Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 8
FYLGISHRUN HJA BORGARAFLOKKNUM Fylgi Borgaraflokksins erhruniö, samkvœmt skoðana- könnun HP og Skáíss, sem framkvœmd var um helgina. Borgaraflokkurinn, sem hlaut 10,9% fylgi íalþingiskosn- ingunum í apríl á síðasta ári, hlaut í könnuninni aðeins 2,3% fylgi meðal þeirra sem ákveðna afstöðu tóku. í sambœrilegri könnun HPíjanúar hlaut flokkurinn 7,3%. Virðast stuðningsmenn flokksins ná vera að hverfa „heim til föðurhúsanna" á ný þvísókn Sjálfstœðisflokks- ins nú jafngildir tapi Borgaraflokksins frá því íjanúar. Þá staðfestist enn á ný stórsókn Kvennalistans, sem virðist hafa festsig ísessi sem önnur stœrstu stjórnmálasamtök þjóðarinnar. EFTIR FRIÐRIK t>ÓR GUÐMUNDSSON MYNDIR: JIM SMART Styður þú ríkisstjornina eða ekki? Fjöldi % af úrtaki Tóku afstöðu Já 284 37,9 46,0 Nei 333 44,4 54,0 Óákveðnir 115 15,3 — Svara ekki 18 2,4 — Alls 750 100,0% Þar af tóku afstöðu 617 82,3 100,0 Ef kosið væri til alþingis núna, hvaða flokk myndir þú kjósa? Fjöldi % af úrtaki Tóku afstöðu Alþýðuflokkur 70 9,3 14,5 Framsóknarflokkur 80 10,7 16,6 Sjálfstæðisflokkur 153 20,4 31,8 Alþýðubandalag 61 8,1 12,7 Kvennalisti 94 12,5 19,5 Flokkur mannsins 4 0,5 0,8 Þjóðarflokkur 4 0,5 0,8 Samtök um jafnrétti 2 0,3 0,4 Borgaraflokkur 11 1,5 2,3 Aðrir flokkar 2 0,3 0,4 Óákveðnir 195 26,0 — Kjósa ekki/skila auðu 40 5,3 — Svara ekki 34 4,5 — Alls 750 100,0 Þar af tóku afstöðu 481 64,1 100,0 Sjálfstæðisflokkurinn eykur fyigi sitt milli kannana HP úr 26,9% í 31,8% og hefur bætt við sig 4,6 pró- sentustigum frá kosningunum síð- Albert Guðmundson, formaður Borg- araflokksins. Fylgi Borgaraflokksins svo gott sem horfið af hinu pólitíska landakorti, að mestu til sinna fyrri heimkynna. Samt er persónulegt fylgi Alberts nægilegt til að halda honum nálægt toppi íslenskra stjórnmálamanna. asta vor. Enn á þd flokkurinn langt í land með að endurheimta sitt fyrra fylgi, en í kosningunum 1983 hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 38,7% at- Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður Kvennalistans. Kvennalistinn hefur fest sig í sessi sem annað stærsta stjórnmálaafl landsins. Guðrún sjálf er að verða með allra vinsælustu stjórnmála- mönnum landsins. Stuðningsmenn Kvennalistans eru þó hrifnastir af Steingrími Hermannssyni, að fram- sóknarmönnum slepptum. kvæða. Frá því í janúar hefur fylgi Framsóknarflokksins minnkað úr 19,6% í 16,6%, en í kosningunum í vor hlaut flokkurinn 18,9% at- kvæða. Þriðji stjórnarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn, bætir stöðu sína frá því í janúar úr 12,9% í 14.5%, en hlaut 15,2% í kosningunum. KVENNALISTINN NÆSTSTÆ RSTU R Kvennalistinn eykur fylgi sitt frá því í janúar úr 15,6% í 19,5% og hef- ur um leið nær tvöfaldað fylgi sitt frá því í kosningunum fyrir tæpu ári. Alþýðubandalaginu hefur ekki tek- ist að ná sér upp úr lægð sinni, eyk- ur þó fylgi sitt frá því í janúar úr 12,3% í 12,7%, en hlaut 13,4% at- kvæða í kosningunum. Það er hins vegar sem fyrr segir fylgishrun Borgaraflokksins sem stendur upp úr í könnun þessari. Flokkurinn hef- ur samkvæmt þessu varpað frá sér stuðningi tveggja af hverjum þrem- ur kjósenda sinna í kosningunum, fær nú 2,3% fylgi meðal þeirra sem afstöðu tóku en var með 7,3% í jan- úar og 10,9% í kosningunum. Bend- ir allt til þess að tilverugrundvöllur Borgaraflokksins sé brostinn með öllu, að minnsta kosti þarf ekkert minna en pólitískt kraftaverk til að bjarga flokknum. Formaður flokks- ins, Albert Guömundsson, heldur þó persónulegum stuðningi sinum þegar spurt er um stuðning við ein- staka stjórnmálamenn. SMÁFLOKKARNIR GLEYMDIR Fylgi annarra flokka og samtaka er óverulegt í könnuninni og fer minnkandi. Flokkur mannsins, Þjóðarflokkurinn og Samtök um jafnrétti og félagshyggju hlutu sam- tals 4,1% atkvæða i kosningunum, en fá nú aðeins 2% meðal þeirra sem afstöðu tóku. Ef um kosninga- úrslit væri að ræða dytti Stefán Val- geirsson út af þingi. Samkvæmt þessu virðist gamla flokkakerfið vera að jafna sig nokk- uð á mótlæti síðustu ára, með því að fylgi Borgaraflokksins er að hrynja og fylgi smáflokka og framboða að hverfa, en fimm flokka kerfi að festa sig í sessi með æ styrkari stöðu Kvennalistans. MINNIHLUTASTJÓRN, EN... Sameiginlega sækja stjórnar- flokkarnir heldur í sig veðrið í könn- un þessari, auka fylgi sitt frá því í janúar úr 59,4% í 62,9%, en sömu flokkar hlutu 61,3% atkvæða í kosn- ingunum. Á hinn bóginn styður minnihluti þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni ríkisstjórnina. Nú styðja 46% ríkisstjórnina en 54% ekki. Staða stjórnarinnar hefur þó skánað frá því í janúar, þegar 44,4% studdu hana en 55,6% ekki. Ríkis- stjórnin virðist samkvæmt þessu vera að rétta örlítið aftur úr kútnum eftir óvinsælar ráðstafanir, matar- skatt og fleira. Sérstaklega má Al- þýðuflokkurinn vel við una, en ráð- stafanir þessar hafa einkum mætt á honum. Þó má geta þess að per- sónulegar vinsældir Jóns Balduins Hannibalssonar fjármálaráðherra hafa dalað. Sókn Sjálfstæðisflokks- ins skýrist hins vegar væntanlega fyrst og fremst út frá hruni Borgara- flokksins. Persónufylgi stjórnmálamanna JÓHANNAI FORYSTU KRATA Steingrímur Hermannsson utan- ríkisrádherra nýtur enn sem fyrr langmestra vinsœlda stjórnmála- manna landsins. En að þessu sinni vekur mesta athygli stórsókn Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra, sem að þessu sinni lenti í öðru sœti á eftir Steingrími t per- sónufylgi meðal kjósenda. Sem kunnugt er hefur staða Jóhönnu í ríkisstjórninni verið í óvissu vegna tregra undirtekta stjórnarliöa við kaupleiguíbúöafrumvarpi hennar og niöurskurðar á framlögum í byggingarsjóðina. Þegar síðast var spurt um fylgi við einstaka stjórnmálamenn, í janúar, lenti Jóhanna í 5. sæti með 47 til- nefningar, en það taldist 5% heildar- tilnefninga (937). Að þessu sinni stökk Jóhanna sem fyrr segir í ann- að sætið með 127 tilnefningar eða 11,2% (af 1.129). Jóhanna getur því út frá þessu mætt á næsta ríkis- stjórnarfund með sigurbros á vör og breiðan stuðning að baki sér. Stein- grímur Hermannsson heldur sínu fyrsta sæti, en þó hefur hlutfallsleg- ur styrkur hans minnkað nokkuð, úr 22,6% í 19,3%. Þorsteinn Ftílsson forsætisráðherra heldur þriðja sæt- inu og hlýtur nú 9,9% tilnefninga í stað 9,4%. Nú þegar hvaladeila og kvótamál eru ekki lengur í sviðsljós- inu minnkar gengi Halldórs Ás- grímssonar sjávarútvegsráðherra, sem lækkar úr öðru sæti í það fjórða, með 9,3% tilnefninga í stað 10,5%. 8 HELGARPÓSTURINN LEIÐTOGADYRKUN? Annar mesti sigurvegari þessara vinsældakönnunar er einnig kona, Guörún Agnarsdóttir, þingmaður Kvennalistans. Hún hækkar frá því í janúar úr áttunda sætinu í það fimmta með 7,8% tilnefninga í stað 3,7%. Eitt helsta einkenni Kvenna- listans fram að þessu hefur einmitt verið mikið flokkafylgi en lítið persónufylgi, en samkvæmt þessu virðist einhver breyting ætla að verða hér á með auknu persónu- fylgi Guðrúnar. Aðrir þingmenn Kvennalistans komast ekki með tærnar þar sem hún hefur hælana og síga að auki fremur niður á við. Annars staðar er rakið, að stuðn- ingsmenn Kvennalistans bera gífur- legt traust til Steingríms Hermanns- sonar. Albert Guömundsson, formaður Borgaraflokksins, heldur persónu- fylgi sínu þrátt fyrir fyigishrun flokks síns. Hann er sem fyrr í sjötta sæti og hlýtur 4,8% tilnefninga, en 4,6% í janúar. Albert býr því enn við styrka stöðu, þótt því sé ótvírætt skilað til hans um leið, að tilveru- grundvöllur Borgaraflokksins sé brostinn. FALLVALTIR FORMENN Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, fær einnig ákveðin skilaboð í könnun þessari. Hann lækkar að þessu sinni úr fjórða sætinu í það sjöunda og fær Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála- ráðherra. Hefur ástæðu til að brosa eftir allt bramboltið í ríkisstjórninni vegna húsnæðismálanna og annarra vanda- móla. Aðeins Steingrímur Her- mannsson er henni vinsælli í pólitík- inni. Harðasti andstæðingur hennar, félagsmálaráðherrann fyrrverandi Alexander Stefánsson, fékk ekki eina einustu tilnefningu ... nú 4,2% tilnefninga í stað 5,4%. Þótt stjórn og stjórnarflokkar sæki held- ur á eftir óvinsælar ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar býr Jón Baldvin við „dalandi lukku". Jón Sigurðsson, samflokksmaður hans og dóms- málaráðherra, er hins vegar á svip- uðu róli og í janúar. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, virðist seint ætla að komast á fiug og í hóp efstu manna, sem formanni sæmir. Enn er Svavar Gestsson vinsælli en Ólafur Ragnar, en þeir báðir þó á svipuðu róli og í janúar. Hins vegar virðist formaður þingflokksins, Steingrímur J. Sigfússon, vera kom- inn á fljúgandi ferð, því hann stekk- ur úr 23. sætinu í það ellefta, enda æ meir áberandi í stjórnmálaum- ræðunni. Virðist hann samkvæmt þessu líklegur til að stela senunni af þeim Svavari og Ólafi. BJÓRMENN VERÐLAUNAÐIR Þá er mjög áberandi í persónu- könnun þessari, hversu bjórsinnar láta í sér heyra og leitast við að umb- una þeim þingmönnum sem lögðu fram bjórfrumvarpið á Alþingi. Jón Magnússon, varaþingmaður og fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, skýst úr 43. sæti í 18. sæti. Meðflutn- ingsmaðurinn Geir Haarde úr 26. sæti í 14. sæti. Meðflutningsmaður- inn Guðrún Helgadóttir úr 19. sæti í 16. sæti og loks er að nefna Inga Björn Albertsson, en hann stendur þó nokkurn veginn í stað neðarlega á blaði. Þessir fjórir flutningsmenn bjórfrumvarpsins hljóta nú samtals 43 tilnefningar í stað 21 í janúar. Sá sem mestu tapar að þessu sinni er Karvel Ftílmason, þingmaður Alþýðuflokksins og verkalýðs- frömuður. f janúar hlaut hann 17 til- nefningar (1,8%), en aðeins 4 að þessu sinni (0,4%). Væntanlega er ástæða þessara ófara mun fremur tengd samningum Verkamanna- sambandsins en frammistöðu hans á þingi. HINIR GLEYMDU Alls 16 þingmenn hlutu að þessu sinni ekki eina einustu tilnefningu. Þetta eru Alexander Stefánsson, Guömundur G. Þórarinsson, Guöni Ágústsson, Jóhann Einvarösson, Jón Kristjánsson, Stefán Guö- mundsson og Valgerður Sverrisdótt- ir frá Framsóknarflokki, Eggert Haukdal, Egill Jónsson, Guðmund- ur H. Garöarsson og Þorvaldur Garöar Kristjánsson frá Sjálfstæðis- flokki, Guömundur Ágústsson og Óli Þ. Guðbjartsson frá Borgara- fiokki, Jón Sœmundur Sigurjóns- son, Alþýðuflokki, Málmfríöur Sig- uröardóttir, Kvennaiista, og Skúli Alexandersson, Alþýðubandalagi. Stuðningur við einstaka stjórnmálamenn i mars 1988 Röð (Jan.) Stjórnmálamaður Fylgi 01 (01) Steingrímur Hermannsson 218 (212) 02 (05) Jóhanna Sigurðardóttir 127 ( 47) 03 (03) Þorsteinn Pálsson 112 ( 88) 04 (02) Halldór Ásgrímsson 105 ( 98) 05 (08) Guðrún Agnarsdóttir 88 ( 35) 06 (06) Albert Guðmundsson 54 ( 43) 07 (04) Jón Baldvin Hannibalsson 48 ( 51) 08 (07) Svavar Gestsson 40 ( 38) 09 (09) Ólafur Ragnar Grímsson 28 ( 27) 10 (10) Jón Sigurðsson 24 ( 19) 11 (23) Steingrímur Sigfússon 23 ( 8) 12 (13) Friðrik Sophusson 22 ( 16) 13 (11) Davíð Oddsson 17 ( 18) 14 (26) Geir Haarde 16 ( 7) 15 (15) Kristín Halldórsdóttir 14 ( 13) 16 (19) Guðrún Helgadóttir 13 ( 9) 17 (19) Ólafur G. Einarsson 11 ( 9) 18 (43) Jón Magnússon 10 ( 2) 19 (18) Guðmundur Bjarnason 9 ( 10) 20 (17) Þórhildur Þorleifsdóttir 9 ( 11)

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.