Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 19
Orn Arnason leikari í opnuvidtali um sjálfan sig og umheiminn, Sambandiö, Guöjón B. og fleira gott fólk. að verða heimsfrægur óvíst á hvaða sviði! Ætla Þegar hann var lítill sagðist hann ætla að verða heimsfrægur. Á hvaða sviði vissi hann ekki. Núna er hann orðinn stór. Að vísu ekki heimsfrægur en frægur samt. „Hvernig dettur ykkur í hug að hafa opnuviðtal við mig? Ég er bara ólifað ungmenni,“ sagði Örn Árnason leikariþegar falast var eftir opnuviðtali við hann. Eigi að síður var hægt að tala hann til. Enda vissum við það af fyrri kynnum að Örn er einstaklega þægilegur og geðgóður maður. „Ætli ég sé ekki bara geðprýðismaður!" segir hann sjálfur. EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR: JIM SMART Örn Árnason er eins og margir vita sonur hins kunna leikara Árna Tryggvasonar og konu hans Kristínar Nikuiásdóttur. Yngstur þriggja barna, eini sonurinn. „Eg á tvær systur, átta og tíu árum eldri en ég,“ segir hann. „Mér hefur aldrei verið almennilega tjáð hvort ég hafi verið vandræða- gepill eða ekki. Held þó að ef marka má Óskar Orn son minn hafi ábyggilega eitthvað gengið á með mig!“ Horfir svo á segulbandið og spyr hvort þetta viðtal eigi örugglega ekki að bíða þar til hann verði sextugur. „Kannski segi ég eitthvað hér sem stenst ekki!" segir hann og glottir. Bætir við: „Allt sem þií segir mun verða — og verður — notað gegn þér í nafni réttlætis- ins... Þetta er svona bandarískur frasi!“ bætir hann við. „Þú sverð að segja sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sannleikann..." Nei, þú mátt Ijúga eins og þú vilt! „Þakka þér fyrir það! Þá er mér óhætt að byrja!!!" Við ákveðum að byrja á byrjuninni, fæðingar- deginum: „Eins og kennitalan segir einnníunúll- sexfimmníu... Eða nítjándi sjötti fimmtíu og níu — í Reykjavík. Við bjuggum á Unnarstíg 2 þar ti! ég varð fjögurra ára. Reyndar ekki í stóra stein- húsinu sem þar stendur, heldur í 36 fermetra húsi sem er inni á lóðinni. Glaðheima kölluðu foreldrar mínir það, enda varð að vera glatt á hjalla hjá fimm manna fjölskyidu í þrjátíu og sex fermetrum! Afi minn, Nikulás Halldórsson tré- smiður með meiru, og systir hans áttu þetta hús, annaðhvort hluta þess eða allt, ég man ekki hvort heldur. Hún hét Ásdís og var ævinlega kölluð Dísa sáluga, þó aðeins — sem betur fer — eftir að hún var dáin.J Við fluttum síðan upp í Bólstaðarhlíð og ég byrjaði mína skólagöngu í ísaksskólanum." SVIPMYNDIR ÚR BERNSKU Örn segist eiga góðar minningar úr barnaskól- anum. Segist sjá fyrir sér ákveðnar svipmyndir frá æskuárunum, atburði sem framkölluðu til- finningar sem allir þekkja, sársauka, ótta og undrun: „ Ein mynd sem ég sé fyrir mér var at- burður sem gerðist þegar ég var þriggja ára. Ég var að klifra upp eftir planka, rann niður og nagli fór inn í hendina á mér. Eg man eftir því augnabliki þegar ég sat á eldhúsborðinu og afi var að hreinsa sárið. Önnur svipmynd er af mér föstum í beisli fyrir utan húsið. Svo man ég greinilega þegar Bjarni móðurbróðir minn kom frá útlöndum með bíl sem blikkaði ljósunum. Ég sat og horfði á bílinn aka í áttina að mér. Þetta eru þrjár svipmyndir úr bernsku, sem allar eiga það sameiginlegt að vera tilfinningalega sterkar, þannig að þær sitja fastar í huganum. Mikill sársauki, sjokk, hræðslan við að vera „fastur" og spenningurinn sem fyigdi því að sjá bílinn nálg- ast. Ég á margar góðar minningar og svipmyndir úr Isaksskólanum," segir hann. „Fyrst koma auðvitað upp í hugann gulu lýsispillurnar sem maður varð að éta. Mér fannst þær ágætar þangað til komið var í gegnum sykurhúðina! Ég á fullt af myndum í huganum úr ísaksskóla, kannski einkum tengdum leikjum. Ein myndin er ljóslifandi, einn af mínum fyrstu „bömmer- um“. Ég var að henda steini upp í loft og espaði annan strák til að gera eins. Hans steinn lenti á höfðinu á honum og mér fannst lengi að það hefði verið mér að kenna!“ Úr ísaksskólanum fór Örn í Æfingadeild Kennaraháskólans þaðan sem hann segist eiga mjög góðar minningar: „Þar var ég hjá mjög góðum kennara að mínu mati, Svavari Guð- mundssyni. Hann hef ég því miður ekki hitt lengi. Eðlilega fer mörgum sögum af kennurum og kennarar eru misgóðir, en ég held þó að flest- ir mínir bekkjarfélagar hafi verið sammála um að Svavar hafi verið mjög góður kennari. h'ann var sanngjarn í alla staði og hafði örvandi áhrif á nemendurna. Svavar fór með okkur í útileiki, aðaliega ,,kýló“. Ef við gerðum eitthvað af okk- ur gat hann verið strangur, en alltaf sanngjarn. I Æfingaskólanum byrjaði ég á leiklistinni." MEÐVITUNDARLAUS í HLUTVERKI LÖGREGLUÞJÓNS „Eðlilega — eins og mörg leikarabörn segja — var ég valinn vegna þess að ég var sonur leikara. Það er þessi gamla kenning um að eplið falli sjaldan langt frá eikinni. Svavar Guðmundsson virkjaði okkur í leiklistinni, en ég man að ég var alveg hræðiiega feiminn. Lék til dæmis lög- regluþjón einu sinni og ég man ennþá eftir því hvað ég var gjörsamlega meðvitundarlaus þeg- ar ég var kominn inn. Stóð þarna fyrir framan þennan hóp nemenda og var varla með meðvit- und vegna feimni! Þá upplifði ég ekki þetta augnablik sem Sigurður Demetz söngkennari lýsti svo geysilega vel í viðtali. Þar segir hann frá því þegar farið er á svið, á frumsýningu eða jafn- vel á hverri sýningu, að augnablikið, sem líður frá því að tjaldið er dregið frá og þar til á að segja fyrstu setninguna, sé eins og svartnætti. Um leið og andinn er kominn út opnast allt. Þetta finnst mér mjög góð lýsing á því hvernig manni líður. Þetta augnablik kom líka í fyrsta leikritinu sem ég lék í í barnaskólanum — nema hvað það birti ekki. Það var svartnætti áfrarn!" ÞETTA ER EINS OG MEÐ GUÐJÓN B.l Yfir í unglingsárin. Örn segist að sjálfsögðu hafa fylgt tískunni, síða hárinu, háu hælunum — og vönduðum fötum: „Á mínum unglingsárum voru leifarnar af hippatímanum við lýði. Eg held ég myndi muna eftir meiriháttar óhöppum á unglingsárunum, þannig að sjálfsagt hafa þau verið slétt og felld. Ég hafði farið norður í Hrísey öll sumur með foreldrum mínum, þar sem þau eiga hús, en á unglingsárunum fór ég að vinna fyrir mér í sumarfríum. Auðvitað hafði ég þó unnið í Hrísey, var á sjó með pabba og vann í frystihúsinu. Fyrsta sumarvinnan mín hér í bæn- um var hjá húsasmiði einum. Þaðan var ég rek- inn fyrir nokkuð sem ég hafði ekki gert og þótt óréttlátt sé erfði ég það lengi við hann. Það er erfitt að verja sig ef maður er beittur er röngum sökum. Þetta er eins ojyneð Guðjórt.R Ólafsson. Menn reyna að bola okkurfrá fyrir eitthvað sem við gerðum ekki...! Síðan fór ég að vinna í Sænska frystihúsinu. Kynntist þar góðum köll- um og strákum. Þar var góður mórall og maður fann svolítið til sín. Fengum að bera ábyrgð. Ólafur verkstjóri hafði auðvitað töglin og hagld- irnar og sagði af eða á. Við vorum svona undir af eða á!“ EN ÉG HÆTTI HJÁ SAMBANDINU AF FUSUM OG FRJÁLSUM VIUA Örn segist hafa ætlað sér að verða trésmiður og fór því í Ármúlaskólann, í undirbúningsdeild fyrir Iðnskólann: ,,Er meira að segja prýðisgóð- ur snikkari," segir hann. „Gerðist svo frægur að smíða skápa í hjónaherbergið og barnaherberg- ið heima hjá mér og þeir eru ekkert síðri en skápar úr verslun. Ég ætlaði að verða húsgagna- smiður, en hætti við, því á þessum tíma fengu húsgagnasmiðir ekkert að gera. Þá fór ég að vinna hjá Sambandinu þar sem ég var í tvö ár. Mér var ekki bolað út þaðan! Það var mikið reynt en ég barðist á móti. Ég byrjaði sem lager- maður niðri í Tryggvagötu hjá Guðmundi Ólafs- syni, örum og skemmtilegum manni, og þar var líka verkstjóri sem ég hafði mikið dálæti á, Jón Jónsson heitir sá. Síðan flutti ég með Samband- inu inn í Holtagarða. Þar var ég yfir ávaxtadeild- inni og hjá Sambandinu sá ég kiwi-ávöxt í fyrsta skipti. Hélt því fram að þetta væru górillupung- ar! Óskaplega ljótur ávöxtur þó innihaidið sé í hróplegu ósamræmi við útlitið." VERNDARENGILL? í frásögn Arnar af bernskuárunum kemur fram að tvisvar hafi verið gerð „atlaga" að augum hans. Einu sinni var hann nærri orðinn undir bíl og á æskuárunum í Hrísey var járnplötu þeytt í andlit hans: „En alltaf hafa augun sloppið og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum slasaðist ég aldrei mikið. Reyndar lenti ég tvisvar fyrir bíl. I annað skiptið var ég að leika mér í Bólstaðar- hiiðinni að vetri til þegar Mercedes Benz kom á fullri ferð. Konan sem ók bílnum gat ekki stopp- að, rann beint að mér, en merkiiegt nokk þá stöðvaðist bíllinn við andlitið á mér. Úlpan mín flæktist í bílnum og ég dróst með honum 36 metra. Slapp í öll skiptin með minniháttar meiðsli. Það var alltaf eins og einhver kippti í taumana og forðaði mér...“ Verndarengill? „Ja, ég held það sé engin tilviljun að ég slapp. Oft fæ ég líka á tilfinninguna hvort hlutirnir muni ganga eða ekki. Án þess ég sé nokkur sál- fræðipælari hef ég gaman af að fylgja sumum hlutum sem Freud og aðrir snjallir menn hafa sagt, meðal annars því að sú ákvörðun sem maður tekur hlýtur alltaf að vera rétt ákvörðun. Ef þú metur hlutina frá hjartanu hlýturðu að vera gera rétt samkvæmt sannfæringu þinni. Svo verður maður að læra af reynslunni ef hlut- irnir ganga ekki upp." „ÞESSI EINI ÖÁNÆGÐI í SALNUM" Hann bætir við að reyndar sé það skrýtið að hann muni ekkert eftir því að hafa á laugardög- um fengið að heimsækja konuna sem ók á hann, horft þar á Keflavíkursjónvarpið og hámað í sig sælgæti: „Það er skrýtið að maður skuli frekar muna það neikvæða," segir hann. „Þetta er eins og með þennan eina óánægða í salnum. Þótt sal- urinn sé fullur af ánægðu fólki sem klappar sér leikarinn alltaf þennan eina óánægða. Góð til- finning er svo góð að hún gieymist, nema hún sé yfirþyrmandi." KLEIP SIG í FRAMAN TIL AÐ LOSNA VIÐ AÐ LEIKAi Það er komið að því að ræða leiklistina við Örn, enda er hún ríkur þáttur í lífi hans. Þótt hann hafi snemma byrjað að fara með pabba sínum niður í Þjóðleikhús segist hann síöur en svo alltafhafa verid staöráöinn í ad veröa leik- ari:

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.