Helgarpósturinn - 06.11.1986, Qupperneq 35
Mér finnst
ég skána
Sigurður Þórir vígir nýtt gallerí með níundu
einkasýningu sinni í Reykjavík
Siguröur Þórir er fyrstur myndlist-
armanna til aö sýna í nýju galleríi
viö Óöinstorg. Þaö er kennt uiö
Svart á hvítu og var fjallaö um þaö
í Listapósti í síöustu viku, en meöal
aöstandenda þess eru Halldór
Björn Runólfsson, Jón Þórisson,
Björn Jónasson og nöfnurnar Mar-
grét Auöuns og Andrésdóttir.
Sigurður Þórir útskrifaðist frá
MHI árið 1970 og hélt að því búnu til
myndlistarkennslu í Þorlákshöfn.
Leiðin lá svo til Köben þar sem hann
var við nám í Konunglegu akademí-
unni í fjögur ár, frá 1974 til 1978. Þar
lagði hann áherslu á módel-vinnu,
grafík, auk þess sem hann teiknaði
mikið meðfram námi. Eftir heim-
komuna hefur hann lengst af kennt
myndlist meðfram frjálsri listsköp-
un, en hætti kennslunni í fyrra, þeg-
ar hann ákvað að helga krafta sína
undirbúningi að þeirri sýningu sem
hann opnar núna við Öðinstorg á
laugardag klukkan tvö.
HP spuröi Sigurö Þóri hvernig til-
finning þaö væri fyrir listamann aö
vígja nýjan sýningarsal.
„Það er erfitt að segja. Ég er ekki
viss um að það sé mikið frábrugðið
því að sýna í sal komnum á aldur,
nema ef vera skyldi að sýning
manns fengi meiri athygli í nýjum
sal. Ég hef haldið átta einkasýning-
ar í Reykjavík og hingað til hefur
það alltaf verkað eins á mig að opna
sýningu: Þarna er maður að opna
sig, veita tiffinningum sínum útrás.
Og maður verður að vera búinn að
sætta sig við það að þessar tilfinn-
ingar verði mönnum sjáanlegar áð-
ur en til sýningarinnar kemur. Mað-
ur verður að vera klár á því að
þarna stendur maður berstrípaður
og getur ekki annað."
— Ertu spéhrœddur maöur?
„Ég er það innst inni. En það er að
myndast brynja um mann smám
saman."
— Nervösítetiö hverfur samt von-
andi aldrei?
„Sviðsskrekkurinn er náttúrlega
af hinu góða, þó maður gangi alltaf
fram í góðri trú um að núna sé mað-
ur búinn að gera sitt besta. Þetta er
kannski svipað og halda sýningu á
börnum sínurn."
— Þú nefndir átta einkasýningar í
Reykjavík. Þú hefur komiö víöar
viö?
„Jújú, Köben, Þórshöfn í Færeyj-
um. Og svo er þetta samtíningur af
samsýningum víðar um lönd.“
— Yrkisefniö: Hvernig hefur þaö
þróast á þessum árum?
„í byrjun tók ég mikið á umgjörð
mannsins, einkum starfsvettvangi
hans. Þetta voru býsna harðar
myndir, sem fjölluðu um hráan
hversdagsleika, nánast realismus
eins og Benedikt Gröndal hefði orð-
að það. Ég hef verið að söðla um
upp á síðkastið: Ég er kannski mýkri
núna, fjalla um innri veruleika
mannsins, samskipti hans. Og þetta
óræða er svoltið komið inn í mynd-
ina.“
— Hvaö meö tœknilega þróun?
„Alltaf betri. Mér finnst ég skána
með árunum; allavega þoli ég ekki
gömlu myndirnar mínar. Ég held ég
verði sífellt frjálsari í myndlistinni.
Ég á líka einfaldlega auðveldara
með þetta eftir því sem árin líða.“
— Aldurinn gerir menn þá
frjálsa?
„Já, í mínu tilviki."
-SER
KVIKMYNDAHUSIN
Stella f orlofi.
★★★
Léttgeggjuð ærsl a la islanda kl. 5, 7, 9
og 11.
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Manneskjulegur og hrlfandi Spielberg
kl. 9 fyrir 12 ára og uppúr.
Innrásin frá Mars
(Invaders from Mars)
★
Geimd leiðindi, en spennó kl. 5,7,9 og
11 fyrir 10 ára og eldri.
BlÓHÖIJUÍL
Stórvandræði f Litlu Kfna
(Big trouble in Little China)
★★
Uppátækjasamt sprell, galdrafjör og
hrekkir kl. 5,7,9 og 11 fyrir eldra fólk en
12 ára.
I klóm drekans
(Enter the Dragon)
★★★
Eina sanna karate-myndin með Bruce
Lee (endursýnd) kl. 5, 7, 9 og 11 fyrir
stálpaðri krakka en tólf.
Hellisbúarnir
(The Clan of the Cave Bear)
★★
Hægeng ferð á slóðir forfeðranna kl. 7
og 11.
I svaka klemmu
(Ruthless people)
★★
Sjúklegur ærslaleikur kl. 5, 7, 9 og 11.
Á bakvakt
(Off Beat)
★★
Notalegt grín a la Disney kl. 5, 7, 9 og
11.
Mona Lisa
★★★
Elskuleg mynd, hörku drama og leikur
kl. 9.
Lögregluskólinn 3: Aftur í þjálfun
(The Rolice Academy: Run for Cover)
★★
Ágætis ærsl af framhaldi að vera kl. 5
fyrir 16 ára og eldri.
Eftir miönætti
(After Hours)
★★★
Fágað grin Scorsese kl. 5, 7, 9 og 11.
BÍÓHÚSIÐ
Aulabárðarnir
(Wise Guys)
Ný
Grallaragrfn (allar áttir kl. 5, 7, 9 og 11
eftir Brian de Palma!
Back to school
Ný
Sprell að hætti hússins kl. 5, 7 og 9.
LAUGARÁS
B I O
Sweet Liberty
Ný
Grfn með Alda, Caine og Bob Hoskins
kl. 5, 7, 9 og 11.
1 skugga Kilimanjaro
(In the Shadow of Kilimanjaro)
★★★
Bavíanar og bljúgir menn, plús spenna
kl. 5, 7, 9 og 11 fyrir 16 ára og eldri.
Aftur til framtfðar
(Back to Future)
★★★
Ein stór brella fyrir nútfmabörn (endur-
sýnd) kl. 5, 7, 9 og 11.05.
REGNBOGfiNN
Draumabarnið
(Dream Child)
Ný
Fyrirmynd Lísu f Undralandi kl. 5, 7, 9
og 11.
Hold og blóð
(Flesh + Blood)
★★★
Sverð, skjöldur og ruddamennska á
miðöldum kl. 5, 7, 9 og 11.
Við nefnum nokkrar ólfkar, en góðar
við mismunandi skilyrði. Psycho III
tryllir sannarlega, Woody Allen f Regn-
boga mjúkur og elskulegur. Rudda-
mennska f Holdi og blóði ( sama sýn-
ingarhúsi. Stella skemmtileg í orlofi. En
umfram allt Brian de Palma (Bfóhúsinu
með — og haldiði ykkur nú — sinn
fyrsta farsa, glens og gaman.
1 skjóli nætur
(Midt om natten)
★★★
Notalegur danskur millitryllir kl. 9,
Bönnuð yngri en 16 ára.
Hanna og systur hennar
(Hannah and her sisters)
★★★
Lffsglaður, sætur og næmur Woody kl.
7.10, 9.10 og 11.10.
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
Stjörnur, strfpur og óheflaður militar-
ismi kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Stundvfsi
(Clockwise)
★★
Guðdómlega geggjaöur Cleese a la
Hulot kl. 5 mfn. yfir 3, 5, 7, 9 og 11.
BMX-meistararnir
★
Hjólandi vitleysa, en smá smart engu
að sfður kl. 3.10 og 5.10.
Mánudagsmyndin
Kona hverfur
★★★
Hitchcock frá 37. Unaður kl. 7.15 og
9.15.
I úlfahjörð
Ný
Frönsk stelumannaspenna kl. 5,7,9 og
II eftir Claude Brasseur.
Með dauðann á hælunum
(8 million ways to die)
★★★
Hal Ashby með hörku trylli kl. 5,7,9 og
11.10 fyrir 16 og uppúr.
Karatemeistarinn II
★★
Sérhæfð en að mörgu leyti mjúk af-
þreying kl. 3 um helgina.
'lonM
TÓNABIÓ
Psycho III
★★★
Sjá umsögn.
Mynd milli skinns og hörunds kl. 5, 7 9
og 11 fyrir 16 ára og eldri.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
MYND
VIKUNNAR
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA UM HELGINA?
Ingibjörg Sólrún
borgarfulltrúi:
„Það er auðvitað margt sem
freistar, en annað hvað maður ætl-
ar sér að gera. Það vill svo til að um
næstu helgi er landsfundur
Kvennalistans og þangað ætla ég.
Við ætlum þar að ræða saman um
hugmyndafræðina og auðvitað
verður komið inn á alþingisfram-
boðið. Það er allt saman Ijóst með
Reykjavík og Reykjanes, en enn er
óvissa með landsbyggðina — þó
veit ég að það er hugur í konum í
Vesturlandskjördæmi. Ég veit ekki
hvort það er tfmi til að gera eitt-
hvað annað, enda eru helgarnar
varla til ráðstöf unar þegar maður er
með tvö lítil börn. En ef ég gæti
komist eitthvað þá yrði það sjálf-
sagt bíóferð, enda á ég eftir að sjá
Stellu í orlofi."
HELGARPÓSTURINN 35