Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 06.11.1986, Blaðsíða 14
Tökum hunda ígœslu til lengri eða skemmri dvalar Hundagæsluheimili Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags íslands Arnarstöðum, Hraungerðishreppi 801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030 Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3 AUGLYSIR: ^ Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 mínútur að fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt. Ath. eftirfarandi: Móttakan er í austurenda hússins, þar er bíliinn settur á færiband og leggur síðan af stað í ferð sína gegnum húsið. £igendur fylgjast með honum. Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há- þrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhrein- indi, sandur og því um líkt, eru skoluð af honum, um leið fer hann í undir- vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög ánægðir með þá þjónustu, því óhrein- indi safnast mikið fyrir undir brettum og sílsum. Síðan er hann þveginn með mjúkum burst- um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand- þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að sleppa burstum og fá bílinn eingöngu handþveginn. Næst fer bíllinn í bónvélina og er þar sprautað yfir hann bóni og síðan herði. Að þessu loknu er þurrkun og snyrt- ing. 8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu, t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti, þriðji í handþvotti o.s.frv. Bíll, sem þveginn er oft og reglulega, endist lengur, endursöluverð er hærra og ökumaður ekur ánægðari og öruggari á hreinum bíl. Tíma þarf ekki að panta. Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta skipti til okkar undrast hvað margt skeður á stuttum tíma (15 mínútum). Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3, Sími 14820. FYRIRTÆKIÐ ð SM/SF VEITIR GUNNLAUGSS VIÐURKENNII „Við líöum ekki lengur hve allt er ordið smekklegt hérna, eða að það sem við köllum yfirgengilega smekkleysu skuli blómstra hér í hverju horni. Þess vegna höfum við stofnað fyrirtœkið Smekkleysu sm/sf til höfuðs „góða smekknum"" segja þau Björk Guðmundsdóttir, Bragi Olafsson og ÞórEldon, þrjú af átta stofnfélögum Smekkleysu, en þau eru öll þekkt af gerð texta, og tónlistar, jafnvel myndlistar. GEGN „GOÐUM SMEKK" OG SPARNAÐI Smekkleysa á sér ítarlega stefnu- skrá þar sem segir m.a. um tilgang hennar og markmið: 1. Þar eð „góður smekkur" og „sparnaður" eru höfuðóvinir sköp- unar og vellíðunar, mun Smekk- leysa sm/sf vinna markvisst gegn öllu sem flokkast undir góðan smekk og sparnað. 2. í baráttunni gegn fyrrnefndu („góður smekkur o.s.frv.") mun Smekkleysa sm/sf beita öllum hugs- anlegum og óhugsanlegum aðferð- um, s.s. innrætingu, upprætingu, smekklausum auglýsingum og til- kynningum, dreifingu og sölu á al- mennu drasli og úrgangi. 3. Smekkleysa sm/sf mun veita viðurkenningarskjöl til handa þeim einstaklingum eða félagasamtökum sem skara fram úr í smekkleysi og bruðli. 4. Smekkleysa sm/sf skal sinna félagsmönnum sínum af alúð og smekkvísi, og einbeita sér að útgáfu og framkvæmd á hugverkum þeirra, hver sem þau eru: hljómplöt- ur, ritgerðir, skáldsögur, ljóð, mynd- verk, klæðnaður, fjölskyldu- skemmtanir eða byltingar og hvers kyns ræstingastarfsemi. 7. Smekkleysa sm/sf skal stefna að því að opna sem fyrst matsölu- og/eða skemmtistað undir nafninu „Drullupytturinn". Einnig mun Smekkleysa sm/sf reka þegar fram líða stundir áróðurshljóðvarpsstöð, sem einbeitir sér að smekklausri tónlist og gaspri. Stöð þess skal nefnd „Útvarp Skratti". HP spurði stofnfélagana þrjá hvaða dropi hafi fyllt mælinn, vald- ið því að þau ákváðu að láta til skar- ar skríða gegn góðum smekk. AÐ REYKJA VÍK BANNAÐ Á RÁS 2 „Líkst til var það 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar," svarar Þór. „í músíkinni voru það t.d. hinar smekklegu útsetningar Gunnars Þórðarsonar á Reykjavíkurplöt- unni. Til mótvægis við þennan glassúr sömdum við lag og texta, Að reykja vík, sem Sykurmolarnir léku inn á band og vildu fá flutt sem framlag sitt á 200 ára afmælisdag- inn á Rás 2. Það var ekki orðið við þeim óskum. Uppgefin ástæða: tæknilegt smekkleysi! Og reyndar sömdum við lagið að þeirra beiðni." „Þetta var auðvitað tómur fyrir- sláttur," bætir Björk við. „Þetta var alveg ágætt gróft bílskúrasánd. Mál- ið var að textinn komst til skila. Það er klárt að hann hefur farið fyrir brjóstið á þeim á Rásinni. Þeim hef- ur þótt smekklaust að spila hann á afmælisdaginn. Hann er jú andsvar við hinni heilögu Bergþórugötu- rómantík: „ungfrú Reykjavík seldu mér 200 tíma / og ég geldi þig greiða með greiðu / og gleiða ég þig set á / bárujárnsplötu við bergþóru- götu..." og svo framvegis." „Ótrúlegustu menn eru farnir að fylkja sér undir merki smekkleg- heitanna," segir Bragi. „Fjölritunar- skáldin leggja meira að segja upp laupana og eru farin að gefa út hjá ísafoldarprentsmiðju, en það kostar helmingi meira en að gefa út hjá Stensli. Ég nefni menn eins og Magnús Gezzon og útgáfu Hrafns Jökulssonar og fleiri á Flugum Jóns Thoroddsen." „Fjölmiðlarnir eru orðnir alltof smekklegir yfir línuna," segir Þór. „Er það ekki fulllangt gengið að meira að segja Ólafur Hauksson framkvæmdastjóri Samúels skuli vera farinn að sjá um þætti fyrir Ríkissjónvarpið, þvert ofan í öll sín prinsíp?" HRAFN ER GLÆSILEGA SMEKKLAUS Viðurkenningarskjöl sín hyggst Smekkieysa sm/sf gefa út ársfjórð- ungslega að jafnaði, og eigi oftar en einu sinni í mánuði. „Við gætum að sjálfsögðu gefið þau út daglega, en þetta verður samt að vera viðburður," segja þau. „Að hljóta slíka útnefningu hlýtur að teljast nokkur heiður miðað við tilgang og markmið félagsins. En 14 HELGARPÓSTURINN leftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd: Þór Eldon

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.