Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 31
HAMARINN EFTIRLÆTISVERKFÆRIÐ Oft er sagt ad fátt sé erfiöara ad velja aö gjöf handa ödrum en skartgripi og málverk. Þad sem einum finnst fallegt getur ödrum þótt Ijótt og rœdur þar audvitad smekkur hvers og eins. Sumtr leggja mikla áherslu á sérsmídada skartgripi, medan ödrum finnst edlilegt aö kaupa ódýrari, fjölda- framleidda skartgripi. Hér á landi eru margar skartgripaverslanir sem bœöi selja sérsmíöaöa og fjöldaframleidda skartgripi, en eftir þvt sem viö komumst nœst mun aöeins vera einn gullsmiöur hér á landi sem handsmíöar hvern einasta skartgrip í sinni verslun. Þaö er Pétur Tryggvi Hjálmarsson I sem hefur rekiö verslun í miöborg- ,inni um rúmlega tveggja ára \skeiö, auk þess sem hann selur til skartgripaverslana í Þýskalandi. Eplið fellur sjaldnast langt frá eikinni eins og kunnugt er og faðir Péturs Tryggva er Hjálmar Torfason gullsmiður. Auk Péturs eru tveir aðrir synir hans að læra gullsmíði. Pétur Tryggvi segir áhuga sinn án efa mega rekja allt til bernskuáranna „og ég var ekki nema sex ára þegar ég var farinn að fylgjast af athygli með pabba við smíðarnar. Einhvern veginn hef ég alltaf átt auðveldara með að tjá mig með formi en orðum og verklegt átti alltaf'betur við mig en bóklegt. Ég hef alltaf haft áhuga á formum og teikningu. Fyrsta víravirkið smíðaði ég tíu, ellefu ára gamall — en það tók náttúrlega töluverðan tíma! Ég gerði það þó upp á eigin spýtur, enda hafði ég fylgst mikið með slikri vinnu en eðlilega þurfti ég að endurvinna hluta af því. Aö loknu sveinsprófi 1977 starf- aöi Pétur Tryggvi hjá fööur sínum en á árunum 1981—1983 fór hann til framhaldsnáms viö gullsmíöa- háskóla í Kaupmannahöfn. „Inn á þann skóla komast aðeins útlærðir gullsmiðir og námið fólst eiginlega í að slíta menn frá öllum hugmyndum sem þeir höfðu gert sér um þessa námsgrein. Námið var alveg frjálst, byggðist á silfursmíði, skart- gripasmíði, emaleringu og öllu sem viðkemur faginu og við gerð- um verkefni í hverju fyrir sig. f sjálfu sér var námið ekki leiðbein- andi, ekki sagt „svona áttu að gera“, heldur byggðist það til helminga á hönnun og smíði. Eftir hvert verkefni var farið yfir það og rætt með rektor, kennurum og nemendum hvað hefði betur mátt fara o.s.frv. Oft var það þannig að kennararnir lærðu heilmikið af nemendunum. Mér fannst ég verða mun sjálfstæðari eftir þetta nám og það var mikil ögun.“ Nú viröistu vera til jafns meö grófa og fínlega skartgripi. „Já — þó kannski sé ekki hægt að kalla þá „grófa" í eiginlegri merkingu. Það fer bara eftir til- finningu hverju sinni hvernig skartgripi ég smíða, en allt ber þetta að sama brunni. Það er : „virkningin" ég sækist eftir. Þá á ég við að ég vil að hluturinn hafi einhverju hlutverki að gegna, hann sé ekki bara „eitthvert forrn" og „eitthvert glans" heldur að það sé einhver hugsun í honum." Hann tekur fram hálsfesti og eyrna- lokka, mjög fíngerð úr gulli sem mynda nokkurs konar hnút og sama virðist hvernig hann beygir þessa muni fram og til baka, gullið hrekkur alltaf í sama farið. „Þetta er gert með því að hamra gullið til áður en maður vinnur það, á þann hátt að þétta það og láta sameind- irnar raða sér eins og gullið kemur til með að liggja í skart- gripnum. Hamarinn er mitt eftir- lætisverkfæri." Hann segist byrja á að gera skissur að skartgripunum og misjafnt sé hvort hann ákveði í byrjun hvaða efni hann ætlar að hafa í þeim: „Þó er það oftast þannig að ég ákveð um leið hvaða efni á að vera í viðkomandi skart- grip. Það gengur misjafnlega að fá hugmyndir, stundum virðist allt vera lokað og stundum fæðast margar hugmyndir í einu. Þær koma á ólíklegustu tímum... Stundum fæ ég hugmynd sem ég geri 10—15 skissur að og get ekki notað neina þeirra fyrr en löngu síðar en stundum kemur þetta alveg um leið." Eftir hverju feröu? Tísku? „Nei, ég fer aldrei eftir tísku. Hugmyndirnar eru bara tilfinn- ingar mínar hverju sinni." Pétur Tryggvi starfar einn í verslun sinni jafnhliða smíðunum, en segir það ekki truflandi að þurfa að sinna afgreiðslustörf- unum: „Þetta er ekki eins og í sælgætisverslun þar sem er stöðug traffík!" segir hann. „Það er líka mjög misjafnt hversu langan tíma það tekur að smiða hvern hlut. Það getur verið allt frá fjórum klukkustundum eftir að hug- myndin fæðist og upp í heilan mánuð. Það fer eftir hversu viða- mikiil skartgripurinn er og hversu ánægður ég er með hugmyndina. Ég legg mikla áherslu á að einangra öll smáatriði því ég er yfirleitt ekki ánægður fyrr en öll aukaatriði eru horfin." Er mikiö um aö fólk sérpanti ákveöna tegund af skartgrip? „Nei, fólk kaupir frekar það sem til er. Það er helst ef vantar lítil myndverk úr silfri að fólk biður um hugmyndir sem ég teikna þá fyrir það, fjórar, fimm skissur. Nei, það hefur ekki komið fyrir að fólk hætti við eftir að ég hef unnið að hugmyndinni. Fólk hér virðist almennt heiðarlegt. Ef ég á ekki einhvern hlut tilbúinn og er beðinn að smíða hann eftir umtali þá þarf fólk auðvitað ekki að kaupa þann hlut, líki því hann ekki. Það á aldrei að kaupa skart- grip nema maður sé fyllilega ánægður með hann því ef það nást ekki einhver tilfinningatengsl milli skartgripsins og þess sem ber hann, þá verður skartgripurinn einskis virði, burtséð frá hvað hann kostar.“ Ríkir mikil samkeppni milli gull- smiöa hérlendis? „Já, eðlilega er hún frekar hörð. Að vísu eru ekki mjög margir hér sem eru í sérsmíði, en það er mikil samkeppni í að selja skart- gripi. Mikið af því sem á boð- stólum er er innflutt, sem á auð- vitað fyllilega rétt á sér.“ Vœri ekki auöveldara fyrir þig aö reka verslun hér ef þú byöir einnig upp á innflutta skartgripi? „Það er auðvitað það alauð- veldasta sem hægt er, að fiytja inn fjöldaframleidda skartgripi, en þetta er spurning um hverju maður sækist eftir. Sjálfur hef ég áhuga á sérsmiðinni." Smíöaröu eitthvaö á hverjum degi? „Nei. Það er misjafnt hversu mikið ég smíða, stundum getur farið heil vika í tilraunastarfsemi og svo kannski smíða ég þrjá muni á einum degi, en ég er alltaf eitthvað að gera í sambandi við þetta.“ Pétur Tryggvi segist flytja gull og silfur inn frá Þýskalandi og Danmörku og segir verðmun á þeim málmum mikinn. Hins vegar ber hann á móti því að það sé áhætta að flytja inn mikið magn af gulli „því gullið stendur alltaf fyrir sínu" segir hann. „Gull er ekkert annað en peningar." Hann segist vanda val sitt á steinum og fái bestu steinana frá „einum aðalsteinabænum í Þýskalandi, Úber Oberstein, og einnig frá Munchen. Síðasta árið hef ég verið mikið með sjaldséða ópala í mínum skartgripum." Hvernig fórstu aö því aö koma þér á framfœri í Þýskalandi þar sem hörö samkeppni ríkir á markaöinum? „Ég bara hreinlega fór þangað með nokkra muni vegna þess að mig langaði að vita hvar ég stæði í þessari grein. Ég fór til skart- gripabæjarins Pforsheim, en þar eru nánast einungis framleiddir skartgripir, og hitti þar skartgripa- framleiðanda sem mér hafði verið sagt að væri svona frekar heiðar- legur. Þarna úti er samkeppnin algjört brjálæði og mikið um að hugmyndum sé stolið. Þessi skart- gripaframleiðandi benti mér á hvaða leiðir hann taldi hentugar, gaf mér heimilisföng og ég fór beint í sérverslanir í Munchen, Wiesbaden og Hamborg og bauð þeim að kaupa af mér skartgripi. Það gekk mjög vel og síðan hafa þeir selt fyrir mig.“ Fœröu hœrra verö fyrir skart- gripina þar en hér heima? „Já, mun hærra verð. Þangað sel ég hluti sem ég hef mjög gaman af að smíða, nota tölu- verðan tíma í þá, en hér er lítil Skartgripir eiga aldrei að lenda í aldurs- farvegi hlutnum og sá sem hannaði hann.“ Ertu aldrei efins þegar þú fœrö hugmynd, aö kannski sé þetta eitt- hvaö sem þú hefur séö annars staöar, til dœmis í tímaritum, og þú sért ósjálfrátt aö „stœla"? „Nei, enda skoða ég afskaplega lítið af tímaritum! Hins vegar eru engin lög hér til ennþá um höf- undarrétt á formum, en þau þyrftu auðvitað að koma. Auðvitað er margt sem hefur áhrif á mann, ég gæti þess vegna hafa orðið fyrir áhrifum frá straumum i húsgagna- framleiðslu án þess að gera mér grein fyrir því. Eða í grafík." Pétur Tryggvi segist ekki þekkja neitt annað en handsmíði, enda hafi hann einbeitt sér að henni alla tíð. „Það sem mér þykir sjálf- sagt að gera hér þykir kannski hreyfing á slíkum hlutum. Fjölda- framleiddir hlutir eru mun ódýrari í Þýskalandi en hér og hand- smíðaðir mun dýrari." Þér hefur ekki dottiö í hug aö flytjast alveg af landinu og starfa í Þýskalandi? „Jú jú, það hefur oft hvarflað að 'mér. Auðvitað væri það að mörgu leyti mun auðveldari leið, en maður tekur sig ekki upp svona einn, tveir og þrír með fjölskyldu og flytur brott af landinu. Hér er ég að byggja mig upp og á flestum sviðum gengur það vel hérna að ég tími ekki að fórna því ef....! Maður veit aldrei hvort eitthvað bregst og þá hvenær. Hins vegar finnst mér allt í lagi að hafa Þýskaland með í myndinni og selja þangað einn og einn pakka.“ Hvort leggja Islendingar meira upp úr aö kaupa sérsmíöaöa skartgripi eöa fjöldaframleidda? „Hér virðist vera að koma upp ákveðinn hópur fólks sem hefur áhuga og skoðun á skartgripum, líkt og tíðkast í Þýskalandi. Þar tekur fólk ástfóstri við ákveðinn skartgrip. Enda sagði skartgripa- framleiðandinn umræddi þegar ég leitaði til hans að minn styrkur lægi í því að ég byggi til hluti sem ekki væri hægt að fjöldaframleiða, steypa. Maður sér oft skartgrip sem er alveg ágætur þótt hann sé fjöldaframleiddur og það er aldrei svo að aðeins einn skartgripa- hönnuður hafi rétt fyrir sér. Hver smiður hefur sínar tilfinningar og stíllinn er raunverulega ekkert annað en það. Ég gæti til dæmis ekki smíðað annars hönnun, þá væri ég bara að vaða reyk. Ég fengi aldrei það sama út úr ekki sjálfsagt erlendis. Þar þykir kannski ekkert eðlilegt að menn séu að teikna og smíða sjálfir hvern einasta hlut. Þar er algengt að sérstakir menn vinni eingöngu við að teikna skartgripina, síðan fara myndirnar til módelgerðar- manns sem mótar hlutinn í vax, því næst fer hann í framleiðslu og loks í frágang. Sjálfur hanna ég hlutinn beint af blaðinu yfir í málminn." Hverjir eru þínir helstu viö- skiptavinir? „Karlmenn að sjálfsögðu! Þeir eru þó yfirleitt alltaf að kaupa skartgripi til þess að gefa konum enda er lítið um það hér að karl- menn noti skartgripi. Helst eru það bindisnælur og skyrtu- hnappar. Nú fer tími ferminga í hönd innan tíöar. Hefur oröiö breyting aftur í þá átt aö fermingarstúlkur fái skartgripi aö gjöf, líkt og var algengt fyrir 20 árum eöa svo? „Ég þori bara ekkert að segja um það. Fermingarskartgripir virð- ast hafa verið smíðaðir allt öðru vísi en aðrir skartgripir og hér á landi liggja fermingarskartgripir í hundraða kílóa tali ofan í skúffum. Stúlkur eiga oft mikið af skart- gripum sem þær hafa fengið í fermingargjöf og aldrei notað og oft er ég spurður hvort ekki sé hægt að bræða hringi og búa til einn hring úr gullinu. Slíkt er auðvitað hægt að gera, en ferm- ingarskartgripir eiga í rauninni ekkert að vera öðruvísi en aðrir. Skartgripir eiga ekki að fara í aldursfarveg. Þeir eiga að standa fyrir sínu burtséð frá aldri þess sem þá ber.“ EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND JIM SMART HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.