Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 13
S—
fer til, menn sem leggja út í stofnun
nýrra fyrirtækja þar sem vaxtar-
brodd er að finna og um leið ein-
hverja ábatavon. Það er hins vegar
sjaldgæfara að sömu aðilarnir stofni
á einu bretti mörg fyrirtæki á sama
staðnum í sama tilganginum. Þetta
gerðist hins vegar á Selfossi 14.
nóvember síðastliðinn. Þá tóku sig
til Guðmundur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri SG-einingahúsa, og
fyrrverandi bæjarfulltrúi, Erlendur
Hálfdánarson, og fjölskyldur
þeirra og stofnuðu alls 10 hlutafé-
lög, öll með sama tilganginn, um-
boðsrekstur, fiskeldi, fiskrækt og
fleira. Hlutafé í hverju þessara fyrir-
tækja er aðeins 20.000 krónur og
bera þau nöfnin Magn, Snækollur,
Dugur, Rof, Dáð, Berserkir,
Gagn, íslensk-spænska versl-
unarfélagið, Haf ranes og Hrísar.
En ekki fannst Guðmundi hér nóg
að gert og stofnaði enn eitt hlutafé-
lagið með öðru fólki nokkrum vik-
um síðar með sama tilgang í huga,
hlutafélagið Fjörfisk. Við heyrum
að fljótlega muni þrjú þessara hluta-
félaga hefja rekstur, en önnur verða
„geymd" í bili og ætlunin að fá fleiri
aðila inn í myndina með auknu
hlutafé...
lEiins og menn rekur minni til
lenti á Keflavíkurflugvelli þann
12. janúar sl. herflutningavél á
vegum bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA og hafði hún skrið-
dreka innanborðs. Þótti hin mesta
leynd hvíla yfir þessu atviki á þeim
tima. Skýrsla lögreglustjórans á
Keflavíkurflugvelli um þetta mál
er nú til umfjöllunar í utanríkisráðu-
neytinu, nánar tiltekið á varnar-
málaskrifstofu þess. Umfjöllunin
um málið mun einungis eiga sér
stað innan veggja ráðuneytisins og
ekki stendur til að gera skýrsluna
opinbera. Ljóst er þó að í henni er
staðfest að um vopnaflutninga var
að ræða sem ekki voru tilkynntir
sérstaklega, eins og gera skal í
svona tilvikum. Vegna þessa máls
alls munu íslensk y firvöld nú á næst-
unni ætla að bera fram mótmæli við
bandarísk stjórnvöld...
GERUM VERÐSAMANBURÐ
Undanfarnar vikur hefur VERÐLAGSSTOFNUN
framkvæmt verðlagskannanir reglulega. Pessar
kannanir geta neytendur hagnýtt sér til að efla
eigið verðskyn.
Skattkerfisbreytingin og tollalækkanir sem
komu til framkvæmda um síðustu áramót hafa
áhrif á verðlag í landinu.
Vissuð þið til að mynda að fjölmargar vörur eiga
að lækka í verði vegna tollalækkana? Til að þessar
lækkanir skili sér til neytenda er nauðsynlegt að
vera á verði. Dæmin sýna að ef verðskyn og
verðlagseftirlit almennings slævist, skirrast
verslanir við að lækka vöruverð til samræmis við
kostnaðarlækkanir.
Pað er kominn tími til að landsmenn kanni
vöruverð í sama mæli og nágrannaþjóðir okkar.
Slíkt skapar ekki aðeins aðhald, heldur stuðlar það
einnig að samkeppni milli verslana. - Betra verð-
skyn er leið til betri kjara.
Nú þegar viðamiklar breytingar ganga yfir
þjóðfélagið er það grundvallaratriði að hafa
augun hjá sér við öll innkaup, hvort sem um er að
ræða fiskflök, kveikjulok eða steypu.
Besta tryggingin fyrir lágu vöruverði er hið
vakandi auga neytandans. Verum á verði - gerum
verðsamanburð.
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Þú boigar alltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í
Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt aö fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur meö góöum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Viö vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
\ HREVFILL7
68 55 22
bílnum!
HELGARPÓSTURINN 13