Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 34
að biðu þess eins að verða rifin af borginni. Ég talaði því næst við Davíð sem gaf okkur loks góðfús- legt leyfi til að nota þessa aðstöðu út ieikárið." — Býstu viö frekari afnotum Leik- félagsins af Skemmunni? „Ef þetta lukkast hjá okkur með Djöflaeyjuna þá held ég að næsti vetur geti alveg verið til umræðu af hálfu borgaryfirvalda, enda skilst mér að langt sé í land að skipulag liggi fyrir á þessu svæði. Svo eru líka þrjú ár í Borgarleikhúsið okkar.“ Húsrýmið sem Leikfélagið fær með þessum afnotum af Skemm- unni vestur á Granda er um það bil þrefalt á við það sem félagið hefur haft í Iðnó. Fyrir utan mjög stóran sal, þar sem leiksviði og áhorfenda- pöllum verður komið fyrir, eru ýmis hliðarherbergi fólgin í leigunni, svo og gamalt mötuneyti starfsmanna BÚR til hliðar við Skemmuna. Þar eru núna geymdir búningar L.R. eft- ir bruna gamla iðnskólahússins, en þegar kemur að frumsýningu Djöflaeyjunnar verður farið að mat- ast þar aftur, því hugmyndin er að innrétta það upp á nýtt sem veit- ingasal þessa útibús Iðnómanna í vesturbæ. Þessa dagana standa yfir gagn- gerar endurbætur á húsakynnun- um. Og það er ekki einasta að fag- lærðir smiðir bregði fyrir sig hamri og sög við breytinguna á þessu gamla fiskverkunarhúsi yfir í leik- hús, því þeir leikarar sem taka þátt í uppfærslu L.R. á Djöflaeyjunni eru sjálfir komnir á bólakaf í nagl- hreinsunina eins og myndirnar hér á síðunni bera með sér. Líka Kjart- an, sem er að sjá þennan ljúfa draum sinn rætast. -SER. Edda Heiðrún Backman handlangar létti- lega eina fjölina sem hún leikur svo á þeg- ar fram l(ða stundir. 150 ár eru liðin frá komu Gai- mards, Mayers og fleiri franskra leiðangursmanna til fslands sumar- ið 1836. Menningarsjódur hefur þegar greint frá ferðum Gaimard með veglegum hætti. Og nú ræðst Örn og Örlygur í annað eins stór- virki; útgáfu á íslandsmyndum Mayers. Þær verða í lit og með hverri þeirra fylgir texti Árna Björnssonar þjóðháttafræðings og Asgeirs S. Björnssonar lektors. Bók- in verður um 260 blaðsíður í allstóru broti; „eigulega bókin í ár“, að sögn þeirra sem skoðað hafa prófarkir. RUBEN sænski trúðurinn, hefur gert víðreist um landsbyggðina að undanförnu við miklar vinsældir. Hann gerir fleira en að skemmta áhorfendum með sprelíi, því fyrir tíu árum setti hann á laggirnar sirk- usskóla, sem að sjálfsögðu er far- andskóli, og það er ekki síst sakir hans sem Ruben hefur náð til fólks- ins í hverju bæjarfélaginu af öðru sem hann hefur heimsótt um landið á síðustu sjö vikum. Ferð trúðsins, sem nú nálgast höfuðborgarsvæðið, er skipulögð í samráði við Bandalag íslenskra leikfélaga og 23 áhuga- leikfélaga á landinu. Og svo þetta: Þótt Ruben sé ungur að árum, 38 ára, hefur hann starfað í 15 ár sem trúður og m.a. hlotið titilinn heið- urstrúður við sirkusskólann í Moskvu, sá eini til þessa til að bera þann titil. Það er því enginn aukvisi sem manni stendur til boða við kennslu í kúnstum og allavega upp- átækjum. NIELS Hafstein er nú farinn ofan af veggjum Nýlistasafnsins við Vatnsstíg þar sem hann sýndi at- hyglisverð fjarvíddarverk. Þau Guð- rún Hrönn Ragnarsdóttir og Guðjón Ketilsson taka við salnum með sitt- hvora einkasýninguna. Guðrún Hrönn sýnir málverk, teikningar og skúlptúra á efri hæðinni en Guðjón málverk niðri. Þau útskrifuðust úr Nýlistadeild MHÍ árið 1978 og í framhaldi af því stundaði hún nám í HoUandi, en hann í Kanada. GALLERÍ Hallgerður býður upp á myndvefnað og collage Ásu Ólafsdóttur frá laugardegi: Að sögn Ásu frekar hefðbundinn myndvefn- að, en symbólskra collage-verka í pappírs- og textílblöndu. Leikhópur Leikfélags Reykjavíkur, sem setur upp Djöflaeyjuna vesturfrá, (besta smfðaskapi í byrjun nóvember, tveimur mánuð- um fyrir frumsýningu. Fremstir eru Þór Túlinfus, Helgi Björnsson og Kristján Franklln Magnúss, en fyrir aftan þá standa Guð- mundur Ólafsson, Kjartan Ragnarsson leikstjóri, Guðmundur F’álsson, Edda Heiðrún Backman og Hanna María Karlsdóttir. Margrét Olafsdóttir leikur einnig f verkinu, en myndaðist ekki daginn sem Jim Smart var á vappi um Skemmuna. Leikfélag Reykjavíkur smíðar leikhús vestur í Bráðræðisholti: ENDURHÆFINGARBÚÐIR segir Kjartan Ragnarsson um gamla fiskverkunarskemmu BÚR þar sem leikgerð hans á Djöflaeyju Einars Kárasonar verður færð upp Leikfélag Reykjavíkur hefur flutt vestur í bœ með eitt verkefna yfir- standandi leikárs. Það hefur fertgið afnot af gömlum skemmum BÚR á Bráðrœðisholti sem bíða niðurrifs þegar nýtt skipulag fyrir svœðið liggur fyrir. Leikgerð Kjartans Ragn- arssonar á Djöflaeyju Einars Kára- sonar veröur sett upp í þessu óvana- lega rými, frá bœjardyrum Iðnó- manna séð. Kjartan segist vera búinn að vera að leita að hráu húsnæði fyrir þessa ieikgerðsína lengi. Hann vann hana upprunalega fyrir þriðja árs nema Leiklistarskóla íslands í fyrra, en fannst ótækt að nýta hana ekki meira en sem námsefni í dramatúrg- íu. Honum kom fyrst til hugar að færa verkið upp á eigin vegum og fá til þess frjálsan leikhóp; þreyttur á skókassanum við Vonarstræti: „Ég er nú alla jafna feiminn við að tala illa um Iðnó, en jú; það er komið óskaplegt óþol í mann með þetta þrönga pláss sem þar er til staðar. Mér finnst orðið mjög brýnt að reyna fyrir mér í öðru rými, sem væri þó ekki annað en aðlögun að því sem bráðum verður: Leikfélag Reykjavíkur á fyrir höndum að stjórna þúsund tonna skipi en rær bara á árabáti fram að þeim tíma. Þetta pláss hérna í Bráðræðisholt- inu er allt öðruvísi og meira en í Iðnó. Það reynir á mannskapinn á allt annan hátt en litla sviðið okkar niðurfrá. Þetta geta því talist vera nokkurskonar endurhæfingarbúðir fyrir okkur.“ — Hvernig dastu akkúrat niöur á þetta húsnœði? „Eins og fyrr sagði leitaði ég í fyrstu að húsnæði sem mér fannst geta hentað því andrúmi sem ein- kennir sögur Einars sem leikgerðin byggist á, en það eru báðar bæk- urnar; Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan, sem kom út í fyrra. í leit að bröggum bankaði ég meðal ann- ars upp hjá Brynjólfi Bjarnasyni forstjóra Granda og hann benti mér á þessi fyrrverandi húsakynni BÚR á Bráðræðisholtinu sem hann taldi Hanna Marfa Karlsdóttir (þann mund að dúndra nagla úr fjöl, einbeitt að vanda. Séö yfir þann hluta Skemmunnar vestur f Bráðræðisholti þar sem leikið verður frammi Kjartan Ragnarsson leggur á ráöin um nýtingu skemmunnar með smiðum á staðnum. fyrir áhorfendum. Leiksviðið verður nær en áhorfendapallar fjær. Hugmynd Kjartans er að hrátt yfirbragð og andrúm þessa pláss fái haldiö sér f endanlegri umgjörð sýningar- innar. 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.