Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 13
BFélagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, hefur ráðið Inga
Val Jóhannsson sérstakan aðstoð-
armann sinn í húsnæðismáium.
Stefán Ingólfsson var eins og
kunnugt er ráðinn til að aðstoða
ráðherra við húsnæðismál fljótlega
eftir að rikisstjórnin tók við, en
hann mun ekki hafa fengist til að
ráða sig til ráðuneytisins í fast starf
og því var Ingi Valur ráðinn. Ekki
mun vanþörf á að ráða sérstakan
mann til að skoða húsnæðismál því
vanda húsnæðislánakerfisins var
einungis skotið á frest með laga-
breytingunni sem gerð var fyrir ára-
mót. ..
u
ifl W Hikill kurr er nú á meðal ís-
lenskra iögreglumanna á Keflavík-
urflugvelli vegna fyrirhugaðrar
nýskipanar hliðvörslu á svæðinu.
Samkvæmt heimiidum okkar er
hugmyndin sú, að Bandaríkjamenn
taki við þessu gæsluhlutverki, en ís-
lensku iögreglumennirnir vilja að
sjálfsögðu ekki missa spón úr aski
sínum og gera kröfu um, að í hliðum
Kefkavíkurflugvallar verði einn og
helst tveir íslenskir lögreglumenn á
móti einum Bandaríkjamanni. Rök-
in eru meðal annars þau, að hætta á
árekstrum fólks, sem ætti erindi inn á
völlinn, og Bandaríkjamanna gæti
aukist að mun án mildilegrar nær-
veru íslendinga. Lögreglumennirnir
hafa reynt að knýja fram svör um
hver verður niðurstaða málsins, en
ekki fengið nein svör enn...
DAGBOKIN HENNAR DULLU
Kæra dagbók.
Mamma hræddi sko alveg úr mér
líftóruna áðan, þangað til ég fattaði
að hún var ekkert að tala í alvöru.
Hún heimtaði nefnilega að við flytt-
um til útlanda. Ástæðan var sú, að
þar væru fleiri klukkutímar í sólar-
hringnum en á íslandi. Það var
Ameríka, sem hún vildi endilega
fara til. Hún sagðist hafa séð ótelj-
andi amerískar bíómyndir og sjón-
varpsþætti, sem sýndu að þar væru
sólarhringarnir að minnsta kosti
þrjátíu klukkustundir! Þegar hún
tók upp á þessu vorum við í mesta
sakleysi að horfa á mynd í sjónvarp-
inu um mann, sem varð skotinn í
miklu eldri konu. En þá bara sprakk
mamma allt í einu.
Konan í myndinni vaknaði nefni-
lega eldsnemma á morgnana og fór
hjólandi iangar leiðir í vinnuna, án
þess að verða neitt sveitt. Og
mamma þoldi það ekki! Kellingin
var líka alitaf með voða fína hár-
greiðslu og í siikikjól og háhæluðum
skóm á hjólinu, sem mömmu fannst
líka ,,einum of”. Svo vann konan
innilokuð á skrifstofu allan daginn í
sól og hita, en varð ekkert sjúskuð
eða þreytt eins og venjulegt fólk.
Hún bara hjólaði sallaróleg heim
aftur og áður en kominn var kvöld-
matartími var hún búin að dressa
sig alla upp, skipta um hárgreiðslu
og var mætt — afslöppuð, algjörlega
ósyfjuð og hugguleg — í mat til ein-
hvers gæja.
Mamma heimtaði skýringar á
þessu öllu hjá pabba greyinu, sem
kom alveg af íslenskum fjöllum og
vissi ekki hvað gekk á. En hún gaf
sig sko ekki, heldur heimtaði að fá
að vita hvenær fólk svæfi í
Ameríku. Eða kannski þyrfti það
barasta ekkert að sofa þarna fyrir
vestan! Hún sagðist alltaf hafa hald-
ið, að fólk í stórborgum þyrfti að
vakna ógeðslega snemma til að
vera mætt í vinnuna á réttum tíma,
af því að það væri svo lengi á leið-
inni. Og það væri jafnlengi að kom-
ast heim og síðan þyrfti að kaupa
inn og þvo þvotta, elda, taka til og
fara í bað. Fyrir utan að sofa! En
mamma sagðist ekki sjá betur en
fólk í Ameríku kæmist yfir miklu
meira á einum degi en við hér á ís-
landi. Svo væru amerískar konur
líka búnar að finna upp ráð til að
vakna með nýblásið hár, meik og
kinnalit. Þær þyrftu ekkert að gera
nema varalita sig á morgnana,
a.m.k. þessar í bíómyndunum.
(Pabbi sagði, að þetta skýrði nú ým-
islegt, því þarna spöruðust örugg-
lega tveir tímar á dag, en mamma
kunni ekki að rheta það innlegg í
umræðurnar. Amma á Einimelnum
segir líka, að hún sé alveg
húmorslaus!)
Stebba systir sagði, að mamma
hefði örugglega bara verið svona
stressuð af því að hún gæti aldrei
náð sér í eins ungan og sætan gæja
og kellingin í myndinni. Annars
gæti hún mamma verið alveg meiri-
háttar, ef hún nennti stundum að
pæla eitthvað í útlitinu. Ef hún
myndi t.d. einhvern tímann klára öll
þessi leikfiminámskeið, sem hún
hefur innritað sig á, og fara í hár-
greiðslutíma i staðinn fyrir Kvenna-
listafundi. Og setja stundum á sig
skartgripina og ilmvötnin, sem
pabbi hefur gefið henni! Þá gœti
hún orðið alveg sæmileg...
Verð að fara að sofa. (Eg er nefni-
lega ekki búin að fatta hvernig mað-
ur fer að því að vakna með nýþvegið
hár, svo ég verð að þvo mér áður en
ég fer í skólann í fyrramálið.) Dúlla
HITABLÁSARI
Bensín og gasolíuhitabiásarar, 12 og 24 volt, fyrir báta, bíla og vinnuvélar.
Varahlutir og viðgerðarþjónusta.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
SH 1. Erlingsson h/f, varahlutir, RAFBRÚ SF.
Ármúla 36 (Selmúlamegin),!sími 688843. Helgi Sigurjónsson
Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f. Helgalandi 1, Mosfellssveit 91-667073
HELGARPÓSTURINN 13