Helgarpósturinn - 06.11.1986, Qupperneq 18
■
.'t ,l!
I þessu húsi að Bfldshöfða 16 var hið gjaldþrota fyrirtæki, Veitingamaðurinn, til húsa. Kjötmiðstöðin hefur nú bætt þessu fyrirtæki við rekstur sinn. Á innfelldu myndinni
er Rétur Sveinbjarnarson forstjóri hins gjaldþrota fyrirtækis.
Gialdþrot uppá
40
50 milljónir
Veitingamadurinn, fyrirtœki Péturs Sveinbjarnarsonar, gjaldþrota. Gífurlegar skuldir.
Þrotabúiö tók yfir reksturinn á fimmtudegi. Seldi Kjötmiöstöðinni á föstudegi. Sölu-
veröiö taliö innan viö 10 milljónir króna. Um 100 kröfuhafar í Veitingamanninn.
Þaö er skamml stórra högga á
milli í vidskiptaheiminum. Stórt fyr-
irtœki í veitingabransarwm var selt
á föstudaginn. Kaupendurnir gengu
grunlausir til hvunndagsstarfa á
föstudagsmorgni, en um kvöldiö
haföi stórt fyrirtœki hellst uppá
þeirra könnu.
Veitingamaðurinn, fyrirtæki Pét-
urs Sveinbjarnarsonar, hafði ekki
fundið tóninn í þessum viðskiptum.
Fyrirtækið er fyrst og fremst eldhús
sem framleiðir mat, veislumat og
brauð. Það hefur haft stóra við-
skiptavini og í tengsium við fyrir-
i tækið hefur veitingastaðurinn
Höfðakaffi verið rekinn.
Fyrir nokkrum dögum var fyrir-
tækið tekið til gjaldþrotameðferðar
og er talið að kröfuhafar séu um 100
talsins og kröfurnar hljóði upp á 40
milljónir króna. Söluverð Veitinga-
mannsins hefur hvergi verið gefið
upp, en samkvæmt heimildum HP
mun það vera innan við 10 milljónir
króna. Það var þrotabúið sem seldi
og telur að þannig megi best tryggja
hag kröfuhafa. Höfðakaffi er áfram
rekið af þrotabúinu, en taiið er lík-
legt að það muni einnig seljast á
næstunni.
GÍFURLEGAR SKULDIR
í rauninni vita engir hverjar skuld-
irnar eru í 'raun og veru. Þær verða
að berast næstu tvo mánuði, svo
sem lög gera ráð fyrir. En sam-
kvæmt heimildum HP skuldaði fyr-
irtækið m.a. í vor í áætluðum sölu-
skatti yfir 17 milljónir, launaskatt-
skuldir yfir 3 milíjónir og fleira í
sama dúr. Ríkið var hins vegar sjálft
meðal stærstu viðskiptavina fyrir-
tækisins fram í septembermánuð.
Mörgum þykir kaupin hafa gengið
fljótt fyrir sig. Pétur lætur af stjórn
fyrirtækisins sl. fimmtudag er þrota-
búið tekur yfir. Daginn eftir er fyrir-
tækið selt einum kröfuhafanum,
Kjötmiðstöðinni. Söluverðið fæst
hvergi upp gefið nákvæmlega.
Sú var tíð að bjartara var yfir at-
hafnasemi Péturs Sveinbjarnarson-
ar. Hann átti í eina tíð veitingastað-
inn Ask bæði við Suðurlandsbraut
og Laugaveg, Júmbó-samlokur,
Ask-borgarann, ísbúðina við Hjarð-
arhaga og átti í fyrirtækjum einsog
Kaupstefnunni. Oll þessi fyrirtæki
hafa verið seld á umliðnum árum.
Skýringar á gjaidþroti Veitinga-
mannsins eru margar. Sumir telja að
Pétur hafi verið hugmyndaríkur
stjórnandi en hann hafi farið illa út-
úr þróun í peningamálum og offjár-
festingar hafi háð starfseminni alla
tíð. Þá segja sumir að hann hafi ekki
fengið nægilega mikla bankafyrir-
greiðslu fyrir starfsemina.
En gagnrýnni raddir hafa aðra
sögu að segja. Þær herma að vegna
tengsla Péturs við Sjálfstæðisflokk-
inn hafi hann fengið meiri fyrir-
greiðslu en margur annar hjá kerf-
inu. Því miður reyndist ekki unnt að
ná sambandi við Pétur vegna máls-
ins þrátt fyrir tilraunir. Athygli er
vakin á því, að fyrirtækið var hluta-
félag — og því er Pétur sjálfur ekki
gjaidþrota og gæti þess vegna hafið
rekstur fyrirtækis á nýjan leik.
KJÖTMIÐSTÖÐIN
KAUPIR
Samkvæmt upplýsingum HP
skuldaði Veitingamaðurinn Kjöt-
miðstöðinni um 3 milljónir króna.
Þarmeð var Kjötmiðstöðin meðal
stærstu lánardrottna Veitinga-
mannsins og hefði að líkindum tap-
að peningum sínum, ef kaupunum
hefði ekki verið komið á. í öðru lagi
hefði starfsemi fyrirtækisins lagst
niður, hefði ekki komið til kaup-
anna.
Það var þrotabú Veitingamanns-
ins sem seldi firmað. Skiptaráðandi,
Jón Finnbjörnsson var í sumarleyfi,
en bústjórinn Sigurður G. Guðjóns-
son var erlendis í vikunni, svo HP
varð að leita fregna annars staðar af
málavöxtum. Samkvæmt heimild-
um HP er reiknað með að fyrst verði
greidd vangoldin laun og launa-
tengd gjöld en síðan geti um 100
kröfuhafar gert ráð fyrir að fá um
20% uppí skuldir fyrirtækisins hjá
viðkomandi.
Hrafn Bachmann í Kjötmiðstöð-
inni telur Veitingamanninn eiga
margvíslega möguieika m.a. með
verðlækkunum. ,,Það verður ekk-
ert gefið eftir í samkeppninni," segir
Hrafn. íhuga nýju kaupendurnir að
fjárfesta í vélum til viðbótar, allt að
5 miiljón króna virði. Kaupendurnir
hafa ekki viljað gefa upp kaupverð-
ið á Veitingamanninum en sam-
kvæmt heimildum HP er talið að
það sé um 10 milljónir króna, eða
lægra.
Með þessu móti telja Hrafn og fé-
lagar að hægt sé að auka hag-
kvæmnina í rekstrinum og fram-
leiða ódýrari og betri vöru: matar-
bakka í hádeginu, brauð og matar-
veislur. I þessum viðskiptum er
mjög hörð samkeppni og mörg veit-
ingafyrirtæki hafa gengið illa að
undanförnu. Einnig mun koma til
álita að nýju kaupendurnir selji fljót-
lega Veitingamanninn, en það mun
vera talinn lakari kostur.
Einsog Helgarpósturinn hefur áð-
ur sagt frá, eru auk Hrafns Bach-
manns aðaleigendur þeir forstjórar
Ávöxtunar; Armann Reynisson og
Pétur Björnsson. Með þessum kaup-
um er Ávöxtun og þeir Pétur og
Ármann enn að færa út starfsemi
sína. Auk Kjötmiðstöðvarinnar eiga
sömu aðiljar Kjötvinnsluna. Ávöxt-
un hefur einnig sett á laggirnar hug-
búnaðarfyrirtæki og á verslun
Hjartar Nielsen. Auk þess er Pétur
aðaleigandi fyrirtækja einsog tog-
araútgerðarinnar Hersis í Hafnar-
firði og fyrirtækisins Islensk mat-
væli hf. Hér er lögð áhersla á að
tryggja ítök með hlutaeign í mörg-
um fyrirtækjum. Að gamni látum
við fylgja með skipurit af þessari
fyrirtækjakeðju sem stöðugt lengist.
Ný keðja fyrirtækja (Ávöxtunar s.f.)
18 HELGARPÓSTURINN
leftir Óskar Guðmundsson mynd: Jim Smartl