Helgarpósturinn - 30.12.1986, Blaðsíða 35
FRÉTTAPÓSTUR
Slysfarir á sjó
Sex menn úr áhöfn farmflutningaskipsins Suðurlands
fórust á jóladagsnótt, er skipið sökk í hafinu milli íslands
og Noregs. 5 úr áhöfninni komust af eftir að hafa hírst
standandi i illa förnum gúmhjörgunarbáti í rúmar 10
klukkustundir. Þeir sem fórust voru: Sigurður Sigurjóns-
son, skipstjóri, 62 ára, Hlöðver Einarsson, yfirvélstjóri, 41
árs, Sigurður L. Þorgeirsson, 2. stýrimaður, 45 ára, Haf-
steinn Böðvarsson, matsveinn, 56 ára, Svanur Rögnvalds-
son, bátsmaður, 57 ára og Sigurður Ölvir Bragason, háseti,
21 árs. Þeir sem komust af voru: Jón Snæbjörnsson, fyrsti
stýrimaður, Halldór Gunnarsson, fyrsti vélstjóri, Kristinn
Harðarson, háseti, Júlíus Guðnason, háseti og Anton Sig-
þórsson, viðgerðarmaður í vél. Skipið var á leiðinni til Mur-
mansk með 19 þúsund tunnur af saltsíld að verðmæti 70
milljónir króna. Þá fórst enska tankskipið Syneta um mið-
nætti á jóladag við Skrúð í mynni Fáskrúðsfjarðar með þeim
afleiðingum að allir skipverjar, 12 að tölu, fórust. Talið er að
skipið hafi strandað þar eftir að hafa bilað og einnig virðist
ókunnugleiki hafa spilað inn í og skipverjar talið sig á öðr-
um stað. Skipið var skráð í Gíbraltar, en 6 yfirmenn skips-
ins voru breskir og 6 undirmenn voru frá Grænhöfðaeyjum.
Skipið kom f rá Liverpool og stóð til að lesta 1.100 lestir af lýsi
hér á landi. Að kvöldi fimmtudagsins 18. desember sökk vél-
báturinn Tjaldur ÍS 116 í mynni Jökulfjarða I ísafjarðar-
djúpi og fórust þá 3 menn, þeir Hermann Sigurðsson, vél-
stjóri, 60 ára, Guðmundur Víkingur Hermannsson, skip-
stjóri, 29 ára og Kolbeinn Sumarliði Gunnarsson, háseti, 27
ára. Hermann og Guðmundur voru feðgar.
Sölu Borgarspítala frestað
Eftir miklar umræður innan og utan Alþingis var samn-
ingaumleitunum um sölu á Borgarspítala til ríkisins frestað
fram yfir áramótin. Miklar deilur höfðu staðið yfir um yfir-
töku ríkisins á spítalanum og skoðanir mjög skiptar. Það
eru einkum ráðherrar og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins
sem hafa beitt sér fyrir þessari sölu, en innan raða þess
flokks er andstaðan einnig hvað hörðust, en þá hefur hug-
mynd þessi mælst illa fyrir hjá starfsmönnum spítalans,
sem vilja tryggja sjálfstæði hans. í bréfi sem forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra sendu borg-
arstjóranum 19. desember segir, að það sé fullur vilji ríkis-
stjórnarinnar að verða við þessari málaleitan borgarinnar
og ganga frá samningum þegar eftir áramót, þegar Alþingi
kemur saman á ný. Fram hefur komið hjá formönnum þing-
flokka stjórnarflokkanna að bréf þetta hafi ekki verið
kynnt fyrir þingflokkunum og er enda óvíst með öllu hvort
meirihluti sé fyrir þessari sölu á Alþingi.
Botninn úr okurmálinu?
Hæstiréttur kvað nýlega upp úrskurð í sínu fyrsta máli af
mörgum í svokölluðu okurmáli, sem kennt er við Hermann
G. Björgvinsson. Þar staðfesti hæstiréttur dóm undirréttar
þess efnis, að ekki hefði verið um okur að ræða á mikilvægu
tímabili, þar eð Seðlabanki íslands hefði ekki auglýst hæstu
leyfilega vexti eins og bankanum bar samkvæmt lögum.
Dómur þessi er mjög mikilvægur í málinu í heild og jafnvel
talið að botninn í þessu umfangsmikla okurmáli sé fallinn.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur lýst
ábyrgð á hendur Seðlabankanum, sem aftur á móti hefur
vísað á ábyrgð löggjafans í málinu og segir það hlutverk Al-
þingis en ekki Seðlabankans að tryggja það, að refsiheimildir
séu jafnan i samræmi við þá stjórnsýslulöggjöf, sem bank-
anum er ætlað að starfa eftir. Matthías Bjarnason, banka-
málaráðherra, segir að mögulega hafi mistök átt sér stað við
samningu laga um Seðlabankann og fleiri lög, að hér sé í
fyrsta skipti komin túlkun á þeim lögum, sem væru á aðra
lund en ætlað var með lögunum.
Fréttapunktar
• Allt útlit er fyrir að boðað verkfall sjómanna komi til
framkvæmda nú um áramótin eftir árangurslausar samn-
ingaviðræður fulltrúa sjómanna og útgerðarmanna hjá
sáttasemjara ríkisins að undanförnu. Einhver brögð hafa
verið að þvi að útgerðir hafl sent skip út síðustu daga, en ef
fram fer sem horfir mun mest allur fiskiskipafloti lands-
manna stöðvast á næstu dögum.
• Lögreglan í Reykjavík og Reykjanesi beitti sér f yrir skipu-
legum aðgerðum gegn myndbandaleigum 22. desember sl.
og lagði hald á hátt á tólfta þúsund myndbönd. Aðallega var
lagt hald á ótextuð myndbönd, en einnig myndir á bannlista
og myndir án merkinga frá dreifingaraðilum og kvikmynda-
eftirliti.
• Nauðungarsölur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í Reykjavik
hafa aldrei verið fleiri en í ár. Þegar vika var liðin af desem-
ber höfðu 54 eignir verið þannig seldar á móti 28 allt síðasta
ár. Á sama tíma höfðu borist 880 gjaldþrotabeiðnir á móti
762 allt árið í fyrra.
• Nú fyrir jólin ákvað rikisstjórnin að takmarka hækkanir
á ýmis konar opinberri þjónustu. Afnotagjöld RÚV og verð-
skrá Pósts og síma hækka um 10% í upphafi árs, því var
beint til Landsvirkjunar að takmarka sínar hækkanir á
næsta ári við 4.5% og að hækkun á rafmagnsverði RARIK
fari ekki yfir 7.5%.
Andlát
Axel Einarsson, hæstaréttarlögmaður, lést á heimili sínu
aðfararnótt laugardagsins 20. desember, 54 ára að aldri.
Ingibjörg Jónsdóttir, rithöfundur, lést á heimili sínu að
morgni 25. desember, 53 ára að aldri.
E,
lf einhverjum líður illa á sál-
inni eftir alla jólaglöggvunina í des-
ember, sakar ekki að koma því á
framfæri að maður á Englandi fékk
um daginn heiðursskjöld frá krá
nokkurri í heimabæ sínum. Var við-
urkenningin veitt til þess að minn-
ast langra og ánægjulegra viðskipta
piparsveinsins Bills Claridge við
fyrirtækið. Hann hafði stundað
krána reglulega i 60 ár.. .
ÍÞRÓTTIR
Á réttri
bylgjulengd
Síðast þegar hér var tilkynnt um
stöðuna í getraunakeppni fjölmiðl-
anna var spámaður HP að slaka á,
en þó öruggur í 2.-3. sæti á eftir
Bylgjunni. Nú hafa farið fram tvær
umferðir og spámaður HP kominn á
botninn og alvarlega farinn að hug-
leiða uppgjöf — en að athuguðu
máli er sú bráðabirgðaákvörðun
tekin hér með að stíga á stokk og
strengja þess heit að halda þess í
stað á sigurbraut á ný og komast á
sömu bylgjulengd og Bylgjan. Eftir
fjórtán umferðir er Bylgjan með
ótvíræða forystu eða 85 rétta en í
öðru sæti er nú DV með 81 rétta. Þá
koma Morgunblaðið, Tíminn, Þjóð-
viljinn, Dagur og RÚV með 80
rétta, en aleinn og umkomulaus á
botninum er undirritaður með 79
rétta. Til að bæta gráu ofan á svart
hefur síðan Alþýðublaðið náð góðri
forystu gegn HP eftir þrettán um-
ferðir, með 75:72.
Fimmtándaumferð fjölmiðlakeppn-
innar verður 3. janúar. Leikirnir eru
eftirfarandi:
A. Villa — Notth. Forest
Leichester — Sheff. Wed. .
Liverpool — West H?ira.
Manch.City — Oxford
Newcastle — Coventry
Q.P.R. — Everton
Southampton — Manch. Utd.
Wimbleton — Watford
Blackburn — Portsmouth
C. Palace — Derby
Sheff. Utd - W.B.A.
Shrewsbury — Ipswich
Og spáin er: 2-x-l, 1-1-x, 1-1-2, 1-1-x.
-FÞG
: SHANNON
IDATASTOR
Allt á sínum staö
meö :shannon:
:datastor:
skjalaskáp
Ef einhver sérstöK vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö oKKur sem
allra fyrst og munum viö fúsiega sýna fram á hvernig
ShdHHOH skjalaskápur hefur ,,allt á sínum staö".
Útsolustaðir:
REYKJAViK, Pennmn Hallarmúla KEFLAVlK, Bókabuð Kellavikur, AKRANES, Bókaversl.. Andrés
Nielsson HF. ÍSAFJÖRDUR. Bókaverslun Jónasar Tómassonar. AKUREYRI, Bókaval, bóka- 09
rirtangaverslun HÚSAViK. Bókaverslun Þóranns Ste,ánssonar ESKIFJÚRÐUR. Elís Guðnason.
verslun. VESTMANNAEYJAR. Bókabúðin. EGILSSTAÐIR. Bókabúðin Hlöðum.
ÖBAFPR ©ISmSOM & €©. HF.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
V \/ÆR ÖRUGGAR
] LEIÐIR
TIL LÆKKUNAR
S ;katta
fúsnæðisreikningur er verð-
tryggður sparnaðarreikningur
með bestu ávöxtunarkjörum bankans,
ætlaður verðandi húsnæðiseigendum.
Samið er um ársfjórðungslegan sparnað,
4-40 þúsund til eins árs í senn. Sparnaðar-
tíminn er 3-10 ár og lántökuréttur að
honum loknum nemur allt að fjórföldum
sparnaðinum. Fjórðungur árlegs
spamaðar á húsnæðisreikningi er frá-
dráttarbær frá tekjuskatti.
tofnfjárreikningur er ætlaður
þeim einstaklingum sem
hyggjast stofna til atvinnurekstrar. Hann
er verðtryggður samkvæmt lánskjara-
vísitölu og bundinn í 6 mánuði. Stofnun
atvinnurekstrar má fara fram hvenær sem
er innan 6 ára frá lokum innborgunarárs.
Innstæður á stofnfjárreikningum eru
frádráttarbærarfrá skatti allt að 45.900.-
hjá einstaklingi eða 91.800,- hjá
hjónum.
il þessaðþessarskattfrádráttar-
jíleiðir nýtist á tekjuárinu 1986
þarf að stofna reikningana fyrir áramót.
Allar nánari upplýsingar fást í sparisjóðs-
deildum bankans.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
HELGARPÓSTURINN 35