Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 25
SYMBOL eru hugstæð Ásu Ólafsdóttur. Það sést í Gallerí Hall- gerdi þar sem hún hefur verið að sýna nítján collagemyndir á síðustu dögum, auk tveggja myndofinna verka. Þetta er sjöunda einkasýning Ásu, sem verður framhaldið um helgina. KONURí list kvenna. Kvenrétt- indafélag Islands er að velta því fyr- ir sér hvernig þær líta út og langar, í tilefni af áttatíu ára afmæli sínu, að efna til sýningar á verkum kvenna sem lúti yfirskriftinni. Afmælið verður ekki fyrr en 27. janúar á nýju ári, en þangað til hvetur KRFÍ lista- konur að senda félaginu myndlistar- verk, helst ný og áður ósýnd, og þau verði svo sett upp í samkomusal kvennaheimilisins að Hallveigar- stödum á afmælinu. HELGARPÖSTURINN 25 eftir Ásgeir Tómasson Tilfærslur í Þjóðleikhúsinu Litla sviðið kom- ið yfir Lindargötu Leidin niður á Litla svið Þjóðleik- hússins liggur ekki lengur um vest- urhliðina. Hún er núna á allt öðrum stað. Maður skreppur bak við aðal- bygginguna, tiplar yfir Lindargöt- una, opnar hurð á gömlu leikfimi- húsi Jóns Þorsteinssonar. Og stígur í tröppurnar ofan í kjallara. Þar eru smiðir að saga til lítið svið og palla fyrir áhorfendur. Annan sunnudag situr þar stórt hundrað manna og_ horfir á frumsýningu leikritsins / smásjá. Það er eftir Þór- unni Sigurðardóttur, sem þar áður samdi sviðsverk um Kjartan, Bolla og Ósvífursdóttur. Þórhallur Sig- urðsson leikstýrir nýja verkinu hennar. Hann var að koma fjórum leikur- um í rullurnar sínar í vikunni þegar Helgarpóstinn bar að þessu nýja leiksviði Þjóðleikhússins, sem á að leysa Þjóðleikhúskjallarann af hólmi sem leikhús: „Litla verður samt notað eitthvað áfram fyrir upp- lestra og revíur," segir Þórhallur, „en þetta rými hérna,“ bendir hann á, „verður annað helsta leiksvið Þjóð- leikhússins." Þetta var allt ákveðið 78. Þá settu menn þau lög að hið fyrsta yrði komið upp nýju og fullkomnu ieik- sviði sem leysti Litla sviðið í Þjóð- leikhúskjallaranum af hólmi, enda hefði það alltaf verið hugsað til bráðabirgða. Það var fyrst átta ár- um síðar að farið var að fylgja þess- um lögum eftir ofan í öðrum kjallara hinumegin Lindargötu. Það er auðséð á öllu látbragði Þórhalls Sigurðssonar leikstjóra þegar hann lóðsar HP um nýja leik- húsið að hann er hrifinn af rýminu. Hann segir aðstöðuna vera mjög Unnið að frágangi leikmyndarinnar fyrir fyrstu uppsetninguna á nýjasta leiksviði Þjóð- leikhússins. Þórhallur leikstjóri bendir sviðsmanni á það sem betur má fara í umgjörð- inni. Séð yfir nýja sviðið í kjallaranum á húsi Jóns Þorsteinssonar. Sviðið er fjærst, en eftir er að koma upp áhorfendapöllum nær. Annars veitir þetta rými möguleika á að hafa sviðið hvort heldur er í miðju hússins eða til endanna. Smartmyndir. BÓKAFORLÖG eru farin að spretta upp af svipuðum krafti og myndbandaleigurnar um árið, en þar með nær samlíkingin ekki lengra. Nýjasta útgáfan sem HP hef- ur frétt af er Blekbyttan, sjálfsbjarg- arviðleitni þriggja skálda af yngri kynslóðinni sem stóðu frammi fyrir tveimur valkostum: Að gefa verk sín út á eigin vegum, eða banka upp á hjá forlögunum. Einar Ólafsson, einn þremenninganna segir síðari kostinn slítandi, en þann fyrri varla marktækan eins og eigin útgáfa hef- ur gjarnan horft við gagnrýnendum og bókastof nunum. Svo þau tóku sig saman; Einar með sína Sólarbás- únu, Berglind Gunnarsdóttir með Ljóðsótt og Óskar Árni Óskarsson með Handklœði í gluggakistunni, og köstuðu sér út í samyrkjubúskap. Um framtíð Blekbyttunnar „sker reynslan úr“, segir Einar, þeirra reyndastur í útgáfu; með fimm bæk- ur að baki, Berglind eina, en Óskar Árni hefur hingað til haldið sig við tímaritin. KÖTTURINN fer áfram eigin leiðir suður í Bœjarbíói í Hafnar- firði. Þessi uppsetning Alþýðuleik- hússins á leikgerð Ólafs Hauks Sím- onarsonar á sögu Kiplings hefur notið vinsælda það sem af er. Sýn- ingar halda áfram í dag, fimmtudag, klukkan fimm og svo á sunnudag, klukkan þrjú. SÖNGBÆKUR ryðjast inn á bókamarkaðinn. Við höfum þegar greint frá kveri Jónasar Árnasonar, en getum nú bætt um betur: Söng- bók barnanna, Fljúga hvítu fiörild- in, er væntanleg í búðir og fylgja nótur og gítargrip. Helga Gunnars- dóttir tónmenntakennari safnaði lögum og vísum í bókina — sem lík- ast til á eftir að koma sér vel á barnaheimilum og leikskólum í framtíðinni. Svo og á hverju heimili þar sem börn eru. ari gengi aldrei í þeirra raðir. En tímarnir breytast. Mér segir svo hugur að söngvarar eigi eftir að láta enn meira að sér kveða á plöt- um Mezzoforte í framtíðinni. Frammistaða McCalla á No Limits styrkir mig mjög í þeirri trú minni. Nú, auðvitað verður það að ját- ast að það voru hálfgerð vonbrigði að ekkert sungnu laganna skyldi standa Street Life Crusaders eða Just The Two Of Us Grovers Washingtons Jr. á sporði. Þjóðar- stoltinu veitir ekki af svo sem ein- um vænum smáskífusmelli sem gæti látið til sín taka á breskum vinsældalistum og helst banda- rískum líka. Yfirleitt nenni ég ekki að velta fyrir mér plötuumslögum og segja skoðanir mínar á þeim. Ég hef þó verið þeirrar skoðunar að umslög- in eigi að vera annað og meira en aðeins umbúðir; helst að þau verki söluhvetjandi. Forráðamenn Funkin’ Marvellous útgáfunnar virðast greinilega ekki vera á sama máli. Meira að segja lesmál- ið aftan á plötunni er á slíku smá- letri að það rennur hálfpartinn saman. — Ég vona að fagmenn verði fengnir til að hann umslag næstu Mezzoforteplötu. Fúsk á ekki við þegar fagmenn eins og Gulli, Eyþór, Frissi og Jói eiga í hlut. verkefnaskrá sinni. Þessu nýja sviði og því sem menn þekkja úr Þjóð- leikhúskjallaranum sé ekki saman að líkja — og blaðamaður minnist svo sem hálsrígsins að loknum leik- húsferðum í þann snúna súlnasal. Að flatarmáli er Litla sviðið og áhorfendarýmið í húsi Jóns Þor- steinssonar allt að jafn stórt Iðnó Leikfélags Reykjavíkur. „Og það er einmitt mjög nauðsynlegt fyrir leik- ara Þjóðleikhússins að kynnast svona litlu sviði samhliða stóra svið- inu í aðalbyggingunni," segir Þór- hallur. „Þeir þurfa helst mismunandi rými til að halda sér í þjálfun. Þá skapar þetta auðvitað fjölbreyttari möguleika á uppsetningum leik- verka.” Rikið á hús Jóns Þorsteinssonar þar sem áður fyrr voru tveir leik- fimisalir, í kjallara og á jarðhæð. Þjóðleikhúsið hefur húsið að láni. Á efstu hæð þess hefur skrifstofufólk- ið hreiðrað um sig, í leikfimisalnum á jarðhæð fara fram æfingar fyrir stóra sviðið í aðalbyggingunni, en í kjallarann flyst svo Litla sviðið. Fyrsta verkið sem þar verður frumsýnt, í smásjá Þórunnar Sig- urðardóttur, fjaliar að sögn Þórhalls leikstjóra um tvenn hjón sem þurfa að endurskoða líf sitt, lífsviðhorf og samvistir eftir ákveðna krísu, sem Þórhallur upplýsir vitaskuld ekki hver er. Af þessum fjórum persón- um verksins, sem Arnar Jónsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sig- urður Skúlason og Ragnheiður Steindórsdóttir leika, eru þrír starf- andi læknar — og skýrir það máske nafngift verksins að einhverju leyti. HP fjallar frekar um þetta verk í næsta blaði, en í smásjá verður frumsýnt 23. nóvember. fremur. Því er ekki lagt út á neinar ævintýrabrautir heldur þræddur hinn gullni meðalvegur. Ut kemur því ákaflega jafngóð plata sem hlýtur að vera fremur flöt þegar hlustað er á hana í heild. Því á tæp- ast eftir að henda neitt ,,slys“ á borð við Garden Party. — Takið þessu í guðanna bænum ekki sem blákaldri staðreynd. Ég er einung- is að reyna lýsa tilfinningum mín- um fyrir plötunni. Hlutur söngvara er meiri á No Limits en nokkurri annarri Mezzo- forteplötu. Noel McCalla, breskur sessionsöngvari, syngur þrjú lög. Fyrir nokkrum árum lýstu liðs- menn Mezzoforte því yfir að söngv- hentuga fyrir ýmis smærri verkefni sem Þjóðleikhúsið hafi alia jafna á Sigurður Skúlason og Ragnheiður Stein- dórsdóttir leika annað parið (verki Þór- unnar Sigurðardóttur „I smásjá", sem er fyrsta verkefni Litla sviðsins norðan Lindargötu. Arnar Jónsson klkir inn á æfingu. Heimsdjasspopp NO LIMITS - Mezzoforte Funkin’ Marvellous/Steinar Senn verður hljómsveitin Mezzoforte tíu ára gömul. Ótrú- legt en satt. Það er tæpur áratugur liðinn síðan strákarnir hófu að æfa saman í bílskúr inni í Sundum, efnilegir táningar sem auðheyri- lega áttu eftir að láta að sér kveða. Nú eru þeir komnir vel á þrítugs- aldurinn og ekki lengur efnilegir heldur snjallir tónlistarmenn. Á þessum áratug hafa Friðrik, Eyþór, Jóhann og Gunnlaugur hljóðritað sjö LP plötur. Auk þess hefur komið út með þeim hljóm- leikaplata, safnplata og fjöldinn allur af smáskífum bæði stórum og litlum. Sjöunda platan er ein- mitt No Limits. Sennilega er hún sú jafnbesta þeirra sjö. Engir há- tindar né djúpir dalir. Lögin átta eru þó misgrípandi eins og geng- ur. Greinilegt er þó að ekkert þeirra er til uppfyllingar. Spila- mennska Mezzoforte er fyrsta flokks sem fyrri daginn og ekki heyri ég betur en að aðstoðar- menn séu allir af betri endanum. Á No limits er nýr verkstjóri mættur til Ieiks. Geoff Calver tek- ur sér frí að þessu sinni og í hans stól er sestur Nigel Wright sem stýrir upptökum með liðsmönn- um Mezzoforte. Er ég skrifaði um sjöttu plötu hljómsveitarinnar, Ris- ing, stakk ég einmitt upp á því að Calver yrði gefið frí næst. En upp- tökustjóraskipti hafa lítil áhrif haft á Mezzoforte. Hljómsveitin hefur skapað sér sitt eigið ,,sound“ sem er vörumerki hennar. Og tónsmíð- ar breytast ekki þótt nýr maður setjist við stjórnvölinn. Sé hann skynsamur leyfir hann listamönn- unum að fara sínar eigin leiðir og halda séreinkennum sínum. i Mezzoforte er engin stjarna. Hljómsveitin er skipuð fjórum jafnréttháum einstaklingum. Það setur vitaskuld mark sitt á hana. Kannski kristallast þetta í tónlist- inni á No Limits. Allir fá að njóta sín til fulls ... en enginn öðrum

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.