Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 20
itexti: Óskar Guðmundsson teikning: Jón Óskar TILLITSSAMARIVIÐ HUNDA EN MENN Tollur og vörugjald leggst affullum þunga á blandada ávexti. Hundamat- urinn tollfrjáls. Kerfiö tekur meira í sinn hlut af mannamatnum. Ef dós af hundamat kostar jafn mikið og dós af blönduðum ávöxt- um erlendis í innkaupum verður hundamaturinn töluvert ódýrari útúr heildsölunni en mannamatur- inn. Segjum sem svo að dósin hafi kostað 36 krónur þá er söluverð útúr heildsölu 69.70 kr. á hunda- matnum en 112 krónur á blönduð- um ávöxtum. Heildsala á höfuðborgarsvæðinu reiknaði fyrir HP hvernig verð- myndun er háttað á niðursuðuvöru; annars vegar á 820 gramma dós af hundamat og hins vegar af 820 gramma dós af blönduðum ávöxt- um. í dæminu er reiknað með að hundamaturinn sé jafn dýr manna- matnum erlendis eða 36.10 kr. dósin frá framleiðanda. Reiknað er með að flutningskostnaður sé sá sami sem og tryggingakostnaður. Hins vegar ber svo við að á mannamatnum, blönduðum ávöxt- um er 40% tollur en enginn tollur á hundamatnum. Sömuleiðis er 24% vörugjald á blönduðum ávöxtum, en ekkert vörugjald á hundamat. 1 stað þess koma óveruleg gjöld á hundamatinn; sérgjald sem nemur 4000 krónum á hvert innflutt tonn og svokallað E-gjald (eftirlitsgjald af FJALÍÁLAMB ÍÉWJMMQMJM. GÓÐURMÁWROGÓDYR! fóðurvörum, reiknast 0,25% af toll- verði). Þessi gjöld eru hins vegar sáralítil í samanburði við tolla og vörugjaid af blönduðum ávöxtum. í lok verðmyndunar má gera ráð fyrir 20% álagningu í heildsölu bæði á hundamatinn og mannamatinn. Þannig kostar dósin af hunda- matnum útúr heildsölunni 69.70 kr. en dósin af mannamatnum kostar 112.04 kr. Niðurstaðan Iesandi góð- ur gæti því verið sú að það borgi sig að vera hundur andspænis íslensku tollalöggjöfinni! í smásölunni er frjáls álagning. Talið er að áiagning í stórmörkuð- unum sé yfirleitt á bilinu 20—25% en allt að 38% í minni verslunum. Auk þess er hundamatur söluskatt- skyldur, þannig að til viðbótar kem- ur 24% söluskattur á hundamatinn. En það breytir engu um heiidarnið- urstöðuna; það leggst minna á hundamat en mannamat. 7,25% ársvextir umfram vísitölu______________________ 100 ára Afmælisreikningur Landsbankans er yfirburða ávöxtunarleið. Hann er verðtryggður og gefur að auki 7,25% ársvexti. Samt er hann aðeins bundinn í 15 mánuði. Til dæmis samsvaraði ársávöxtunin frá afmælisdegi bankans 1. júlí sl. til septemberloka 19,9%. Stofhaðu Afiiiælisreikning íyrir áramóf__________________ Afmælisreikningurinn er bundinn við 100 ára afmæli Landsbank- ans. Þess vegna þarf að stofna hann áður en afmælisárinu lýkur um næstu áramót. Afmælisreikningurinn er innlánsform sem allir peningamenn geta mælt með. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.