Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 27

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Side 27
NETBÚNAÐUR OFT ÓDÝRASTA OG HAGKVÆM- ASTA LAUSNIN Á undanförnum árum hefur átt sér stad ör þróun á tölvunetum. HP bad Hauk Nikulásson, sem er einn eig- enda Micrótölvunnar, að segja sér frá starfinu í kringum tölvunet, sem á að gera stofnunum og fyrirtækjum er nota tölvur kleift að spara töluverða fjármuni, þegar tölvubúnaður þessara aðila er tekinn til endurskoðunar og hugað er að breytingum. Haukur segir frá því að hugmynd- in um net hafi orðið til þegar eig- endur tölva sem voru að vinna að því sama fóru að hafa áhuga á því að flytja upplýsingar sín á milli og sam- nýta gögn. Var þá farið að tala um sameiginlegan búnað sem tveir eða fleiri aðilar hefðu aðgang að frá stökum tölvum. „Þegar fyrstu netin komu fram gekk virkni þessa fyrirbæris fræði- lega, en þegar menn fóru að skrifa nethugbúnaðinn sjálfan gerðist ailt ægilega hægt. f fyrstu tilraunum sem við gerðum hér á landi, á árun- um 1982 og 1983, reyndum við að keyra bókhald í kross á milli tveggja véla, sem er einfaldasti hlutur í heimi. Þú keyrir bókhald frá einni vél og yfir á aðra, á disk, og síðan frá hinni á móti. Þetta gerðist samtímis. Svartíminn á þessu náði ekki því sem maður átti að venjast af diskl- ingadrifi á þeim tíma. Netkortin sem slík voru dýr og hug- búnaðurinn var það einnig. Við fylgdumst þó með þróuninni áfram. Við vorum með netkerfi frá Vector sem hét Linc, en þar var á ferðinni svokölluð „token-ring-aðferð við samskipti. Það var í raun ekki þess- ari aðferð að kenna að svartíminn var langur heldur eingöngu hug- búnaðinum, en „token-ring" er not- að af öðrum fyrirtækjum í netum.“ Er þetta adskilid, „token-ring" og hugbúnaöurinn? „Þetta kemur sem pakki, hugbún- aður og netsgjöld. Þetta er hugsað sem lausn. Ástæðan fyrir hinum mikla svartíma kom síðar í ljós. Smátölvurnar voru með einnota stýrikerfi, sem var bara fyrir einn notanda og eina vél, en ekki hugsað sem lausn fyrir fjölnotkun. í upphafi voru netlausnir taglhnýtingar ofan á einnotendastýrikerfi. Þau virka ekki þannig og hafa aldrei virkað. Til að net virki þarf það að vera hugsað sem net alveg frá upphafi, en ekki sem viðbót ofan á einnota stýrikerfi. Þetta er það sem hefur breyst nú á seinni árum. Nethug- búnaðurinn, þá sérstaklega á mið- stöðvarnar, er netstýrikerfi og vinn- ur sem slíkt alveg frá upphafi. Síðan nota menn sitt DOS-um- hverfi á útstöðvunum. Þar er keyrð upp skel, sem situr í minni og er í raun „filterinn" út í miðstöðina. Miðstöðin keyrir með öðrum orðum ekki sama hugbúnað og útstöðin. Þafer eiga sín samskipti í gegnum skel. Það er raunverulega skelin sem sér til þess að t.d. notandi MS- DOS sér F-drif, sem er fyrsta netdrif- ið í Novell NetWare-stýrikerfinu. Síðan á hans útstöð, sem er venjuleg einkatölva, samskipti inn á miðstöð, sem myndar hans fjölnotendaum- hverfi. Þar eru meðtaldar allar varn- ir sem þarf þegar verið er að vinna með sameiginlegar skrár. Margir geta verið að vinna með sömu skrána og það eru fullkomnar varn- ir fyrir því að menn spilli ekki skrá eða skráningu sem annar er með í vinnslu eða eitthvað þvíumlíkt. Þannig er hægt að loka einstökum hlutum kerfisins alveg niður á hverja skráningu (record level). Með þessu móti erum við farnir að sjá svartíma sem þekkist jafnvel ekki á minni fjölnotendakerfum. Svartíminn er í flestum tilvikum að verða miklu betri, jafnvel þó við sé- um ekki að tala um sérlega þróaðan hugbúnað eða umhverfi. Útstöðvar eins og PC-einkatölvur og AT-tölvur stjórna svartímanum. Þú færð í flestum tilvikum sama svartíma í fjölnotaumhverfum og er á einka- og AT-tölvum. Ástæðan er einfald- lega sú að vinnslan á sér stað í út- stöðinni en ekki í miðstöðinni. Þannig að þegar álag verður á net fer það ekki eins illa með heildar- svartíma kerfisins, vegna þess að þegar ný útstöð kemur inn í mynd- ina kemur hún með sitt eigið tölvu- afl, en er ekki að skera sinn bita af reiknigetu einnar miðstöðvar líkt og Haukur Nikulásson gerist í venjulegri mini-tölvu. Þetta hafa jafnvel vanir tölvu- menn átt erfitt með að skilja. Frá gamalli tíð hafa tölvumenn verið fastir í þeirri hugmynd, að sé ein- hverju deilt niður hljóti það að minnka svartímann í réttu hlutfalli. Menn eru vanir slíkum hugsunar- hætti og skilja ekki að net skuli ekki brotna með sama hætti undan álagi. Það er einnig auðveldara að taka net og bæta svartímann, sem hefur kannski minnkað vegna umferðar- innar á netinu, með því að fjölga netspjöldum í miðstöðinni. Þessu má líkja við það þegar maður bætir akreinum við venjulegan bílveg." ÓDÝRARA AÐ ENDURNÝJA NETKERFI En hvernig er það þegar madur þarfaö sœkja þjónustu í stofnun og hún hefst á vandrœöalegri biö vegna þess aö tölvan er „dauö‘! „í slíku tilfelli kemur allt reikniafl frá einni stórri tölvu og því er deilt á milli þeirra notenda sem eru tengdir kerfinu og eftir því sem þeir eru fleiri og krafan um þjónustu meiri því verri verður þjónustan. Hugmyndin á bak við dreifða vinnslu, með netkerfi, er aftur á móti sú, að þegar þú bætir við út- stöðvum, þá bætir þú við það heild- artölvuafl sem þú hefur til afnota. Þannig ef að notendum fjölgar eykst reikniaflið, því hver einstakur not- andi kemur með það frá sinni út- stöð. Ég get því ekki séð að flest þau fjölnotatölvukerfi sem við þekkjum í dag lifi nema nokkur ár í viðbót. Það er fyrst og f remst miklu ódýr- ara að bæta við netbúnað. Þú hefur kannski hefðbundna mini-tölvu og ef þú villt stækka hana getur það kostað milljónir, þá í formi nýrra diska og nýs miðverks. Ef netmið- stöðin verður of lítil breytir þú henni einfaldlega í útstöð, tekur diskkerfið af henni og setur á nýja og öflugri miðstöð. Þú þarft þannig ekki að henda öllu því sem til er, heldur geta menn endurnýjað útstöðvar eftir því sem þeir vilja. Hægt er að nota einkatölvu, AT-tölvu og „386" í út- stöðvarhlutverkum í bland, allt eftir kröfum hvers og eins. Það sem ekki síst breytist við netkerfi er að þegar þú hefur möguleikana á því að end- urnýja kerfið jafnt og þétt með fyrr- greindum hætti, þ.e.a.s. þú færð þér öflugri útstöðvar eftir því sem þarf, er hægt að taka þetta í einingum. Þannig má einfaldlega sjá þetta sem venjulegan rekstrarkostnað. Áður fyrr var endurnýjun eða kaup á tölvubúnaði venjulega meiri háttar fjárhagslegt dæmi. Svo má ekki gleyma því að hrá- efnið fyrir svona f jölnotendakerfi er að verða til án þess að menn taki eft- ir því. Það er fullt af einka- og AT- tölvum í flestum fyrirtækjum, en þær mynda í heild þetta reikniafl sem þarf. Það er bara að tengja vél- arnar saman. Það þarf því ekki að kosta mikið að koma netkerfi upp, hvað þá að viðhalda því.“ Hvers vegna er þetta aö koma fram núna, en ekki löngu komiö fram. Hefur þaö eitthvaö meö þenn- an heföbundna hugsunarhátt aö gera, sem þú minntist á áöan? „Það er bæði og. Ég held að það sé á síðastliðnum tveimur árum sem nothæf netkerfi verða í raun til. Maður las þó í tímaritum allt aftur til ársins 1981 að mini-tölvan væri dauð. Svo reyndist þó ekki, m.a. vegna mikils framboðs á hugbún- aði. Hann var einfaldlega ekki til á netkerfi. Það sem gerir það að verk- um að netkerfi geta nú flætt yfir allt er mjög einfalt atriði. DOS hefur verið til frá því að einkatölvurnar og allar þessar samræmdu tölvur urðu til og netkerfin eru einfaldlega að nota MS-DOS-hugbúnað sem búið er að þróa í mörg ár. Hann keyrir all- ur á netinu. Það þarf engar breyt- ingar til að nota hann. Það sem hefur hindrað útbreiðslu nets til jafns við mini-tölvur ennþá er að til skamms tíma hafa útstöðvar á netið verið dýrar. Þú hefur þurft að kaupa einkatölvu og netspjald í hana. Þessi samsetning, með ódýrri einkatölvu, kostar ekki undir 70 þúsund krónum. Nú kostar útstöð með innbyggðu netspjaldi um það bil 50 þúsund krónur, eða svipað og venjulegur skjár á eldri tölvur." Hvaö meö umfang þessara neta. Hversu stór geta þau oröiö og enn- fremur, geta þau skarast? „Þetta kemur inn á hluti sem maður hefur orðið var við hjá mönnum sem hafa nokkuð mikla reynslu af tölvum. Það er sálrænn þröskuldur hjá mörgum þess eðlis, að smátölvur/einkatölvur, sem net- in byggja á, hafi ákveðin takmörk. Þegar þeim takmörkum ljúki taki mini-tölvan við og þegar þeim tak- mörkum ljúki komi megintölvur. Það er hreinlega orðið úrelt að ætla sér að hugsa svona. Miðað við hvað fæst í dag getum við afgreitt eitt net- kerfi með 6,6 gígabæta heildardisk- rýmd. Þú getur verið með fleiri hundruð útstöðvar í slíku neti og á því getur þú verið með margar mið- stöðvar. Ef ein miðstöð dugir ekki getur þú fjölgað vélum er sinna mið- stöðvarhlutverki. Jafnvel þó þú sért tengdur einni miðstöð, þá getur þú tengst fjarlægari miðstöð og þú sérð engan mun á því hvort þú vinnur á þína miðstöð eða hina miðstöðina. jÞað er enginn munur á svartíma. Þetta er allt tengt inn á sama kapal. Vandamálin við net voru til PlanPerfect - er töflureiknir fyrir PC tölvur sem hentar í alla útreikninga - fylgir handbók á íslensku og íslensk dæmi á disk - er systurforrit WordPerfect ritvinnslunnar og mjög líkt í notkun V. HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.