Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 13.11.1986, Blaðsíða 16
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd Jim Smart Olafur Ormsson rithöfundur í HP-viðtali LÍFSFÖRUNAUTUR EKKI LOGANDI KERTI Ólafur Ormsson er þekktur maður íýmsum geirum þjóðlífsins, á að baki tvœr Ijóðabœkur, smásögur og skáldsögur. Innan tíðar er vœntanlegt eftir hann nýtt smásagnasafn. Hann er jafnframt þekktur fyrir menningarstörf sín á vegum Lystrœningjans sáluga og margir hafa áreiðanlega veitt athygli dálkaskrifum hans íMorgunblaðinu undanfarin misseri, undir heitinu Svip- myndir úr borginni. Þá á Ólafur skrautlegan pólitískan feril að baki sem sýnir vel hversu sleip haldreipi geta reynst. Snemma á unglingsárunum hneigðist hann að þjóð- ernisjafnaðarmennsku, í barnaskap að eigin sögn;þá prédikaði hann fagn- aðarerindi sósíalismans í nokkur ár, en síðan 1980 hefur hann stutt Sjálf- stœðisflokkinn. En trúin á einstaklingshyggjuna er honum þó ekki nœgi- lega sterkt haldreipi á þessum óvissutímum og því er hann farinn að blása í glœður barnatrúarinnar, sem afi hans og alnafni vakti með honum. En eitt er að berjast fyrir sínum málum einn og óháður og annað að búa einn. Því þráir Ólafur hvað mest haldreipi í góðrar konu líki, en hana telur hann vandfundna. Hér rœðir Ólafur Ormsson um öll þessi mál í viðtali við HP. Hann tekur á móti mér með súkkulaði og sjerríi í stofu sinni á Mánagötunni. Og logandi kertaljósi. „Ég er nú eiginlega búinn að finna fyrir þig fyrirsögn á viðtalið," segir Ólafur undirleitur og brosir út í annað. „Hvernig líst þér á: Óska eftir blaðakonu með sambúð í huga?“ Mér hér um bil svelgist á sjerríinu og segist telja að útlitshönnuður HP myndi frekar ganga í sjóinn en að teikna upp svo langa opnuviðtals- fyrirsögn, og flýti mér að spyrja Ólaf hvort hann eigi eða leigi íverustað sinn. Grundvallarspurn- ing varðandi tilvist íslendingsins. ÁTTA ÍBÚÐA BÓHEM OG SAMEIGNARFÉLAGIÐ FLASKAN „Þetta er fyrsta leiguíbúðin mín,“ svarar hann. „Ég hef átt einar átta íbúðir um ævina. Ha?“ flissar hann en ég hvái. „Jú, ég hef eiginlega lifað bóhemlífi alla tíð,“ segir Ólafur, „keypti og seldi íbúðir til að drýgja tekjurnar. En við skulum nú ekkert fara nánar út í þá sálma. Liðið er liðið." Það var einmitt á bóhemárum þeirra Lystræn- ingja, sem auk Ólafs voru þeir Vernharður Linnet og Þorsteinn Marelsson, að Ólafur gaf út sína fyrstu bók, 1973, Fáfniskver, á vegum Sam- eignarfélagsins flöskunnar. Þar er m.a. að finna dýrðaróð til Júrí Andrópovs, ortan af miklu póli- tísku innsæi. Ég bið Ólaf að segja mér nánar frá þessu forvitniiega kveri. Mér sýnist hann ekkert sérlega upprifinn yfir bóninni, enda var hann að enda við að segja að liðið væri liðið. Segir svo með semingi: „Kverið varð til í stundarhrifningu þegar góð- ir vinir komu saman og fengu sér í glas. Þá átti ég til að skrifa ijóð á servíettu. Svo missti ég þetta kannski á borðið eða í sófann en Vern- harður hirti og stakk á sig til að rannsaka frekar pg taldi síðan að þetta ætti eitthvert erindi í bók. í raun eru þetta frekar ávörp en ljóð enda hef ég aldrei litið á mig sem ljóðskáld. Ég lít á þetta kver sem bernskubrek." — Hvers vegna valdirdu þér ritstörf sem höf- udviöfangsefni? Nú spannar Ólafur andlitið með því að taka löngutöng og þumalputta yfir ennið og lygnir aftur augunum í einbeitingu: „Sennilega af mik- illi þörf fyrir að tjá mig. Þótt ég hafi gaman af tónlist er ég laglaus og því hefði ég aldrei getað orðið tónskáld. Því síður hef ég tækifæri til að tjá mig í myndlist. Þess vegna hiaut þessi tjáningar- þörf að brjótast út í skriftum." INNBLÁSTUR í MJÓLKUR- BÚÐINNI „En það er skiljanlega mjög erfitt fyrir marga að fást við skriftir eftir að Halldór Laxness hefur skapað öll þessi listaverk. Kannski er hann öðr- um höfundum stöðug viðmiðun. Það að gera rit- störf að ævistarfi sínu er köllun. Það kemst ekk- ert annað að en að taka sér penna í hönd og byrja á einhverju. Manni finnst maður af ein- hverjum ástæðum hafa verið settur í þetta! Rit- höfundurinn hefur ekkert annað að styðjast við en blýantinn, ritvélina og það sem hann hugsar hverju sinni. Hann kann jafnvel að finna inn- blástur úti í mjólkurbúð þegar stúlkan réttir hon- um vínarbrauðið," segir hann djúphugull. Ólafur hreiðrar um sig í hægindastólnum, •byrgir nú andlitið í báðum höndum sér og held- ur áfram að útlista ritstörfin. „Ritstörf eru í eðli sínu langur og strangur skóli. Ég hef verið að fást við þetta síðastliðinn áratug og er hreint ekki ánægður með margt af því sem ég hef skrifað framan af. Ég er að mörgu leyti óánægður með skáldsögurnar, Stútungs- punga og Boöiö upp í dans, það er ekki fyrr en ég á síðari árum fór að fást við smásögurnar að mér finnst ég vera farinn að ná einhverjum tök- um á stíl og frásögn. Ég er ekki frá því að smá- sagnaformið henti mér betur." Þá má geta þess að Ólafur hefur nýlokið við að skrifa útvarps- ieikrit og var að skrifa annað fyrir sjónvarp. Þá segist Ólafur hafa gengið í gegnum ófnet- anlegan skóla síðastliðin misseri sem dálkahöf- undur á Morgunblaðinu. Þeir sem fást við rit- störf eiga ekki allir því láni að fagna að geta fengist við skriftir á dagblaði: „Rithöfundar og skáld eru endalaust að Ieita uppi viðfangsefni. Þegar maður fæst við að skrifa svipmyndir úr borginni þurfa augu skálds- ins að vera opin fyrir því sem er að gerast í lífi samborgaranna. Framan af þurfti ég að hafa mikið fyrir þessu, fór úr einu borgarhverfinu yfir í annað í leit efniviði. Þetta hefur verið mér afar dýrmæt reynsla." — Hvad ertu svo aö fást viö í smásagnasafn- inu sem þú varst rétt aö Ijúka viö? „Mér hefur dottið í hug að kalla þær Vísitölu- aöalinn. Sögurnar snúast allar um efnishyggj- una, fólk sem hugsar um það eitt að safna að sér dauðum hlutum. Ein sagan heitir t.d. Ég elska einbýlishúsiö. Eiginmaðurinn er alltaf utan heimilisins á vegum fyrirtækisins og það bitnar á hjónabandinu. Konan er öryggislaus heima og þegar maðurinn hringir í hana segir hann henni að fara út á myndbandaleigu og fá sér spólu. Spólan á einhvern veginn að friða konuna," seg- ir Ólafur og hlær um leið og hann hverfur úr hugleiðslustellingum í bili og bandar höndunum að hætti þjálfaðra ræðumanna. NEYSLUKAPPHLAUPIÐ VIÐ NÁGRANNANN , „Ég er hræddur um að mörg hjónabönd séu í upplausn vegna þess að það þarf orðið svo mik- ið fyrir því að hafa að reka heimili," bætir hann við. „Allt snýst um það kapphlaup að vera ekki minni maður en nágranninn. En það eru ekki efnahagsleg gæði sem skipta máli heldur mann- gildið." — Af sjálfu leiöir þá aö þú ert enginn efnis- hyggjumaöur? Bóheminn sjálfur? „Nei. f rauninni nægir mér að hafa einhver föt utan á mig, góðar bækur í kringum mig, að geta hlustað á góða tónlist og fylgst nokkuð vel með því sem er að gerast í menningarmálum. Svo finnst mér skipta miklu máli að eiga góða vini og félaga og geta spjallað við þá þegar þannig stendur á. Fátt er dýrmætara en góður vinur." Nú verður Ólafur íhugull á ný og grípur um andlitið með þumli og löngutöng. „Er ekki ann- ars best að ég byrji á byrjuninni?" spyr hann og víkur að uppvaxtarárum sínum í Keflavík þar sem hann bjó til sautján ára aldurs: „Ég ólst upp hjá góðu fólki, var dálítið lengi að taka út þroska og gekk ekki sérlega vel í skóla enda lagði ég mestmegnis stund á skák og tenn- is með syni apótekarans á gagnfræðaskólaárun- um,“ segir hann og skellir upp úr. „Ég náði alltaf bestum árangri í ritgerð og íslenskum stíl, byrj- aði mjög snemma að skrifa dagbækur og hef nú skrifað þær nokkurn veginn samfleytt í ein fimmtán ár. Það var kannski æfing að því sem síðar varð í sambandi við ritstörf. Skrifaði Þór- bergur ekki alltaf dagbækur? Ég held að þeim sem ætla sér að gera ritstörf að ævistarfi sínu sé mjög hollt að skrifa dagbækur, skrifa eitthvað sem kemur upp á dag hvern, þó að það sé ekki endilega merkilegt." PÓSISTAFLOKKURINN OG FYLKINGIN Þá segir Ólafur hálffeimnislegur að eiginlega hafi fyrstu tilraunir hans til ritstarfa verið grein- ar sem hann skrifaði á unglingsárunum í mál- gagn Pósistaflokksins sem hafi verið mjög hægri sinnaður þjóðernisjafnaðarmennskuflokkur. „Unglingum dettur ýmislegt í hug sem er kannski ekki alveg til fyrirmyndar," segir hann eins og í afsökunarskyni. — En síðan kúvendir þú og gengur í Æsku- lýösfylkinguna? „Jú, það var ’64, skömmu eftir að ég flutti til Reykjavíkur. Ungt fólk á þessum tíma, ’68 kyn- slóðin svokallaða, var mjög gagnrýnið á þjóðfé- lagið sem að nokkru leyti kristallaðist í mótmæl- um á framferði Bandaríkjamanna í Víetnam. Á þessum árum kynntist ég mörgum góðum félög- um eins og Vernharði Linnet, Þorsteini Marels- syni, Ragnari Stefánssyni og Birnu Þórðardótt- ur. Ég sat í stjórn Æskulýðsfylkingarinnar í fjög- ur ár og var einn af ritstjórum æskulýðssíðu Þjóðviljans. Var viðloðandi þessa sósíalísku hreyfingu allt fram undir miðjan síðasta áratug, var m.a.s. í framboði fyrir Sósíalistafélag Reykja- víkur í borgarstjórnarkosningunum 1970. Það var samsafn gamalla stalínista og kreppu- komma mjög hliðhollum Sovétríkjunum sem gagnrýndu borgaralega hentistefnu Alþýðu- bandalagsins. Við töldum að byltingin gæti hreinlega gerst á morgun eða hinn. En síðan er nú mikið vatn runnið til sjávar,” segir Ólafur og skellihlær. — Viltu ekki nefna dœmi um klassískar mót- mœlaaögeröir þessara tíma? „Það er sko af nógu að taka. Þar er sko af nógu að taka,” segir Ölafur með áherslu á hvert atkvæði. „Mér er til dæmis minnisstætt þegar lúðrasveit bandariska hersins hélt tónleika í Háskólabíói haustið 1968. Þar voru fylkingarfé- lagar mættir og þegar bandaríski þjóðsöngur- inn var leikinn stóðu þeir upp og grýttu eggjum í hljómsveitarmeðlimi. Upp úr því ruddist inn hópur lögregluþjóna með kylfur á lofti og marg- ir félagar voru handteknir. Þannig rak hver aðgerðin aðra sem Æskulýðs- fylkingin stóð að á þessum árum, ýmist gegn Víetnamstríðinu og hersetu Bandaríkjamanna á Islandi, eða gegn atvinnuleysi og kjaraskerð- ingu. Síðan hætti ég að starfa í Fylkingunni upp úr 1970 en studdi Alþýðubandalagið í kosning- um allt fram til ársins 1979.” Þá segir Óalfur að eftir að hann hafi hætt að miða allt við verkalýðsbaráttu og veraldleg gæði hafi hann þurft að leita að nýjum grund- velli til að standa á og hafi þá meðal annars sökkt sér niður í spíritisma og trúmál. EGÓISMI EÐA EINSEMD „Ég held að margt fólk sem komið er á miðjan aldur og hefur átt sér æskuhugsjónir geri sér oft far um að skoða hlutina í nýju ljósi. Aður hafði ég ekki talið mig sérlega trúaðan mann, en und- anfarin ár hefur afi minn og alnafni orðið mér æ hugstæðari. Hann kom í rauninni í staðinn fyrir skóla á upvaxtarárum mínum. Af honum hef ég lært mest og hann rökræddi mikið við mig um gildi Krists. Hann er orðinn gamall núna, en var bóndi suður í Höfnum og ræktaði sína jörð einn og óháður. Þar kynntist ég einstaklingsfrelsinu í sínu skýrasta ljósi. Honum á ég mest að þakka ásamt föður mínum sem mér þykir ekki síður vænt um. Nú er ég sannfærður um að kristin- dómurinn er alltént miklu betri trúarbrögð en sósíalisminn, hvað sem öðru líður. Eg legg mikið upp úr því að einstaklingurinn ráði örlögum sín- um.“ Nú fer Ólafur að velta vöngum yfir því örygg- isleysi sem hrjáir margan manninn í dag, leitinni að einhvers konar trúarbrögðum, og hann sýnir mér tvær biblíur í stóru broti sem hann á. Áðra fékk hann að gjöf frá afa sínum og alnafna. „Ég sef oft með aðra þeirra við höfðalagið,” segir hann í trúnaði. „Finnst þér það nokkuð skrýtið á þessum tímum þegar allt getur gerst?" — En hvernig gengur aö trúa á frelsi einstakl- ingsins og aö búa einn? „Ég hef lengst af búið einn, en stundum hef ég þó verið í sambúð, eitt sinn í þrjú ár samfleytt með manneskju sem er læknir. Það voru skemmtilegir tímar á allan hátt. Ég fann mig að mörgu leyti vel í þeirri sambúð, kom inn í líf frá- skilinnar konu með tvö börn. Að sumu leyti sé ég eftir þessari manneskju,” segir hann og lækk- ar röddina. „En ég er að ég tel ákaflega sjálfstæður í mér og kannski er ég bara svo mikill egóisti að ég eigi erfitt með að vera í sambúð með konu. Innst inni held égj)ó að mig langi til að reyna eitthvað slíkt aftur. Eg er satt að segja að verða dálítið leiður á þessari stöðugu einveru þar sem allt miðast við sjálfan mig: fara út í búð og ná í eitt- hvað að borða, til dæmis jógúrt, brauð og álegg. Það er lítið spennandi til lengdar” — Hefuröu gaman af aö búa til mat? „Já, ég hef gaman af að kokka ofan í sjálfan mig og þá sem koma í heimsókn. Um daginn fékk ég sendar í pósti frá forlagi tvær mat- reiðslubækur sem ég hef verið að fletta til að átta mig á hvað ég gæti sjálfur búið til af þessum réttum. Ég treysti mér alveg til að setja sjálfur á disk eitt og annað sem þarna er að finna.” Nú þagnar Ólafur við svo ekkert heyrist nema tifið í stórri vekjaraklukku í glugganum. Svo horfir hann upp í bókahillurnar eins og hann sé að leita að ákveðnum kili og heldur áfram: „I grundvallaratriðum er það þannig að mað- ur verður dálítið leiður og þreyttur á að búa einn. Ég vildi gjarnan deila því sem ég er að hug- leiða með annarri manneskju, í þessu tilfelli góðri konu. Ég held að manninum sé hollt að styðjast við góða konu. En viljinn er ekki nóg. Það verður að gera eitthvað í málunum.” GÆTI FÓRNAÐ LÍFI MÍNU — Nú eru flestir vinir þínir og jafnaldrar sjálf- sagt í sambúö. Hefur þér fundist aö þú vaerir á skjörn viö þá aö þessu leyti? „Ég verð 43 ára núna 16. nóvember og allt í kringum mig eru vinir og kunningjar sem eru komnir í sambúð fyrir allnokkru síðan,” svarar Ólafur. „Þeir eru að vísu misánægðir með sitt hiutskipti, en einhvern veginn finnst mér að þeir hafi meira að lifa fyrir heldur en þeir sem eru einir og miða allt við sjálfa sig. Þeir kaupa sér kannski kerti og kveikja á því, horfa svo á þetta logandi kerti og allt í einu er það dautt. Þá segja þeir við sjálfa sig: Það er ekki nóg að horfa á þetta kerti, það er ekki kertið sem skiptir máli, heldur lífsförunautur. Kertið brennur út. Ég held ég gæti fórnað lífi mínu fyrir manneskju sem mér þætti vænt um. Svei mér þá! Maður verður að geta gefið eitthvað af sjálfum sér.“ — Hefur þér aldrei dottiö t hug aö fá þér kött? „Satt best að segja hefur mér oft dottið það í hug. Það væri til dæmis mjög notalegt að hafa til nýsoðna ýsu handa kettinum um hádegisbil.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.