Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 10.03.1988, Qupperneq 29

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Qupperneq 29
Þ að vakti athygli í sjónvarps- viðtali Eysteins Helgasonar við Ólaf Sigurðsson á dögunum, að Eysteinn skyldi telja ástæðu til að virða að vettugi öll vottorð, sem Guðjón B. Ólafsson kynni að hafa meðferðis heim frá starfsfólki Ice- land Seafood og verksmiðjunnar í Harrisburg. Ástæðuna kvað Ey- steinn þá, að þarna væri mikið at- vinnuleysi, 10% eða meira, og fólkið því tilbúið að undirrita hvað sem er fyrir nýja stjórnendur, ef verða mætti til að það héldi vinnunni. Menn spyrja, hvort Eysteinn hafi notfært sér þetta ástand í samskipt- um sínum við starfsfólk?... sér sambandinu milli auglýsinga og frétta í fjölmiðlum. Mörgum hefur þótt sem Stöð 2 drægi áberandi taum annars aðilans í fjölmiðlafári síðustu vikna um Sambandið. Þeir hinir sömu fullyrða, að SÍS hafi stutt Stðð 2 myndarlega í upphafi með auglýsingum fyrir 10 milljónir króna og hafi Sambandsmenn stað- ið einhuga að því að styðja þessa merku nýjung í fjölmiðlaheiminum fyrstu skrefin með þessum hætti. Sá sem auglýsingasamninginn gerði fyrir hönd SÍS var Þorsteinn Ólafs- son og telja heimildir HP að þess hafi Eysteinn Helgason notið, þegar hann fékk sjónvarpað blaða- mannafundi sínum í heild á Stöð- inni, svo og við alla umfjöllun henn- ar um einstök atriði málsins... ■ W ■argvíslegum aðferðum hefur verið beitt í gegnum tíðina, þegar borgararnir vilja fá að láta álit sitt í ljós á aðgerðum yfirvalda eða markaðri stefnu. Undirskriftasafn- anir eru einhver algengasta leiðin. Vinsælt og vænlegt til árangurs hef- ur verið að láta undirskriftalista liggja frammi á sundstöðum borgar- innar. Þessari aðferð var beitt þegar þau Herdís Tryggvadóttir og Árni Bergur Eiríksson gengust fyrir söfnun undirskrifta gegn þétt- ingu byggðar, einkum í Laugardal, í borgarstjóratíð Egils Skúla Ingi- bergssonar. Sama hátt á höfðu Sundasamtökin með ekki ómerk- ari mann í broddi fylkingar en Magnús Óskarsson borgarlög- mann þegar þau söfnuðu undir- skriftum gegn byggingu Mikla- garðs. Engum athugasemdum var hreyft við þessu, né þurfti að leita heimildar í skriffinnskuapparötum borgarinnar. En þegar samtökin „Tjörnin lifi“ komu í samráði við starfsfólk fyrir slíkum undirskrifta- Iistum á sundstöðum voru þeir fljót- lega fjarlægðir. Ómar Einarsson hjá íþrótta- og æskulýösráði kvað nýlega hafa verið gert virkt gamalt ákvæði um að formlega og skriflega yrði að sækja um allt slíkt og ræða það og álykta um það á réttum stöðum. Er nema von að Morgunblaðið skrifi leiðara í fyrra- dag þar sem það varar lesendur sína við að líkja saman Davíð og Kastról Báðir eru að vísu hárprúðir — en Davíð er skegglaus. Viltu njóta iífsins við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í stórborgarmenninguna? Ertu kannski einn þeirra fjallhressu sem alltaf þurfa að glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna eitthvað nýtt / gamalt? Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á seglbrettanámskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar heim kemur eða Iiggja á vel völdum vatnsbakka, grilla þig í sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur"? Ertu sælkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það besta í mat og drykk? Þá eru Biersdorf í Þýskalandi, Walchsee, Zell am See og St. Gilgen í Austurríki staðir fyrir þig Þú getur haft bflaleigubfl til umráða og ekið hvert sem þú vilt eða tekið þátt í skipulögðum skoðunarferðum með okkar traustu og reyndu fararstjórum. sér að ferðast eftir íyrirfram gefmni áætlun er það að sjálfsögðu engin spuming hvað þú gerir. Þú hlýtur að velja flug og bO. Spumingin er bara: Hvar viltu byrja? í Lux, Frankfurt, París eða Salzburg? Það er auðvitað þitt mál en staðreyndin er sú að bílaleigubílarnir í Lux em þeir ódýmstu í Mið-Evrópu. Leiðsögumappan og Mið-Evrópu bæklingurinn Flug, bíll og sumarhús em komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða ferðaskrif- stofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um sumardvalar- staðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram gamla landakortið, ræddu málin við fjölskylduna í ró og næði og hringdu svo í okkur. LUXEMBORG: Flug+bíU í 2 vikur frá kr. 16.210 á mann.* SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki. 8 8 < cn i < Viltu fara þínar eigin leiðir? Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta ekki hugsað FLUCLFIDIR — fyrir þig__ WALCHSEE: Flug+íbúð í Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 25.920 á mann.* Flogið til Salzburg. Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst. ZELL AM SEE: Flug+íbúð í Hagleitner í 2 vikur frá kr. 26.800 á mann.* Flogið til Salzburg. Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX. BIERSDORF: Flug+ibúð í 2 vikur frá kr. 18.490 á mann.* Flogið til Luxemborgar. Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX. ST. GILGEN: Flug+íbúð í frlreith í 2 vikur frá kr. 27.930 á mann.* Flogið til Salzburg. Tímabilið 9. jútí tií 27. ágúst. •Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja-ll ára. Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar. FLUGLEIDIR -fyrírþíg- Söiuskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími 100. HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.