Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 40

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Page 40
RATSJARSTOÐVARNAR SKOTMÖRK I STRÍÐI MCVADON, YFIRMAÐUR VARNARLIÐSINS: HERNAÐARLEGT ÖRYGGI HEFUR AUKIST TIL MUNA SVÖRTU RIDDARARNIR BESTA FLUGSVEIT SINNAR TEGUNDAR HERMENN í VALLARHLIÐIN Eftir nokkurt erfidleikatímabil í samskiptum íslands og Bandaríkjanna, vegna hvalamálsins, Rainbow Navigat- ion og fleiri mála þar sem Varnarlidið kom beint eða óbeint til umrœðu, virðist allt vera fallið í Ijúfa löð á ný. Um tíma voru uppi háværar kröfur um endurskoðun á varnarsamningi íslands og Bandaríkjanna/NATO, en þœr raddir heyrast ekki lengur og sjaldan ríkt önnur eins þögn um Varnarliðið, þrátt fyrir að framkvœmdirþess og umsvif hafi aldrei verið meiri síðustu áratugina. Enda var Eric McVadon aðmíráll mjög ánœgður með samskipt- in þegar HP bar upp við hann nokkrar spurningar um ratsjárstöðvarnar nýju í vikunni. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND FÞG „Mér finnst að samskiptin nú séu í jafnvægi og góðu horfi. Ég býst við að í samskiptum tveggja fullvaida ríkja, sérstaklega í ljósi þess að við höfum herstöð hér sem að mestu er mönnuð Bandaríkjamönnum, verði alitaf einhver vandamál til að leysa. Hins vegar væri ég ekki ánægður með að skilgreina þessi mál sem þú nefndir sem mál sem endurspegla beint varnarsamstarf okkar. Þetta voru vandamá! sem þurftu lausnar við og ég mundi sérstaklega leggja til, eins og háttsettir ráðamenn Is- lands, að skynsamlegt væri að nálg- ast hvers konar vandamál okkar á milli, þar sem varnarstarfinu væri haldið fyrir utan." Hafa lífiö og starfid á herstööinni breyst mikid med tilkomu nýju flug- stödvarinnar? „Nei, í raun eru aðstæðurnar mik- ið til þær sömu fyrir þá Bandaríkja- menn sem hér eru. Vitaskuld hefur bílaumferð minnkað talsvert, en það hefur þó ekki mjög mikla þýð- ingu. Það sem tala má um sem helsta muninn er, að við getum nú búið við aukið hernaðarlegt öryggi og þó hermdarverkastarfsemi og annað slíkt hafi ekki verið vanda- mál á íslandi getum við ekki annað en viðurkennt að slíkt getur átt sér stað hvar sem er í heiminum. Afleið- ingin er ánægjuiega sú, að við und- irrituðum fyrir fáeinum dögum samkomulag sem heimilar að hvor- ir tveggja Islendingar og Banda- ríkjamenn manni vallarhliðin. Við undirrituðum þetta samkomulag, ég og Þorsteinn Ingólfsson, for- stöðumaður Varnarmáladeildar, að mig minnir 25. febrúar og ég hygg að það komi til framkvæmda fljót- lega. Nú getum við verið öruggari um það en áður, að Bandaríkja- menn geti fylgst með því sem þeim ber og Islendingar með því sem þeir þekkja betur til sem hugsanlegra hættumerkja. Nú verða við hliðin einn íslendingur og einn Banda- ríkjamaður, en ekki tveir islenskir lögregluþjónar. Breytingar þessar auka á hernaðarlegt öryggi her- 40 HELGARPÓSTURINN stöðvarinnar og m innka áhættuna á að um einhvers konar ógnun verði að ræða gagnvart hinum rándýru flugvélum og tækjum, frá fólki sem ekki hefur heimild til að vera hér.“ Hefur eitthvad borid á góma sem bendir til þess ad aukin hœtta sé á hermdarverkum? „Nei, svo er ekki, en vegna at- burða um heim allan höfum við komist að þeirri niðurstöðu að hvers kyns hernaðarleg aðstaða, sérstak- lega þó bandarísk, gæti orðið fyrir árásum hermdarverkamanna. Ég er alls ekki að gefa í skyn að slíkir hermdarverkamenn geti verið ís- lenskir, þeir geta komið hvaðanæva til landsins og leitast við að komast á völlinn." Ratsjárstöðvarnar eiga á friðar- tímum að vera e.k. augu og eyru til að fylgjast með sovéskri flugumferð og annarri. Breytist þetta hlutverk að einhverju leyti ef til stríðsátaka kemur? „Undir hvers kyns kringumstæð- um sem leitt gætu til átaka eiga stöðvar þessar að greina flugvélar sem nálgast landið, í samfloti með AWACS-flugvélunum. Nú erum við þannig með tvöfalt lag varna. Upp- lýsingarnar frá þessum stöðvum gera okkur kleift að senda orrustu- vélar á vettvang, til að hindra ferðir þessara flugvéla og bera kennsl á þær. Ef um stríðstíma væri að ræða myndi þetta gera F-15 eða öðrum orrustuflugvélum okkar kleift, væri um óvinaflugvélar að ræða, að skjóta þær niður, vonandi áður en þær gætu hleypt af fiugskeytum sín- um, komist yfir landið til að varpa sprengjum eða framkvæmt annað eftir þessu. Þetta er hlutverk ratsjár- stöðvanna í hnotskurn." Aí þessu leiðir vœntanlega að ratsjárstöðvarnar yrðu sérstök skot- mörk í stríði — e f við snúum hlut- unum aðeins viö: Myndir þú telja það nauðsynlegt í stríöi aö sprengja þœr í loft upp? „Ég tel vissulega að óvinur myndi reyna að eyðileggja stöðvarnar. Mér dettur ekki í hug að halda því fram að ekki yrði gerð tilraun af óvinin- um til að eyðileggja hernaðarlega mikilvæg mannvirki á íslandi, hvort heldur er herstöðin sjálf eða ratsjár- stöðvarnar. Hins vegar held ég að nauðsynlegt sé að spyrja hvert sé gildi fyrirbyggjandi aðgerða, sem hindra óvini í að telja að þeir geti ráðist á og hertekið Island — með því að hafa varnir landsins tilhlýði- legar. Að sjálfsögðu myndum við leitast við að verja ratsjárstöðvarnar fyrir árásum óvina, en á hinn bóg- inn tel ég hlutverk ratsjárstöðvanna það, að aftra óvini frá því að íhuga nokkurn tíma árás á landið, af því að það yrði honum sjálfum of kostn- aðarsamt." Þú ert þá um leið að segja, að með þessum stöðvum og annarri upp- byggingu Varnarliðsins á síðustu ár- um sé það í miklu betri aðstöðu til að verja landiö, kœmi til kjarnorku- árásar eða árásar með hefðbundn- um vopnum? „Já, mun betri. Okkur hefur tekist að senda hingað okkar bestu kaf- bátaleitarflugvélar og flugvélar til að greina og skjóta niður í varnar- skyni óvinavélar. F-15-orrustuvél- arnar eru einhverjar þær nútíma- legustu í heiminum og viðkomandi flugsveit, sem kallar sig „Svörtu riddarana" hefur verið valin besta flugsveit sinnar tegundar í banda- ríska flughernum. í maí eða júní verða að líkindum hátíðahöid hér, þar sem verðlaunaveiting fer fram. Einnig mun flugsveitin verða full- trúi 1. flughersins í október, í sér- stakri keppni í Bandaríkjunum með virkum flugskeytum og fleira. Bæði Bandaríkin og Holland hafa þannig afráðið að hafa hér sínar fulíkomn- ustu flugvélar. En við höfum haft gamlar ratsjár og gamlar stjórn- stöðvar og þetta er það sem við er- um nú að byggja á jörðu niðri til að stemma við þær flugvélar sem við höfum í loftinu. Þetta er gert, já, til að mæta hinni sovésku ógnun, en einnig vegna þess að hlutir sem byggðir voru á sjötta áratugnum eru ekki lengur nægilega nútímalegir til að ráða við ástandið í dag. Þeir eru úreltir, gamaldags, mannaflafrekir og hæggengir. Því verðum við nú í mun betri aðstöðu til að verja ís- land. Og ég verð að bæta við, að við erum einnig í mun betri aðstöðu hvað varðar landvarnirnar með því að geta gripið til Army-Iceland-vara- liðssveitanna, sem yrðu kvaddar til landsins ef til átaka kæmi." Hvað hefur verið ákveðið um notkun þessara ratsjárstöðva með tilliti til tslenskrar flug- og sjóum- feröar? „Upplýsingar úr öllum þessum fjórum ratsjárstöðvum verða til reiðu vegna „borgaralegrar" flug- umferðar Islands. Hvað sjóumferð varðar þá veit ég til þess að það stendur til að koma fyrir skiparatsjá í stöðinni við Bolungarvík, fyrsta kastið. Væntingarnar eru þær að þegar flugvélaratsjá er komin í gagnið snúi menn sér að skiparat- sjánni, en þarna á milli eru þó mörg þrep og mjög tæknileg útfærsla. En þetta er sem sagt áætlunin og vænt- anlega koma síðan, í ljósi reynslunn- ar, sams konar tæki í stöðina á Gunnólfsvíkurfjall á Langanesi. Hins vegar er notagildi slíkra tækja á stöðvunum á sunnanverðu landinu umdeilanlegt, vegna þess hversu þær liggja lágt. En þetta vandamál er til umræðu og er óútkljáð sem stendur." Sjálfar ratsjárstöðvarnar verða mannaðar Islendingum, en stjórn- stöðin Bandaríkjamönnum. Islend- ingarnir verða ekki virkir í sjálfri upplýsingaöfluninni og túlkuninni, en höfðu Bandaríkjamenn eitthvaö á móti því að Islendingar mönnuðu þessar stöðvar? „Nei, við vildum að það yrðu ís- lendingar. Meðal annars vegna þess að þetta eru fremur afskekktir staðir og við vildum síður þurfa að hafa fá- mennt lið Bandaríkjamanna þarna með þeim vandamálum sem slíkt kynni að hafa í för með sér. Upplýs- ingarnar koma sjálfkrafa í miðstöð hér á vellinum og það er að mínu mati í hag beggja þjóða að hafa þetta svona. Ég hygg að Islendingar fagni auknum atvinnutækifærum samhliða þessu og þeirri sérþekk- ingu sem fæst við að vinna við þessi tæki. Þessi þekking mun nýtast al- mennt séð í landinu." I viðtali okkar við Steingrím Hermannsson fyrir nokkrum vikum virtist utanríkisráðherran vera á báðum áttum um eignarhaldið á þessum stöðvum og tœkjum ef ein- hvern tímann skyldi koma að því að herinn fœri og ísland yfirgœfi Atlantshafsbandalagið. Hver er þín skoðun á þessu? „Ég hef satt að segja ekki kynnt mér þetta sérstaklega, en veit til þess að sérstaklega er kveðið á um slíka hluti í varnarsamningnum. Sem yfirmaður heraflans hér hef ég ekki einu sinni talið mig þurfa að hugleiða þetta, því ég tel það vera afar fjarlægan möguleika að til þessa muni koma. Steingrímur sagði fyrst í þessu viðtali að hann væri ekki viss um hvernig tekið væri á þessu í varnarsamningnum, en sagði síðar að hann yrði ekkert undrandi á því þó ratsjárnar yrðu fjarlægðar. En ég skal ekki segja til um þetta, ég hygg að þetta yrði sam- komulagsatriði. Ég veit ekki hvort ég hef fyrir því að fletta þessu upp, því að möguleikinn á því að ísland gangi úr Atlantshafsbandalaginu dvelur ekki lengi í mínum huga. Ég missi engan svefn vegna þessa möguleika!"

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.