Helgarpósturinn - 06.11.1986, Qupperneq 48
í salti um skeið, en á morgun, föstu-
dag, verður aftur tekið til hendinni
í Sakadómi Reykjavíkur vegna
dómsrannsóknar málsins. Flestir
topparnir hjá SÍS, Erlendur Ein-
arsson, Hjalti Pálsson, Valur
Arnþórsson o.fl., o.fl. hafa verið
yfirheyrðir og eru yfirheyrslurnar
sumar allmiklar að vöxtum vélritað-
ar. Þannig er dómsyfirheyrslan yfir
Hjalta Pálssyni framkvæmda-
stjóra innflutningsdeildar um 90
blaðsíður. Þeir sem lesið hafa þann
texta segja, að öll tilsvör Hjalta ein-
kennist af ótrúlegri gleymsku og
aðrir halda því fram, að minni
Hjalta sé einkum slappt, þegar frá-
farandi forstjóri þarfnast verndar.
Og raunar um ýmislegt annað. Til
dæmis kom fram í yfirheyrslum yfir
Hjalta, að sennilega væru kaffi-
baunaviðskiptaskeytin frá NAF, sem
sá um innkaupin, til SÍS með öllu
týnd. Þá kveðst Hjalti ekki vita hver
skipaði afsláttarnefndina frægu, en í
henni sátu Geir Geirsson, Geir
Magnússon, Snorri Egilsson og
Guðmundur Skaftason. . .
u
■ W Biklum sögum hefur farið
af smölun nýrra félaga í Sjálfstæðis-
flokkinn fyrir prófkjör fíokksins í
Reykjavík á dögunum. Talað hefur
verið um 6—700 nýja félaga sem
þeir Albert Guðmundsson og
Ásgeir Hannes komu með. Stað-
reyndin mun hins vegar vera, að um
1300 nýir hafi skráð sig í flokkinn
fyrit prófkjörið og þykir sumum
sjálfstæðismönnum það svo sem
ekki mikið miðað við félagafjölda
upp á vel rúmlega 20 þúsund
manns. Síðan hafa um 20—30 sagt
sig aftur úr flokknum og í þeim hópi
munu vera einhverjir, sem ekki gátu
sætt sig við sigur Alberts Guð-
mundssonar um fyrsta sætið. Ann-
ars hringdi ónafngreindur maður í
Valhöll og reyndi að fá afmáðan úr
flokknum nokkurn hóp manna í
einu lagi, en var vinsamlega bent á
að það yrði hver og einn einstakl-
ingur að gera í eigin persónu eða
skriflega...
l kvöld, fimmtudagskvöld, ætlar
hópur fólks á Akureyri að halda
fund þar sem kannaður verður áhugi
norðanmanna á stofnun leiksmiðju
eða eins konar tilraunaleikhúss.
Upphafsmaður þessarar hugmynd-
ar er Finnur Magnús Gunnlaugs-
son leikhúsfræðingur og útvarps-
maður á Rúvak og hefur hann sett
markið hátt í þessum efnum, því við
heyrum ekki betur en hér sé verið
að tala um vísi að öðru atvinnuleik-
húsi nyrðra . . .
BSitthvert bakslag virðist vera
komið í gleði ráðamanna yfir leið-
togafundinum heimsfræga. Þor-
steinn Pálsson, fjármálaráðherra,
hefur altjént neitað að borga skip-
verjum á varðskipinu Tý þá yfir-
vinnu sem þeir unnu við að vakta
Höfða á sínum tíma. Skipverjarnir
ætla að ganga í land ef þeir fá ekki
greitt samkvæmt samningum þeirra
verkalýðsfélaga, er þeir tilheyra. . .
JL XJU//JI AJLU. JUIAJLf X XXX XXXI VXXrjf^
GOÐUR MATUR OG ODYR!
SMÁBRAUÐ/N
MÁLTÍÐ
Frönsk smábrauð eru bökuð samkvæmt uppskrift sem fengin er
frá Frakklandi. Frakkar hafa svo sannarlegavitáfranskbrauðiþvíþau
eru hluti af svo til hverri einustu máitíö þar í landi.
Frönsk smábrauð henta viðólíkustu tækifæri. Þú lætur þau
þiðna, bregður þeim nokkrar mínútur inn í ofn og útkoman
erfransktbrauðeins og það gerist best.
Frönsku smábrauðin eru alltaf eins og ný
- beint úr djúpfrystinum. Taktumeðþérpoka,
þú finnur hann í frystiborðinu.
BRAUÐ HF. - SÍMI 83277