Helgarpósturinn - 10.03.1988, Síða 42
„Þessir karlar gætu áreiöanlega
ekki náð þeim afköstum sem við
þurfum að ná í fiskinum."
Klara Sigurðardóttir fiskvinnslukona
(32Æ00).
„Ég hef ekkert um þetta öfundar-
nagg ykkar snápanna að segja."
Ragnar Halldórsson forstjóri ÍSAL
(473.000).
„Þetta er bara fyrsta hundraðið."
Jón Gröndal umsjónarmaður tónlistar-
krossgátu rásar 2.
„Ég hef ekki kailað til vitni þegar ég
hef rætt við mína undirmenn. Það
ríkir hér allt annað ástand en þegar
við fengum vinnusálfræðing til að
vinna með okkur..."
Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri
Bifreiðaeftirlits ríkisins.
„Þetta var nú ósköp elskuleg sam-
koma og fór allt vel fram."
Thor Vilhjálmsson rithöfundur í tilfefni af
veitingu bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs.
Haukur Margeirsson, Guðfinna Svavarsdóttir, Brynja Nordquist, Friðþjófur
Helgason Ijósmyndari og Erla Haraldsdóttir, formaður Danskennarasambands
fslands, voru meðal gesta.
Því miður höfum við
ekki nafnið á frúnni
sem horfir brosandi á
Steinunni Benedikts-
dóttur, sýningarstúlku
og bankastarfsmann,
en sjálfsagt hafa þær
verið truflaðar í
skemmtilegum
samræðuml
Halldór Einarsson í Henson og Baldvin Jónsson halda hér utan um spænsk-
klæddan og -greiddan þjóninn Ingó á Naustinu. Þeir tveir fyrrnefndu krýndu
síðar um kvöldið Fröken Tangó, en trtillinn féll Jönu í skaut og dansaði hin ný-
krýnda tangódrottning eldheitan tangó við Dóra í Henson.
KROSSPOLITISK SMAGATA
LÁRÉTT
1 Keppikefli kennara
4 Staöur fyrir kú
6 Fékk hátt kaup í
Ameríku
8 Ekki hvort tveggja
10 ???nlega
11 Apríl
13 Eins og Hófí
14 Bjó til kvæði
16 Hnokkar
LÓÐRÉTT
2 Æðstur
3 Sprikl
4 Þrætuepli þingmanna
5 Nærist
6 Hann var rekinn
7 Hvar voru samning-
arnir samþykktir?
9 Útrýma
12 Löglegur vímugjafi
15 Hvert koma skip?
„Enginn er ég aðdáandi Sam-
bands íslenskra samvinnu-
iélaga.##
Ellert B. Scnram ritstjóri DV.
„Sennilega hafa fáir menn unnið
jafn-ötullega að samþykkt (bjór)
frumvarpsins og þeir félagar Sverr-
ir Hermannsson og Ólafur Þóröar-
son."
Jón Magnússon lögmaður.
„Gamall nemandi minn og ástsæll
borgarstjóri Reykjavíkur vandar
mér ekki kveðjurnar... og loks á ég
að vera vanhæfur í ráðhúsmálinu
vegna skoðana minna, jafnvel van-
hæfur til að fjalla um Hafskipsmál-
ið... þessi aukaatriði flokkast undir
pex og gamla skólastæla borgar-
stjórans í stúdentapólftíkinni..."
Jónatan Þórmundsson lagaprófessor.
„Maður ber sér ekki á brjóst vegna
sigurs í einu móti."
Jón L. Árnason stórmeistari.
„Stærstu mistök mín á frétta-
mannsferlinum voru þegar ég til-
kynnti jafntefli hjá Jóhanni sem var
með unna skák."
Hallur Hallsson fréttamaður.
„Ríkið ætlar að skera niður í lyfja-
kostnaði. Þetta er bara píp. Þeir
ráða ekkert við það. Þeir geta eins
ákveðið að hér verði engin rigning í
maí."
Davíö Oddsson borgarstjóri.
Snúlla og Jana í essinu sínu. Það mátti ekki minna vera en hafa sokkaband,
enda spurning um tilfinningahita þegar tangó er við völd. Sá sem hallar sér
upp að Snúllu er Herra ísland 198% Arnór Diego.
Þad var hressandi tónlist sem réö ríkjum í Naustinu á föstudagskvöldiö.
Veitingastjórar Naustsins, Jana og Snúlla, tóku sig til og héldu argentínskt
tangókvöld, þangaö sem boöiö var öllu hressasta fólkinu sem þœr mundu
eftir. Snúlla skreyttisalinn hátt og lágt í tangóstíl og gestir höfdu verid beönir
ad mceta í fatnabi sem minnti á tangóárin. Gestirnir létu sitt ekki eftir liggja,
menn dönsubu aftilfinningu fram á nótt og mun þab hafa verib síbasta lof-
orb manna þá nóttina ab endurtaka vibburb sem þennan hib snarasta. Jim
Smart mœtti á tangókvöldib, ab vísu ekki klœddur ab spœnskum hœtti, og
tók myndir af abdáendum dansins. Hemmi Gunn hélt opnunarrœbu þar
sem saga tangósins var rakin, en tangó var upphaflega þrœladans sem þró-
abist út í ab þykja ofdjarfur og endabi meb ab bannab var ab dansa hann
opinberlega. Hermann bab gesti ab veita tilfinningunum útrás í tangódansi
þetta kvöld á þann hátt ab íslendingar yrbu hér eftir þekktir sem ein afblób-
heitari þjóbum. Og fólk lét ekki segja sér þab tvisvar! — AKM.
„Eg tel aö þessi Garöastrœtisrómantík, sem
veröur ad hœtta, hafi byrjad meö Presti
Olafssyni. Hann er að vísu mjög hœfur
maður en ég tel hann mikinn kapítalista.“
AÖalheiður Bjarnfreösdóttir alþingismaður.
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 11.-13. MARZ
Líf þitt virðist sveipað ævintýraljóma
þessa dagana. Það greiðist úr erfiðleikum í
peningamálunum þegar þú faerð grænt Ijós
á að framkvæma eitthvað sem þú hefur
lengi barist fyrir. Þótt eitthvað verði til að
tefja þig í fyrstu geturðu verið viss um að ná
markinu.
NAUTIÐ (21/4-21/51
Eitthvað dularfullt virðist á seyði þessa
dagana. Umræður m eð fjölskyldunni leiðast
inn á brautir fjármála, en þú skalt gæta þess
að láta ekki plata þig til að eyða í hluti sem
þú kærir þig ekkert um að fjárfesta í. Vertu á
verði. Mundu að halda leyndarmálum þín-
um fyrir sjálfan þig en gakktu samt sem áður
hreint til verks.
WÁm.i.vm-.im&mwm
Það er orðið tímabært að rjúfa böndin við
fortíðina. Svara við spurningum þínum er að
leita á þeim stöðum sem þig síst grunar. Þú
laðast að einhverjum sem kann ekkert að
gefa, aðeins þiggja. Breyttu því ef þú sérð
þér færi ál Krefstu svara og láttu ekki leiða
þig inn á krossgötur.
KRABBINN (22/6-20/71
Láttu lítið fara fyrir þér á vinnustað,
leggðu við hlustir en segðu sem minnst.
Mundu að reynslan er dýrmætari en orða-
gjálfur. Einhver sem hefur reynt að hindra
þig er nú kominn út úr myndinni og þú getur
gert það sem þér sýnist. Listrænir hæfileikar
njóta sín og þú sýnir nú hvað í þér býr.
LJÓNIÐ (21 /7—23/8]
Þegar þú uppgötvar hvaða leiðir þú þarft
að velja til að ná athygli gengur allt upp sem
þú óskar eftir. Láttu ekki hrekja þig úr þvi
verkefni sem þú ert að vinna að þótt einhver
sækist eftir starfinu. Slakaðu á með fjöl-
skyldunni um helgina, láttu heimilið hafa
forgang og njóttu þess að vera heima.
MEYJAN (24/8—23/9]
Nýjar hugmyndir leiða þig á vit róman-
tískrá ævintýra. Pereónan sem þú kynnist
virðist heillast af leiksviði lífsins, tilbreyting
frá þeirri pereónu sem hefur hallað sér upp
að þér eins og stólpa síðustu mánuðina.
Manneskja í erfiðleikum vill að þú sýnir í
verki að þér sé ekki sama um hana. Sam-
kvæmi þar sem þú hittir fjölskyldumeðlimi
kemur þér skemmtilega á óvart.
VOGIN (24/9-22/10)
Slakaðu nú á og taktu ekki nærri þér þótt
einhver gagnrýni þig. Líklega er það bara
viðkvæmni þín sem veldur því að málin
virðast ógnvænlegri en þau í rauninni eru.
Kímnigáfan getur bjargað þér nú sem fyrr,
einkum þegar fjölskyldumeðlimur reynir að
æsa þig upp. Hættu að tala um hvað þig
langar til að gera og framkvæmdu heldur.
SPOROPREKINN (23/10—22/11
Þótt þú fáir óvænt gylliboð nú um helgina
skaltu ekki láta það rugla þig í ríminu.
Mundu að ekki er allt sem sýnist og þótt þú
lendirí umræðumsem virðast undirbúnaraf
gaumgæfni er ekki þar með sagt að draum-
arnir geti nokkurn tíma ræst. Rómantíkin
gefur þér hins vegar tilefni til að líta björtum
augum til framtíðarinnar.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12!
Haltu þínu striki hvað sem á gengur og
láttu engan hindra þig í að ná settu marki. Þú
færð boð um að mæta til veislu með litlum
fyrirvara og aldrei slíku vant sérðu þér fært
að komast. Taktu þátt í samræðum og hlust-
aðu vel eftir því sem sagt er, því aðeins
þannig geturðu fengið hugmyndir.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Þú skiptir skyndilega um skoðun á mál-
efnum sem þú hefur hingað til verið hrifinn
af. Ræddu út um málin og léttu á hjarta þínu
við þann sem þú treystir. Þrjósk manneskja
leynist meöal þinna nánustu, en ef þú lætur
skapið ekki hlaupa með þig i gönur geturðu
fengið hana til að hætta við fyrri áform. Var-
astu að falla í sjálfsmeðaumkun, aðrir þurfa
á því að halda að þú sýnir þeim stuðning.
^: h h 1:1: in'Ti'wi' in—
Þú verður að fara að læra að axla ábyrgð
og varpa henni ekki sífellt á herðar annarra.
Vertu einn með sjálfum þér einhvern hluta
helgarinnar og reyndu að komast til botns í
málefnum sem hafa valdið þér áhyggjum.
Þetta er ekki rétti tíminn til að berjast áfram
til sigure. Áhugi þinn á ákveðnum málefnum
vaknar fyrir tilstilli einhvere sem þú hefur lít-
ið sinnt að undanförnu.
FISKARNIR (20/2-20/31
Yfirmaður þinn tekur upp á því að gefa
skipanirsem rugla þig í ríminu. Fáðu útskýr-
ingar strax, áður en málin stefna í algjöran
ólestur. Þú hittir einhvern, sem þú getur
treyst, til að segja frá á hyggjum þínum. Hug-
myndir þínar um rómantík virðast með
óljósu móti og þú virðist ekki vita hvað þú
vilt. Dyr sem áður voru þér lokaðar munu
Ijúkast upp og líklega verður þar eldri
pereóna að verki.
42 HELGARPÓSTURINN