Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 40
INNLEND YFIRSÝN
Peningar og pólitík
Yfirlýsing Stefáns Ben. um að hann fari ekki í framboð, — viðurkenn-
ing eða móralskur sigur? Illskiljanleg afglöp. Upphrópunarmerki við
þrot og uppgjöf BJ. Rebbarnir fljótir að gleyma.
Stefán Benediktsson alþingismaður hefur
tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til fram-
boðs fyrir Alþýðuflokkinn við næstu alþing-
iskosningar. Yfirlýsingin kom í kjölfar fréttar
á Stöð 2 um ásakanir um að Stefán hefði mis-
notað aðstöðu sína með því að fá að láni með
frjálslegum hætti fé úr sjóðum Bandalags
jafnaðarmanna.
í fréttinni sagði að Stefán hefði á sínum
tíma fengið 200 þúsund króna lán, en það
greitt síðar með tilfæringum. Þá var sagt, að
Stefán hefði skrifað út tvær ávísanir af hefti
BJ að upphæð 50 þúsund hvora. Svo var að
skilja á fréttinni, að Stefán hefði rifið öftustu
eyðublöð heftisins út og notað féð í eigin
þágu. Stefán segir hins vegar að á árinu 1984
hafi hann fengið 110 þúsund krónur af sér-
fræðistyrk þingmanna að láni til að standa
straum af kostnaði vegna ferðalaga um land-
ið og einnig að hann hafi fengið 200 þúsund
króna lán í stuttan tíma hjá BJ meðan hann
beið eftir bankaláni um áramót 1984/85.
Að sjálfsögðu er erfitt að henda reiður á
þessum upplýsingum en hitt er ljóst að
stjórnmálamenn eru undir sérstökum þrýst-
ingi þarsem fjármál eru annars vegar. Þing-
flokkur BJ var fjármagnaður með svipuðum
hætti og aðrir stjórnmálaflokkar. A árinu
1984 fékk BJ tæplega 1,6 milljónir í útgáfu-
styrk og sérfræðiaðstoð en meint fé „velunn-
ara“ var á því ári ekki annað en rúmlega 30
þúsund króna hagnaður af barmmerkjasölu
samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum HP.
En kannast Garðar Sverrisson starfsmaður
BJ árið 1984 við meint misferli Stefáns
Benediktssonar?
„Það er rétt að árið 1984 voru fjármál
þingflokksins hluti af mínu starfi. Hér er þó
ekki um að ræða nema hluta þess tímabils,
sem nefnt er í þessu máli. Þess vegna m.a.
get ég hvorki né vil tjá mig um það, a.m.k.
ekki einsog það horfir við á þessari stundu.
Þó finnst mér nauðsynlegt að taka skýrt
fram, að Stefán hefur aldrei gert minnstu til-
raun til að eigna sér fé úr sjóðum BJ,“ sagði
Garðar Sverrisson en þegar HP leitaði frek-
ari svara kvaðst Garðar engu hafa við mál
sitt að bæta.
Nú getur í sjálfu sér ekkert verið við að at-
huga að Stefán fái greiddan kostnað af ferða-
lögum fyrir BJ um landið, og í sjálfu sér væri
máske lítt athugavert við að þingmaðurinn
fengi fé að láni nokkra daga ef þannig stæði
á. En það er með öllu óskiljanlegt að þing-
maðurinn skrifi út ávísanir með áðurgreind-
um hætti, — það eru illskiljanleg afglöp.
Nú hefur þingmaðurinn lýst því yfir að
vegna þessa máls muni hann ekki gefa kost
á sér til framboðs fyrir Alþýðuflokkinn.
Hann kallar fréttaflutninginn aðför og póli-
tískt morð. Stefán hefur enn fremur sagt, að
ekkert ólöglegt hafi komið fram við rann-
sókn málsins og hann hafi ekkert ólöglegt at-
hæfi framið. Vert er að hafa í huga að málið
hefur þegar verið til umfjöllunar hjá Rann-
sóknarlögreglu og saksóknari síðan vísað
málinu frá.
Mörgum virðist sem þingmaðurinn hafi
tekið mjög skynsamlega á málinu. Hann hafi
tilkynnt um að hætta við framboð í kjölfar
fregnanna. Þarmeð hafi hann sýnt siðferði-
legan styrk sem ætti að verða öðrum að for-
dæmi. En á hinn bóginn líta margir svo á að
Stefán hefði átt að segja af sér þingmennsku
núna og krefjast nýrrar rannsóknar á sakar-
giftum — og síðan taka ákvörðun um póli-
tíska framtíð sína.
Það er einnig umhugsunarvert að þing-
maður stjórnmálasamtaka sem höfðu það
nánast að einkunnarorðum sínum, að gagn-
rýna löglega hluti — en siðlausa — skuli
leggja svo mikla áherslu á það hvort um lög-
legt eða ólöglegt athæfi hafi verið að ræða.
Með því að bregðast við með því að tilkynna
að hann fari ekki í framboð, þykir einnig
mörgum sem hann sé að viðurkenna að ein-
hverju leyti meint brot.
Þá líta einnig margir á þennan viðburð
sem enn eitt upphrópunarmerki við þrot og
uppgjöf Bandalags jafnaðarmanna. Flokkur-
inn sem barðist gegn bakherbergjasamning-
um fjórflokkanna samdi sig inní einn þeirra.
Flokkurinn sem gagnrýndi harkalega fjár-
málasull stjórnmálaflokka og -manna reynist
vera með rugl á sínu bókhaldi. Og niðurstað-
an er enn sorglegri fyrir bragðið, að margir
hafa litið til þingmanna BJ sem þeirra einu
sem hefðu allt sitt á hreinu. Þannig hafa ver-
ið gerðar meiri kröfur til þingmanna BJ en
annarra.
Viðbrögð Jóns Baldvins Hannibalssonar í
Morgunblaðinu voru athygliverð. Formaður
Alþýðuflokksins segir: „Þegar stjórnmála-
maður er borinn svo þungum sökum er það
eðli málsins samkvæmt, burtséð frá sekt eða
sýknu, að traust hans býður hnekki. Þess
vegna er það rétt ákvörðun hjá Stefáni Bene-
diktssyni, að gefa ekki kost á sér til framboðs
á vegum Alþýðuflokksins, meðan þetta mál
er ekki til lykta leitt."
Óneitanlega detta manni í hug viðbrögð
Jóns Baldvins og Alþýðuflokksins við máli
Guðmundar J. Guðmundssonar sl. sumar til
samanburðar. Vart fer á milli mála að alvara
þess máls var ekki minni en meintra brota
Stefáns Benediktssonar. Engu að síður taldi
Jón Baldvin þá, að um væri að ræða aðför að
Guðmundi innan Alþýðubandalagsins og
velþóknun þeirra Jóns Baldvins og félaga
var svo mikil, að þá fýsti að fá Guðmund J.
Guðmundsson til framboðs í Reykjavík. En í
pólitík eru rebbarnir fljótir að gleyma.
Væntanlega munu viðbrögð Stefáns
Benediktssonar verða til þess að í framtíð-
inni verði gerðar meiri kröfur til stjórnmála-
manna en tíðkast hefur um nokkurt skeið.
Fjárreiður stjórnmálaflokkanna hafa verið
og eru hálfgert launungarmál gagnvart al-
menningi. í Ijós hefur t.d. komið að fyrirtæki
segjast styðja stjórnmálaflokka, sem kalla
sig verkalýðsflokka. Auðvitað er orðið þjóð-
þrifamál að skylda flokkana til að gera fjár-
reiður sínar opinberar og að framlög fyrir-
tækja séu t.d. opinber.
Sumir munu segja að Stefán hafi unnið
hálfan móralskan sigur með því að tilkynna
um að hann gefi ekki kost á sér til framboðs
fyrir næstu kosningar. En sjálfsagt munu
margir í framhaldi málsins velta því fyrir sér
hvernig stærsti stjórnmálaflokkurinn í
Reykjavík getur boðið fram í höfuðborginni
lista sem leiddur er af manni með réttarstöðu
grunaðs manns.
40 HELGARPÓSTURINN