Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 15
DANSINN EYKUR SJÁLFSTRAUSTIÐ Þriðja íslandsmeistarakeppnin í samkvœmisdönsum fer fram um helgina. Þátttaka er svo góð að keppninni er skipt niður á tvo daga. 240 pör eru með, keppendur á aldrinum frá fimm ára að sextugsaldri Það er stórviðburður í nánd í dansheiminum á íslandi. Á laugardag og sunnudag fer fram íslandsmeistara- keppni ísamkuœmisdönsum, en slík keppni hefur aðeins verið haldin tvisvar sinnum áður hér á landi. Að sögn Hermanns Ragnars Stefánssonar, forseta Dansráðs Is- lands, hefur þátttaka í ár aukist til muna frá því sem var og eru nú rúmlega helmingi fleiri keppendur skráðir til keppni en í fyrstu keppnina. „Fyrsta keppnin fór fram á Hótei Sögu vorið 1986, en ástæðu þess að slík keppni hafði ekki verið haldin áður má rekja til þess að fram að þeim tíma má segja að enginn hafi verið til að standa fyrir keppni af þessu tagi. Það vantaði það sem kalla má sameiningartákn fyrir alla dansskóla og dansstarfsemi í iand- inu, en það er einmitt hlutverk Dansráðs íslands. Dansráð ísiands er samtök tveggja fagfélaga sem eru í landinu, FÍD (Félag íslenskra dans- kennara) og DSÍ (Danskennarasam- band íslands), og dansráðið kemur fram fyrir hönd allra íslenskra dans- kennara, bæði hérlendis og erlend- is. Við erum í alþjóðasamtökum sem kallast ICBD, International Council of Ballroom Dancing, en höfuðstöðvar þeirra samtaka eru á Englandi." 240 PÖR HAFA SKRÁÐ SIG TIL KEPPNI Að sögn Hermanns var keppnin haldin í Laugardalshöllinni í fyrra og stóð þá yfir í einn dag, en nú hef- ur þátttaka aukist það verulega að nauðsynlegt er að skipta keppninni niður á tvo daga: „Fyrri hluti keppn- innar fer fram á laugardaginn á Hótel Islandi og hefst klukkan tíu um morguninn. Þar fer fram keppni í barnahópum, en þar keppa 165 barnapör. Alls hafa 240 pör skráð sig til keppni og eru keppendur á aldrinum frá fimm ára og upp að sextugsaldri. Síðari hluti keppninn- ar fer fram í Laugardalshöil á sunnu- daginn og hefst klukkan tvö síðdeg- is. Þá keppa unglingar frá 14 ára aldri og fullorðnir." Hermann segir það ekki hafa komið þeim á óvart hversu margir keppendur skráðu sig til keppninn- ar: „Þátttaka var það góð í fyrra og við vorum ánægð með framkvæmd keppninnar, þá umfjöilun sem hún fékk og umsögn almennings. Áætl- anir stóðust að vísu ekki í alla staði í fyrra, en við lærðum af reynslunni og fórum örugg af stað núna.“ Nú nota atuinnudansarar ýmis ord sem leikmenn skilja kannski ekki alveg. Hvaö er það til dœmis sem fagfólkið kallar „standard“ dansa og „Latiri' dansa? „Standard dansar" eru sígildir samkvæmisdansar, enskur vals, quickstep, tangó, foxtrott og vínar- vals. í þessari landskeppni munu börn keppa í enskum valsi og quick- step, cha-cha-cha og jive, ungling- arnir keppa í sömu dönsum en bæta við sömbu og fullorðnir keppa jafn- framt í sömu dönsum auk þess sem bætt verður við í nokkrum riðlum keppni í tangó, vínarvalsi og rúmbu. Það sem við hins vegar köllum „Latin" eru suður-amerískir dansar, rúmba, samba, cha-cha-cha, jive og paso doble, og verður keppt í öllum þeim dönsum að paso doble undan- skildum." Hermann Ragnar Stefánsson. DÓMNEFND SKIPUÐ ERLENDUM DÓMURUM Keppnin mun fara fram undir ströngu eftirliti alþjóðadómara sem hingað koma frá Bretlandi, þeirra Johns Knight yfirdómara og Michaels Sandham og Marie Pownall, en þau síðarnefndu eru breskir meistarar í tíu dansa keppni og munu sýna hér alla suður- amerísku dansana báða dagana á keppnisstöðunum. Jafnframt verða sýningaratriði frá þeim ballettskól- um og jazzballettskólum landsins sem eru innan Dansráðs íslands: „Þá hvetjum við alla gesti til að taka þátt i almennum dansi á milli þess sem keppendur og dómarar hvíla sig,“ sagði Hermann Ragnar. MARGIR ÆFA DANS EINS OG ÍÞRÓTT Það verður margt um manninn í Laugardaishöllinni á sunnudaginn, því þangað munu mæta allir kepp- endur, bæði þeir sem keppa þann daginn og þeir sem keppa á Hótel íslandi á laugardaginn. Opnunar- hátíðin hefst klukkan 14 með því að keppendur marsera í salinn undir lúðrablæstri og heilsa gestum. Sig- urvegarar frá deginum áður sýna sigurdansa sína, forseti Dansráðs ís- lands ávarpar gesti og erlendir og innlendir dansarar sýna. Þá munu atvinnudansarar, sem taka þátt í sér- stakri keppni, sýna dansa áður en keppnin sjálf hefst: „Við gerum því ráð fyrir að verðlaunaafhending fyrir þá sem keppa síðdegis fari fram um klukkan sex, en síðasta lot- an hefst um kvöldið og ætti verð- launaafhending að fara fram um miðnætti." Keppnisstaðirnir verða blómum skrýddir — én skreyting- arnar eru framlag tveggja blóma- verslana, Mímósu og Stefánsblóma, — til að gera húsin sem hátíðlegust við þetta tækifæri. Hermann Ragnar segir marga vera farna að æfa dans eins og íþrótt, „og það er ekki aðeins að fólk æfi allan veturinn heldur sækja einnig margir námskeið erlendis á sumrin". Hermann segir það áber- andi hversu miklu fleiri börn taka þátt í keppninni í ár, en fjöldi fullorð- inna virðist standa í stað. „Það er góð þjálfun að æfa fyrir keppni sem þessa og þar er ég aftur kominn inn á þá siðfræði mína að ég held að all- ir hafi gott af því að þurfa að koma fram. Slíkt á að standa öllum til boða því við vitum aldrei hvar hæfileik- arnir liggja." ENGINN OF UNGUR OG ENGINN OF GAMALL FYRIR DANS En getur verið að feimniaftri fólki frá því að keppa? „Víst er það til. Kannski ekki það að fólk þori ekki heldur öllu heldur að því finnst það ekki eiga að taka þátt í keppni. Mér finnst svona keppni eins og leikur því það segir sig sjálft að ef fimmtíu pör fara af stað í keppni getur aðeins eitt parið orðið númer eitt. Stóra málið að mínu mati er að fá að vera með og fá gleðina í gegnum dansinn með því að taka þátt í keppninni. Stemmningin í kringum fslands- meistarakeppnina er hátíðleg og spennandi. Það hefur verið mikil gróska í dansi á síðustu árum og áhugi á dansi hefur aukist verulega. Við höldum að fólk sé aftur að vakna til vitundar um það að í gegn- um dansinn, sama hvort það er klassískur ballett, jazzballett eða samkvæmisdans, getur það aukið öryggi í framkomu, jafnhliða því sem dansinn gefur fallegri limaburð og eykur sjálfstraust. Nemendur í dansi njóta þess að tjá sig í dansi eft- ir ljúfri danstónlist. Áhugi yngra fólks hefur aukist mikið og áhugi foreldra hefur aftur aukist fyrir því að það er nauðsynlegt fyrir börn og unglinga að kunna samkvæmis- dansa, því það er það sem kemur okkur að gagni allt lífið. Sígildir samkvæmisdansar breytast aldrei, hafa ekki breyst og munu ekki breytast. Það er enginn of ungur til að læra að dansa — og það er heldur enginn of gamall til að læra dans,“ sagði Hermann Ragnar. Það er fyllsta ástæða fyrir dans- unnendur að fara á Hótel ísland á laugardag eða i Laugardalshöllina á sunnudag og eiga þar góða stund, en á báðum stöðunum verður veit- ingasala í gangi meðan keppnin stendur yfir og allir geta keypt sig inn á keppnina. S........................ tveir fimmtíu og tveir er þín leið til aukinna viðskipta... Nýr auglýsingasími 625252 Patrick Siiskind ILMURINN - Saga af morðingja „Þessi saga hins viðbjóðslega snillings er sögð á hráan, myndauðugan og grimmilegan hátt. Efni hennar er andstyggilegt í sjálfu sér. En vegna þess hvílíkum hstatökum höfundur grípur það og heldur allt til síðustu orða hlýtur þessi bók að teljast til meiri háttar bókmenntaviðburða.“ MORGUNBLAÐIÐ / Jóhanna Kristjónsdóttir „Þessi htríka og lyktsterka saga, hlaðin táknum tímans og mögnuð lævísri spennu, er sögð í klassískri epískri frásögn af næmum sögumanni sem smýgur inn í allt Og alla.“ HELGARPÓSTURINN / Sigurður Hróarsson „...skulu menn ekki halda að Patrick Súskind hafi barasta skrifað útsmoginn reyfara - hér hangir miklu fleira á spýtunni.“ ÞJÓÐVILJINN / Árni Bergmann Jóhanna Sveinsdóttir - Þuríður Pálsdóttir Á BESTA ALDRI 3. prentun komin út „...hvaða læknir sem er gæti verið stoltur af að hafa skrifað slíka bók. Hún er það nákvæm fræðilega séð, en líka full af skilningi, mannlegri hlýju og uppörvun. Hún á erindi við allar konur, líka þær yngri ... heiti bókarinnar hittir beint í mark.“ morgunblaðið Katrin Fjeldsted Guðbergur Bergsson TÓMAS JÓNSSON METSÖLUBÓK 2. kiljuprentun komin út „Kraumandi seiðketill þar sem nýtt efni, nýr stíll kann að vera á seyði. Fátt er líklegra en að sagan verði þegar frá líður talin tímaskiptaverk í bókmennta- heiminum: Fyrsta virkilega nútímasagan á íslensku." Ólafur Jónsson •9 I FORLAGIÐ FRAKKASTÍG 6A. S. 91-25188 HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.