Helgarpósturinn - 10.03.1988, Blaðsíða 32
UM HELGINA
BfÖ
Stjörnugjöf: 0 farðu ekki ★ sæmileg ★★ góð ★★★ ágæt ★★★★!
Regnboginn Síðasti keisarínn (The Last Emperor) ★★★★ Morð í myrkri (Mord i mprke) ★★★ Örlagadans (Slam dance) ★★
Háskólabíó Hættuleg kynni (Fatal Attraction) ★★★
Bíóhöllin Spaceball ★★★
Bíóborgin Wall Street ★★
Stjörnubíó Roxanne ★★★
Á laugardaginn kl. 14.00 verður á
Kjarvalsstöðum opnuð sýning sem
nefnist Saarilla. Þetta er norraen far-
andsýning og mun ferðast milli eyja,
eins og nafn hennar gefur til kynna,
en Saarilla er finnska og þýðir „á eyj-
unum". Héðan fer sýningin til Fær-
eyja, þaðan til Borgundarhólms og
að lokum til Álandseyja. Á sarillunni
sýna 10 textillistamenn frá öltum
Norðurlöndunum, allt konur, eftir því
sem best verður lesið úr nöfnunum,
en þau eru: Sidsel C. Karlsen, Kajsa
af Petersens, Agneta Hobin, Nanna
Hertofte, Marith Hope, Gun
Dalhquist, Anna-Lisa Troberg,
Margaretha Agger, Anna Þóra
Karlsdóttir og Sigurlaug Jóhannes-
dóttir. Sýningin stendur til 28. mars.
Um það bil klukkutíma síðar opnar
Sigurður Örlygsson málverkasýn-
ingu í vestursal Kjarvalsstaða. Sig-
urður sýndi síðast í Gallerí Svörtu á
hvítu á síðasta ári, og reyndar einnig
á samsýningu i Stokkhólmi, ásamt
Einari Hákonarsyni og Daða Guð-
björnssyni. Sigurður ætlar að sýna
einungis sjö myndir, en hins vegar
afar stórar, og vafalítið verður form-
pælingin í öndvegi hjá honum eins
og áður.
Nú hefur Leikfélag Akureyrar haf-
ið sýningar á leikriti Arthurs Miller,
Horft af brúnni. Verkiö var frumsýnt
síðastliðið föstudagskvöld en um
þessa helgi verða sýningar annað
kvöld (föstudagskv.) og laugardags-
kvöld og hefjast báðar kl. 20.30. Það
er Þráinn Karlsson sem fer með að-
alhlutverkiö í leikritinu, leikur ítalsk-
ættaða hafnarverkamanninn í
Bandaríkjunum, sem skapar sjálfum
sér og sinum nánustu skelfileg örlög.
Leikstjóri er Theodór Júlíusson, en
þetta er fyrsta meiriháttar verkefni
hans sem slíkur.
Og hér er svo eitthvað fyrir Sauð-
árkróksbúa. Á laugardaginn opnar
Þorlákur Kristinsson, TOLLI, sýn-
ingu i Safnahúsinu þar í bæ. Tolli hef-
ur lagt rækt við að sýna verk sín á
landsbyggðinni í gegnum tíðina og
fyrsta sýning hans í þeirri ræktar-
semi einmitt á Sauðárkróki fyrir
þremur árum, en ef minnið brestur
ekki þá sýndi hann síðast á Nes-
kaupstað á síðasta ári. Sýning Tolla
stendur til 20. ma rs og er Safnahúsið
í flestum tilfellum opið frá klukkan
14—21.
Og enn um myndlistina. Á þess-
um árstíma stendur hún í hvað
mestum blóma, sýningar aldrei fleiri
og kannski hátt í tug opnana á einum
venjulegum laugardegi. Og það hef-
ur heyrst að sumir séu ansi duglegir
við að fara á milli, þiggja veitingar og
gjóa svo kannski augum á listina,
sem yfirleitt sést ekki fyrir hinum
gestunum, verða svo orðnir sæt-
kenndir þegar degi tekur að halla. Og
á laugardaginn opnar Ranka (Ragn-
heiður Hrafnkelsdóttir) sýningu í
Gallerí Svörtu á hvítu v/Laufásveg.
Á sýningunni verða verk unnin með
blandaðri tækni á pappír, málverk og
skúlptúr. Þetta er þriðja sýning
Rönku hér á landi og hún stendur frá
12. mars til þess 28. og er opin alla
daga nema mánudaga frá 12—18.
Myndlistin hefur löngum lítið ver-
ið sýnd í sjónvarpi þó þar sé reyndar
nokkuð kjörinn vettvangur fyrir
hana. Hins vegar sýnir sjónvarpið
okkur auövitað myndlist, að vísu oft-
ast efi uppi um það hvort þetta með
listina eigi nokkuð að fylgja með og
sennilegast má í flestum tilvikum
sleppa því. Á fimmtudagskvöldið, í
kvöld það er, hefur að nýju göngu
sína myndaflokkur um skoska löggu,
Taggart, sem á í eilífum heimilis-
vandræðum meðfram starfinu.
Taggart er klukkan 21.30 og strax á
eftir kemur finnsk heimildarmynd
um Sovétriki Gorbasjofs. Dynja yfir
mann endalausar heimildamyndir
um leiðtogann oa ríki hans, meira að
segja Finnar... A föstudaginn 11.
mars er í sjónvarpinu víðfræg sænsk
spennumynd, Maöurinn frá
Majorka, kemur næst á eftir Derrick
sem byrjar þegar viðkomandi hluti
mistakaraðarinnar Annir og
appelsínur er blessunarlega afstað-
inn. Þeirri hörmung lýkur semsagt
klukkan 21.25 og þá tekur sá þýski
viö. Á laugardagskvöldið hefst svo
það sem allir hafa verið að bíða eftir.
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva byrjar strax eftir lottóið
og verður sömuieiðis á dagskrá á
sunnudagskvöldið strax eftir fréttir.
íslensku keppnislögin kynnt. HP
tippar á Jakob Magnússon og til
vara Geirmund Valtýsson. Annað
sem rétt er að minna á í helgardag-
skrá Ríkissjónvarpsins eru hinir óvið-
jafnanlegu bresku þættir Paradís
skotið á frest, en þar dregur aldeilis
til tíðinda enda lokaþátturinn einn
eftir í röðinni. Þegar paradis hefur
verið skotið á frest kemur Róbert
Arnfinnsson og les Ijóðið Tindáta
eftir Stein Steinarr, en Steinn hefði
orðið áttræður á þessu ári. Svo má
alltaf minna á spennuþáttinn Út-
varpsfréttir í dagskrárlok sem er á
dagskránni mjög regluiega og þykir
jafnan undursamlegur, bæði fyrir
augu og eyru.
Og þá vippum viö okkur yfir á
Stöð 2, framvörð íslensks einka-
framtaks um þessar mundir. Þar er
eitt og annað um drætti en ekki svo
óskaplega margir fínir en klukkan
13.50 á laugardag er sýnd myndin
Wetherby. Þetta er bráðgóð mynd,
fjallar um kennslukonu sem fær
óvænta heimsókn, og meö aðalhlut-
verkið fer Vanessa Redgrave. Um
kvöldið eru síðan á dagskránni tvær
bíómyndir sem hægt er að þreyja
þorrann yfir, ef menn hafa ekkert
annað að gera, fyrst er það tæplega
15 ára mynd sem heitir í djörfum
leik og svo kemur enginn annar en
Sylvester Stallone í Rocky III.
Rocky blessaður er orðinn heims-
meistari, minna gat nú ekki gert það,
og á í einhverjum vandræðum með
sjálfan sig og frúna af því þau eru svo
rík og allir vilja leggja hann að velli.
Aumingja Rocky. Um helgina verður
Jón Óttar með tvo af nærmyndar-
þáttum sínum — á laugardaginn er
það pianóleikarinn Martin
Berkovski. Sérkennilegur maður,
mótorhjólatöffari og fer úr líkama
sinum þegar hann spilar, sem hann
gerir mjög vel, einkanlega verk eftir
Franz Liszt. Þessi þáttur er á dagskrá
á laugardaginn kl. 16.20. Hinn nær-
myndarþátturinn er um íslenska
konu — Kristinu Hannesdóttur,
sem er arkitekt og býr í Skotlandi,
meira að segja í gömlum kastata. Á
víst ævintýralegt líf að baki.
Og þegar þeirri nærmynd lýkur byrj-
ar breskur framhaldsþáttur, Feðg-
arnir, sem lofar góðu, virðist vera
einn af þessum snjöllu bresku þátt-
um sem bera hróður brekskra svo
víða.
Einn helsti staður fyrir lifandi tón-
list í borginni er aö verða skemmti-
staðurinn Lækjartungl, en þar eru
tónleikar og uppákomur þrjá til fjóra
daga vikunnar. I kvöld, fimmtudags-
kvöld, verða þar útgáfutónleikar
hljómsveitarinnarE-Xog hefjast þeir
klukkan 22.00. Hljómsveitin, sem
þykir mjög efnileg, er um þessar
mundir að gefa út plötuna Frontiers,
og eins og nafnið bendir til eru textar
á ensku. A föstudagskvöldið verður
almennur dansleikur og þá mun
hljómsveitin Centaur, ásamt söng-
konunni Sigriði Beinteinsdóttur,
leika tónlist frá sjötta áratugnum í
u.þ.b. klukkustund. Og svo er það
sunnudagskvöldið en þá kemur
fram hljómsveitin Rokkabillyband
Reykjavíkur, sem er ný hljómsveit
og afar htessileg, enda fer þar
fremstur i flokki sjálfur Ási Magg,
rokkari af guðs náð. Auk þeirra kem-
ur fram Bobby Harrison, ásamt
hljómsveit, og flytur lög af plötunni
Solid Silver. Meðal þeirra sem fram
koma með Bobby er gamla brýnið
Rúnar Júlíusson. Sunnudagstón-
leikamir hefjast kl. 22.00 og standa til
1.00
En það er fleira tónlist en popp.
Miklu fleira. Á laugardaginn kl. 17.30
verður á rás 1 útvarpað hljóöritun á
Konsert fyrir orget og hljómsveit
eftir Jón Leifs. Þessi hljóðritun er frá
tónleikum Filharmóníusveitarinnar í
Stokkhólmi sem f ram fóru 21. janúar.
Kynnirerhið góðkunna tónskáld Atli
Heimir Sveinsson. Og klukkustund-
inni fyrir tónleikana er ennfremur vel
varið fyrir framan útvarpstækið þvi
þá verður flutt leikritið Leikur að eldi
eftir August Strindberg. Þýðandi og
leikstjóri verksins er Jón Viðar Jóns-
son en leikendur eru Baldvin Hall-
dórsson, Þóra Friðriksdóttir, Karl
Ágúst Úlfsson, RagnheiðurTryggva-
dóttir, Harald G. Haraldsson og Sig-
rún Edda Björnsdóttir. Annað sem
nefna má af helgardagskrá útvarps-
ins er að sjálfsögðu þátturinn um
Einar Benediktsson, sem er á dag-
skrá kl. 13.30 á sunnudag. Þann dag
er einnig á dagskrá, reyndar um
morguninn, spurningaþátturinn
Bókvitið sem Sonja B. Jónsdóttir
stýrir, en það er Thor Vilhjálmsson
sem semur spurningarnar og er
dómari, ogsvoafturklukkan 18.00 er
á dagskrá rásar 1 þáttur Ástréðs
Eysteinssonar, Örkin, sem fjallar
um erlendar nútímabókmenntir. Þeir
sem svo vilja bara ekki hlusta á
menningarlegt efni í útvarpi hafa
auðvitað þennan fræga valkost um
að skipta einfaldlega um rás og
heyra þar, án efa, popptónlist eins og
þeir geta mögulegast mest heyrt.
„Non stop" i 24 tima og aldrei grið
gefin. Eða menn geta hugsanlega
þvegið bílinn sinn, litið í bók eða þá
eitthvað allt annað.
Það er auðvitað spurning hvað er
list og hvað ekki. Hvað er ekki list
heldur afþreying og hvenær veröur
afþreyingarefnið listrænt. það verð-
ur hins vegar ekki um það deilt að
leikhúsin bjóða upp á vandaða af-
þreyingu. T.d. má í þessu sambandi
nefna sýningu LR á Síldin er komin,
sem er vissulega hágæðaafþreying.
Full með skemmtilegan leik og bráð-
fjöruga tónlist eftir þann hinn snjalla
dægurlagahöfund Valgeir Guöjóns-
son. Satt að segja væri sýningin lítið
augnayndi ef hans nyti ekki við.
Næstu sýningará síldinni eru í kvöld,
fimmtudagskvöld, og laugardag.
Aðrar sýningar hjá LR eru Djöflaeyj-
an, sem sýnd verður föstu- og
sunnudagskvöld, Hremming
fimmtu- og laugardag og Dagur
vonar, sem sýndur er föstudag. Og
ef við fetum okkur áfram í leikhúsun-
um þá er Þjóðleikhúsiö að sýna
Vesalingana og gengur víst af-
burðavel. Enda er meira og minna
uppselt, bara hægt að fá miða uppi í
risi. Aldrei þessu vant er hins vegar
ekki uppselt á Bílaverkstæöi Badda,
sem leikið verður sunnudag, þriðju-
dag og miðvikudag á Litla sviðinu.
Og enn er rétt að minnast til að
mynda Egg-leikhússins, sem hefur
auglýst síðustu sýningar á hádegis-
leikritinu Á sama stað. Sú siðasta
verður á laugardaginn og hefst kl.
12.00. Ás-leikhúsið stendur sig
sömuleiðis og ætlar aö sýna Farðu
ekki á laugardag og sunnudag. Al-
þýðuleikhúsið er með aukasýningar
á einþáttungum Pinters, vegna
fjölda tilmæla, fimmtudag og laug-
ardag, og svo er það Kontrabassinn
hjá Frú Emelíu sem sýndur er
fimmtudags- og föstudagskvöld. Og
að lokum Islenska óperan, sem sýn-
ir óperurnar Don Giovanni og Litla
sótarann. Þá fyrrnefndu föstu- og
laugardag en síðarnefnda sýningin
■ verður um miðjan sunnudag. Alls
eru þetta einar tólf mismunandi sýn-
ingar sem menn geta valið um og
það verður bara að teljast mjög gott
ef ekki rúmlega það.
NORRÆN
VILLIMENNSKA
Einar Garibaldi í Nýlistasafninu
Einar Garibaldi Eiríksson opnar málverkasýningu í
Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b, föstudaginn 11. mars. Einar
fæddist á ísafirði árið 1964 og stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands frá 1980 til 1985, en útskrif-
aðist þaðan vorið 1984. Frá hausti 1986 hefur hann verið
við framhaldsnám í fagurlistaskóla Mílanóborgar á Ítalíu,
Accademia di bella arti di Briera. Þetta er fyrsta einka-
sýning Einars, en hann hefur áður tekið þátt í nokkrum
samsýningum, nú síðast á sjálfsmyndasýningunni á Kjar-
valsstöðum í febrúar síðastliðnum.
Einar Garibaldi: „Þetta eru allt
myndir sem ég málaði á Ítalíu en
viðfangsefnið er íslenskt. Það er
svolítil nostalgía í þessum myndum,
söknuðurinn eftir Islandi sem mað-
ur finnur svo sterkt fyrir þegar mað-
ur er erlendis. Þessi mynd heitir til
dæmis Byrdi. Maðurinn er með
bæði heimili sitt og land á hausnum,
það er töluvert þungt farg. Ég hef
mikið verið að hugsa um þessa fjar-
veru. Þar liggja annars vegar iandið
manns og ræturnar. Hins vegar er
ég, fjarri með hugsunum mínum og
minningum. Þetta er einangrun á
vissan hátt. Annars hefur maður
mjög gott af því að dveljast í öðru
landi, fá fjarlægð og samanburð."
Heimþrá. Ertu þess vegna kominn
hingad til þess að sýna hér á íslandi
í miðju námi á Italíu?
„Mig langar til þess s^na það sem
ég hef verið að gera. Ég hefði ekki
viljað sýna þessar myndir á Ítalíu.
Til þess eru þær of íslenskar. íslend-
ingar skilja myndirnar mínar miklu
betur en Italir. Ég er íslendingur og
verð það að öllum líkindum áfram.
Prófessorinn minn skilur til dæmis
lítið hvað ég er að fara í myndum
mínum, segir bara: Þú vinnur mikið,
haltu áfram. Skólasystkin mín skilja
myndirnar ekki miklu betur. Það er
mjög augljóst af myndum þeirra og
mínum hversu ólíkan uppruna við
höfum. Þau lesa út úr þeim ein-
hverja norræna villimennsku."
Mér sýnast nokkrar myndanna
vera frá Reykjavík og í raun þónokk-
uð raunsœislegar.
„Gulur himinn og fjólublátt fjall
þykja ekki mjög raunsæisleg minni
suður á Ítalíu. Þetta er svona morg-
unstemmning. Reykjavíkurmyndir
segirðu. Ég fer helst ekki austur fyr-
ir Snorrabraut, nema ég hverfi út í
strjálbýlið og sveitina og týnist."
Sumar myndanna eru hringlaga
eða þríhyrndar...
„Ég hef bæði unnið við ljósmynd-
un og útlitsteikningu. í fjölmiðlum
eru öll form ferköntuð, dagblöð,
sjónvarp, ljósmyndir og kvikmyndir.
Mér finnst spurning hvort önnur
form geti ekki hentað málverkinu.
Stundum heldur þríhyrnt form miklu
betur um efni málverks en ferhyrnt.
Eða hringur. Formið verður þá órofa
hluti af yrkisefninu."
Hvernig er að stunda myndlistar-
nám á Italíu?
„Ég finn sérstaklega hversu mikill
stuðningur er með myndlist á Ítalíu
og líka skilningur. Það er mikið gert
til að styðja við bakið á ungum lista-
mönnum og koma þeim á framfæri.
Svo er viðhorfið til myndlistarinnar
annað. Ef einhver spyr þig á Ítalíu
hvað þú gerir þá geturðu svarað: Ég
er að mála. Þar líta allir á það sem
vinnu. Þú ert að mála og það er heil-
mikið puð, vinna frá morgni til
kvölds og meira en það. Ef þú segir
þetta sama hér heima þá færðu við-
bótarspurningu: Já, en hvað ertu að
gera? Á hverju lifirðu?"
Það er kannski langlífara en
mann grunar þetta viðhorf að mál-
aralist sé „hobbí" fyrir alla nema
Jóhannes Kjarval. Sýning Einars
Garibaldi í Nýlistasafninu stendur til
27. mars.
FÞ
32 HELGARPÓSTURINN