð sem við höfum á prjónun- um og ég treysti því að meira fé komi síðar. Nauðsynlegt er að verja mun meira fé til forvarnarstarfs en gert hefur verið. Aðrar þjóðir verja tugum milljóna í þessu skyni. Þess má geta að það kostar um það bil eina og hálfa milljón króna að ann- ast AIDS-sjúkling á sjúkrahúsi í eitt ár. Því tel ég það rétta pólitík að verja nokkrum milljónum króna til forvarnarstarfs. Það verður að hefj- ast handa strax ef við á annað borð eigum að fá einhverju áorkað gegn þessum sjúkdómi. Við getum gert tvennt: reynt að hindra að fólk smit- ist og reynt að koma í veg fyrir að hinir smituðu dreifi smitinu." Ólafur telur t.d. að mjög brýnt sé að auka útbreiðslu á notkun smokka. „Ég hef m.a. brugðið á það ráð að tala við forstjóra stórmarkað- anna og þeir hafa tekið mjög vel í að selja smokka í verslunum sínum. Þá þyrfti líka að selja í sjálfsölum og víðar. Ég segi enn og aftur: Verjan er okkar vörn,“ sagði Ólafur Ólafsson landlæknir. ÞORVALDUR KRISTINSSON OG BÖÐVAR BJÖRNSSON: VERÐUM AÐ NÁ TIL LAUMUHOMMANNA Þeir Þorvaldur Kristinsson og Böðvar Björnsson sögðust fagna fjárveitingunni til landlæknisemb- ættisins en töldu að miklu meira fé þurfi að koma til. Fram að þessu hafi embættið lagt höfuðáherslu á hina læknisfræðilegu hlið málsins, á ráð- leggingar til heilbrigðisstéttanna. Aðeins einn bæklingur hafi verið gefinn út um AIDS til handa al- menningi og sé sá bæklingur tals- vert villandi. Þar sé til dæmis hvorki minnst á homma né forvarnarstarf. „Landlæknisembættið hefur að vísu sofið of lengi á verðinum," sögðu þeir Böðvar og Þorvaldur. „En þar er nú unnið við óbærilegar aðstæður sökum fjárskorts. En það vantar ekki að landlæknir er allur af vilja gerður og skilur mannlega þáttinn í hlutunum. Við í Samtökunum ’78 teljum brýnast að efnt verði til öflugrar upplýsingaherferðar tafarlaust. Með fræðslu um eiginlegar smitleið- ir AIDS og um það hvernig hægt er að lifa kynlífi án smithættu er hægt að stuðla að þjóðarvakningu í þess- um efnum. Fámennið hérlendis ger- ir það að verkum að upplýsinga- streymi er mjög greitt og því gætum við öðlast algjöra sérstöðu í þessum efnum.” Þorvaldur og Böðvar telja sam- starf Samtakanna '78 og landlækn- isembættisins mjög brýnt. Það sé nú einu sinni svo að meirihluti homma sé ósýnilegur. Einungis 100—200 hommar þekkja til umræðunnar um öruggt kynlíf sem Samtökin hafa vakið og séu þeir á varðbergi gagn- vart smitleiðum AIDS. „Það er gjörsamlega óréttlætan- legt að tala um homma sem ein- hverja fasta stærð, að þeir séu t.d. 5% karlmanna eins og Haraldur Briem heldur fram í viðtali í síðustu Heimsmynd,“ segir Böðvar. „Kinsey- skýrslurnar sýna að hátt í helming- ur allra karlmanna hefur einhvers konar mök við aðra karlmenn ein- hvern tíma ævinnar. Þetta eru upp til hópa karlmenn sem myndu aldrei kalla sig homma og eiga það eitt sameiginlegt að sofa stundum hjá öðrum karlmönnum. Það gefur auga leið að við sem höfum staðið framarlega í félagslífi þessa minnihlutahóps í svona iitlu samfélagi þekkjum persónulega til einstaklinga og félagslegra að- stæðna sem opinberir starfsmenn landlæknisembættisins gætu ekki kynnt sér jafnvel þótt þeir væru allir af vilja gerðir.” „Því teljum við að efla þurfi Sam- tökin sem upplýsingamiðstöð," heldur Þorvaldur áfram. „En eins og búið er að okkur komumst við ekki þl að þjóna þessum tilgangi. Við erum m.a.s. í upplýsingabanni í sumum fjölmiðlum. Víða um heim hafa yfirvöld talað um hversu mikil guðsblessun það sé að til skuli vera samtök samkynhneigðra sem geti verkað sem upplýsingamiðstöðvar. Ef AIDS hefði komið upp um 1960 þegar ekkert opinbert samskiptanet samkynhneigðra var til hefðu heil- brigðisyfirvöld staðið gjörsamlega ráðþrota í upplýsingastarfi sínu." Þá er það annað áhyggjuefni Sam- takanna hversu lítið er gert fyrir smitaða menn og sjúka, að þeim sé ekki veitt nægileg geðræn og félags- leg aðstoð. Þeir Þorvaldur og Böðv- ar segjast horfa upp á smitaða menn sem ættu að gæta sín í lifnaðarhátt- um leggjast í þunglyndi eða drykkju, flosna upp úr vinnu í ör- væntingu. Þeir álíta að stór hluti for- varnarstarfs fyrir þennan hóp hljóti að þurfa að felast í andlegri um- hyggju. „Svo virðast læknarnir furðu lostnir yfir því hvers vegna hommar skili sér ekki í móteínapróf,” segir Þorvaldur. „Á Islandi er almennt lögð áhersla á að við séum í felum. Þá skýtur býsna skökku við að við skulum eiga að koma úr felum til að fara í AIDS-próf og fara svo sam- stundis í felur aftur. Við erum ein- ungis spennandi fyrir kerfið ef við verðum forvitnilegir sem læknis- fræðileg fyrirbæri, síðan eigum við helst að vera ósýnilegir sem félags- verur.” Þá segja þeir að auðvitað hafi til- koma AIDS verið mikið áfall fyrir ung samtök minnihlutahóps sem berðist fyrir tilverurétti sínum. Þau séu núna fyrst að rétta úr kútnum eftir áfallið. „Við höfum tileinkað okkur ákveðið raunsæi. Við vitum um hvað sjúkdómurinn snýst og hvað við getum gert til að halda honum í skefjum. Það er ákveðinn ávinning- ur. En þó að við höfum náð tökum á ótta okkar jafngildir það ekki ábyrgðarleysi. Þegar maður hefur yfirunnið ótta sinn getur maður fyrst farið að taka ábyrgð á hlutun- um," sögðu Þorvaldur Kristinsson og Böðvar Björnsson að lokum. Af framansögðu er ljóst að enginn getur lengur firrt sig ábyrgð, hvorki persónulega né þjóðfélagslega, þeg- ar AIDS-veiran á í hlut. Landlæknir sker upp herör og ítrekar að óábyrgt sé að tala um áhættuhópa, ungt fólk sem ekki uggir að sér getur smitast í stórum stíl. En þótt rétt sé að mannkynið allt sé í hættu megum við ekki horfa fram hjá þeirri stað- reynd að meirihluti þeirra sem eru alvarlega sjúkir og dauðvona sem stendur eru hommar, og samfélagið hefur nákvæmlega sömu ábyrgð gagnvart þeim og öðrum þegnum sínum. í því sambandi er glæpur að líta á þá sem annars flokks þegna. Nú vaknar sú spurning hvort ís- lensk heilbrigðisyfirvöld ætla að bíða eftir því að frjáls félagasamtök á borð við Lions og Kiwanis, sem mjög hafa beitt sér í hvers kyns heil- brigðis- og mannúðarmálum, taki upp hjá sjálfum sér að safna fé með- al almennings til varnaðaraðgerða gegn AIDS-skaðvaldinum, eða hvort þeim rennur blóðið til skyld- unnar og veita rausnarlega af fé skattborgara í þessu skyni. Nýverið ákvað norska ríkisstjórnin t.d. að veita sem svarar 450 milljónum ís- lenskra króna til baráttunnar gegn AIDS. „Hommar þykja einungis forvitnilegir sem læknisfræðileg fyrirbæri," segja þeir Þor- valdur og Böðvar. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.