Helgarpósturinn - 13.11.1986, Page 12
íar 5 ,iórí:::::
■IZSýmfab Rúnars \
4sfa^tn,ngGísl30g,Herd.s3r
111 JP",MI " ■■■—
jjAstandið" svokallaða á íslandi
hefur löngum verið efniviður róg-
burðar. Nýjar athuganir og heim-
ildamynd Ingu Dóru Björnsdóttur
og Önnu Björnsdóttur um hlutskipti
„ástandskvenna" varpa öðru Ijósi á
efnið.
Nóve ber 19ae
'■ tbl• 3. árg.
Ver* kr. 259
Kýski rannsóknablaða-
maðurinn Gúnter Wallraff
hefur vakið heimsathygli
fyrir afhjúpanir sínar á
ýmsum meinsemdum
þýsks þjóðfélags, m.a.
vinnubrögðum Springer-
pressunnar svokölluðu og
meðferð Þjóðverja á tyrkn-
eskum verkamönnum.
Um reynslu sína af því
síðarnefnda skrifaði Wall-
raff bókina Ganz unten
sem orðin er metsölubók
í heimalandi hans og er
nú væntanleg í íslenskri
þýðingu. í tilefni af því
kemur Wallraff til íslands
síðar í mánuðinum en í
einkaviðtali við Mannlíf
segir hann frá lífi og starfi
rannsóknablaðamanns-
ins.
Uuðmundur Árni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, hefur aðeins
þrítugur að aldri náð allnokkrum
frama innan Alþýðuflokksins. Guð-
mundur Árni segir opinskátt frá
einkalífi og stjórnmálum, m.a. að-
förinni að Kjartani Jóhannssyni fyrir
síðustu formannsskipti í flokknum.
Jafnframt lýsir hann þeirri sorglegu
lífsreynslu, þegar hanri og kona
hans misstu tvo unga syni sína í
hörmulegum bruna fyrir tæpum
tveimur árum.
Herdís Hallvarðsdóttir og Gísli Helgason eru
þjóðkunn, — Herdís ekki síst fyrir leik sinn
með Grýlunum og Gísli sem tónlistarmaður,
fjölmiðlamaður og baráttumaður fyrir hags-
munum sjónskertra. Þau leika nú saman í
vísnahljómsveitinni Hálft í hvoru og deila jafn-
framt lífinu í hjónabandi. Frá hvoru tveggja,
lífinu og tónlistinni saman og sundur, segja
þau í fyllstu einlægni.
Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, á það sam-
eiginlegt aðalpersónu fyrstu skáldsögu sinnar,
sem út kemur nú fyrir jólin, að hafa upplifað
ástarsorg. Frá þeirri reynslu innan bókar sem
utan og mörgu fleiru segir Steinunn í hressilegu
viðtali.
Hinn stórfenglegi
skemmtigarður
Disney World í
Florida er 15 ára
um þessar mundir.
Mannlífi var boðið
í afmælisveisluna
og frá því segir Atli
Rúnar Halldórsson
í máli og myndum.
Meðal fjölmargs annars efnis: Fylgst með íslensku leikkonunni Margréti Árnadóttur á leik-
ferðajagi með hinum kunna spænska leikhópi Els Comediants um Evrópu; fjallað um forvitnilega
ævisögu Elínar Þórarinsdóttur, fyrrum eiginkonu Úrsusar íslands, Gunnars Salómonssonar og
birtar einstæðar myndir frá lífi þeirra í fjölleikahúsum erlendis; birtar fallegar tískumyndir af vetr-
artískunni, teknar á Korpúlfsstöðum; rætt við Hlíf Svavarsdóttur, ballettdansara í Amsterdam og
Jón Kr. Ólafsson, söngvara og náttúrutalent á Bíldudal; birt sýnishorn úr nýrri listaverkabók um
Ásgrím Jónsson sem sum hver hafa ekki áður komið fyrir almenningssjónir; sagt frá fatahönnuð-
inum og sjónvarpskonunni Ásdísi Loftsdóttur og margt, margt fleira.
12 HELGARPÖSTURINN
Tímaritið
MANNLÍF
Áskriftarsími:
687474