Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 40

Helgarpósturinn - 14.05.1987, Side 40
"jallinn á Akureyri er enn framkvæmdastjóralaus eftir að Ólafur Sigmundsson lét af störf- um. Reksturinn er þó ekki í lausu lofti því athafnamaðurinn Ólafur Laufdal, eigandi Sjallans, lætur sig ekki muna um að fljúga norður nokkrum sinnum í viku og fylgjast með rekstrinum. Ólafur Sigmunds- son er nú framkvæmdastjóri Istess fyrir norðan.. . Þ að hefur ekki tekist hjá Birni Jónassyni og félögum í Svörtu á hvítu að hirða markaðinn frá Islenskum fyrirtækjum og Frjálsu framtaki. Svart á hvítu gaf í fyrra út Borgarskrána, sem frægt er orðið. Þeir hugðust síðan halda útgáfunni áfram og víkka sviðið um allt land. Bókin skyldi heita ,,Gula bókin". Þetta er svipuð hugmynd og liggur að baki íslenskum fyrirtækj- um, sem Magnús Hreggviðsson hefur gefið út frá því hann tók við Frjálsu framtaki af Jóhanni Briem. Magnús sendi 1987-bókina út fyrir um mánuði, en enn hefur -„Gula bókin“ ekki látið á sér kræla. Það mun ekki ganga ýkja vel að safna auglýsingum frá þeim fyrirtækjum sem þegar hafa keypt sig inn í ís- lensk fyrirtæki. . . að hefur vakið óskipta at- hygli að Jón Helgason veitti tveim- ur mönnum stöður, sem ekki er full- víst að séu framsóknarmenn. Þegar málið er hins vegar kannað nánar kemur í Ijós að Jóni buðust varla betri framsóknarmenn meðal um- sækjenda. Jón veitti Fridgeiri Björnssyni embætti yfirborgar- dómara í Reykjavík. Friðgeir var mikill framsóknarmaður á yngri ár- um og tók meðal annars þátt í stúd- entapólitík sem slíkur. Seinna af- vegaleiddist hann og slóst í för með Möðruvellingum. Að lokum endaði Friðgeir í framboði fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna í Norðurlandskjördæmi vestra. Síðan þá hefur enginn getað staðsett hann í pólitík. Aðrir umsækjendur um embættið voru Hrafn Bragason, sem er krati, Garðar Gíslason, sem telst til íhaldsins, og einn huldumað- ur. Hinn sem fékk náð fyrir augum Jóns var Már Pétursson, sem var skipaður bæjarfógeti í Hafnarfirði. Már er bróðir Páls Péturssonar, þingflokksformanns framsóknar. Pólítísk staða Más hefur hins vegar aldrei verið fullljós, þrátt fyrir bróð- ernið. Hann hneigðist á sínum tíma til möðruvellsku og því er óhætt að segja að Jón hafi með þessum stöðu- veitingum beitt sér fyrir „söguleg- um sættum”, eins og vinsælt er í pólitíkinni nú... 40 HELGARPÓSTURINN Liiicago! Viltu sveifla þér með fyrir kr. 20.840* til þessarar stórfenglegu borgar á bökkum Michiganvatns? Chicago - borg heimsmetanna státar m.a. af hæstu byggingu heims, Sears Tower, 110 hæða háhýsi með ógleymanlegu útsýnissvæði efst, þaðan sem sjá má til þriggja íylkja Bandaríkjanna, John G. Shedd Aquarium, stærsta sædýrasafni heims, með yfir 7500 tegundum sjávardýra. Þar er einnig stærsta göngugata veraldar, verslunargatan State Street. Chicago - borg listviðburðanna Á sviði menningar og lista er sannarlega hægt að finna eitthvað fyrir alla. Sem dæmi má nefna að í Chicago starfa yfir 50 atvinnuleikhús auk fjölda hljómleikahalla, óperuhúsa og balletta að ógleymdum jazzuppákomunum en segja má að Chicago sé enn sem fyrr miðstöð jazzins í Ameríku. Chicago - borg safna og sögulegra minja Undur Chicago eru meiri en svo að hægt sé að gera þeim skil í einni auglýsingu. Þess vegna ættirðu að líta inn á söluskrifstofur okkar og afla þér nánari upplýsinga um Chicago. Hafi þig einhvern tíma dreymt um að sveifla þér til Ameríku þá er tækifærið núna. Bein flug til BOSTON, NEW YORK, ORLANDO og WASHINGTON auk CHICAGO. Þú ættir að panta þér far áður en dollarinn hækkar. FLUGLEIDIR jmW * APEX-fargjald frá 1. april - 14. júní. Flogið allt að 5 sinnum í viku. FLUGLEIÐIR -fyrirþig- Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.