Helgarpósturinn - 14.05.1987, Síða 29
Hannes 0. Johnson ( kunnuglegu umhverfi, stiganum (húsi Borgarbókasafnsins við
Þingholtsstræti, þar sem hann ólst upp.
Á stríðsárunum dvaldi Ólafur
Johnson í Bandaríkjunum, en heim-
ilið var þó ekki autt á meðan. Þar
bjó fyrst Pétur, sonur hans, en síðan
Örn Johnson, með fjölskyldur sínar.
Eftir stríð, þegar húsið var selt, voru
einungis tveir synir eftir í föðurhús-
um, Hannes og Ólafur, sem er yngst-
ur.
ÓHENTUGUR
VINNUSTAÐUR,
YNDISLEGT HÚS
Það var Árni Jónsson, heildsali,
sem keypti Esjuberg af Ólafi John-
son, en hann átti húsið einungis í
nokkur ár áður en hann seldi það
Reykjavíkurborg. Þá hætti þetta
glæsta hús að gegna hlutverki heim-
ilis og varð húsnæði Borgarbóka-
safnsins — athvarf bókaorma og
Anna Torfadóttir, deildarstjóri: „Gaeti
vissulega hugsað mér að eiga hér
heima."
vinnustaður borgarstarfsmanna.
Anna Torfadóttir, deildarstjóri,
hefur unnið á safninu í 8 ár. Henni,
eins og svo mörgum öðrum, finnst
húsið „yndislegt" og segist ekki hafa
fundið fyrir nema góðum straumum
þar. Það sama sagði Anna að ætti
við um aðra starfsmenn safnsins,
utan einn látinn mann, sem á sínum
tíma kærði sig aldrei um að vera
einn í húsinu. Hins vegar kvað Anna
vinnuaðstöðu bókavarða vissulega
geta verið hentugri en þarna væri,
veggir væru gífurlega þykkir og
tækju þess vegna mikið pláss. Einn-
ig væri stiginn í húsinu ein og hálf
lofthæð og því svolítið erfiður las-
burða fólki.
Anna sagðist hafa teikningu að
húsinu undir höndum og þar kæmi
m.a. fram að stór leikherbergi fyrir
börnin hefðu verið á jarðhæðinni
og matarlyfta úr eldhúsinu upp í sér-
stakt „borðbúnaðarherbergi" við
hlið borðstofunnar. Rúmgott „fata-
herbergi" hefði einnig verið á efstu
hæðinni.
Mynd af hinum stórtæka Oben-
hautt hangir nú uppi á vegg í safn-
inu. Það átti aldrei fyrir honum að
liggja að búa í húsinu, þó svo hann
hefði upphaflega látið byggja það.
Anna Torfadóttir, deildarstjóri,
verður líklega heldur aldrei hús-
freyja þarna. En þegar hún var að
lokum innt eftir því, hvort hún
kærði sig um að eiga húsið að heim-
ili, var svarið: „Þó það nú væri!“
Þetta svar myndu líkast til flestir
gefa við spurningunni, nema
kannski þeir aljarðbundnustu sem
sæju fyrir sér jóla- og vorhreingern-
ingarnar á staðnum og segðu „sama
og þegið". Með trega þó ...
Miðstöðvarmótorar, 12
og 24 V, rafmagnsmið-
stöð, 12 V.
Kveikjuhlutir í allar teg.
Gott verð. Vönduð vara
I. Erlingsson h/f, varahlutir,
Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 688843.
Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f.
Forþjöppur og varahlutir, viðgerðarþjónusta.
PIZZAHUSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
Smokkur?
Hann gœti reddaö
GEGN EYÐNI
símakerfið
komid
ihnðL7
Lausnin er auðveldarí en þig grunar
Nú býður Póstur og sími takmarkaðan fjölda af hinum viður-
kenndu Fox 16 símakerfum, sem eru sérhönnuð fyrir litil og
meðalstór fyrirtæki.
Þú færð í einum pakka: Símakerfí
með 6 bæjarlínum, 16 innanhúss-
númerum og 12 skjátækjum á ótrú-
lega lágu verði: Aðeins 230.000. *
* Með söluskatti, takmarkað magn.
POSTUR OG SIMI
Söludeild Rvk, sími 26000
og póst- og símstöðvar um land allt.
HELGARPÓSTURINN 29