Helgarpósturinn - 13.11.1986, Page 14
Kaupþing hefur styrkt stödu sína
med því ad sparisjóöir á höfudborg-
arsvœdinu keyptu 49% hlut í fyrir-
tœkinu og eiga þad á móti Pétri
Blöndal og fjölskyldu, sem eiga nú
51% í Kaupþingi.
Ekki er nema rúmur mánuður síð-
an tilkynnt var um sölu meðeigenda
Péturs á hlut þeirra í Kaupþingi.
Meðal fyrrverandi eigenda voru
Baldur Gudlaugsson, sem er áhrifa-
mikiil í Sjálfstæðisflokknum, Ragn-
ar Árnason í Aiþýðubandalaginu
auk þeirra Ara Arnalds, Sigurðar B.
Stefánssonar, Porsteins Haraldsson-
ar og Gunnars Guömundssonar.
Fyrirtækið hefur stundað verð-
Sparisjóðirnir, Reykjavíkur og ná-
grennis, Keflavíkur, Kópavogs og
Hafnarfjarðar, keyptu 49% hluta-
bréfa fyri tólffalt nafnverð — eða á
4,9 milljónir króna. Fyrir rúmum
mánuði keypti Pétur hluti meðeig-
enda sinna á tæplega tólfföldu nafn-
verði.
Mörgum finnst sérkennilegt að
sparisjóðir skuli vera komnir í fast-
eignasölu, en það er ekkert eins-
dæmi um bankastofnanir. Iðnaðar-
bankinn og Samvinnubankinn eiga
t.d. aðild að Fjárfestingafélaginu,
sem einnig stundar verðbréfamiðl-
un og var í fasteignasölu.
Blöndal. Hann kveður ekki um
neina viðhorfsbreytingu að ræða
hjá sér eða Kaupþingi og hann telur
að sá munur sé á bönkunum og
sparisjóðunum, að sumir bankarnir
séu bundnir á klafa þröngra hags-
muna við útlánastarfsemi til búnað-
ar, verslunar, iðnaðar o.s.frv., með-
an sparisjóðirnir leggi áherslu á
ávöxtun sparifjár. Bankarnir hafi
ekki lagt áherslu á að ávaxta sparifé
og gæta hagsmuna spariTjáreig-
enda.
Þá benda menn á, að miklu skipti
að geta komið skuldabréfum í verð.
Bankarnir geti stundum verið tregir
til, — en þegar sparisjóðirnir eru
keyptu sitt á hvað bæði hjá Kaup-
þingi, Fjárfestingafélaginu og hugs-
anlega fleirum. Þannig að ég held
að þarna sé ekki um það að ræða að
ég sé með eitthvert plott við að
tengja saman sparisjóði og lífeyris-
sjóði við Kaupþing," segir Pétur
Blöndal.
Á hinn bóginn telja margir að
sparisjóðabáknið sé staðnað og
þarna sé möguleiki á að gæða starf-
semi þess nýju lífi. Það verði hlut-
skipti Péturs Blöndal að lífga við
þetta bákn, segja gárungarnir. „í
þessu felst nú ofmat á mér sjálfum.
En hvort sparisjóðabáknið sé staðn-
Rétur Blöndal framkvæmdastjóri Kaup-
þings og stjórnarformaöur Landssam-
bands lífeyrissjóða. Erfitt að komast hjá
hagsmunaárekstrum á Islandi.
Ný stjórn og varastjórn I Kaupþingi. Ölaf-
ur Haraldsson SPRON, Baldvin Tryggva-
son SPRON, Geirmundur Kristinsson
Keflavík, Þorvaldur Gylfason prófessor,
Pétur Blöndal, Þorkell Helgason prófess-
or, Magnús Magnússon Keflavík, Jónas
Reynisson Hafnarfirði og Ólafur Stefán
Sigurðsson úr Kópavogi. Guðmundur
Hauksson stjórnarmaður var ekki á fund-
inum.
bréfamiðlun og ráðgjöf, fasteigna-
sölu, útgáfu Vísbendingar, frétta-
bréfs um efnahagsmál, ásamt ýmiss
konar starfsemi annarri.
Margir telja að reksturinn hafi
ekki gengið alltof vel. Þeir álykta
sem svo, að til að fá fjármagn og
tryggja meiri veltu fyrirtækisins hafi
Pétur Blöndal þurft að standa þann-
ig að málum, að kaupa fyrst sjálfur
meðeigendur sína útúr fyrirtækinu.
„Ég hefði aldrei verið að kaupa
þetta fyrirtæki ef það væri illa statt.
Hins vegar var ljóst að ég tel ekki
heppilegt að eiga fyrirtækið einn,
þó ekki væri af annarri ástæðu en
þeirri, að ég sem tryggingafræðing-
ur tel ekki rétt, að menn setji allar
eigur sínar í eitt fyrirtæki. Hins veg-
ar fyigir allri atvinnustarfsemi
ákveðin áhætta; það gætu verið sett
ný lög, ný ríkisstjórn eða önnur óár-
an gæti dunið yfir. En það getur ekki
heitið að hér hafi rekstrarörðugleik-
ar verið á ferðinni," sagði Pétur
Blöndal framkvæmdastjóri Kaup-
þings. En fasteignasala Kaupþings?
„Jú, ég get ekki neitað að hún hefur
gengið misjafnlega, en hún er bara
einn rekstrarþáttur hjá okkur. Það
verður enginn ríkur af fasteigna-
sölu,“ segir Pétur.
LEGGJA EKKI í
SAMKEPPNI
Nú er það svo að bankastofnanir
hafa verið í samkeppni við fyrirtæki
eins og Kaupþing; samkeppni um
fjármagnið. Sumir telja einkennilega
að því staðið að nota ekki tækifærið
með rýmkun laga til að sparisjóð-
irnir setji sjálfir upp verðbréfamark-
að í samkeppni við Kaupþing og slík
fyrirtæki. Baldvin Tryggvason for-
maður SPRON sagði í viðtali við
Morgunblaðið á dögunum, að í stað
þess að stofna eigin sjálfstæðan
verðbréfamarkað séu sjóðirnir að
„fara styttri leið“. „Við erum með
þessu að kaupa okkur þekkingu,"
sagði Baldvin í sama viðtali.
Sömuleiðis finnst mörgum skond-
ið að Kaupþing, alþingi einkafram-
taksins, skuli nú gengið í björgin hjá
bankakerfinu.
„Hefurðu ekki kíkt á eignarhlut-
föllin? Það er alveg á hreinu og að ég
held alveg mínu sjálfstæði. Það er
ekki um það að ræða að einn kúgi
annan í þessu samstarfi. Sparisjóð-
irnir voru að mínu viti álitlegasti
samstarfskosturinn af nokkrum
sem voru á biðlista," segir Pétur
orðnir hluthafar i Kaupþingi sé
ákveðin áhætta úr sögunni; búið sé
að tryggja í bak og fyrir með skulda-
bréfakaupum frá sparisjóðunum
annars vegar og lífeyrissjóðunum
hins vegar. I því sambandi benda
menn á að Pétur Blöndal sé formað-
ur stjórnar Landssambands lífeyris-
sjóða en Baldvin Tryggvason for-
maður sambands sparisjóðanna.
Hér sé því allt að því um hagsmuna-
árekstur að ræða.
„Ég hef nú ekki hugsað þetta
svona vítt. Það er nú ákaflega erfitt
á íslandi að halda sér utan við hags-
munaárekstra, þar sem menn lenda
í alls konar störfum. Það að ég er
formaður Landssambands lífeyris-
sjóða er vegna menntunar minnar
sem tryggingafræðingur og þekk-
ingar á lífeyrismálum. Þetta hefur
verið ógnarleg vinna og spurning
hvað maður á að standa í svona
lengi. Ég sé enga hagsmunaárekstra
þarna í sjálfu sér vegna þess að ég
hef aldrei haldið að neinum manni
að kaupa hjá Kaupþingi, alls ekki.
Ég hef meira að segja verið í stjórn
lífeyrissjóðs og óskað sérstaklega
eftir að vera ekki í nefnd sem keypti
á hinum svokallaða „gráa markaði".
Það voru aðrir í þeirri nefnd og þeir
■eftir Óskar GuðmundssonBi
að er dómur sem ég vil ekki fella,"
segir Pétur.
HASKOLAMENN Á
ODDINN
Athyglivert er að Pétur reynir að
samhæfa „fræðilega hugsun og
reynslu", eins og hann orðar það
sjálfur með því að fá prófessora við
Háskóla íslands í stjórn firmans.
Formaður stjórnar er Þorvaldur
Gylfason prófessor, varaformaður
Porkell Helgason prófessor, en aðrir
í stjórn eru Baldvin Tryggvason,
Guðmundur Hauksson og Geir-
mundurKristinsson, allir sparisjóðs-
stjórar. Sjálfur er Pétur Blöndal aðal-
eigandi firmans ekki í stjórn fyrir-
tækisins, en hann er framkvæmda-
stjóri þess.
„Mér finnst alltaf óeðlilegt að
framkvæmdastjóri sé jafnframt í
stjórn, þ.e. yfir sjálfum sér. Þess vegna
ákvað ég að byggja upp stjórn sem
ég væri ekki sjálfur í. Varðandi há-
skólamennina er það ætlunin að
tengja saman reynslu sparisjóða-
manna og fræðimennsku. Háskóla-
mennirnir eru óháðir fræðimenn og
ég er ánægður með þessa stjórn. Ég
lít ekki á stjórn sem valdastofnun
heldur sem hugmyndasmiðju,"
sagði Pétur Blöndal að lokum.
Sparisjóöirnir kaupa
49% hlutabréfa á
móti Pétri Blöndal.
„Ég held mínu sjálf-
stœði,“ segir Pétur
Blöndal. Sumir telja
að um hagsmuna-
árekstur sé að rœða;
sparisjóðir og lífeyris-
sjóðir séu viðskipta-
vinir Kaupþings.
Prófessorar við há-
skólann í stjórn Kaup-
þings.
W HELGARPÖSTUmNN