Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 34
OPINBERAR FJARREIÐUR STJORNMALAFLOKKA
35 MILLJÓNIR TIL
Stjórnmálaflokkar eru ekki bókhaldsskyldir. Enda
setja alþingismenn lög. Víðtœk samstaöa stjórn-
málaflokka ríkir um það, að ueita takmarkaðar
upplýsingar um sín fjármál. Sumir flokkar hafa
gert það við hátíðleg tœkifæri, en það er mál
þeirra sem til þekkja, að ekkert sé að marka slíkt
bókhald. Fé því sem stjórnmálaflokkar hafa yfir
að ráða má skipta í tvennt. í fyrsta lagi er um að
rœöa opinber framlög. Opinber framlög sem
auðvelt er að fá upplýsingar um í þeim stofn-
unum, sem það veita —- Alþingi og fjármálaráðu-
neyti. í öðru lagi er um að rœða framlög
einstaklinga og fyrirtœkja. Um þau framlög er lít-
ið vitað — og ekkert ef menn eru ekki þeirrar
gæfu aðnjótandi að vera í forystu flokks.
• BÓKHALDSLEYND OG ÓFU LLKOMIÐ
BÓKHALD o EFTIRLIT MEÐ OPINBERUM
STYRKJUM EKKERT • EFTIRLITSLAUS
SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ FRÁ ALÞINGI •
MILLJÖNASTYRKIR FRÁ FYRIRTÆKJ-
UM • BÓKHALD BJ OPIÐ
HAPPDRÆTTI —
AUGLÝSINGASNÍKJUR
BEINIR STYRKIR
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem HP hefur aflað sér reka allir
stjórnmálaflokkar happdrætti. Ein-
staklingum og fyrirtækjum eru
sendir happdrættismiðar allt frá
nokkrum miðum og uppí nokkur
hundruð miða og viðkomandi vin-
samlegast beðnir að greiða fyrir
miðana inná gíróreikning. Mjög
mismunandi afrakstur er af þessum
happdrættum. Tekjur af þeim eru
frá tugum, eða fáeinum hundruðum
þúsunda og uppí margar milljónir
króna. GeirA. Gunnlaugsson, gjald-
keri Alþýðuflokks, hefur t.a.m. upp-
lýst að tekjur af happdrætti Alþýðu-
flokks séu um 900.000 á ári. Og
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjáifstæðisflokks, upplýsti í
samtali við HP að tekjur af happ-
drætti flokksins væru nokkrar millj-
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins. Bókhaldið fer fyrir
miðstjórn og er ekki opið almenningi.
ónir á ári. Hann vildi ekki nefna
ákveðna tölu í þessu sambandi.
Önnur leið sem pólitískir flokkar
nota til að afla fjár til starfsemi sinn-
ar er útgáfa svokallaðra „auka-
blaða". Þetta eru auglýsingablöð.
Fyrirtækjum er boðin auglýsing við
háu verði — oft gegn því að fyrir-
tækið verði kynnt í viðkomandi
blaði, eða vörutegund frá fyrirtæk-
inu — og rekendum fyrirtækja sagt
að blöð þessi muni koma út í stóru
upplagi. f sumum tilvikum er um
það að ræða, að fyrirtæki greiða fyr-
ir auglýsingu, sem aldrei birtist.
Kannski í blað sem aldrei kemur út.
Blöð þessi hafa sáralítið auglýsinga-
gildi, enda yfirleitt illa til þeirra
vandað og það vita rekendur fyrir-
tækjanna. En fyrirtækin skrá þessi
beinu framlög til flokkanna sem
auglýsingar hjá sér.
Alþýðuflokkurinn hefur gert mik-
ið af þessu hin síðari misseri, auk
annarra flokksblaða.
í samtali við HP sagði Dauíd
Scheving Thorsteinsson, sem hefur
rætt stuðning fyrirtækja við flokka
opinberlega, að það væri mjög flók-
ið mál fyrir sig að greina frá styrkj-
um fyrirtækja sinna við stjórnmála-
flokka. „Það er mjög flókið að gera
grein fyrir því hvernig styrkveiting-
um til stjórnmálaflokka er varið.
Um er að ræða auglýsingar, bein
framlög og happdrættismiða.
Stjórnmálaflokkar eru alltaf í ein-
hvers konar átökum. Átökum vegna
kosninga. Átökum vegna húss, sem
þeir eru að klára," sagði Davíð
Scheving Thorsteinsson.
Davíð upplýsti, að hann hefði ver-
ið í fjármálaráði fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn fyrir tuttugu árum. Þá
hefði hann leitað til kunningja sinna
og vina eftir framlögum til Sjálf-
stæðisflokks, enda hefði það verið
hlutverk fjármálaráðs flokksins.
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokks, var spurður
um það hvort fjármálaráð væri
starfandi á vegum flokksins og
hvort það hefði sama hlutverki að
Geir A. Gunnlaugsson, gjaldkeri Alþýðu-
flokka Upplýsum ekki um bókhaldið.
gegna nú og fyrir tuttugu árum.
Staðfesti Kjartan að svo væri.
„Það má fullyrða, að Sjálfstæðis-
flokkurinn fær styrki frá atvinnu-
rekendum sem eru sjálfstæðis-
menn,“ sagði Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins. Og á sama hátt og Sjálf-
stæðisflokkur er styrktur af fyrir-
tækjum eða rekendum þeirra eru
Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og
Framsóknarflokkur styrktir af fyrir-
tækjum.
HP hefur heimildir fyrir því að út-
sendarar flokkanna gangi í fyrir-
tæki þegar mikið liggur við, fari
fram á auglýsingar, beina styrki, eða
að fyrirtæki kaupi happdrættismiða
flokkanna. Þannig fór sendiboði frá
Sjálfstæðisflokki um Vestfirði s.l.
sumar og safnaði fé í fyrirtækjum.
Og á sömu slóðum gekk Ámundi
Amundason, frá Alþýðuflokki í fyr-
irtæki.
Þá má geta þess, að Þorsteinn
Ólafsson, einn framkvæmdastjóra
SÍS og fulltrúi Framsóknarflokks í
nefndum og ráðum, beitti sér hart í
fyrirtækjum til bjargar NT, skv.
heimildum HP. Og Baldur Óskars-
son, fyrrum framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalags lýsir því í viðtali hér
á síðunni, hvernig hann leitaði til
fyrirtækja um stuðning við flokk-
inn.
I mörgum tilvikum eru safnanir á
borð við það sem hér hefur verið
drepið á utan venjulegs bókhalds
flokka og flokkar tregir á að upplýsa
um stuðningsmenn og önnur smá-
atriði í bókhaldi enda þótt fyrirtækin
í landinu styrki flokka fyrir milljónir
árlega. En hvað fá flokkar til starf-
semi sinnar frá hinu opinbera — úr
ríkissjóði?
SVOKÖLLUÐ
SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ
Hluta þess fjár, sem þingflokkar fá
til starfsemi sinnar er úthlutað af
forsetum Alþingis í samráði við for-
menn þingflokka stjórnmálaflokka.
Um úthlutun fjárins gilda sérstök
lög frá 1971. Þar segir m.a., að ár-
Iega skuli verja fé á fjárlögum til sér-
frœðiadstoðar við þingflokka. Er
ákveðnu fé varið til þessarar sér-
fræðiaðstoðar á fjárlögum. Upp-
hæðin er ákveðin af fjármálaráðu-
neyti eftir tillögum frá forsetum Al-
þingis og þingflokksformönnum.
Forsetum ber að setja reglur um
úthlutun í samráði við þingflokks-
formenn, en þeir, þ.e. þingflokksfor-
menn, skulu síðan senda forsetum
Alþingis sérstaka greinargerð um
ráðstöfun fjárins á ári hverju. Sama
gildir um þingmenn utan flokka,
sem fá úthlutað fé til sérfræðiað-
stoðar.
Staðreynd er hins vegar, að eng-
inn þingflokksformaður hefur skil-
að greinargerð til forseta Alþingis
um ráðstöfun þessa fjár, og forsetar
eða skrifstofustjórar Alþingis, hafa
ekki farið fram á slíka skýrslugerð
við þingflokksformenn. Engar regl-
ur hafa verið settar í þessu sam-
bandi skv. heimildum HP. Þetta
staðfesti Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, forseti Sameinaðs Alþingis,
í samtali við Helgarpóstinn.
Eiður Guðnason, formaður þing-
flokks Alþýðuflokks, svaraði að-
spurður um greinargerðarákvæði
laganna: „Ég hef ekki skilað grein-
argerð um veitta sérfræðiaðstoð.
Það hefur verið misbrestur á því —
og ég held að þetta gildi um alla
þingflokkana."
Tveir fyrrverandi þingflokksfor-
menn, þeir Ólafur Ragnar Grímsson
og Sighvatur Björgvinsson tóku í
sama streng og Eiður. Sagði Ólafur
Ragnar m.a.: „Ég skilaði aldrei
neinni greinargerð um ráðstöfun
fjár til sérfræðiaðstoðar. Þeir pen-
ingar gengu beint til framkvæmda-
stjóra flokksins, sem jafnframt var
framkvæmdastjóri þingflokks. Fyrst
Ólafur Jónsson og síðar Baldur
Óskarsson." Ólafur Ragnar Gríms-
son bætti því við, að hvorki forsetar
Alþingis, né skrifstofustjóri hefðu
farið fram á slíka greinargerð við
sig. Undir þetta tók Sighvatur Björg-
vinsson, sem var þingflokksformað-
ur Alþýðuflokksins um árabil.
Samkvæmt þessum upplýsingum
fara hvorki forsetar Alþingis, né for-
menn þingflokka að lögum þegar fé
til sérfræðiaðstoðar er annars veg-
ar. Forsetar Alþingis sinna úthlutun-
arverki sínu, en bregðast eftirlits-
hlutverkinu.
Heimildir HP herma, að venjan sé
sú að þessu fé sé dælt inní flokks-
sjóði og að þeir séu ekki nýttir til
sérfræðiráðgjafar nema að tak-
mörkuðu leyti. í sumum tilvikum
fara peningarnir til greiðslu launa
starfsmanna þingflokka, eða renna
til almennrar starfsemi flokkanna,
án þess að forsetar Alþingis viti
hvert peningarnir renna. Undan-
tekning er Framsóknarflokkur, en
því fé sem úthlutað er til þingflokks
Framsóknarflokks er ráðstafað af
þingflokki og haldið sérstakt bók-
hald um þessa fjármuni.
Á fjárlögum fyrir árið 1986 var
þingflokkunum veitt samtals kr.
6.822.000 til sérfræðiaðstoðar. Eft-
ir reglum sem forsetar Alþingis
settu var fé þessu úthlutað ársfjórð-
ungslega svo sem lög segja til um.
Miðað við allt árið komu 2.122.000
kr. í hlut Sjálfstœðisflokks,
1.440.000 kr. komu í hlut Framsókn-
arflokks, 1.137.000 kr. komu í hlut
Alþýðubandalags, 833.000 komu í
hlut Alþýðuflokks, 606.000 komu í
hlut Bandalags jafnaðarmanna og
Samtaka um kvennalista og 36.000
kr. komu í hlut Kristínar S. Kvaran,
sem skilgreind var sem þingmaður
utan flokka. í þessu sambandi skal
tekið fram, að smávægilegar breyt-
ingar urðu á skiptingunni fyrir síð-
asta ársfjórðung vegna breytingar á
skiptingu í þingflokka með inn-
göngu BJ í Alþýðuflokk og Sjálf-
stæðisflokk.
ÚTGÁFUMÁL
ÞINGFLOKKA
Sérstakur liður á fjárlögum er ætl-
aður til að ákveða tiltekinn styrk til
útgáfumála þingflokka. Stjórnskip-
uð nefnd sér um að úthluta skv.
þessum lið á fjárlögum. Formaður
nefndarinnar nú er Kjartan Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokks, en venjan er sú að for-
Kristín S. Kvaran. Fékk úthlutað um 250
þúsund krónum í ár. Hún notaði féð ma
til að fara til Norðurlandanna til að kynna
sér samfélagsþjónustu ( viðkomandi
löndum.
maður nefndarinnar sé úr sama
flokki og fjármálaráðherra. Allir
þingflokkar eiga fulltrúa í nefnd-
inni, sem starfar eftir reglum er hún
setur sér sjálf.
Enda þótt fé þetta sé ætlað til út-
gáfumála þingflokka er ekki vitað
til þess að útgáfustarfsemi þeirra
stofnana sé mjög umfangsmikil.
Samkvæmt heimildum HP er það
þannig hjá flokkunum, a.m.k.
„gömlu" stjórnmálaflokkunum
(Framsóknarflokkur undanskilinn),
að framkvæmdastjórar flokkanna
taka að endingu við þessum fram-
lögum úr ríkissjóði. Samkvæmt
upplýsingum fjármálaráðuneytis
óskaði ráðuneytið eftir því á árinu
1984, að flokkarnir gerðu grein fyrir
því hver væri endanlegur móttak-
andi fjárins, en eins og segir í vönd-
uðu svari ráðuneytis til Helgarpósts-
ins í framhaldi af fyrirspurn til ráðu-
neytis, þá bárust, pkki fullnœgjandi
svör frá stjórnmálaflokkunum við
fyrirspurninni" (leturbreyting HP).
HP spurði Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, hvernig nefndin skipti
þessu fé á þingflokka. Kjartan sagði:
„Tilteknum hluta útgáfustyrksins er
skipt jafnt á þingflokkana og síðan
er afgangnum úthlutað á hvern
þingmann og afgreitt þannig til
flokkanna. Þetta þýðir raunveru-
lega það, að 40% fjárins er skipt
jafnt og 60% af heimildarupphæð-
inni er skipt miðað við þingmanna-
fjölda."
Samkvæmt þessari skiptingu fékk
þingflokkur sjálfstœðismanna
greitt úr ríkissjóði til útgáfumála
samtals kr. 2.907.333, Framsóknar-
flokkur fékk samtals kr. 2.025.334,
Alþýðubandalag fékk samtals kr.
1.633.334, Alþýðuflokkur fékk sam-
tals kr. 1.241.334, Bandalag jafnað-
armanna fékk samtals kr.
1.045.334, Samtök um kvennalista
fengu samtals kr. 947.334.
TIL ÚTGÁFUMÁLA
— ENN ÁNÝ
Hin stjórnskipaða nefnd skiptir fé
þessu í janúar, eða febrúar ár hvert,
og gerir tillögu til fjármálaráðuneyt-
is um skiptingu fjárins. Og sam-
kvæmt upplýsingum Kjartans
Gunnarssonar þurfa þingflokkar
ekki að gera grein fyrir ráðstöfun
fjárins. Kemur það heim og saman
við upplýsingar fjármálaráðuneytis
svo sem áður er nefnt.
Mál Stefáns Benediktssonar beindi sjón-
um manna að fjárreiðum stjórnmála-
flokka. Bókhald BJ frá tíma Stefáns ligg-
ur fyrir og er opið fjölmiðlum. Á þeim bae
hefur e.t.v. verið haldið nákvæmast bók-
hald yfir notkun þess fjár sem veitt var til
BJ af opinberu fá
Nefndin greiðir einnig formlega
þingflokkum upphæð, sem merkt er
sérstaklega á fjárlögum undir liðn-
um „Til blaðanna". Er þar um að
ræða þrenns konar úthlutun.
í fyrsta lagi fær hver þingflokk-
anna greitt vegna kjördcemamál-
gagna. Samtals er um að ræða skipt-
ingu 5.340.000 kr. Fær hver þing-
flokkur 890.133 kr. og skiptist heild-
arupphæðin jafnt á milli flokkanna.
í öðru lagi fá Sjálfstœðisflokkur,
Bandalag jafnaðarmanna og Sam-
tök um kvennalista samtals
1.680.000 kr. Hver þessara þriggja
flokka fær 560.000 kr. í sérstakan
styrk til blaðaútgáfu. Skýringin er
sú, að flokksblöðin eru ekki keypt af
þessum flokkum.
í þriðja lagi fá þingflokkar úthlut-
að fé vegna „blaðaútgáfu og/eða
landsmálamálgagna". Samtals er
hér um að ræða 7.879.200 kr. fyrir
árið 1986. Miðast skiptingin við
fjölda þingmanna og koma 131.320
kr. á hvern þingmann.
Samkvæmt þessum lið fékk Sjálf-
stceðisflokkur kr. 3.020.360, Fram-
sóknarflokkur kr. 1.838.480, Al-
34 HELGARPÓSTURINN
leftir Helga Má Arthúrsson myndir Jim Smart