Helgarpósturinn - 10.09.1987, Blaðsíða 20
ISLENSKIR GRÆNINGJAR - SAMKEPPNI UM HUGSJON
BÚIÐ AÐ
Umhverfisvernd og friöarmál
virdasl nú eiga vaxandi fylgi að
fagna víða um heim. Kjarnorkuslys-
ið í Tsérnóbýl kom miklu róti á hugi
manna og farið var að gefa meiri
gaum að málflutningi Grœningja.
Vaxandi uggur fólks um mengun
lands og sjávar hefur valdið því að
almenningur er farinn að huga
meira að umhverfi sínu en áður.
Samtök Grœningja auka fylgi sitt og
skjóta nýjum rótum.
Vissulega er sú heimsmynd sem
blasir við mannkyninu ekki glæsi-
leg. Hungur, sjúkdómar, fáfræöi og
atvinnuleysi bíða milljóna manna. A
meðan veltir hluti hins vestræna
heims sér upp úr allsnægtum og það
sem meira er; leyfir sér að sóa auð-
lindum heimsins og menga jörðina.
Allt þetta leiðir til ójafnvægis milli
manna, náttúru og þjóðfélags.
Græningjasamtök víða um heim
hafa barist gegn þessu ójafnvægi og
ætla nú að hasla sér völl á „óspilltu"
íslandi.
Nýverið voru stofnuð samtök
Græningja hér á landi. Hljótt var um
stofnunina og fáir vita nokkuð um
þessi nýju samtök, eða yfirleitt að
þau séu til. Stofnunin birtist eins og
þruma úr heiðskíru lofti hjá mörg-
um „vinstri" manninum. Það er
ekki laust við að þeir séu svekktir.
Þeir fóru að tala um skrípaleik og
sumir líktu þessu við farsa þar sem
ekki hafði verið boðað til formlegs
stofnfundar íslenskra Græningja.
Margir urðu sárir og töldu að nú
væri búið að „stela glæpnum" frá
þeim. „Við höfum ekki stolið nein-
um glæp,“ segir talsmaður íslenskra
Græningja, Metúsalem Þórisson,
„það er öllum heimil þátttaka."
En hver er aðdragandi að stofnun
samtaka íslenskra Græningja og
hvenær voru þau stofnuð, kynnu
margir að spyrja.
Samtök um græna framtíð voru
stofnuð fyrir um ári síðan og hafa
legið í láginni þar til nú í sumar. Það
er ekki laust við að „leynifélagslykt
hafi verið af þeim" segja sumir þar
sem ekkert heyrðist frá þeim. En nú
í sumar fóru hjólin að snúast.
„Hér er um að ræða hóp einstakl-
inga úr Flokki mannsins sem vildi
leggja meiri áherslu á umhverfis- og
friðarmál, en fannst flokkurinn ekki
standa sig sem skyIdi í þeim efnum."
Þessi hópur klauf sig úr flokknum
og ákvað að stofna græningjasam-
Þýskir umhverfisverndar-
sinnar í höndum lögreglunnar eftir
mótmæli í Hamborg.
HÓPUR ÁHUGAMANNA EÐA BARA KLOFINN FLOKKUR
MANNSINS? HVAÐ UM KVENNALISTANN?
tök með pólitísku yfirbragði. Hópur-
inn og aðrir áhugamenn komu sam-
an í vikunni fyrir Stokkhólmsráð-
stefnu græningjasamtakanna, sem
haldin var síðustu helgi í ágúst. Drif-
ið var í stofnun Samtaka íslenskra
Grœningja til að geta sent fulltrúa á
ráðstefnuna.
„Það er alveg satt, að við flýttum
okkur að stofna samtök áður en ráð-
stefnan hófst í Stokkhólmi, við mun-
um starfa sem Græningjar, en ekki i
Flokki mannsins. . . Þetta er ekki
bara fólk úr Flokki mannsins," segir
formælandi samtakanna.
En eru samtökin ekki hrædd um
að fólk forðist íslenska Græningja út
af þessum „lit“, eru þessar óánægju-
raddir úr Flokki mannsins ekki bara
að leita að nýrri ímynd?
„Við erum ekki hræddir. Ég held
að sú staðreynd, að þetta er mikið til
fólk úr Flokki mannsins, verði
Græningjum bara til framdráttar."
Litlar upplýsingar hafa verið gefnar
um þessi nýju samtök og margir
setja spurningamerki við þau, enn
um stund að minnsta kosti. „Það er
svo lítið sem ég veit um þá og að
sjálfsögðu fagnar maður samtökum
Græningja því það er mikið sem
þarf að gera hér í umhverfisvernd-
armálum og það þarf margar hend-
ur á plóginn," segir Guðrún Agnars-
dóttir, Kvennalista, „ég held ég
myndi nú kynna mér þetta betur áð-
ur en ég fer nokkuð að lýsa yfir
skoðunum mínum á þessum sam-
tökurn." Og það eru fleiri sem slá
þennan varnagla því lítið hefur
heyrst frá þeim ennþá og ekki var
boðað opinberlega til stofnfundar
samtaka íslenskra Græningja.
Ein af megináherslum Græningja
í Evrópu hefur verið að ná saman
breiðfylkingu um umhverfis-, friðar-
og jafnréttismál. En hreyfingin er
ekki samstiga hjörð. Þar koma sam-
an ólíkir hópar úr þjóðfélaginu; um-
hverfisverndarsinnar, trúarhópar,
sem ekki geta fellt sig við neyslu-
hyggju og gullkálfsdýrkun kristi-
legra flokka, andstæðingar kjarn-
orkuvopna, róttæklingar, dýravinir
og kvenréttindakonur. Þegar svo
mislit hjörð á í hlut getur reynst
erfitt að vera samstiga, eins og fram
kom á Stokkhólmsráðstefnunni.
„Ég er ekki hræddur um að aðdrag-
andi að stofnun samtaka íslenskra
Græningja og það hverjir eru for-
svarsmenn muni hræða fólk frá að
ganga í samtökin. Það tekur smá-
tíma að vinna þetta upp," segir
Metúsalem Þórisson hjá íslenskum
Græningjum. Jú, vissulega er það
rétt, framtíðin er þeirra, segja Græn-
ingjar og leggja á það áherslu að
samtök sem þessi verði ráðandi afl á
næstu öld.
Umhverfisverndarsjónarmiðin
eiga að ganga fyrir hagvaxtardýrk-
uninni. Um það eru Græningjar
sammála. Leggja verður meiri
áherslu á gæði lífsins, eins konar
þörf fyrir lífsfyllingu, með náttúru-
vernd að leiðarljósi. Hin nýja versl-
unarhöll, eða musteri auðvaldsins,
eins og sumir gárungar vilja kalla
Kringluna, fær sinn skammt hjá
Græningjum. Þeir telja mikið
„óbragð af efnishyggjunni" sem þar
birtist. „Það vantar meiri tilfinningu
fyrir lífinu, fólk verður að huga að
uppgræðslu náttúrunnar og ekki
láta mengunina vaða yfir, eða láta
hagvaxtarstefnuna og gróðasjónar-
mið ráða ferðinni." Hvers vegna eru
þá vinstri menn svona efasemda-
fullir varðandi þessi samtök? Er
þetta ekki eins og talað úr þeirra
munni? Voru þeir kannski að hugsa
um að stofna svona samtök? Raddir
hafa spurst út um slíkt, a.m.k. eftir
að fréttist um hin nýju samtök.
HVERRA ER
„GLÆPURINN"?
En málefni Græjiingja eru ekki ný
af nálinni hér á landi. Vissulega hafa
margir „gömlu flokkanna" þau á
stefnuskrá sinni, þótt þau séu ekki
ofarlega á blaði hjá þeim. Kvenna-
framboðið og Kvennalistinn eru
hins vegar þau samtök sem mest
hafa haldið þessum málum á loft, en
„þar hafa karlmenn möguleika á að
vera virkir þátttakendur en ekki
málsvarar". Kvennalistinn hefur
vakið mikla athygli meðal Græn-
ingja erlendis. Þeim var boðið að
senda fulltrúa á ráðstefnu þeirra í
Stokkhólmi og þar var honum vel
fagnað. „Við eigum mikla samstöðu
með Græningjum og þeirra stefnu-
málum eins og þau hafa birst hjá
öðrum þjóðum," segir Guðrún Agn-
arsdóttir, einn talsmanna Kvenna-
listans. Líkt og Græningjar vilja þær
að stofnað verði sérstakt ráðuneyti
umhverfismála. Svo er búið um
hnútana í umhverfismálum á íslandi
í dag að þau falla að einhverju leyti
undir flestöll ráðuneytin. Þetta leið-
ir til óstjórnar þessara mála sem
„best væru falin undir einni stjórn
sérstaks ráðuneytis", segir í stefnu-
skrá Kvennalistans. Þannig yrði
virkari og hagkvæmari stjórná mál-
um og markvissari umhverfisvernd.
Um þetta eru íslenskir Græningjar
sammála Kvennalistanum. „Meiri
virðingu á að bera fyrir náttúrunni
og stuðla þannig að fjölbreyttara og
betra lífi," segja íslenskir Græningj-
ar. Og áfram halda Græningjar:
„Það er nauðsyn á samstöðu um
náttúruvernd. Það má ekki láta
mengunina vaða yfir vegna ein-
hverra hagvaxtarsjónarmiða. Það
þarf breytt gildismat."
„Kvennalistinn er að vissu leyti
umhverfisverndarflokkur," segir
talsmaður íslenskra Græningja, „en
hefur þessa takmörkun að þar geta
karlmenn ekki starfað að fullu." Er
þar komin skýringin á nauðsyn sér-
stakra samtaka Græningja? „Mjög
margir geta sameinast um að vinna
gegn gróðureyðingu landsins, fyrir
hvalfriðun og gegn kjarnorku hérna
á lslandi og í hafinu í kring." Þá er
það klassísk spurning og allir bíða í
ofvæni. Hvað um herinn og NATÓ?
„Friðarsinni getur nú ekki verið
öðruvísi en á móti hernaði og hern-
aðarbandalögum, og herstöðv-
um... Jú, jú ætli við tökum ekki
þátt í Keflavíkurgöngum, mótmæl-
um veru hersins og veru íslands í
NATÓ." Nú fer eflaust um einhverja.
Þetta hlýtur að vera fagnaðarefni
fyrir herstöðvaandstæðinga. ís-
lenskir Græningjar ætla að leggja
áherslu á að skýra fyrir fólki og
vekja það til umhugsunar um hvaða
hætta stafi af því að vera hugsan-
lega með kjarnorkuvopn hér á
landi. I þessu efni verður byrjað á
undirskriftasöfnun með haustinu.
Atök og boðaföll í íslenskum
stjórnmálum hafa verið æði skraut-
leg undanfarin ár og mikið um
klofning eða sundrungu „vinstri"
manna, já og „hægri" manna líka.
Inn á þennan völl ætla íslenskir
Græningjar að skunda og þá hugs-
anlega í samkeppni við Flokk manns-
ins, að ekki sé talað um Kvennalista-
konur, sem hafa mikið látið að sér
fcveða í þeim málum sem telja verð-
ur ,,græn“. „Mér finnst nú eðlilegt
að Kvennalistakonur muni starfa
með okkur þegar fram í sækir. Þær
líta sjálfar á sín samtök sem tíma-
bundin. ... Maður getur skilið að
þau urðu til og starfa í dag, það er
ákveðin réttlæting fyrir því,“ segir
talsmaður íslenskra Græningja.
„Við munum vissulega berjast fyrir
jafnrétti og eftir því sem ég þekki
Kvennalistakonur, þá er ég viss um
að þær telja sig ekki hafa neinn
einkarétt á þessu máli. Þær hljóta að
vera fegnar öllum þeim höndum
sem leggja þessu máli lið.“ Hvað
segja þær við þessu? „Það er svo
mikið verk að vinna, að það er mjög
jákvætt ef fleiri bætast í þann hóp
sem vill vinna að þessum málum."
Ekki má leggja mikla áherslu á
aukinn hagvöxt að sögn Græningj-
anna, „því ef hanner hafður að leið-
arljósi þá er verið að ofveiða, það er
verið að menga. Allt annað gleymist
þegar svo mikil áhersla er lögð á
hagvöxtinn". Með þetta veganesti
ætla íslenskir Græningjar að leggja
af stað út á völl stjórnmálanna.
Fyrirhuguð er uppákoma á Hótel
Borg í lok mánaðarins þar sem starf-
ið verður kynnt. Ætlunin er að
fjölga talsmönnum samtakanna og
eru allir velkomnir til starfa sem
áhuga hafa á umhverfis-, friðar- og
jafnréttismálum. „Það þarf hugar-
farsbreytingu, ná til unga fólksins,
virkja það, ekki þannig að menn
renni bara þægir inn í sínar skúffur
eftir námið."
20 HELGARPÓSTURINN