Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 27
MYNDBÖND Á MARKAÐNUM KLASSÍK OG NÝJAR PERLUR Klassískar Ben Hur (1959) ★★★ 777 útleigu hjá m.a. Vídeómeistar- anum. Leikstjórn: William Wyler. Adalhlutuerk: Charlton Heston, Jack Hawkins, Haya Harareet o.fl. Hið stórbrotna fjölskyldudrama meistara Wylers frá tímum Rómar- veldis svíkur engan. Myndin vann á sínum tíma til ekki færri en 11 óskarsverðlauna og í henni vinnur Charlton Heston einn af mikilsverð- ari leiklistarsigrum ferils síns. Hún hefur einnig horfið til sögunnar sem eins konar prótótýpa mastadon- mynda, eins helsta glansmynda- skeiðs draumaverksmiðjunnar við Kyrrahafið, og er í því tilliti einkum fræg fyrir kappreiðarnar í hinni ríf- lega 20 mínútna löngu lokasenu myndarinnar. Undirbúningur töku þeirrar senu tók eitt ár, og það tók ekki færri en þrjá mánuði að festa hana á filmu! Afbragðs dægrastytt- ing sem sagt á hrollköldum sunnu- dagseftirmiðdögum þessa napur- lega hausts. Playtime (1967) ★★★ Til útleigu hjá m.a. Grensásvídeó. Leikstjórn/handrit/adalhlutverk: Jacques Tati. Þeir sem einhverra hluta vegna misstu af Tati-kynningu Regnbog- ans á liðnu vori, þurfa ekki lengur að örvænta. Meistarastykki hans leynast núorðið víða og eru (á þess- um síðustu og verstu tímum offram- boðs á hverskyns dægurflugulétt- metismiðlaefnis) mun aðgengilegri unnendum hans, en margan hefði áður grunað. Þó svo að þessi tragikómíska ódysseifsferð hrakfallabálksins elsk- verðuga um margræða rangala hins vestræna nútímasamfélags sé kannski ekki það besta, sem þessi meistari hins franskættaða afbrigðis tragikómíska farsans lét frá sér fara um dagana, þá er hún þó meir en kærkominn glaðningur hverjum þeim er unun hefur af góðri kvik- myndagerðarlist. West Side Story (1961) ★★ 777 útleigu hjá m.a. Grensásvídeó. Leikstjórn: Robert Hú'se og Jerome Robbins. Aöalhlutverk: Natalie Wood, Richard Beymer, Russ Tamblyn o.fl. Kvikmyndanir góðra Broadway- söngleikja eru því marki brenndar, að þær standast sjaldnast tímans tönn, nema þvi aðeins að um hreina heimildarskráningu á sviðsupp- færslunni sjálfri sé að ræða. Nefnd kvikmyndun á þessum margfræga söngleik Leonard Bernsteins, sem byggir á samnefndri sögu Arthurs Laurents, er þó um margt góðra gjalda verð, og einkum fyrir þá sök hversu vel hún speglar tíðaranda þess tímabils er hún fjallar um... eða nánar tiltekið: þá sérstæðu sér- amerísku mórölsku siðgæðisvitund sjötta áratugarins, er skóp hana. Nýjar perlur Kiss of the Spiderwomen (1985) ★★★★ Til útleigu h.já m.a. Vídeómeistar- anum, Videóspólunni og fl. Leikstjórn: Hector Babenco. Aðalhlutverk: William Hurt og Raul Julia. Þessi fjórfalt óskarsverðlauna- tilnefnda mynd Hectors Babencos, sem jafnframt hreppti sinn skerf af Gullpálmaútdeilingunum í Cannes á liðnu ári, er skilyrðislaust í hópi þess besta, er myndbandaleigur höfuð- borgarsvæðisins hafa uppá að bjóða þessa dagana. Myndin byggir á samnefndri bók Argentinumannsins Manuel Puigs og greinir frá tveimur klefafélögum í argentínsku stjórnarfangelsi á önd- verðum áttunda áratugnum. Stúd- entinn Valentín hefur setið inni und- anfarin 3 ár án dóms og laga, fyrir þátttöku í ólöglegum mótmælaað- gerðum og hefur jafnframt þurft að 1984 meistara Orwells) svo einstak- lega sérstæð í því tilliti, að hún er gerð útfrá þeim forsendum er fólk á fjórða og fimmta áratugnum setti sér um það, hvernig þjóðskipulag framtíðarinnar kæmi til með að líta út. Framtíðarsýn nútímans felur í sér skilgreiningar, sem byggja á sæta pyntingum í þeim tilgangi að fá hann til að ljóstra upp um nöfn „samsektarmanna" sinna. Molina afplánar átta ára fangelsisdóm fyrir sakir kynhverfðra hneigða sinna. Honum hefur jafnframt verið heitið náðun af hálfu yfirvalda, ef honum megi takast að afhjúpa leyndarmál klefafélaga síns. Þegar frá upphafi er Valentin gjörsamlega andhverfur viðleitni Molina til að stofna til vin- áttutengsla þeirra á milli, og lætur hann í því tilliti óspart í ljósi hina vægast sagt forkastanlegu hleypi- dóma sína til kynvillu hans. Smám saman hrífst hann þó af hinni ein- staklega viðmótsþýðu persónugerð klefafélaga síns, og svo fer að sjálf- sögðu um síðir að Molina verður að gera upp við sig hvort honum er kærara: vináttutengsl hans við Valentin (sem hann er reyndar orð- inn ástfanginn af undir lok myndar- innar), eða hið skilorðsbundna frelsi utan fangelsismúranna. Molina er leikinn af William Hurt, og er þessi margverðlaunaða túlkun hans á hlutverkinu jafnframt ein- hver sú magnaðasta, sem um getur í vesturlenskri kvikmyndagerð um langt árabil. Brazil (1985) ★★★ 777 útleigu hjá m.a. Vídeómeistar- anum, Vídeóspólunni og fl. Leikstjórn: Terry Gilliam. Aðalhlutverk: Jonathan Pryce, Robert DeNiro, Kim Greist, Katherine Helmond o.fl. Þeir félagar Terry Gilliam, Tom Stoppard og Charles McKeown eru hér eina ferðina enn með nýja út- gáfu af þessum afbragðsvel skrifuðu tragíkómísku försum sínum, sem tæpast eiga sér nokkra hliðstæðu í kvikmyndasögunni hvað yfirgengi- legan frumleika þeirra varðar. Þannig er þessi framtíðarsýn þeirra félaga (með óbeinni skírskotun til leftir Ólaf Angantýsson atriðum eins og klínískri sjálfvirkni súper-chipsins (eða smágerðu míní- tölvuflögunnar), sem öllu veldur og allt kann. Framtíðarsýn fjórða og fimmta áratugarins var öllu mekan- ískari í eðli sínu: hrikaleg pappírs- býrókratía, stórgerðar sveifar, tól og tæki, sem með miklu brambolti klöngruðust gegnum hin ýmsu til- verusvið framtíðarþjóðfélagsins. Myndin fjallar um ungan mann af yfirstétt þeirri, er nýtur forréttinda sinna í skjóli hinnar þunglamalegu býrókratíu þessa nánar tiltekna þjóðskipulags. Hann er í sjálfu sér ýmsum góðum gáfum gæddur, en svífur jafnframt (sökum lífsleiða síns) um í dagdraumum óra sinna um ástina stóru, sem í draumförum hans birtist honum sem ástargyðjan holdi klædd og er honum, „riddara eigin skýjaborga", ætlað að frelsa hana úr ánauð. Dag nokkurn sér hann þessari dís drauma sinna bregða fyrir í líki alþýðukonu, er býr við vægast sagt hörmuleg lífsskil- yrði lágstéttanna í einu af náttsvart- ari fátækrahverfum borgarinnar... og þar með er hin tragikómíska ástar- saga þessarar makalausu framtíðar- sýnar þeirrar Gilliams og félaga endanlega komin á fullan skrið. Equus (1977) ★★★ 777 útleigu hjá m.a. Grensásvídeó. Leikstjórn: Sidney Lumet. Aðalhlutverk: Richard Burton, Peter Firth o.fl. Þessari mynd eru hér með af hálfu HP gefnar aðeins þrjár stjörnur, þó svo að sjálf leikgerð Peter Shaffers (sem eins og flestum leikhúsunn- endum mun kunnugt er einhver mestur núlifandi breskra leikrita- skálda: Amadeus, Shrivings, Five Finger Exercise svo dæmi séu nefnd) eigi í reynd mun fleiri skilið. Því er eins farið um þessa uppfærslu og kvikmyndun söngleiksins marg- fræga, sem fjallað var um hér að framan, að megininntak verksins skilar sér engan veginn eins vel á hvíta tjaldinu, og ef um sviðsupp- færslu væri að ræða. Enda eru verk Shaffers í flestum tilvikum skrifuð með hina sérstæðu túlkunarmögu- leika leikhúsformsins sérstaklega í huga. Þrátt fyrir þessa annmarka er myndin engu að síður ágætlega vel leikin og leikstjórn Sidney Lumets er að sjálfsögðu að vanda óaðfinn- anleg. Equus ætti því að geta orðið kærkomin tilbreyting hverjum þeim, sem af einhverjum ástæðum hefur til þessa ekki haft tækifæri til aö kynna sér verk Shaffers... eins af ótvíræðum meisturum breskrar leikhúshefðar í dag. ó.A. VÍDEÓ/STÖÐ 2 Síðastliðinn mánudag lét Helgar- pósturinn gera skoðanakönnun á hugsanlegum áhrifum Stöövar 2 á myndbandanotkun Reykvíkinga. Hringt var í 400 Reykvíkinga eftir tölvuúrtaki skv. skrá Landsímans og þeir spurðir: i) Er myndbandstæki á heimil- inu? ii) Horfiö þið á Stöð 2? (frá „dá- lítið" til „mjög mikið") iii) Hefur dregið úr myndbanda- notkun við tilkomu Stöðvar 2? (þar sem það á við). Af 400 manna úrtaki í Reykjavík svöruðu 383 eða 95,8% spurðra. Fram kemur að myndbandstæki eru á 182 heimilum en það svarar til 47,5% heimila í höfuðborginni. Myndbandstæki eru hins vegar ekki á 201 heimili eða 52,5% heimil- anna. Tæplega þrjú af hverjum fjórum heimilum horfa á Stöð 2. í sumum tilvikum er horft mikið á stöðina, í öðrum tilvikum minna eða mjög lít- ið. Hlutfallið er: 273 eða 71,3% horfa á Stöð 2; 110 eða 28,7% horfa ekki á Stöð 2. Þegar þeir, sem hafa myndbands- tæki, eru spurðir hvort dregið hafi úr myndbandanotkun þeirra við til- komu Stöðvar 2 kemur fram að mik- ill meirihlutinn telur svo ekki vera, þ.e. 98 eða 53,8%. Að vísu segja 24 eða 13,2% að mjög mikið hafi dreg- ið úr myndbandanotkun heimilis-. ins; 16 eða 8,8% að frekar mikið hafi dregið úr henni; einnig 8,8% að dá- lítið hafi dregið úr myndbandanotk- un og 28 eða 15,4% að það sé varla teljandi sem dregið hafi úr mynd- bandanotkun heimilisins við til- komu Stöðvar 2. Tafla 1. Horfi á Stöð 2 Horfi ekki á Stöð 2 Alls Myndbandstæki á heimilinu 148 34 182 Myndbandstæki ekki á heimilinu 125 76 201 Alls 273 110 383 Af 400 manna úrtaki í Reykjavík svöruðu 383 eða 95,8% spurðra. A. Myndbandstæki á heimilinu 182 eða 47,5% Myndbandstæki ekki á heimili 201 eða 52,5% B. Horfa á Stöð 2 273 eða 71,3% Horfa ekki á Stöð 2 110 eða 28,7% Tafla 2. Hefur dregið úr myndbandanotkun við tilkomu Stöðvar 2? Mjög mikið 24 13,2% Frekar mikið 16 8,8% Dálítið 16 8,8% Varla teljandi 28 15,4% Ekkert 98 53,8% Skáís 11.86 HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.