Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Blaðsíða 27
Að lifa svona allan ársins hring, spil- andi í dansbandi þar sem maður fær aldrei að blása sóló, — það hlýtur að vera hreint helvíti. To Your Bed... Mikið væri stórkostlegt að hafa einn svona kall hér heima. Það yrði ómetanleg lyftistöng fyrir íslenskt djasslíf. Paul Weeden er einn af þessum gaurum og dvöl hans á Is- landi var mjög gagnleg. Hann er fæddur í Indianapolis og kom í heimsókn jólin '86. Þá kom ég ekki heim svo mér gafst tækifæri til að spila nokkur lög með honum í klúbbi þar.“ Fyrir utan að læra á saxófón hjá einum færasta klassíska saxófón- leikara heims, Eugene Rousseau, er Sigurður að læra á klarinett og flautu og svo stundar hann djass- fræði hjá David Baker. „Þegar maður spilar í stórsveitum er nauðsynlegt að geta blásið í klar- inett og flautu jafnhliða saxófónin- um og ég vil kunna almennilega á þau hljóðfæri sem ég spila á. Fyrir utan djasssveitir skólans hef ég leik- ið með skemmtisveitum eins og þeirri er Tony Barron stjórnar í Guy Lombardo-stíl. Stundum leikum við undir hjá skemmtikröftum. Einn þeirra var grínleikarinn Red Skelt- on. Hann er jafn skemmtiiegur og þegar maður sá hann í þrjúbíói. Við ferðumst líka um og leikum í stóru danshöllunum í Chicago, Casa Loma í St. Louis og Indiana Roof í Indianapolis. Þarna fær maður nasasjón af því hvernig flökkulífið á þjóðvegunum er. Keyra allan dag- inn, spila um kvöldið og sofa á skít- ugu hóteli um nóttina, fjórir í her- bergi, tveir í rúmi. Þetta er ekkert mál í stuttan tíma þegar maður er að vinna sér inn vasapeninga, en að lifa svona allan ársins hring, spilandi í dansbandi þar sem maður fær aldrei að blása sóló, — það hlýtur að vera hreint helvíti." David Baker hefur verið helsti djasskennari Sigurðar og reynst honum afburðavel. „David blés í básúnu með hljóm- sveitum Lionels Hampton, Quincys Jones, Maynards Ferguson og George Russell, áður en hann varð fyrir slæmu slysi og neyddist til að leggja básúnuna á hilluna. Nú leikur hann aðallega á selló og fæst við tónsmíðar. Hann er óhemjuvinnu- þjarkur og þarf ekki nema þriggja eða fjögurra tíma svefn. David hefur staðgóða þekkingu á djassi frá öll- um tíma og er hinn skemmtilegasti maður og húmoristi góður. Hann hefur alltaf meira og meira að gera sem tónskáld, stjórnandi og gesta- prófessor og verður því að ferðast mikið. Ég hef því fengið vinnu við aðstoðarkennslu hjá honum og fengið tækifæri til að stjórna einni af fjórum stórsveitum skólans. Það er ómetanleg reynsla sem ég hef ekki lært síður af en hinu hefðbundna námi. Kannski fer ég til New York næsta vetur, æfi mig undir drep og vinn úr því sem ég hef lært af reynslunni og í Bloomington. Sæki síðan einka- tíma hjá einhverjum góðum hljóð- færaleikara, s.s. George Coleman. Kannski fæ ég svo einhverja vinnu í Bandaríkjunum, kenni, spila — en að lokum kem ég heim. Það sem skiptir mestu er að vinna með góðum mönnum. Að spila í hljómsveit þar sem maður getur komið því á framfæri sem maður er að hugsa. Þar sem hver maður þroskar annan og heildin er betri en einstaklingarnir samanlagðir. Ég er ekkert hræddur við að starfa hérlendis — metnaður minn felst ekki í því að slá í gegn erlendis. Það sem skiptir öllu máli er að verða ekki stöðnun og heiladauða að bráð. Einfaldlega að spila góða tónlist — og þá skiptir ekki máli hvort það er klassík eða djass." BÖKMENNTIR Ertu hræddur viö endurtekn ingar? Svend Áge Madsen: Dagrenning. Skáldsaga, 161 bls. ísafold. G. Pétur Matthíasson þýddi. Fyrir tveimur árum kom Svend Áge Madsen í heimsókn til íslands og las úr verkum sínum í Norræna húsinu í Reykjavík. Hann las meðal annars kafla úr skáldsögunni „Af sporet er du kommet", Af sporinu ertu kominn, frá 1984, þar sem segir frá ungum manni, sem ávarpar að- alpersónuna Jorgen Fegge-Hansen þegar hann hittir hann á götu og biður hann að segja sér sögu. Fyrst skilur Fegge-Hansen ekki hvað hann á við, en það kemur í ljós að unga manninum líður verulega illa og er að því kominn að gefast upp vegna þess hvað það er langt síðan hann heyrði góða sögu síðast og nú var hann kominn með fráhvarfsein- kenni. Hann grátbiður Fegge-Han- sen að segja sér pínulitla sögu, þó ekki væri nema lítið brot. Að lokum fær hann að heyra sögu, en spyr áhyggjufullur hvort um hreint efni (rene varer) sé að ræða, vonandi hafi Fegge-Hansen ekki stolið henni einhvers staðar. Fegge-Hansen full- yrðir að efnið sé hreint og frumsam- ið. Ungi maðurinn kveður og labbar burt, ánægður á svip. Atriðið er að mörgu leyti dæmi- gert fyrir verk Svend Áge Madsen. Það liggur eins og rauður þráður gegnum bækur hans að menn eigi að hugsa um og vernda sögur sínar. Þær eru nefnilega gerðar úr þeim efniviði, sem heldur þjóðfélaginu sjálfu á braut, og það má líkja þessu við það hvernig eiturlyfjaneytand- inn þarf á sínu efni að halda til þess að komast af. Spurningin er þá hvort menn eru þegar farnir að glata sögum sínum og komnir með fráhvarfseinkenni, en í nokkrum bókum Svend Áge Madsen segir frá framtíðarþjóðfélagi án frásagna og skáldskapar. Hann leikur sér að þessari hugmynd til að komast að því hvernig það væri að lifa í slíku þjóðfélagi, og eins og búast má við fer allt úr skorðum: ímyndunaraflið þurrkast út og lífsbaráttan verður eintóm valdabarátta. Sem betur fer vilja sumir ekki sætta sig við ástand- ið, og þeim tekst að endurskapa gildi frásagnarinnar. Þannig má segja, að það sé frásögnin sjálf sem verður inntak verka Svend Áge Madsen, og það er því eðlilegt að hann er fyrst og fremst sagnaskáld: hingað til hefur hann skrifað 14 skáldsögur og fjölda smásagna, en auk þess nokkur leikrit bæði fyrir svið og útvarp og svo blaðagreinar. Svend Áge Madsen er módernisti, formbyltingarmaður. Hann hóf feril sinn sem módernisti í byrjun sjö- unda áratugarins og er það enn í sín- um nýjustu verkum. En módernismi fyrri verka hans gat verið erfiður viðfangs, þau voru bæði djúphugul og hugvitssöm, en í síðari verkum hefur hann víkkað svið sitt og gerst opnari. Vinsældir hans og lesenda- hópur hafa vaxið í samræmi við það. Madsen er fæddur í Árósum 1939. Áður en hann gerðist rithöfundur 22 ára að aldri lagði hann stund á stærðfræði og tölvunarfræði. Þessa bakgrunns gætir í hrifningu hans á kerfum og snjöllum hugdettum, þótt menn megi ekki halda að það krefjist háskólaprófs í tölvunarfræði að njóta verka hans. Dagrenning, sem nú hefur verið gefin út í ágætri þýðingu G. Péturs Matthíassonar, kom út á dönsku 1980. Hún er vísindaskáldsaga þar sem Svend Áge Madsen kannar hvað gerist ef óllum draumsýnum sjöunda áratugarins um frjálst sam- félag yrði hrint í framkvæmd. í þessu framtíðarsamfélagi hefjast all- ir dagar með nýjum maka, nýju starfi, nýjum verkefnum, nýjum eða bara engum börnum. Ef íbúðin er í minna lagi fær maður stærri íbúð á morgun. Ollu er stjórnað af tölvunni „Frú Tölvu", sem á hverju kvöldi tek- ur á móti uppástungum frá fólki, áð- ur en það tekur inn svefnpilluna sína og flyst fyrir tilstilli risavaxins flutningakerfis til næsta dags. Um- skiptakerfið — eins og það er kallað — virðist vera hin sannkallaða paradís: enginn getur verið óánægður, allir eru jafnir. Og þó, aðalpersóna bókarinnar — Elef — er einn af hinum óánægðu. Hvernig á hann að henda reiður á dögum sínum og lífi þegar það er bannað að endurtaka og rifja upp? Og hvaðan kemur mönnum kraftur til að takast á við verkefnin úr því að dagarnir eru alveg útreiknanlegir og lausir við átök? Hvernig gátu Adam og Eva látið tímann líða í Paradís? Elef byrjar að halda dag- bók til að tengja tímann við sig og ná taki á lífinu. Hann verður ástfanginn af Mayu, sem einnig er í hópi hinna óánægðu, og hann þrengir sér í innsta hring Frú Tölvu til að trufla grundvallarlögmál breytingakerfis- ins sem fyrirskipar að maður megi aldrei hljóta sama maka tvisvar og hann hannar forrit með sér og Mayu. Saman flýja þau og líf þeirra tekur nýja stefnu. Nú hafa þau eitt- hvað að berjast fyrir — og gegn. Þessa bók Svend Áge Madsen ber ekki að skilja á þá lund að ekki sé ástæða til að leita eftir auknu jafn- rétti og samræmdara lífi. Aftur á móti vill hann leiða í ljós hversu óraunhæft það er að ætla að losa sig við valdið, og hann leitast við að láta okkur horfast í augu við það líf sem við lifum nú. Kraftaverk og kata- strófur verða alltaf partur af heims- myndinni. Elef og Maya fá tækifæri til að hjálpa mannkyninu. Þau eru látin skrifa stórt sögulegt verk sem á að kenna fólki að rifja upp og nota ímyndunaraflið. Árangurinn af strit- vinnu þeirra er skáldsaga upp á 800 jblaðsíður, sem fyrir skemmtilega „tilviljun" er sama bókin og Svend Áge Madsen gaf út í raun árið 1976, fjórum árum áður en hann skrifaði |söguna um Elef og Mayu, og nefnist „Tugt og utugt i meilemtiden". Það er einkennandi fyrir Svend Áge Madsen að láta bækur sínar vísa hverja til annarrar á þennan hátt, og hann notar sömu persónurnar og sömu atburðina í fleiri en einu verki. Eins og sagt var áðan er markmið hans oft einfaldlega að segja sögu og að segja frá nauðsyn þess að segja sögur. Þegar módern- isminn var upp á sitt besta í Dan- mörku á sjöunda áratugnum var í tísku að segja að „allt væri afstætt". Svend Áge madsen hnykkti hér á með því að segja: „Allt er tiltölulega afstætt." í verkum sínum leitar hann hvarvetna eftir svari við spurning- um eins og: hvað er Manneskjan? og hvað er Sannleikur? hvað merkir Lífið? og hvað er Frásögn? Spurn- ingar sem svör finnast ekki við, en auðveldlega má skálda sögur út frá. Viðamesta verk Svend Áge Mad- sen er áðurnefnd skáldsaga frá 1976 með erfiðum titli, „Tugt og utugt i mellemtiden", sem kannski má þýða sem „Siðsemi og siðleysi í millitíð- inni". Hún segir frá atburðum sem gerast í Árósum og þar í kring, og hún er stundum kölluð Árósabrand- ari. í mjög stuttu máli fjallar „Tugt og utugt i mellemtiden" um Ludvig Alster, sem er dæmdur saklaus fyrir imorð. Hann brýst út úr fangelsinu í Horsens í því skyni að hafa upp á . réttum sökudólgi og draga hann fyr- ir dóm. En í miðjum þessum hefnd- arráðstöfunum finnur hann til svo mikillar samlíðunar með mönnun- um, að verknaðurinn tekur allt aðra og óvænta stefnu. Bókin er 800 blaðsíður og í henni er að finna álíka margar persónur og atburða- flækjur og i Árósum sjálfum. Svend Áge Madsen hefur skrifað í mörgum ólíkum stíltegundum. Hann byrjaði mjög ungur með að gera tilraunir og skrifa svokallaðar andsögur, þá fór hann að skrifa ein- hvers konar afþreyingarbókmennt- ir til þess að ná betur til fólks; sem dæmi má nefna skáldsöguna „Liget og lysten", „Líkið og lostann", frá ’68, en hún er í senn glæpasaga, ást- arsaga, vísindaskáldsaga og klám- saga, og Svend Áge Madsen lætur persónurnar breytast í samræmi við hvaða bókmenntategund þær taka þátt í; þar næst byrjar hann að skrifa vísindaskáldsögur, og að lokum finnur hann form sem er sambland af vísindaskáldsögu og spennusögu; efniviðurinn er frásagnir, sögur, sjálft ritferlið. Slík upptalning er að sjálfsögðu einungis til þess að gefa stutt yfirlit og rifhöfundarferill, sem spannar tug bóka, allt frá skáldsögum og smásagnasöfnum til leikrita og út- varpsleikja, verður ekki svo auð- veldlega hnepptur í einkunnarorð. Eitt sinn er Svend Áge Madsen var að því spurður hver væru einkunn- arorðin í lífi hans svaraði hann: „Að forðast einkunnarorð." Boðskapur hans krefst olnbogarýmis, viðfangs- efni hans er Manneskjan. „Dagrenning" er fyrsta bókin eftir Svend Áge Madsen sem kemur á ís- lensku. Vonandi fáum við næstu ár- in fleiri þýðingar eftir þennan frá- bæra danska rithöfund. Kristín Njarðvík hefur nýlega lokið við að þýða Af sporinu ertu kominn, og það er verið að kanna útgáfumögu- leika. Sú bók kom út á dönsku árið 1984 og er sú af bókum Svend Áge Madsen sem mesta hylli hefur hlotið til þessa. Hún var valin bók mánað- arins hjá bókaklúbbnum Samleren í Danmörku, sem þýðir að salan meira en tífaldast miðað við það sem venja er. Hún fjallar um trygg- ingafræðinginn Fegge-Hansen, sem áður var minnst á. Hann þjáist af viðvarandi höfuðverk, þar til hann dag nokkurn kemst að raun um að höfuðverkurinn hverfur ef hann leggur sig í lífshættu. í því skyni hættir hann sér út á glæpabrautina og líður strax betur. í félagi með öðr- um skrítnum karakterum hannar hann skáldaða ímynd með því að raða saman tilskildum upplýsingum um nafn, stöðu, heimilisfang, nafn- HELGARPÓSTURINN 27 UTVARP Sagnfrœði fréttanna Hún er merkileg sagnfræðin — og fréttamennskan. Sl. föstudag voru þeir Eiður Guðnason og Svavar Gestsson fengnir í spjall hjá Stefáni Jóni Hafstein og Ævari Kjartanssyni um fortíðina og fjár- stuðning komma og krata við Al- þýðuflokk og Alþýðubandalag. Það kom ekkert nýtt fram í spjall- inu annað en það sem Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur hefur sett fram um fjárstuðning útlendra krata við íslenska krata. Það sem er nýtt var að Eiður Guðnason skuli athugasemdalaust fá ráðrúm til að rakka niður kollega þeirra Ævars og Stefáns Jóns á frétta- stofu útvarpsins — athugasemda- laust. Eiður Guðnason er þeirrar skoð- unar að ráðabrugg Stefáns Jó- hanns Stefánssonar og bandaríska sendiráðsins í Reykjavík á fimmta áratugnum hafi ekki átt sér stað, og að fréttir fréttastofunnar um efnið hafi verið villandi og rangar og að í þeim hafi verið ráðist að látnum manni, forsætisráðherra. Þetta er skoðun. Ekki byggð á heimildum heldur tilfinningu. Helgarpósturinn hefur t.a.m. birt upplýsingar — skjalfestar — sem vitna um þetta ráðabrugg. Eiður Guðnason kýs að horfa fram hjá þeim upplýsingum. Og það er vita- skuld hans mál. Ekki má útiloka tilfinningar frá skoðanamarkaðin- um, en af því málið snýst um sagn- fræði og fréttamennsku, þá var nú ekki úr vegi að kippa þingmannin- um úr veldi tilfinninganna og yfir í raunveruleikann. Það er hlutverk fréttamannanna, eða spyrlanna ekki síst vegna þess að þingmað urinn kýs að halda sig við að hvit þvo Stefán Jó með árásum á frétta menn svo sem aðstoðarritstjóri Moggans, Björn Bjarnason, kaus að gera um áramót í hópi frétta- manna — ómótmælt. Þetta er slappt — sorglega slappt. Helgi Már Arthursson SJONVARP Sígjammandi stjórnandi Á fimmtudagskvöldið var sýnd í ríkissjónvarpinu ný, íslensk sjón- varpsmynd um áfengissýki. í kjöl- far myndarinnar stýrði Ingimar Ingimarsson umræðuþætti í sjón- varpssal, þangað sem til voru kvaddir aðilar, sem vel eiga að þekkja til þessara mála. Áhorfend- um gafst kostur á að hringja inn spurningar varðandi áfengissýki, og greinilegt var að efnið höfðaði til margra eftir fjölda hringing- anna að dæma. Myndin sjálf fannst mér gefa villandi sýn af alkóhólistanum Agli, enda Magnús Ólafsson ótrú- verðug persóna í hlutverk hans. Hver trúir því t.d. að maður eins og Magnús taki upp á því að standa fyrir trimmi hringinn í kringum Seltjarnarnesið? Hvaða virkur alkóhóíisti sem væri að stel- ast til að fá sér koníaksglas, eins og Egill gerði á Hótel Örk, færi með glasið út í glugga til að veifa í börn- in sín? Myndin var sem sé hallær- isleg að mínu mati. Áhugavert var að hlusta á um- ræðurnar í sjónvarpssal og eflaust hefur sitt sýnst hverjum sem á þær hlustaði. Hins vegar virðist mér al- veg ótrúlegt hversu mikið er hægt að flækja jafn einfalt mál og það að fara í meðferð. Hvað um rann- sóknir þær sem Eiríkur Örn Arn- arson sálfræðingur vitnaði til, kennslu í að læra að drekka í hófi. Ég er svo hjartanlega sammála Halldóri Gunnarssyni félagsráð- gjafa sem sagði að sú aðferð væri löngu búin að slá í gegn, hefði hún einhvern tíma verið reynd með góðum árangri. Reyndar furða ég mig alltaf á því að sálfræðingar skuli til kallaðir að ræða áfengis- mál, því fáa veit ég hafa eins lítinn skilning á þeim málum, nema ef vera skyldi obbann af læknum. Ingimar Ingimarsson var lélegur stjórnandi, sem greip stöðugt fram í fyrir gestum sínum og virtist mest umhugað að þeir fengju ekki tíma til að tjá sig til fulls. Um jafn alvarlegt vandamál og áfengissýki á að sleppa að gera þátt sé ekki betur til hans vandað en þáttar Ingimars. Anna Kristine Magnúsdóttir

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.