Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 22
Myndbandaleigustríð á Siglufirði — ásakanir ganga á víxl SÁ STÆRSTIVILL EINOKA Á Siglufirði heíur sídustu mánud- ina geysad hatrammt vidskiptastríð á myndbandamarkaönum. 4 mynd- bandaleigur eru í bœnum, Nýja myndbandaleigan, í eigu Steingríms Kristinssonar í Nýja bíói og fjöl- skyldu hans, Billa-vídeó, í eigu Guð- mundar Davíðssonar, Hafnar-vídeó í eigu Theódórs Eggertssonar og myndbandaleigan Rún í eigu Geir- rúnar Viktorsdóttur. Elsta og stœrsta myndbandaleigan er mynd- bandaleiga Steingríms Kristinsson- ar og saka eigendur hinna mynd- bandaleiganna Steingrím um aö beita ýmsum ráöum til að kveöa niöur samkeppnina og einoka markaöinn. Nýja bíó og Nýja myndbandaleig- an eru fjölskyldufyrirtæki Stein- gríms Kristinssonar. Þessi stærsta myndbandaleiga Siglufjarðar hefur mætt aukinni samkeppni eftir því sem ieigum hefur fjölgað. Sam- keppnisaðilar segja að Steingrímur hafi brugðist við þessari auknu sam- keppni með pólitískum og við- skiptalegum þrýstingi, sem eigi ekk- ert skylt við eðlilega viðskiptahætti. SONURINN I' BYGGINGARNEFND Önnur stærsta myndbandaleigan á Siglufirði er Billa-vídeó í eigu Guð- mundar Davíðssonar, sem einnig rekur veitingastofu í bænum. Heim- ildir Helgarpóstsins greina frá því að Steingrímur hafi einkum beitt sér gegn Guðmundi með pólitískum og viðskiptalegum þrýstingi. Á síðasta kjörtímabili lagði Guðmundur fram umsókn um leyfi til að byggja við veitingastofu sína, en sú umsókn tafðist um eitt ár vegna pólitísks þrýstings frá Steingrími. Á það er bent að sonur Steingríms, Valbjörn Steingrímsson, var fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í byggingarnefnd bæjarins og Steingrímur sjálfur einn helsti forystumaður flokksins. Guð- mundur Davíðsson tekur undir þessar ásakanir. ,,Ég sótti um þetta leyfi en Steingrímur barðist harður gegn því.“ Þá kærði Steingrímur Guðmund fyrir meinta fjölföldun á mynd- bandaefni. Steingrímur gerði sér ferð í Billa-vídeó og tók þar á leigu myndbandið „Heavenly kid" frá Columbia fyrirtækinu og lagði í framhaldi af því inn kæru til bæjar- fógetaembættisins á Siglufirði. Steingrímur sagði í samtali við Helg- arpóstinn að fyrir lægi játning Guð- mundar í máli þessu, en annað kom í ljós þegar Helgarpósturinn hafði samband við Erling Óskarsson bæj- arfógeta. Sagði Erlingur að við rannsókn hefði ekkert sannast á Guðmund og engin játning legið fyrir frá honum, en að hann hefði á hinn bóginn viðurkennt að hafa not- ast við kápu merkta „sýnishorn". Að rannsókn lokinni hefði verið ákveð- ið að fella málið niður. Guðmundur Davíðsson sagði í samtali við Helg- arpóstinn að hann teldi kæru þessa einfaldlega vera viðbrögð Stein- gríms sem samkeppnisaðila er hefði misst mikilvæg viðskipti sín við ýmsa aðila, þar á meðal við báta og skip. „Hingað kom nýlega Magnús Kjartansson frá samtökum rétthafa myndbanda á íslandi til að kanna málin, bæði þessi og önnur sem Steingrímur hefur staðið fyrir. Málið er að Steingrímur vill með öllum ráðum draga úr ríkjandi samkeppni. Steingrímur Kristinsson, eigandi stœrstu myndbandaleig- unnar á Siglufirði, er sakaður um að beita pólitískum og við- skiptalegum þrýstingi til að halda niðri samkeppnisaðilum sínum. Hann segir þetta fáránlegt og sakar samkeppnisaðila um að beita ólöglegu stílabókarbókhaldi og um fjölföldun myndbandaefnis. Steingrlmur Kristinsson, eigandi Nýja bíós og Nýju myndbandaleigunnar, þeirr- ar stærstu á Siglufirði. Sakaður um að beita pólitískum og viðskiptalegum þrýstingi til að knésetja samkeppnisaöil- ana. Geirrún Viktorsdóttir I myndbandaleig- unni Rún. Segir að dreifingaraðilar fyrir sunnan selji sér ekki spólur vegna þrýst- ings frá Steingrími. Guðmundur Davlðsson I Billa-vldeói. Sakaður af Steingrlmi um að fjölfalda myndbandaefni. Málið var fellt niður eftir rannsókn. Segir Steingrlm og son hans Valbjörn hafa tafið leyfi fyrir viðbyggingu við veitingastofu. Hann hefur meðal annars reynt að þrýsta á framleiðendur og dreifend- ur fyrir sunnan um að afla mér ekki efnis. Honum hefur tekist það hvað Skífuna varðar, en ég held að aðrir hafi ekki hlustað á hann," sagði Guð- mundur. ÞRYSTINGUR A FRAMLEIÐENDUR Steingrímur Kristinsson fær myndbönd frá 4 dreifingaraðilum fyrirsunnan, Tefli, Skífunni, Steinari og Bergvík. í ágúst sl. hóf Geirrún Viktorsdóttir starfsemi myndbanda- leigunnar Rún og sóttist þá eftir myndböndum hjá þessum aðilum og öðrum. Geirrún segir að þessir fjórir aðilar hafi neitað að selja henni myndbönd. „Þeir sögðu mér að það væri á þeirri forsendu að það væru kaupendur fyrir hér á Siglu- firði. Þeir bera það fyrir sig að þá verði hætt að kaupa af þeim sem kaupa fyrir. Fyrir skömmu kom hingað fulltrúi frá samtökum rétt- hafa fyrir sunnan og sagðist hann ætla að taka þetta mál upp á fundi. Hann taldi þetta vera gróft brot. Ég segi nú ekki að þetta mál hafi haft afgerandi áhrif á mín við- skipti, en ég fæ þó ekki þær spólur sem ég vildi gjarnan fá. Ég spurði þessa dreifingaraðila fyrir sunnan hvort mínir peningar væru eitthvað verri en peningar annarra. Það er vitaskuld okkar að slást um við- skiptavinina en ekki þeirra að hafa áhrif á þessa samkeppni. Þeir sögðu einfaldlega, að því miður sæju þeir sér ekki fært að láta mig fá spólur. Fulltrúi eins þessara aðila sagði mér hreinskilnislega í sumar að þá myndi Steingrímur hætta að kaupa af þeim," sagði Geirrún. Fjórða myndbandaleigan á Siglu- firði er Hafnar-vídeó í eigu Theó- dórs Eggertssonar. Theódór sagði í samtali við Helgarpóstinn að hann væri ekki í neinu stríði og sagðist ekki eiga nein samskipti við Stein- ■■■■■■■■■HBiHeftir Friðr grím Kristinsson. Aðrar heimildir HP greindu frá því að Steingrímur hefði kært Theódór fyrir að selja í söluturni sínum sælgæti sem hann hefði ekki leyfi til að selja. Theódór sagðist ekki geta fullyrt um hvort Steingrímur hefði gert þetta og sagðist ekki hafa orðið var við bein- an óeðlilegan þrýsting í sinn garð af hálfu Steingríms. Magnús Kjartansson hjá Samtök- um rétthafa myndbanda á Islandi gerði sér sem áður segir sérstaka ferð til Siglufjarðar til að kanna þessi mál. Hann vildi þó í samtali við Helgarpóstinn ekkert um málin tjá sig. „Tilgangur samtakanna er að fara með hagsmunamál félagsmanna. Það eru vissulega uppi deilumál á Siglufirði, en ég vil ekki vera að tjá mig í fjölmiðlum um einstök slík mál. Það verður hvert fyrirtæki að svara fyrir sig um sína viðskipta- hætti,“ sagði Magnús. SAMKOMU LAG UM DREIFINGUNA Steingrímur Kristinsson segir þessar ásakanir vera fáránlegar. Sagðist hann hafa gert ákveðið sam- komulag við tilgreinda aðila í Reykjavík. „Það er samkomulag um að ég kaupi af þeim allt efni á meðan þeir ekki dreifi því óhindrað til allra ann- arra aðila. Ég skuldbind mig til að kaupa allt efni af þeim og það sam- komulag var gert löngu áður en myndbandaleigan Rún kom til sög- unnar. Ég hef ekki fengið neitt einkaleyfi, ég var búinn að gera þetta samkomulag og því var ekki gegn henni stefnt á einn eða annan hátt.“ — Þér er sem sagt ekki kunnugt um aö Rún hafi veriö meinaö aö fá efni? „Þú skalt spyrja hana að því. Ég reikna með því að mitt samkomulag Þór Guðmundsson myndir Bjc sé fallið úr gildi gagnvart öðrum sem selja mér efni ef þeir fara að dreifa því á staðinn, því að plássið er ekki stærra en það, að það þolir lítt meira en eitt eintak. Þessu get ég ekki séð að sé beint gegn Rún á einn eða annan hátt.“ — Okkur skilst aö tilgreindir aöil- ar, Tefli, Skífan, Steinar og Bergvík, treysti sér ekki til aö selja Rún efni, þvíþá telji þeir hœttu á því aö missa viöskipti viö þig? „Það kann að vera að þeir hafi þessa skoðun. Þeir gerðu við mig ákveðið samkomulag á sínum tíma. Þetta eru þeir aðilar sem ég hef skipt við og keypt 99,9% efni af. Þeir hafa að því er ég best veit hald- ið það samkomulag. Ég sé ekkert athugavert við það þó menn geri samkomulag sín á milli. Þeir treysta mér og ég treysti þeim og því ekki að hafa það gagnkvæmt." — Þú telur ekki aö þaö sé veriö aö útiloka neinn frá því aö fá efni frá þessum aöilum? „Ég get ekki stoppað það. Ég hef ekki vald til þess á einn eða annan hátt.“ — Þú ert ásakaöur um aö beita fleiri brögöum í samkeppninni, sagt er t.d. aö þú hafir kœrt Hafnar-vídeó fyrir aö selja ákveönar sœlgœtisteg- undir? „Það er fásinna sem ég hef aldrei nokkurn tímann látið mér detta í hug. Ég get svarið eið að því hvar sem er að slíkt hefur aldrei komið til tals eða hugsunar af minni hálfu." KÆRÐUR FYRIR FJÖL- FÖLDUN — En þá munt hafa kœrt Guö- mund Davíösson í Billa-vídeó fyrir fjölföldun á myndbandaefni. Hvaö kom til aö þú kœröir? Það var gert að ósk ákveðinna aðila — Samtaka rétthafa í Reykja- vík — að ég tók spólu þar á leigu og sú spóla var ólöglega fjölfölduð af einhverjum sem ég get ekki fullyrt um, en hún var þarna ásamt tugum annarra mynda. Ég reikna með að það hafi verið vegna þessa að full- trúi rétthafa kom hingað nýlega. Þetta er nú orðið lögreglumál, því þetta er brot á landslögum. En ég gerði þetta að ósk rétthafa í Reykja- vík.“ — Hvers vegna geröu þeir þetta ekki sjálfir? „Vegna þess að þeir voru ekki á staðnum til þess arna.“ — Sonur þinn, Valbjörn Stein- grímsson, var í byggingar- og skipu- lagsnefnd á síöasta kjörtímabili. Þá sótti Guömundur Davíösson í Billa- vídeó um byggingarleyfi fyrir veit- ingastofu sína. Sú ásökun hefur komiö fram aö sonur þinn í nefnd- inni og þú hafiö viljandi komiö í veg fyrir aö leyfi þetta var veitt og aö leyfiö hafi þvi tafist um heilt ár. „Þetta er alrangt. Forsaga málsins er sú, að slökkviliðsstjórinn hér á Siglufirði krafðist þess að settar yrðu neyðardyr á vesturgafl kvik- myndahússins og hafði áður gert þessa kröfu við fyrrverandi eigend- ur hússins en því var ekki sinnt. Eftir að við eignuðumst kvikmyndahúsið endurnýjaði slökkviliðsstjórinn þessa kröfu og einum mánuði síðar óskaði ég eftir því að fá að setja upp þessar dyr. En af einhverjum ástæð- um var málið saltað í byggingar- nefnd. Síðan kom til eyrna þessi um- sókn veitingastofunnar um bygging- arleyfi — akkúrat til að byrgja fyrir þessar neyðardyr, því veitingastofa Guðmundar í Billa-vídeói er einmitt við hliðina á kvikmyndahúsinu. Eft- ir að þetta hús kom var tilgangslaust að gera þessar neyðardyr. Því má bæta við að þetta byggingarleyfi var samþykkt með því skilyrði að fram- fylgt yrði reglum um brunavarnir, en það hefur ekki verið gert enn þann dag í dag þó húsið sé steypt.“ „STÍLABÓKARBÓK- HALD í STAÐ NÓTNA" — Ogþú telur þig þá standa í einu og öllu heiöarlega aö samkeppn- inni? „Ef það er óheiðarlegt að standa gegn því að spólur séu fjölfaldaðar í tugatali gegn lögum þá er það auð- vitað óheiðarlega að málum staðið. En ég tel mig ekki hafa gert það. Þeir fyrir sunnan hljóta síðan að vilja versla við þá sem hafa bolmagn til að sinna þessum viðskiptahátt- um. Ég myndi halda að markaður- inn hér beri tvær leigur og væri mjög gott að hafa þær tvær til að hafa ákveðna samkeppni. En úr því að þú ert að tala um meinta ólög- mæta viðskiptahætti tel ég rétt að benda þér á að einn þessara sam- keppnisaðila, ég vil ekki nefna aðil- ann, hefur í stórum stíl notað stíla- bókarbókhald í stað nótna. Ég hef reyndar engar sannanir, en líkurnar eru fyrir þessu meiri en þetta sem þú hefur lagt fyrir um mig. Skattur- inn í Reykjavík veit af þessu og hef- ur gert athugasemdir. Ég hef sjálfur fyrir tilviljun séð þessa bók,“ sagði Steingrímur Kristinsson að lokum. Þess má að lokum geta að fulltrúi frá skattrannsóknastjóra, Jón Rafn Pétursson, var mjög nýlega á ferð á Siglufirði að kanna bókhald mynd- bandaleiga þar, en sú ferð mun vera liður í allsherjarúttekt embættisins á bókhaldsmálum myndbandaleiga á íslandi. 22 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.