Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 14

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 14
HELGARPÓSTURINN kom fyrst út fyrir átta árum og markaöi sér strax sér- stöðu í íslenskum fjölmiðlaheimi. Hann er eina óháða fréttahlaðið í landinu og hefur ávallt stundað aðhaldssama, upplýsandi og vandaða fréttamennsku. HELGARPÓSTURINN hefur sýnt að hann þorir á meðan aðrir þegja. Hann er ekki auðsveipið blað. HELGARPÓSTURINN er einnig kunnur fyrir umfjöllun sína um menningu og listir. Stór þáttur blaðsins er helgaður fréttum, greinum, viötölum og gagnrýni á því sviði, sem er þannig sett fram að eftir er tekið. íþessum efnum sem öðrum hefur HELGARPÓSTURINN farið nýjar leiðir sem hafa orðið öðrum til eftir- breytni. HELGARPÓSTURINN birtir viðtöl sem mörg hver eru rómuð fyrir gœði og gildir þá einu hvort litið er til texta eða meðfylgjandi Ijósmyndar. Greinaskrif blaðsins um ýms málefni líðandi stundar hafa einnig vakið athygli fyrir hugmyndaauðgi í framsetningu, inntak sitt og stíl. Að þessu leyti er viku- blaðið HELGARPÓSTURINN á við mánaðarrit að efni. Þegar svo við bœtist fréttamennska sem mikið er vitnað til í þjóðfélaginu, getur varla verið spurning hvaða blað menn kjósa sér. Jónína Leósdóttir blaðakona. Hún hóf blaðamennsku á HP fyrir fáum ár- um og gat sér strax gott orð fyrir lipur skrif og góðar hugmyndir. Jónína er einnig kunn útvarpskona. Kristján Kristjánsson blaðamaður. Hann er yngsti blaðamaður HP og hóf þar störf eftir próf í bókmenntafræði frá Háskóla íslands. Magnea Matthfasdóttir rithöfundur er prófarkalesari HP. Hún er m.a. höf- undur leikritsins „Halló litla þjóö/' sem L.H. sýnir um þessar mundir. Magnús Torfi Ólafsson hefur skrifað um erlend málefni fyrir Helgarpóstinn allt frá byrjun. Hann er blaðafulltrúi rík- isstjórnarinnar, fyrrum ráðherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóöa- stjórnmálum. Árni Björnsson skrifar um óperur. Árni Elfar er teiknari HR Hann hefur Hann er löngu landsþekktur fyrir störf getiðsér gottorð fyrir stílfærðar andlits- sfn sem þjóðháttafræðingur. teikningar sínar, auk hljóðfæraleiksmeð Sinfóníuhljómsveit íslands og víðar. Anna Kristine Magnúsdóttir blaða- kona á að baki meira en áratug í blaöa- mennsku og hóf nýlega störf á HP. Halldór Halldórsson fyrrverandi pró- fessor við Háskóla Islands, hefur skrifað um mál og menningu í HP um nokkurt skeið. Hann er landsþekktur fræðimað- ur og höfundur rita um íslenskt mál. Ásgeir Tómasson er poppskríbent HR Ásgeir er óefað einn fróöasti maöur landsins um dægurtónlist, vinsæll út- varpsmaður og blaðamaður til fjöl- margra ára. Helgi Már Arthursson ritstjórnarfull- trúi. Helgi er margreyndur blaðamaður, m.a. frá velmektardögum Alþýðublaös- ins. Hann er menntaður í bókmennta- fræðum. Gunnlaugur Ástgeirsson er fjölhæf- ur gagnrýnandi og hefur skrifað jöfnum höndum um leiklist og bókmenntir í blaðið frá því það hóf göngu sfna. Gunnlaugur kennir við MH. Halldór Halldórsson ritstjóri HP. Hann hefur starfað að fjölmiðlun hátt ftvo ára- tugi. Halldór er M.A. í fjölmiölafræði frá Bandaríkjunum.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.