Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 37
-rn r. irnoyl 'riMi )tö r> t - C,: •',' tri Í 1 > 1 Atfreð skorar eitt af 109 mörkum sínum 1982. Það árið gerði hann m.a. 21 mark í leik gegn KA. ♦* t * ♦ -O M n fl«t «*». r »t* ’ 1! b y< Íj V! V V? (’ T* C-f yrðu í hópnum og Alfreð segir að það hafi ekki verið annað hægt en segja já við þeirri ósk þrátt fyrir að sér hafi verið það þvert um geð í raun og veru. Þegar kom svo að keppninni var kallað í Alfreð enda hafði Sigurður Sveinsson fótbrotnað og Sigurður Gunnarsson átti við minniháttar meiðsl að striða. Það vantaði mann til að taka stöðu Kristjáns Arasonar, ef hann meidd- ist, og þess vegna var Alfreð kall- aður. Hann iék svo aðeins í einum leik að ráði, síðasta leiknum gegn Spánverjum, og stóð sig best Islend- inganna í þeim leik. Guðjón Guðmundsson segir um hlut Alfreðs í landsliðinu að hann hafi átt erfitt með að fá sig lausan frá félagi sínu og þess vegna ekki tekið þann þátt í undirbúningnum sem krafist er. Alfreð tekur sjálfur undir þetta en segir ennfremur að sér hafi ekki þótt hann fá að spila nóg þegar hann var á fullu með liðinu og hann kæri sig ekki um að sitja á bekkn- um, vilji þá frekar sitja heima. Það *%%%*$**> Í 1 ** f* pf t J;P' * $ * * ♦ » * * *'t t ( i fí ' sé til lítils að spila með landsliði ef menn sætta sig við að sitja á bekkn- um. Guðjón segir einmitt um Alfreð að hann sé þannig að hann vilji gefa sig allan í það sem hann er að gera og m.a. þess vegna hafi hann frekar viljað hliðra til fyrir öðrum en halda sæti sínu. Alfreð segir í þessu sam- bandi að hann hafi heyrt gagnrýnis- raddir þegar hann tók sæti í lands- liöinu þegar það fór á heimsmeist- araeppnina, að hann væri að taka sæti frá mönnum sem hefðu æft vel og lagt sig alla fram. Hann segir að þessi gagnrýni hafi komið illa við sig, enda hafi það ekki verið ætlun sín að taka sæti frá einum né nein- um. Það hafi verið ákvörðun Bog- dans að hafa sig með þrátt fyrir litla samæfingu og þrátt fyrir að hann hafi verið búinn að tilkynna að hann ætlaði sér ekki að vera með á mótinu. Nú virðist hins vegar sem málin hafi tekið aðra stefnu, Alfreð er orðinn fastamaður í byrjunarlið- inu og Guðjón Guðmundsson segir að um þessar mundir sé Alfreð einn af lykilmönnum liðsins og hann muni vissulega verða það í Seoul ef svo fer fram sem horfir. HEILSTEYPTUR MAÐUR Eins og ætti að vera ljóst af þessari umfjöllun hefur lykillinn að vel- gengni Alfreðs fyrst og fremst verið vilji hans til að leggja á sig ómælda vinnu og erfiði við æfingar og Jó- hann Ingi segir að hann sé enn þann dag í dag meira en viljugur til að læra eitthvað nýtt. Hann hefur alltaf æft feiknalega vel, betur en flestir aðrir, og það skilar sér í þeim vegs- aukum sem honum hafa hlotnast í Þýskalandi, enda segir Jóhann að Alfreð sé einn virtasti útlendingur- inn i þýsku deildinni og nú þegar hann yfirgefi hana, við góðan orðs- tír, verði að honum eftirsjá en um leið mikill fengur fyrir íslenskan handbolta að fá hann heim aftur. Þeir sem rætt var við voru þó sam- mála um að það sem mest um vert væri hjá Alfreð væri að hann væri gjörsamlega laus við allt grobb og * ti X í ) i f t i alla stæla og léti á engan hátt vel- gengnina stíga sér til höfuðs eins og svo algengt er með íþróttastjörnur, kannski sérstaklega í Þýskalandi. Guðjón Guðmundsson segir einnig að allt sem hann segi standi eins og stafur á bók, hann sé traustur, bæði sem leikmaður og persóna. Það fer vel á því að láta Jóhann Inga hafa lokaorðin í þessari um- fjöllun um Alfreð Gíslason: „Hann er fyrsta flokks íþróttamaður, eins og hvern þjálfara dreymir um. Ef maður hefði tólf stykki slíka gæti maður bara setið með „sígar" á bekknum og þyrfti ekkert að gera." Og Jóhann Ingi bætir því við að það sem kannski sitji helst eftir varðandi Alfreð sé það að þrátt fyrir alla vel- gengni hafi hann í engu breyst, hann sé ennþá samur og þegar hann kom fyrst á landsliðsæfingu fyrir tæpum níu árum og fór norður með heima- verkefnin sem fólust í að plata föð- urinn í stofunni. Hann æfi'enn og spili jafnmikið með hjartanu og hann hefur alltaf gert. freðs fælist í líkamsburðum hans, en hann er feiknalega sterkur frá nátt- úrunnar hendi. Guðjón Guðmunds- son nefndi það til að það sýndi styrk Alfreðs að hann hefði að mestu sloppið við meiðsl á ferli sínum, það segði meira en mörg orö um það í hversu góðri æfingu hann væri allt- af. Alfreð segist hins vegar fyrir löngu hafa hætt að taka þátt í öllum kraft- og þolæfingum, enda segist hann hafa nóg af slíku, hann leggi þess í stað áherslu á tækniæfingar enda hafi hann þar þurft að bæta sig mest í gegnum tíðina. VEIKLEIKAR Helstu veikleikar Alfreðs sem handboltamanns segir Guðjón Guð- mundsson að séu þeir að hann sé ekki nógu góður fyrir liðið þegar hann er ekki með boltann í sókn- inni, að hann sé ekki nógu hreyfan- legur. Jóhann Ingi tók undir þetta en hélt því þó fram að honum hefði far- ið fram hvað þetta varðaði og tiltók einnig að sér þætti sálræna hliðin oft ekki nógu sterk; ef fyrstu skot hans í leik geiguðu ætti hann oft erf- itt með að ná sér á strik eftir það. Hann hefði ekki þessar stáltaugar sem þeir hefðu sem væru fæddir inn í íþróttirnar. Jóhann sagði einnig að sér þætti sem þetta væri þó að lag- ast. En Jóhann Ingi undirstrikaði einnig að Alfreð væri fyrst og fremst leikmaður heildarinnar, léki vel fyr- ir aðra í liðinu og ef heildin léki vel gerði hann það líka. Hann væri hins vegar ekki sú týpa sem ynni ieiki fyrir lið sitt þó hann hefði gert það þegar hann lék hér á íslandi. LANDSLIÐSMÁLIN En ferill Alfreðs hefur ekki ein- göngu verið dans á rósum. Þó hon- um hafi alltaf gengið mjög vel með sínu félagsliði hefur hann ekki verið mjög áberandi með landsliðinu eftir að Bogdan Kowalscyk tók við stjórninni. Hvorki á Ólympíuleikun- um 1984 né í heimsmeistarakeppn- inni í Sviss 1986 lék hann mikið með, enda tók hann ekki þátt í und- irbúningi liðsins nema mjög tak- markað. Reyndar ætlaði hann sér aldrei að vera með á heimsmeistara- mótinu og var búinn að tilkynna landsliðsnefndinn i það. Hún tók hins vegar af honum loforð um að til hans mætti leita ef einhver meiðsli BÍLALEK5A Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 interRent EGILL VILHJÁLMSSON HF. EINKAUMBOÐ TIAMC Jeep T ilkynning Aukin þjónusta í E. V.-húsinu, Smiðjuvegi 4c. Bifreiðaverkstæði Egils Arnar hefur opnað í E. V.-húsinu og tekur að sér viðgerðaþjónustu fyrir AMC - Jeep. Af þessu tilefni vill AMC - Jeep umboðið bjóða Egil Örn og starfsmenn hans velkomna til þjónustu og væntir góðs af samstarfi við þá til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína. Friðbjöm G. Jónsson, þjónustustjóri E.V. Þjónustudeild E.V. ásamt bifreiðaverkstæði Egils Arnar mun leitast við að veita eigendum AMC -Jeep bifreiða fullkomna, alhliða þjónustu. Þjónustudeild E.V. bendir á stóraukinn varahlutalager og aukna þjóiiustu í sérpöntunum án aukagjalds. Egill öm nr Á BIFREIÐAVERKSTÆÐI dEAegils arnar Viðhaldsþjónusta AMC - Jeep, sími 75150. AMC - Jeep eigendur! Verið velkomnir. Vió munum veita ykkur markvissa ogöruggaþjónustu. 10.000 km. skoðun - Vetrarskoðun - Smurstöð. Bílinn þinn er í góðum höndum hjá okkur. EGILL VILHJÁLMSSON HF. einkaumboð VIAMC Jeep og r% i— jA bifreiðaverkstæði BcAegils arnar Viðhaldsþjónusta AMC - Jeep, sími 75150. óska öllum AMC - Jeep eigendum fararheillar á komandi ári. HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.