Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 26

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 26
TÖLVUR OG HUGBÚNAÐUR þátt í einkatölvu- eða PC-væðingu þjóðarinnar, sem gerist ákaflega hratt hér og af meiri krafti en annars staðar. Við byrjuðum að þreifa fyrir okkur á einkatölvumarkaðinum fyrrri hluta 1986. Við höfðum verið með Victor-reiknivélar og selt mikið af þeim. Það fyrirtæki var selt og keypti sænskt fyrirtæki tölvuhiuta Victors. Svíarnir höfðu samband við okkur vegna þessara gömlu sam- banda og fóru fram á að við gerð- umst umboðsaðilar fyrir Victor- einkatöivur hér á landi. Höfum við flutt inn um 3.400 vélar á þessu eina og hálfa ári sem er liðið.“ Hefurdu einhverja hugmynd um markaöshlutdeild ykkar hvad varöar einkatölvur? „Við höfum okkar hugmyndir um það og það hafa keppinautarnir sjálfsagt líka. Hópur viðskiptavina okkar hvað varðar einkatölvur hef- ur verið að breytast. Þetta voru að- allega einstaklingar í byrjun, en nú eru það mikið opinber fyrirtæki og einkafyrirtæki sem versia við okkur og nota þá tölvurnar í alvöru. Við álítum að markaðshlutdeild okkar hvað varðar einkatölvur nemi um 50 prósentum, hún var það a.m.k. á árinu 1987. Ég hef enga trú á því að seldar hafi verið fleiri en 5.000 einkatöivur hér á landi í fyrra. Þó er erfitt að fá þessar tölur greiniiega fram, þar sem tollayfirvöld hafa ekki upplýsingar um stykkjatölu. Þessar vélar hafa gengið vel út, og við finnum að enn er mjög góður markaður fyrir einkatöivur. Okkar tölvur eru ekki þær ódýrustu, en þar sem þær eru traustar búumst við við að salan verði áfram góð.“ Hvaö helduröu aö mörg merki séu á tölvumarkaöinum í dag? „Við gerðum könnun á því 1986 og í ljós kom að 40 vörumerki voru þá fáanleg. Við höfum ekki kannað þetta síðan, en okkur virðist sem svo að margir hafi helst úr lestinni og nú séu fá en traust merki eftir. Þetta þróaðist eins og við var að bú- ast. Menn eru hættir að líta á einka- tölvur sem einhver leiktæki, eins og gert var í fyrstu. Þetta eru atvinnu- tæki og það krefst þess að þjónusta sé tii staðar. Tækin mega ekki bila. Þess vegna hafa þeir aðilar sem ein- göngu voru með söiu en enga þjón- ustu dottið út. Við gerðum okkur ljóst að þjónusta var mjög mikilvæg og teljum okkur hafa mjög gott þjónustufyrirkomulag í gangi í dag.“ Olgeir sagði ennfremur að fyrir- tækið væri byggt upp í kringum tölvur í dag, að vísu væri það enn með skrifstofutæki. Rauði þráður- inn væri þó sala og þjónusta á tölvu- og hugbúnaði. En hvaö meö ráögjöf fyrir viö- skiptavini? „Ég get lýst því hvað við gerum. Við erum að vísu tölvusalar, en við erum þó ráðgefandi fyrir viðskipta- vini okkar. Við erum fyrirtæki sem byggir einna mest á þjónustu. Okk- ar ráðgjöf verður hreiniega að vera vönduð, því annars fáum við þetta allt saman í hausinn aftur. Við kapp- kostum að seija viðskiptavininum lausn og okkar stefna er að sú lausn dugi. Við erum okkur meðvitaðir um það hve ráðgöf er mikils virði. Það hefur stundum komið upp sú staða að viðskiptavinurinn getur ekki fengið það út úr tækjum okkar sem hann óskar og þá er ekki annað að gera en vísa honum annað. Háif- ar lausnir duga engan veginn." Nú hefur ráögjöf í tengslum viö tölvur veriö aöeins til umrœöu og viröist bera þar á ýmsu. „Mín skoðun á mörgum þessum „ráðgjafarfyrirtækjum" er starfa í dag er að hlutieysi þeirrar ráðgjafar er afar ábótavant. Þetta eru títt endurseljendur og hugbúnaðar- framleiðendur sem fá afslátt fyrir þau tæki sem þeir selja, og því varla mikið um hlutlausa ráðgjöf." Olgeir fræddi blaðamann á því að fyrirtækið seldi einnig Altos-tölvur sem eru bandarískar og hafa verið keyptar mikið fyrir fslenskan hug- búnað. Setti fyrirtækið upp hugbún- 26 HELGARPÓSTURINN að fyrir önnur fyrirtæki, en bein- línukerfið og þjónusta við það væru aðalverkefnið. Sagði Olgeir enn- fremur að mörg fyrirtæki væru að taka annað skrefið i tölvuvæðingu sinni, en það væri að tengja einka- tölvur fyrirtækisins saman í net. Viðskiptavinir væru farnir að gera sér betur grein fyrir hvernig hægt væri að nota einkatölvurnar, og opnuðust þannig nýjar víddir fyrir notendur þeirra.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.