Helgarpósturinn - 10.09.1987, Page 14

Helgarpósturinn - 10.09.1987, Page 14
EFTIR SIGMUND ERNI RÚNARSSON MYND JIM SMART Fór ekki i búskap til að skrimta Haukur Halldórsson í Gerði við Eyjafjörð, nýkjörinn formaður Stéttarsambands bænda, í HP-viðtali Sunnudagur í september. Eyjafjöröurinn er fagur. Eg ek frá Akureyri út á Svalbarðsströnd sem er ekki lengur langur vegur, svona Hlemmur-Fell. Aður varþetta nokkurt ferðalag, gjarnan illfært á vetrum, en eftir að gömlu brýrnaryfir Eyjafjarðará — þessar mjóu þrjár í minningunni — voru aflagð- ar og Leiruvegur varð til fyrir botni fjarðarins komst Svalbarðsströnd í al- faraleið með asfalti og ógnarhraöa bíla sem áöur hlykkjuöust um Vaðla- heiði. Skammt sunnan Víkurskarðs, sem nú tengir Svalbarðsströnd við Fnjóskadal, er stórbýlið Gerði þar sem brœðurnir Haukur og Jónas Hall- dórssynir reka eitt myndarlegasta kúa- og kjúklingabú í landinu. Ég heim- sœki Hauk, sem nýverið tók að sér formennsku í Stéttarfélagi bœnda, nú á þeim tímum sem margir telja að landbúnaðurinn eigi bágt. Ég átti í nokkrum erfiðleikum með að ná tali af þessum skelegga málsvara bændastéttarinn- ar, sem Haukur er sannarlega, auk þess að vera kunnur að því að setja skoðanir sínar fram án umbúða. Hann var auðfinnanlega önnum kaf- inn þegar ég náði loks sambandi við hann — og ég spurði hann því fyrst eftir að þetta viðtal hófst hvort það skyggði ekki svolitið á sjarma sveita- mennskunnar að vera að geysast svona í sífellu milli funda og félagsstarfa sem hann hefur stundað í æ ríkara mæli á undangengnum árum og fráleitt sér fyrir endann á. Hann brosir lítil- lega að spurningunni, rauðbirkinn í framan og hraustlegur, en svarar svo sallarólegur: „Þetta stúss dregur mann kannski óþarflega mikið á mölina." Og svo ræðum við þetta aðdráttarafl sveitarinnar, af hverju sumt fólk kýs frekar dreif- býli en þéttbýli, fámenni í stað fjölda. Haukur nefnir strax svigrúmið og þann beina aðgang að náttúrunni og landinu sem bændur njóta. Hann talar líka um frjálsræði í sömu andrá. ,,í rauninni held ég að það sé manninum eðli- legra að búa með ákveðinni fjarlægð hver frá öðrum í stað þess að vera ofan í hver öðrum. Þéttbýlið þjónar ekki endilega hinu mannlega eðli best. Það er sama hvort litið er til skepna eða manna; eftir því sem þröngin verður meiri ber meira á ýmiss konar óeðli. Hér á íslandi get- um við annars varla talað um nokkurt þéttbýli, nema ef vera skyldi í Reykjavík, og það er sem betur fer.“ VIÐSKIPTABÚSKAPUR AÐ TAKA YFIR Gerði á Svalbarðsströnd, sem stundum hefur verið auknefnt Sveinbjarnargerði eftir einhverj- um löngu látnum ábúanda sínum, hefur heyrt til ættar Hauks um tveggja alda skeið, en uppruna- lega var Gerði, eins og nafnið gefur til kynna, hjáleiga frá næsta bæ, sem er Garðsvík. Undir stjórn bræðranna hafa kvíarnar heldur betur verið færðar út og er býlið nú orðið mjög stórt að umfangi á íslenskan mælikvarða, enda hefur velgengni þess verið mikil á síðustu árum og áratugum. Eg spyr Hauk hver helsti galdurinn sé við rekstur sveitabýla á síðustu og títtnefndum verstu tímum í landbúnaði okkar. ,,Ég hygg að það sé ekki hægt að nota neina meðaltalsreglu lengur í þessu efni. Núna er þetta svo gott sem einstaklingsbundið. Menn verða einfaldlega að búa sem best að sínu. Þannig get- ur það til dæmis verið hagstæðast fyrir bónda sem á rúmar byggingar með litlum áhvílandi lánum að hafa mikinn fjölda gripa og nota sem mest af innlendu fóðri á meðan það er sennilega best fyrir bónda sem nýlega er búinn að fjárfesta að nýta afurðagetu gripanna til fullnustu, þ.e.a.s. að hver fermetri í byggingunum sé nýttur eins og frekast er kostur. Menn verða í hverju tilviki að taka mið af aðstæðum og hafa í huga að að- keyptur kostnaður verði sem minnstur þó þann- ig að allir framleiðslumöguleikar sem menn geta eða mega nota séu sem best nýttir." — Þetta er semsé ordið meira og minna við- skipti — bissnesshyggjan rœöur ferðinni meira en nokkru sinni fyrr? ,,Já, viðskiptabúskapurinn er að taka yfir. Menn verða að lúta duttlungum markaðarins nánast í einu og öllu og láta sér vel líka. Ég vona samt að sjarminn sé ekki alveg horfinn af bú- skapnum og kaldur heimur viðskiptanna algjör- lega tekinn við. MEIRA RAUNSÆI í BÚSKAPNUM Ég held að hver bóndi njóti þess best að sjá augljósan árangur af starfi sínu, með ræktun og uppbyggingu, og gildir einu hvort það er mælt í afurðum af gripum eða gróðurvexti; framleiða vörur sem geðjast markaðnum best eða eiga falleg og slétt tún og fá góða uppskeru. Þegar árangur fæst af þessu er hann augljós — og und- ir þeim kringumstæðum njóta bændur sín alla jafna best.“ — Er ennþá fyrir hendi sami hégóminn í bú- sýslu og var hér fyrrum þegar menn bitust um feitustu dilka og stœrstu hrúta? ,,Ég veit ekki alveg hvort hégómi er rétta orð- ið, en ég held að það séu uppi mjög breytt við- horf i búrekstri frá því sem áður var. Það var ákveðinn metnaður hér áður fyrr að hafa hærri meðalvigt en bændur á nærliggjandi bæjum, hafa meiri meðalnyt og gjarnan sem feitasta dilka. Núna er þessi metnaður meira og minna búinn, a.m.k. eru honum settar miklar skorður. Það er meira raunsæi í búskapnum í dag en var í eina tíð. Nú skilja menn að það eina sem gildir er að framleiða vöru sem neytandanum líkar, framleiða bara þá vöru og koma henni þannig frá sér að hún seljist. Það eru ekki nema svona þrjátíu til fjörutíu ár síðan bændur einblíndu á að framleiða bara eitthvað sem síðan var bara selt si sona af því að það var skortur á mat- vælum í landinu. Tengsl bóndans við markaðinn voru þá næsta lítilfjörleg — það voru hvort eð er allir tilbúnir til að taka við vörunni og selja hana. Kannski hafa bændur í of langan tíma verið of langt frá markaðnum og fullseint gert sér grein fyrir því að smekkur kúnnans ræður meiru um afkomu bóndans en álit hans sjálfs á því hvað best er að framleiða hverju sinni.“ GERIKRÖFUR TIL GÓÐRA TEKNA — Talandi um metnað. Hefur það alltaf verið metnaður þinn að reka stórt bú, vera stórbóndi? ,,Ég fór ekki í búskap til að skrimta. Ég fór út í búskap af því ég taldi að ég gæti átt þar sömu möguleika til að njóta lífsins gæða og fólk í öðr- um atvinnugreinum. Ég hafði í hyggju í fyrstu — og vissi að það væri hægt — að skapa mér sömu tekjumöguleika og gerast annars staðar. Ég svara því hikstalaust játandi að ég geri kröfur til góðra tekna og tel enda að allir bændur verði að hugsa þannig. Bændur verða og eiga að hafa þá tekjumöguleika sem geta skapað þeim sömu lífsafkomu og annað fólk hefur í þessu landi. Hvort hinsvegar hér fer vel á því að tala um stór- búskap eða ekki er ég ekkert viss um, enda er það afstætt." — Gœtir minnimáttakenndar hjá einstaka bœndum nú þegar landbúnaður á undir högg að sœkja? ,,Já, ég held að það sé alveg Ijóst. Mig langar að segja þér smásögu í því sambandi. Fyrir skömmu var ég staddur á reykvísku veitinga- húsi ásamt kunningja mínum sem er ágætur bóndi hérna úr héraðinu. Þarna voru nokkrir menn sem gáfu sig á tal við okkur og vitaskuld bar þar meðal annars á góma hvaða atvinnu við stunduðum. Ég tók sérstaklega eftir því að þessi kunningi minn færðist undan því að svara hvað hann starfaði og gaf reyndar upp aðra atvinnu. Ég varð svolitið hugsi út af þessu eftir á og spurði hversvegna hann hefði sagt ósatt til um hvað hann starfaði. Og það var þá akkúrat það að bændur ættu svo mikið í vök að verjast og þeim væri svo mikið legið á hálsi að vera hrein- lega til óþurftar í þessu landi að hann væri ósköp einfaldlega hættur að kynna sig sem bónda." HNÍPNIR BÆNDUR OG VONLAUSIR — Hvað veldur þarna? ,,Ég tel að fjölmiðlum og ýmsum fleiri aðilum hafi smám saman tekist að koma því inn hjá al- menningi að bændur séu allt að því óþarfir. Og það er ákaflega slæmt þegar bændur eins og þessi kunningi minn finna ekki lengur fullnæg- ingu í starfi sínu. Stór hiuti bænda hefur fundið ánægju af því að yrkja jörðina og umgangast dýrin þrátt fyrir sífellt verri lífsafkomu og félags- lega aðstöðu. En þegar þeir eru farnir að efast um að þetta sé nokkurs virði og kannski verra en ekki neitt, þeir séu dragbítar og þessi full- næging sem starfið á að gefa er ekki fyrir hendi lengur, þá verða menn vitaskuld hnípnir og þá grípur þá ákveðið vonleysi. Það verður að viður- kennast að þetta þjakar landbúnaðinn of mikið nú um stundir: Þegar búið er að hamra á því margsinnis að menn séu ómagar fara þeir kannski að trúa því innst inni sjálfir." Haukur segir í framhaldi af þessum orðum: „Ég held að það sé ólíkt jákvæöara ef lands- menn hvetja bændur til dáða, hvetja þá til að framleiða betri og ódýrari vöru í stað þess að brigsla þeim um ógagn. Ég á þá ósk heitasta í því starfi sem ég hef nú tekið að mér innan bænda- hreyfingarinnar að sjálfsálit bænda aukist á næstu árum og að hinn almenni borgari skilji betur hlutverk bóndans en hann gerir í dag." — Hver er þtn ímynd af íslenskum bónda? Hvernig á hann að vera og hugsa? „Hann á fyrst og fremst að þjóna sínu landi og sinni þjóð og skila landinu í betra ásigkomulagi en hann tók við því. Þetta er sú ímynd sem fólk hafði kannski af bóndanum hér áður fyrr, en mér finnst þessi sama ímynd þurfa að koma aft- ur. Núna eru bændur þvert á móti ásakaðir um að vera landníðingar, að þeir eyði gróðrinum í stað þess að auka hann. Það verður að vísu alveg að viðurkennast að menn hugsa kannski ekki allir til morgundagsins í þessum efnum. Við vitum vel að á ákveðnum stöðum á landinu eru fyrir hendi bændur sem ættu að stunda aðra atvinnugrein en búskap. Það er ekkert hægt að að horfa framhjá því að þar fer fram gróðureyð- ing. Svörtu sauðirnir eru að sjálfsögðu jafn- margir í búsýslu og í öðrum greinum atvinnulífs- ins, en aðalatriðið er að langstærstsur hluti bænda hefur mjög einlægan vilja til að græða landið. Það kom til dæmis mjög sterkt fram á síð- asta aðalfundi Stéttarsambands bænda fyrir nokkrum dögum." HREINSKILNI HEFUR GERT MÉR GAGN Þessu næst hverfum við Haukur snöggvast til æskuáranna, þeirra tíma þegar hann var að alast upp með tveimur bræðra sinna í túninu heima við Gerði. Nei, hann var ekki ólátasamur krakki, kannast ekki við stórvægileg prakkara- strik, en kveðst hinsvegar halda að hann hafi þótt heldur skapmikill framan af aldri. Hvort það hafi svo elst af, er hann óviss um, en hitt kveðst hann ætla að hann geti hamið skap sitt svo að hann kunni þokkalega að umgangast fólk. Og vel að merkja, með sínar ákveðnu skoð- anir sem eru settar fram af hreinskilni. Ég spyr hvort honum finnist fólk dæma hann rétt. „Það fólk sem hnýtir ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir bjóða alltaf upp á að verða umtalaðir og umdeildir. Það er aíveg Ijóst. Sjálf- ur hef ég ekki alveg farið troðnu slóðirnar, hef eins og þú segir mjög ákveðnar skoðanir, mjög ákveðna iífssýn — og segi hreinlega það sem mér finnst. Þetta kallar auðvitað á deildar mein- ingar. Maður sem aftur á móti flíkar aldrei skoð- unum sínum, passar sig að fara aldrei út úr hjól- förunum, býður ekki að sama skapi heim nein- um skoðanaskiptum um sína persónu." — Kanntu vel við það þegar þér er ögraö? „Mér hefur aldrei liðið illa út af því. Mér finnst það ekki hafa gert mér ógagn til lengdar að hafa vanið mig á að segja alla sögun a hverju sinni, en ekki í skömmtum, ég á við að tala hreinskilnis- lega út um hlutina í eitt skipti fyrir öll. Það er dæmi um lífsmark að hafa skoðanir og koma þeim frá sér.“ MÖNNUM LÆTUR BEST AÐ VINNA SAMAN — Og Haukur Halldórsson er œrinn maður samvinnu? „Já. Hvað landbúnaðinn varðar þá eiga bændur að vita það að þeim fer best að vinna saman. Og hérna skulum við ekki staðnæmast við innbyrðis samvinnu, því hagsmunir bænda og neytenda og allrar þjóðarinnar eru sameigin- legir þegar öllu er á botninn hvolft. Það er mitt lífsviðhorf að andstæður milli mismunandi hópa þjóðfélagsins séu ekki eins skarpar og miklar og margir vilja vera láta. Ég tel það vera lykilatriði fyrir bændur og yfirleitt fámenna hópa — og Islendingar eru ekkert annað en fámennur hópur — að vinna saman. — Hér talar samvinnumaður afhjartans hug? „Af hjartans hug já, það er alveg rétt. En út af fyrir sig — og þetta vil ég að komi fram — hefur það að vera samvinnumaður ekkert endilega með það að gera hvort maður er Sambandsmað- ur eða ekki. Hvort heldur sem einstökum aðil- um hefur tekist að útfæra þessa samvinnuhug- sjón vel eða ekki, finnst mér samvinna eftir sem áður best til þess fallin að menn geti búið sér góð kjör — og þetta gildir auðvitað líka milli þjóða eins og innan þeirra. Stríð milli bænda, bænda og neytenda eða stríð milli þjóða leiðir alltaf til bakslags og hrörnunar." — Þú ert auðheyrilega pólitískur? „Ef pólitík er að vilja, þá er ég pólitískur...“ — Og metnaðargjarn! Er þínum pólitíska metnaði fullnœgt nú þegar þú hefur tekið við formennsku í Stéttarfélagi bœnda, eða siglirðu lengra. ..? „Ég er ekki að sigla neitt... Ég er að taka við mjög krefjandi og spennandi starfi sem ég hef hugsað mér að sinna af heilum hug. Það mun

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.