Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 17
■ lokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins sl. laugardag var forvitni-
legur fyrir margra hluta sakir. Þar
var í fyrsta lagi opinskátt rætt um
nánara samstarf Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks og í öðru lagi var
rætt um sameiningu A-flokkanna.
Það sem vakti hins vegar hvað
mesta athygli var að Sigurður E.
Guðmundsson, flokksstjórnar-
maður í Alþýðuflokki, tók á fund-
inum undir harða gagnrýni Jó-
hönnu Sigurðardóttur á nýja hús-
næðislánakerfið. Kom þetta fundar-
mönnum verulega á óvart, enda
Sigurður gengið manna harðast
fram í því að verja kerfið og afflytja
málflutning þeirra sem haft hafa
uppi gagnrýni á kerfið, réðst t.a.m.
harkalega að Jóhönnu Sigurðar-
dóttur í miðopnugrein í Morgun-
blaðinu viku fyrir kosningar. í ljósi
framangreinds þótti gjörningur Sig-
urðar kátbroslegur. ..
lEinn hefur ekki verið ráðinn
nýr bankastjóri við_ hlið Guðmund-
ar Haukssonar í Útvegsbanka ís-
lands hf., en Guðmundur gegndi
sem kunnugt er starfi sparisjóðs-
stjóra í Hafnarfirði áður en hann
hélt í Kvosina. Heimildir HP herma
reyndar að erfitt muni reynast að
ráða annan bankastjóra að nýja
hlutafélagsbankanum fyrst um sinn
og er ástæðan helst nefnd sú að hin-
ir nýju yfirmenn þurfi að ráðast í
mjög óvinsælar aðgerðir fyrstu
mánuðina eftir breytinguna. Þær
felast m.a. í því að fækka starfsfólki
að nokkrum mun frá því sem verið
hefur, en í því efni er eftir því tekið
að meðalaldur starfsmanna í Út-
vegsbankanum hefur jafnan verið
hár, enda fólki þótt gott að vinna
þar, og því verði niðurskurðurinn í
starfsmannahaldi en sársaukafyllri
en ella fyrir yfirmenn bankans. Þá
þykir einnig ljóst að bankinn þurfi
að losa sig við nokkra óþægilega
viðskiptavini og er jafnvel tekið svo
djúpt í árinni að hann neyðist til „að
slátra" nokkrum fyrirtækjum, eink-
um í tengslum við sjávarútveginn,
umhverfis landið. Ljóst er að bank-
inn verður að hefja þessar endur-
reisnaraðgerðir fyrr en seinna því
yfirlýst stefna ríkisins er að selja
hlutabréf sín smátt og smátt í bank-
anum, sem hefur í för með sér að
ríkisábyrgð hans verður þá úr sög-
unni. . .
■ æst orð hafa minnsta ábyrgð.
Það sannaðist enn einu sinni fyrir
okkur á HP í síðustu viku. í þessum
dálkum sögðum við frá því fyrir
nokkrum vikum að bráðlega myndi
birtast viðtal við óðalsseturseig-
anda í Bretlandi, Katrínu Hákon-
ardóttur, í tímariti sem síðan kom
aldrei út. Viðtalið birtist í Mannlífi
sem kom út um helgina en daginn
sem það var tilbúið í prentsmiðju
kom í ljós að annað tímarit var mætt
á svæðið til Katrínar og ætlaði að ná
viðtali við hana. Það var Gunn-
laugur Rögnvaldsson blaðamað-
ur frá Húsum og híbýlum sem
kominn var til Bretlands í efnisöfl-
un. Þetta kennir okkur að heppileg-
ast er að láta ekkert leka út um
væntanleg viðtalsefni fyrr en í þá
mund sem blöðin eru að koma úr
prenti. Keppinautarnir eru skammt
undan á tímaritamarkaðinum og er
greinilega sama þótt einhverjum sé
ýtt til hliðar eða troðist undir í bar-
áttunni. En sem sé: Mannlíf sigraði
Hús og híbýli í þetta sinn...
1 10. J ú N í
D R E G 1
Upplag miða 100.000
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI 0.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BÍLPLAST
Vsgnhotö* 19, simt 688233.
Póststndum.
Ódýrir siurtubotrvar.
Tökum aö okkur tr«tjapl«»tvinnu.
VWjiö Mmskt.
Mildur hdrlitur
2ja manna svefnsófi tilvalinn í sumarbústaðinn
eða gestaherbergið.
Raðsett klætt nýja undraefninu Leðurlux — ótal
uppröðunarmöguleikar.
BÓLSTRUN
Sveins Halldórssonar, Laufbrekku 26 (Dalbrekku megin)
sími 641622, heima 656495.
HELGARPÓSTURINN 17