Helgarpósturinn - 14.05.1987, Page 8
Hefur Útvegsbanka-
málinu veriö drepiö á
dreif meö ákœrunni
á hendur
bankastjórunum?
Heimildir innan
yfirstjórnar bankans
segja skýrslu Jóns
Þorsteinssonar byggða
á „firru“
SncisslL
'VIÐSKIPTARAÐHERRA
BANKASTJÓRN
formaður, Brynjólfur Sigurdsson og
Sigurbur Tómasson.
I skýrslu þeirra kemur fram að
„bankaráð Utvegsbankans hefur
mikil völd að lögum, en þvi fylga að
sjálfsögðu miklar skyldur". Þrátt fyr-
ir þetta kemst nefndin að þeirri nið-
urstöðu að „ýmsir annmarkar séu á
því að koma fram starfsábyrgð á
hendur þeirn".
Af skýrslunni að dæma eru helstu
annmarkarnir þeir að litlar heimifd-
ir eru til um störf bankaráðsins.
Þannig segir í skýrslunni um þátt Al-
berts Guömundssonar, bankaráðs-
formanns og stjórnarformanns í
Hafskip, að viðskipti Hafskips við
bankann hafi aldrei verið rædd í
bankaráðinu meðan hann sat þar í
forsæti. Á öðrum stað í skýrslunni
kemur fram að Hafskipsmálið hafi,
samkvœmt fundargerðabók, aldrei
verið rætt í ráðinu.
Samkvæmt heimildum Helgar-
póstsins úr yfirstjórn Utvegsbank-
ans er fullyrðingin um Albert Guð-
mundsson í skýrslunni „algjör firra“.
Bankaráðið hafi í tíð Alberts marg-
sinnis rætt málefni Hafskips. Hann
hafi í tíð bankaráðsformennsku
sinnar haft skrifstofu í Útvegsbank-
anum og haft mikil og tíð samskipti
við bankastjórana. Meðan hann sat
í bankaráðinu var Hafskip meðal
fimm stærstu viðskiptavina bank-
ans. Ef hann hefur ekki rætt um þau
viðskipti er erfitt að ímynda sér um
hvað hann og bankastjórarnir
ræddu.
BER BANKARÁÐIÐ
MINNI ÁBYRGÐ EN
STJÓRN HLUTAFÉLAGS?
Afgreiðsla nefndar Jóns Þor-
steinssonar á þætti Alberts er ein-
kennileg um margt annað. Nefndar-
menn hafa til dæmis fyrir því að
gera bankastjórunum upp tillitssemi
Á morgun uerdur þingfest íSakadómi Reykjavíkur mál
ákœruvaldsins gegn sjö af fyrrverandi bankastjórum Út-
vegsbanka íslands. Þar med hefst formleg meðferö dóm-
stóla á þessu einstaka máli í réttarsögu íslands.
Útvegsbankahluti Hafskipsmálsins tekur til mun djúp-
stœöariþátta íþjóðfélagsgeröinni en sá þáttur er snýr að
Hafskipsmönnunum. Það er undir ábyrgð Alþingis, ráð-
herra, Seðlabanka, bankaráðs kosnu af Alþingi og
bankastjóra. Aðeins einn þáttur í valdakerfi bankans hef-
ur verið ákœrður — bankastjórnin.
Þegar Hallvarður Einvarðsson
birti ákæruna á hendur bankastjór-
unum kom hún á óvart. Bæði kom á
óvart hversu rýr ákæran var að inni-
haldi og einnig að bankastjórarnir
skyldu einir ákærðir. Með ákærunni
var bankaráð í raun gert ábyrgðar-
laust.
Ríkisaksóknari komst með þessu
að svipaðri niðurstöðu og rannsókn-
arne/ndin sem Hæstiréttur skipaði.
I henni áttu sæti Jón Þorsteinsson,
VALDAKERFI UTVEGSBANKANS
ÞARNA ER VALDIÐ - EN HVAR ER ÁBYRGÐIN?
Valdakerfi Útvegsbankans var
byggt upp eins og myndin hér að
ofan sýnir. Þessu kerfi svipar um
margt til hlutafélaga, en er þó mun
fullkomnara. Það hefði því átt að
vera betur tryggt fyrir bankaslys-
um en komið hefur í ljós. Það sam-
spil valds, ábyrgðar og eftirlits sem
lög og reglugerðir um Útvegsbank-
ann gerðu ráð fyrir að kæmi í veg
fyrir slíkt virðist hafa lamað. Enn
sem komið er hafa þeir sem komu
við sögu engan lærdóm dregið af
þessu bankaslysi.
Lítum nánar á myndina:
ALÞINGI er kosið af almenningi.
Þar sitja fulltrúar þjóðarinnar. Af Al-
þingi sprettur svo
RÍKISSTJÓRN. Hún er fram-
kvæmdavaldið. Einn ráðherra ríkis-
stjórnarinnar er
VIDSKIPTARÁDHERRA og fer
hann, meðal annars, með málefni
banka. Hann er æðsti yfirmaður rik-
isbankann. Sér til aðstoðar hefur
hann
SEDLABANKA. Undir banka-
stjórn Seðlabankans starfar
BANKAEFTIRLITID. Því er skylt
að hafa eftirlit með bankastofnun-
um. í tilfelli Útvegsbankans hafði
bankaeftirlitið engin afskipti af
bankanum, allt frá árinu 1980 og
fram á mitt ár 1985, þegar banka-
stjórnin óskaði eftir athugun á mál-
efnum bankans í ljósi versnandi
stöðu Hafskips. Bankaeftirlitið, sem
tæki viðskiptaráðherra til að fylgj-
ast með starfsemi bankans, virðist
hafa gripið fullseint inn í málið.
BANKARÁD er kosið af Alþingi.
Samkvæmt lögum og reglugerðum
er hlutverk þess ad marka almenna
útlánastefnu fyrir bankann, að setja
reglur um hámark útlána, að kveða
á um ábyrgðir einstakra viðskipta-
manna miðað við stöðu bankans, að
fylgjast með stærstu lántakendum
hans og aö sjá svo um að skuldbind-
ingar og tryggingar stærstu við-
skiptamanna séu innan eðlilegra
marka. Auk þess ræður bankaráðið
BANKASTJÓRN. Bankastjórnin á,
samkvæmt erindisbréfi sínu, að
starfa samkvæmt lögum og ákvörð-
unum bankaráðs.
Með ákærum ríkissaksóknara var
gefið fordæmi um hvar ábyrgð ligg-
ur í þessu valdakerfi. Bankastjórar
einir bera ábyrgð. Hinir póstarnir
hafa ekki ábyrgð. Hvorki Alþingi,
ríkisstjórn, viðskiptaráðherra,
Seðla-
bankinn né bankaeftirlitið hafa
dregið annan lærdóm af Hafskips-
málinu.
SEPLABANKINN
8 HELGARPÓSTURINN