Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 5

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 5
Rádhúsiö stœkkar stööugt Ráðhúsiö er fremur sakleysislegt á þessari mynd, sem send var út frá skrifstofum borgarstjóra Davíðs Oddssonar. En það stækkar, hækkar og breikkar með degi hverjum og þenur sig lengra og lengra út í Tjörnina og andstaðan teygir sig á sama hátt lengra og lengra inn í Sjálfstæðisflokkinn ... HEIL HALLGRIMS- KIRKJA í TJÖRNINA • Húsiö er ekki nema hálfhannaö • Kostnaöaráœtlanir út í hött — minna aö byggja á en viö flugstööina • Lög hundsuö • Samkomulagiö viö Jóhönnu hundsaö • Skooanir Reykvíkinga hundsaöar Rádhúsdraumurinn hans Davíds er nú sem óðast að verða að martröð fyrir aðra sjálfstæðismenn í höfuð- borginni. Það, sem átti að vera lítið og pent ráðhús, að mestu byggt á landi, þenst nú út á lengd, breidd og hæð og út í Tjörnina — og að sama skapi minnkar Davíð í aug- um margra gamalgróinna og dyggra sjálfstæðismanna, sem unna þessum reit í miðbæ Reykjavíkur. Svo er komið að Morgunblaðið sá ástæðu til að minna Reykvíkinga á þaö í leiðara á þriðjudag að óviðeigandi sé að líkja saman Davíð og Kastró. Kastró er ekki kosinn og Kastró pyntar fólk. Hvort tveggja er rétt, en það á að vera óþarfi fyrir Morgunblaðið að minna okkur á þessar staðreyndir. EFTIR ÓLAF HANNIBALSSON Davíð Oddsson hefur áunnið sér vinsældir út fyrir f lokk sinn sem hik- laus, ákveðinn og röggsamur stjórn- andi, skorinorður og tæpitungulaus. Menn hafa fyrirgefið honum visst ráðríki, en hafa ber í huga að þegar ráðríki fer yfir ákveðin mörk er það farið að jaðra við þjösnaskap og far- ið að ganga út yfir rétt annarra borg- ara til að hafa sínar skoðanir og mega berjast fyrir þeim. Svo staðráðinn virðist Davíð í að gera þetta ráðhúsmál að prófsteini á það hvar endimörk valds hans og vinsæida liggja, að hann hefur teflt á tæpasta vað um lögmæti undir- búnings þess og framlagningar fyrir borgarana samkvæmt skipuiagsiög- um. Með nýlegu samkomulagi við félagsmáiaráðherra var reynt að slétta úr þessum lagalegu misfeilum með því að byggingin skyldi kynnt að nýju. En þegar ráðherrann hafði þannig staðfest skipulagið hló Davíð að öllu saman og sagði, að at- hugasemdir, sem berast kynnu, yrðu sendar beint á skjalasafn borg- arinnar. Davíð hefur oft verið snið- ugri. Oss hinum er ekki skemmt. HALFHANNAÐ I öllu þessu máii hefur Davíð lagt höfuðáherslu á hraða uns svo er komið að nú á að bjóða verkið út þótt byggingin sé naumast hálf- hönnuð og taki nærri vikulegum breytingum. Hér sýnist enn verr að verki staðið en með flugstöðvar- bygginguna og er þá langt tii jafnað. Þetta er Davíð einfaldlega ekki sæmandi. Svo að rifjuð séu upp helstu atrið- Davíð Oddsson, borgarstjórinn í Reykjavík. „Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum i fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann tykur um þig löngum örmum sínum og loksins ertu sjálfur draumur hans." (Steinn Steinarr) in í þróunarferli þessarar meinloku Davíðs, þá var upphafleg kynning ekki í samræmi við lög, þar sem húsinu var ekki markaður staður á lóðinni öðruvísi en með punktalín- um og engin leið að gera sér grein fyrir samstillingu þess við umhverf- ið. Með bréfi til skipulagsstjórnar ríkisins 27. október 1987 er óskað eftir að við afgreiðslu deiiiskipuiags- tillögu að miðbæ Reykjavíkur verði tillit tekið tii ráðhúss. Ráðhúsið verði tvær samtengdar byggingar 2—3 hæðir, 4.600 fermetrar og um 14.000 rúmmetrar auk bifreiða- geymslu. Þannig er tiiiagan samþykkt, en eftir formlega afgreiðslu málsins rit- aði borgarstjóri skipulagsstjóra bréf og bað um að leiðrétt yrði „augljós prentvilla" og húsið samþykkt sem 19.000 rúmmetra. Hefur þetta verið látið gott heita. STÆKKAÐ Á ALLA KANTA Beri menn saman staðfestan deili- skipulagsuppdrátt að Kvosinni og tillögu þá, sem borgarstjórn lagði fyrir byggingarnefnd Reykjavíkur þann 25. febrúar síðastliðinn, sjá menn strax, að deiliskipulagið gerir ráð fyrir 3 hæða ráðhúsi, sem þá má áætla 3x3,30 metra auk þaks, sem ætla má að hækki bygginguna um 2 metra, eða að hæð hússins verði lið- lega 11 metrar. I umsókn Reykjavík- urborgar eru hæðirnar orðnar 4 og húsið 15,70 metrar á hæð. Hæðin orðin 30% meiri en í staðfestu deili- skipuiagi. Eins og áður segir var að ósk borgarinnar fært inn á ráðhúsreit deiliskipulags hús sem var 4.600 fer- metrar. Nú er sótt um 5.297 fer- metra, eða um 15% aukningu á flat- armáli hússins. Rúmmálið var upp- haflega 14.000 rúmmetrar, en varð 19.000 með „prentvilluleiðrétt- ingu“ borgarstjóra. Nú er beðið um byggingarleyfi fyrir 24.336 rúm- metra byggingu, sem er 28% aukn- ing frá staðfestu deiliskipulagi. Og er þá litla pena ráðhúsið orðið 136 rúmmetrum stærra en Hallgríms- kirkja. STÆKKAÐ ÚT f TJÖRNINA UM 16% Hingað til hafa borgaryfirvöld aldrei gert greinarmun á lóðarstærð og stærð byggingarreits. En með bréfi til skipulagsstjórnar frá 1. mars sl. er óskað eftir stækkun hans, sem skerða mundi Tjörnina um 300 fermetra, þar sem bæði á að lengja ráðhúsið til austurs og breikka það til suðurs. Hins vegar er með vill- andi orðalagi reynt að láta líta svo út sem þessi skerðing sé aðeins 46 fer- metrar! Þetta er gert með því að draga 6 metra breitt aðkomusvæði milli útveggjar hússins og gang- stéttarbrúnar við Vonarstræti (og aldrei hefur verið fyrirhugað að byggja á) frá viðbótaruppfyllingu út í Tjörnina. Davíð hefur haft orð á sér fyrir sniðuga orðaleiki. Nú er honum eitthvað farið að förlast. Það er alveg ljóst af framansögðu, að um verulegar breytingar frá deili- skipulagi er að ræða hvað varðar staðsetningu, stærð og hæð ráð- hússins. Því geta ekki átt við þau ákvæði skipulagslaga, sem heimila bygginga- og skipulagsnefndum að gera „óverulegar breytingar", held- ur hlýtur að verða að taka málið allt upp að nýju og láta það ganga gegn- um endurteknar kynningar sam- kvæmt ákvæðum skipulagslaga. Og satt að segja virðist Davíð ekk- ert veita af því að fá meiri tíma til að dreyma draum sinn til enda ef hann vill ekki að hann endi 1990 í martröð hálfkaraðrar byggingar í kviksyndi útþaninna kostnaðar- áætlana — og kjósendur meö póli- tískt ofnæmi fyrir fyrrverandi eftir- læti sínu. IELGARPÓSTURINN 5 MHHHHMM MHHHMMMMMMi

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.