Helgarpósturinn - 13.11.1986, Síða 27
Nýtt konfekt í eyru djass-rokk-unnenda
ÞRYKKTIR GAMMAR
Það eru fleiri fönkaðar plötur en
No Limits þeirra Mezzoforte manna
að koma út á íslandi þessa dagana.
Aldrei þessu vant. Önnur plata
djassrokksveitarinnar Gamma
barst í búðir í síðustu viku. Og þar
leika sem fyrr flínkir spilarar að
nafni Björn Thoroddsen á gítar,
Skúli Sverrisson á bassa, Stefán
Stefánsson á sax, Steingrímur Óli
Sigurðarson á slagverk og hljóm-
borðsleikarinn Þórir Baldursson.
Gammar hófu flugið fyrir giska
þremur árum og fyrsta platan varð
til nánast í flugtakinu. Hún bar nafn
sveitarinnar, þótti vönduð og varð
vinsæl meðal þeirra sem á annað
borð frá hrísling niðrum bakið við
tóna af tagi djassrokksins. Björn,
Stefán og Þórir sáu um samningu
nýjustu plötunnar og segist Björn
halda hana öllu þéttari en þá fyrstu.
Hann bætir við: „Og kannski þyngri
— sem er að vísu orð sem maður má
alls ekki láta út úr sér þessa dag-
ana..
Hann er að skírskota til léttmetis-
fársins.
,,Já, þessi nýja plata okkar er ein-
mitt framlag til að rétta af hallann i
spiliríi stöðvanna. Það hefur aldrei
verið eins erfitt og þessar vikurnar
að koma að þyngri músík en sem
svarar til fjaðurvigtarpoppsins. Létt-
metið situr í fyrirrúmi. Og harðn-
andi samkeppni í útvarps- og sjón-
varpsmálum virðist ekki koma okk-
ar tónlist að gagni. Það er frekar að
einstefnan aukist með fleiri stöðv-
um.“
En Gammar trúa á betra líf með
blóm í haga.
Jólin eru til dæmis að nálgast. Og
talandi um þau: Björn neitar að
þessi nýjasta plata Gamma sé jóla-
plata. Hún hafi einfaldlega klárast í
vinnslu á þessum fyrstu vetrarvik-
um og útgáfan taki blint mið af því.
Um jólin komi hinsvegar Skúli
heim. Þeir geti ekki kynnt nýja efn-
ið fyrr en þá, bassinn sé að læra
djassfræðin í Bandaríkjunum og
námið a tarna hafi reyndar strikað
svoltið reikninginn í starfsemi sveit-
arinnar á undanliðnum misserum.
Hún hafi lítið spilað opinberlega, sé
nánast neðanjarðar í skilgreining-
unni.
En Skúli fer að koma.
-SER
Smartmynd.
BALLETT-fólkið í Þjóðleikhús-
inu bregður undir sig betri fætinum
í næstu viku þegar fslenski dans-
flokkurinn frumsýnir þrjú stutt verk
eftir þær Nönnu Ólafsdóttur og Hlíf
Svavarsdóttur. Frumsýningin verð-
ur á fimmtudagskvöldið og eru fyr-
irhugaðar þrjár sýningar á þessu
fyrsta verkefni dansaranna á nýju
leikári. Flokkurinn er tiltölulega ný-
kominn frá Köben þar sem hann
sýndi Stöðuga ferðalanga eftir Hol-
lendinginn Ed Wubbe við mjög góð-
ar viðtökur og afar lofsamlegar
blaðaumsagnir í dönsku pressunni.
Akureyringum verður gefinn kostur
á að sjá þetta dansverk í Samkomu-
húsinu síðustu helgina í nóvember
en það var sem kunnugt er frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu síðasta vetur.
Eftir áramót tekur svo ísienski dans-
flokkurinn til við sýningar á Glugg-
anum eftir Jochen Ulrich, þann
sama og samdi Blindingsleik um ár-
ið. Sveinbjörg Alexanders stjórnar
þeirri uppsetningu, en hún hefur
einmitt talsvert unnið með Ulrich á
undanliðnum árum. Frumsýning
Gluggans verður líkast til í febrúar.
Þá á dansflokkurinn inni boð hjá
Færeyingum og eru líkur á því að
hann frumsýni þar verk að vori sem
danski djasskompónistinn Christian
Blak er að semja við gamalt fær-
eyskt þjóðlag og kvæði eftir William
Heinesen. Danshöfundur verksins
er enn óákveðinn, en vitað er að Ed
Wúbbe hefur mikinn áhuga á að
vinna meira fyrir hópinn, segist
óvíða kunna betur við sig en hér-
lendis og það sást þegar hann setti
upp hérna síðast.
KVIKMYNDAHÚSIN
Stella f orlofi
★★★
Léttgeggjuð ærsl a la islanda kl. 5,7, 9
og 11.
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Manneskjulegur og hrífandi Spielberg
kl. 9 fyrir 12 ára og uppúr.
Innrásin frá Mars
(Invaders from Mars)
★
Geimd leiðindi, en spennó kl. 5,7,9 og
11 fyrir 10 ára og eldri.
Aliens
Ný
Splunkuný og spennandi spenna kl. 5,
7.30 og 10.05 fyrir 16 ára og eldri.
Stórvandræði f Litlu Kína
(Big trouble in Little China)
★★
Uppátækjasamt sprell og hrekkir kl. 5,
7.30 og 10.05. Bönnuð innan 12.
f klóm drekans
(Enter the Dragon)
★★★
Eina sanna karatemyndin með Bruce
Lee (endursýnd) kl. 5 og 10.05 fyrir 12
ára og eldri.
f svaka klemmu
(Ruthless people)
★★
Sjúklegur ærslaleikur kl. 7 og 10.05.
Mona Lisa
★★★
Elskuleg mynd, hörku drama og leikur
kl. 7.30 fyrir 16 og eldri.
Lögregluskólinn 3: Aftur f þjálfun
(The Police Academy: Run for Cover)
★★
Ágætis ærsl af framhaldi að vera kl. 5
fyrir 16 ára og eldri.
Eftir miðnætti
(After Hours)
★★★
Fágað grín Scorsese kl. 5, 7.30 og
10.05.
BÍÓHÚSID
Aulabárðarnir
(Wise Guys)
★
Úthaldslaust grín kl. 5, 7, 9 og 11 eftir
Brian de Palma.
lafcjfmmii
Aftur f skóla
(Back to School)
★★
Dillandi grín og hraði kl. 5.10, 7.10 og
9.10.
LAUGARÁS
B I O
Frelsi
(Sweet Liberty)
★★
Notalega létt kvöldstund kl. 5, 7, 9 og
11 eftir Alan Alda.
Psycho III
★★★
Mögnuð mynd milli skinns og hörunds
kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16.
( skugga Kilimanjaro
(In the Shadow of Kilimanjaro)
★★★
Bavíanar og bljúgir menn kL 5, 7, 9 og
11 fyrir 16 ára og eldri.
REGNBOGINN
Draugaleg brúðkaupsferð
(Haunted Honeymoon)
Ný
Léttruglaður gríntryllir að hætti Gene
Wilder kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Svart og sykurlaust — Kvikmynd-
in
★★★
Einkar hugljúf ródm úvf, endursýnd kl. 5
og 7 í styttri og endurbættri útgáfu.
MYND
VIKUNNAR
James Cameron hefur fléttað aft-
an við þá ógurlegu Aliens. Framhalds-
myndin er sýnd þessa dagana 1 Bfó-
höllinni og þykir taka öllu fram f tækni
og umgjörð. Og Sigourney Weaverer
alltaf jafn yndisleg. Við bendum Ifka á
draugalegt grín Gene Wilders í
Regnboga, en Haunted Honey-
moon er unnin af sama genginu og
gerði þá ágætu ræmu Rauðklædda
konan. Stella stendur fyrir sínu í
Austurbæjarbíói, Hitchcock í
Regnboga.
Hold og blóð
(Flesh and Blood)
★★★
Ruddamennska frá miðöldum kl. 3,
5.20, 9 og 11.15.
'I skjóli nætur
(Midt om natten)
★★★
Notalegur danskur millitryllir kl. 5 og 9
fyrir 16 ára og eldri.
Hanna og systur hennar
(Hannah and her sisters)
★★★
Yndislega Ijúfur Woody kl. 3, 7.10 og
11.15. Sfðustu sýningar.
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
Strfpur og stjörnur, mökkur af militar-
isma kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Stundvfsi
(Clockwise)
★★
Guðdómlega geggjaður Cleese a la
Hulotkl. 3.15, 5.15 og 11.15.
Mánudagsmyndin
Kona hverfur
★★★
Dulþrungin Hitchcock-spenna kl. 7.15
og 9.15.
About Last Night
Ný
Hjartaknúserinn Rob Lowe kl. 5,7,9 og
11.05.
f úlfahjörð
(Les Loups entre Eux)
★★
Athyglisverður ævintýratryllir kl. 5, 7, 9
og 11.10, fyrir 16 ára og eldri.
Hlébarðinn
(Commando Leopard)
Ný
Skæruliðaspenna með Kinski og Coll-
ins kl. 5, 7, 9 og 11. 16 ára aldurstak-
mark.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
HELSAflPOnURfNN 27