Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 6
HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
HÓPFERÐIR
OO HAOSMIINAÁREKSTRAR
VÍÐAR TENGSL HAGSMUNA FORRÁÐAMANNA HJÁLPARSTOFNUNARINNAR í VIÐSKIPTUM
HENNAR EN GETIÐ ER UM í SKÝRSLU RANNSÖKNARNEFNDARINNAR
Páll Jónsson, sparisjóðsstjóri og formaður framkvæmdanefnd-
ar Hjálparstofnunar kirkjunnar. Helmingur af sjóði Hjálparstofn-
unarinnar var á sparisjóðsbók ( Sparisjóði Keflavlkur.
Prófessor Björn Björnsson á sæti I framkvæmdanefnd Hjálpar-
stofnunarinnar. Hjálparstofnunin keypti húseign Ketils Axels-
sonar og Ketill keypti húseign eiginkonu Björns.
Kaup Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar á húseigninni að Engihlíð 9 urðu
til þess að liðka fyrir sölu á húsi eig-
inkonu eins af framkvœmdanefnd-
armönnum stofnunarinnar. Helm-
ingur af sjóði Hjálparstofnunarinn-
ar var geymdur um tíma í Sparisjóði
Keflavíkur en formaður fram-
kvœmdanefndar er sparisjóðsstjóri
þar. Þessir, og aðrir hugsanlegir
hagsmunaárekstrar forsvarsmanna
Hjálparstofnunarinnar eru utan við
skýrslu rannsóknarnefndarinnar
sem kannaði rekstur stofnunarinn-
ar á árunum 1984 og 1985.
PRESTAFERÐIR
Skýrsla nefndarinnar greinir líka
lítt frá utanlandsferðum á vegum
stofnunarinnar, annarra en þeirra er
starfsmenn stofnunarinnar fóru. í
skýrslunni segir frá ferð biskupsins
yfir íslandi, formanns fram-
kvæmdanefndar Hjálparstofnunar-
innar og eiginkvenna þeirra til Pól-
lands. í þeirri ferð greiddi stofnunin
dagpeninga þessara aðila.
Helgarpóstinum er kunnugt um
fleiri ferðir er aðrir en starfsmenn
stofnunarinnar fóru á hennar veg-
um. Til dæmis fóru um 10 prestar á
hennar vegum til Skotlands á árinu
1985 og sóttu þar þing Christian Aid
í Dumblin þar sem skoska kirkjan á
mikla ráðstefnuhöll. Samkvæmt
heimildum Helgarpóstsins var litið
á þessar ferðir sem einhverskonar
þakklætisvott fyrir störf er prestarn-
ir höfðu unnið í tengsium við safn-
anir stofnunarinnar.
Auk starfsmanna Hjálparstofnun-
arinnar, þeirra Guðmundar Einars-
sonar, framkvæmdastjóra og Sigur-
jóns Hreiðarssonar, skrifstofustjóra
fóru sr. Magnús Guðjónsson bisk-
upsritari, sr. Róbert Jack é Breiða-
bólstað, sr. Baldur Rafn Sigurðsson
á Hólmavík, Önundur Björnsson,
bókaútgefandi og fleiri þessa ferð.
HUSASKIPTI
Hjálparstofnun kirkjunnar keypti
húseignina að Engihlíð 9 af Katli
Axelssyni, kaupmanni í London í
Aðalstræti, þegar húsið hafði verið
á söluskrá í 6—8 mánuði. Þegar þau
kaup voru um garð gengin festi Ket-
ill kaup á húseigninni að Ægissíðu
70. Seljandi þeirrar húseignar var
Svanhildur Sigurðardóttir, eigin-
kona prófessors Björns Björnssonar.
Prófessor Björn á sæti í fram-
kvæmdanefnd Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Báðar húseignirnar
voru seldar í gegnum sama fast-
eignasala, lögfræðistofu Agnars
Gústafssonar.
Rannsóknarnefndin komst að
þeirri niðurstöðu að Engihlíð 9 hefði
verið keypt fyrir neyðarhjálparfé.
Allir munu sammála um að forðast
beri hagsmunaárekstra og þá sér-
staklega þegar um jafnviðkvæmt fé
og neyðarhjálparfé er að ræða.
SJÓÐUR í VÖRSLU
FORMANNS
Núverandi formaður fram-
kvæmdanefndar Hjálparstofnunar
kirkjunnar er Páll Jónsson, spari-
sjóðsstjóri í Keflavík, og hefur hann
átt sæti í nefndinni um árabil. Hjálp-
arstofnunin hefur átt sparisjóðs-
reikning í Sparisjóði Keflavíkur og á
efnahagsreikningi stofnunarinnar
þann 31. desember 1982 kemur í
ljós að þá var um helmingur af
handbæru fé stofnunarinnar á þess-
um reikningi.
Flestum er kunnugt um harða
samkeppni bankastofnana um
sparifé landsmanna. Sú staðreynd
að Hjálparstofnunin geymdi um
tíma helming af handbæru fé sínu í
litlum sparisjóði sem formaður
framkvæmdanefndarinnar veitti
forstöðu hlýtur að vekja spurningar.
Efnahagsreikningar eru gerðir upp
um áramót og eftir jólahátíðirnar
eru sjóðir Hjálparstofnunarinnar
hvað gildastir.
HVAÐ SEGIR ALMENNINGUR?
Jón Friðgeirsson
Ég hef aldrei gefið til Hjálpar-
stofnunarinnar og ætla ekki að
byrja á því núna.
— Finnst þór að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Þvf ekki það?
Hörður Kristjánsson
Nei, ég hef ekki gefið til Hjálp-
arstofnunarinnar og ætla ekki að
gera það i framtfðinni.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Já, þeir hafa farið það illa að
ráði sfnu.
Bjami Torfi Álfþórsson
Eflaust hef ég gefið til Hjálpar-
stofnunarinnar og ég hugsa að ég
muni gera það áfram.
— Finnst þór að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Ég skal ekki segja um afsögn.
En sem ríkisstarfsmanni finnst
mér einkennilegt að eiginkonum
séu greiddir dagpeningar á ferð-
um erlendis. Það er margt að I
þessu þjóöfélagi og það mætti
kannski hreinsa til.
Dóra Snorradóttir
Ég hef ekki gefið til Hjálpar-
stofnunarinnar á þessu ári, en ég
býst við að ég haldi áfram að
gefa.
— Finnst þór að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Ég hef ekki kynnt mér allar nið-
urstöður svo ég treysti mér ekki til
að svara þessu.
Helga Þórsdóttir
Ég hef ekki gefið til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og ætla ekki
að gera það.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Já.
Jón Atli Eðvarðsson
Ég hef ekki gefiö til Hjálpar-
stofnunarinnar en ætli maður geri
það ekki þegar maður sér hvernig
málin þróast.
— Finnst þór að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Já, ef það reynist rétt að þeir
hafi verið með bruðl.
Hreggviður
Hermannsson
Ég hef aldrei nokkurn tlma gef-
ið til Hjálparstofnunarinnar og
ætla aldrei nokkurn tfma að gera
það. Ég hef alltaf haft vantrú á
þessari stofnun.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar eigi að
segja af sér?
Mér finnst að það eigi að
stokka stofnunina alveg upp.
Helst að leggja hana niður.
Ég gaf til Hjálparstofnunarinnar
I vor og ætla að gefa áfram.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Ég veit það ekki. Nei, nei, ég
held ekki. Annars þekki ég máliö
ekki nægjanlega.
Kristinn Harðarson
Ég hef ekki gefið til Hjálpar-
stofnunarinnar og myndi hugsa
mig um tvisvar ef ég yrði beðinn
um það.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Ég býst við því. Ég þekki málið
þó ekki nógu vel til þess að geta
dæmt, en það hljómar þannig.
Jónína Róbertsdóttir
Bömin mín hafa safnað og gef-
ið til Hjálparstofnunarinnar, en ég
mun aldrei framar gefa til hennar.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Já.
Mikael Sigurðsson
Mig rekur ekki minni til þess aö
ég hafi gefið til Hjálparstofnunar-
innar og ég gef ekki eftir þennan
óskunda.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Já.
Björn Jósef
Arnviðarson
Ég hef gefið til Hjálparstofnun-
arinnar en hef ekki tekið ákvörð-
un um hvort ég geri það áfram.
— Finnst þér að forsvars-
menn stofnunarinnar ættu
að segja af sér?
Ég vil ekki svara því.
6 HELGARPÓSTURINN
eftir Gunnar Smóra Egilsson myndir Jim Smartl