Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 15
Austfjörðum hafa leitað að þing-
mannsef ni í stað Helga Seljan, sem
ekki gefur lengur kost á sér til fram-
boðs. Hjörleifur Guttormsson er
talinn öruggur um að fara fyrir list-
anum en forvalið í kjördæminu er í
tveimur umferðum. Fyrri umferðin
er tilnefningarumferð og þótti það
tíðindum sæta að Helgi Seljan, sem
ákveðið hefur að gefa ekki kost á
sér, skuli hafa fengið álíka margar
tilnefningar og Hjörleifur. Sam-
kvæmt heimildum HP þykir líklegt
að í seinni umferð forvalsins verði
Hjörleifur búinn að fá meðfram-
bjóðanda með nokkurt fylgi. Hér er
um Llnni S. Bragadóttur kennara
og skáldkonu á Fáskrúðsfirði að
ræða. Hún er talin líklegasti fram-
bjóðandi í annað sæti í seinni um-
ferð forvalsins.. .
u
m siðustu helgi fóru fram í
þremur kjördæmum prófkjör á veg-
um Alþýðuflokksins. Lítið bar á
auglýsingum í kringum prófkjörin,
en þó mátti heyra einstaka hvatn-
ingarauglýsingu á öldum ljósvak-
ans. Þar voru m.a. á ferðinni skila-
boð til Kópavogsbúa frá alþýðu-
flokksfélaginu þar í bæ. Minnti fé-
lagið bæjarbúa á þá staðreynd, að
Kópavogur ætti ekki alþýðuflokks-
þingmann og úr því þyrfti að bæta.
Sum okkar eru þó enn svo einföld
að halda, að þingmenn setji lög fyrir
landið allt og séu ekki einungis í
hagsmunapoti fyrir einstök héruð
eða hreppa. . .
u
■ ■in svokallaða ’85-nefnd,
sem m.a. stóð fyrir Kvennasmiðj-
unni í Seðlabankahúsinu og öðru
merku framtaki í tilefni loka
kvennaáratugar Sameinuðu þjóð-
anna, hefur ákveðið að láta hagnað
af starfseminni renna til Fram-
kvæmdanefndar um launamál
kvenna. Framkvæmdanefndin er
þverpólitísk nefnd, sem ekki er
styrkt af opinberum aðilum heldur
hafa fulltrúarnir sjálfir annast alla
fjáröflun með útgáfustarfsemi og
öðrum hætti. Hugsa Framkvæmda-
nefndarkonur nú gott til glóðar-.
innar, enda kjarasamningar fram-
undan þar sem áhersla verður lögð
á ieiðréttingu launamisréttis kynj-
anna. Raunar eru þær þegar komn-
ar á fullt skrið, því nú á laugardag (8.
nóv.) verður haldinn mikill fundur
með konum í samninganefndum
hinna ýmsu stéttarfélaga...
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
SL/EMAR GÓJDAR
FRÉTTIR FRETTIR
Slæmu frétttirnar eru þær aö eins og undanfarna mánuði verður enn um hríð nokkur bið (u.þ.b 2 mán.) hjá þeim sem eru að kaupa SAAB 900 og SAAB 9000. Þessu valda auknar vinsældir SAAB á stórum markaðssvæðum, svo sem í Bandaríkjun- um. SAAB verksmiðjurnar í Svíþjóð anna ekki eftirspurn á heimsmarkaði og hafa orðið að taka upp kvótakerfi í afgreiðslu. Við munum gera okkar besta til þess að auka þann fjölda sem íslandi er ætlaður, og eins að stytta biðtímann sem mest. Þeim sem hyggja á kaup á SAAB 900 eða SAAB 9000 er bent á að betra er að panta fyrr en seinna. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að SAAB verði aðeins fyrir fáa útvalda. TÖGGURHF. BÍLDSHÖFÐA 16. SÍML681530 BEINN SÍMI SÖLUMANNS: 83104 Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að við eigum von á 20-30 bílum af SAAB 90 nú í nóvember og desember sem gerir okkur kleift að bæta úr brýnustu þörfinni. SAAB 90 TIL AFGREIÐSLU NÚ Á AÐEINS 487 ÞÚSUND KRÓNUR. TÖGGURHF. BÍLDSHÖFÐA 16. SÍMI: 681530 BEINN SÍMI SÖLUMANNS: 83104
_ /.. I-CTX
«5*
s
HELGARPÓSTURINN 15