Helgarpósturinn - 10.03.1988, Síða 43
I yrrum viðskiptaráðherra,
Matthías Bjarnason, skipaði á sín-
um tíma þá Gunnlaug Sigmunds-
son hjá Þróunarfélaginu og Baldur
Guðlaugsson, lögfræðing m.m., í
sérstaka nefnd sem hafði það verk-
efni að beita sér fyrir samvinnu og
hagræðingu í rekstri milli Lands-
banka og Búnaðarbanka. Nefnd-
arskipun þessi kom til í kjölfar þess
að tilraunir til að sameina Útvegs-
banka, Verslunarbanka og Iðn-
aðarbanka runnu út í sandinn, en
báðir félagarnir höfðu setið í nefnd-
inni sem átti að reyna að koma því
máli í höfn. Tvíeykið hefur hins veg-
ar ekki lokið störfum og á reyndar í
mestu vandræðum með að skila
nokkru af sér. Ástæðan er sú, eins
og áður hefur verið skýrt frá í HP, að
Baldur Guðlaugsson settist í banka-
ráð hins nýja Utvegsbanka og eðli-
lega lokuðu bæði Búnaðarbanki og
Landsbanki á allt upplýsingastreymi
tit nefndarinnar, enda ófært að
hleypa innsta koppi í búri sam-
keppnisbanka í öll helgustu vé. Þó
þetta sé nú sennilega ekki eina
ástæðan fyrir því að stórbankarnir
tveir hafa ekki sameinast lærir Bald-
ur kannski af þessu að það borgar
sig ekki að reyna að þjóna tveimur
herrum samtímis. . .
Eitt af skyndihappdrættun-
um sem nú njóta vinsælda er hinn
svokallaði Ferðaþristur en félagið
sem stendur að honum er Ung-
mennafélag Hveragerðis. Þristur-
inn mun hafa gengið ágætlega, af
250.000 miðum hafa vel yfir
200.000 verið seldir. Vinning-
arnir eru heldur ekki slorlegir,
samtals 513 ferðavinningar. Þar
af eru 11 ferðir til Bangkok, 20 til
Bandaríkjanna, 90 til Evrópu og
392 hér innanlands. Brúttóhagnað-
ur ungmennafélagsins af öllum mið-
unum seldum er 11.125 milljónir
en verðmæti vinninga er yfir 6
milljónir. Það sem aftur á móti er
athyglisvert í málinu er að innan við
helmingur vinninganna hefur
gengið út enn sem komið er.
Greinilega langar fæsta til Banda-
ríkjanna, ekki nema þriðjungur
þeirra ferða genginn út. Menn
hljóta í þessu samhengi að velta fyr-
ir sér hvort miðarnir séu of flóknir,
landinn sé svo illa gefinn að hann
skilji ekki hvenær hann hljóti vinn-
ing og hendi miðanum eða menn
finna einhverjar allt aðrar skýringar
á þessu...
að hefur ekki farið fram hjá
neinum sem fylgist með íslenskri
knattspyrnu að nú er uppi önnur tíð
varðandi félagaskipti leikmanna en
áður var. Eftir því sem HP heyrir eru
það næsta ótrúlegar upphæðir sem
borgaðar eru fyrir góðan leikmann.
Leikmaður í ólympíuliðinu getur til
dæmis átt von á tilboði upp á hálfa
milljón króna auk ýmissa fríðinda,
en A-landsliðsmaður getur kostað
tvöfalt það verð og þeir bestu enn
meira. Hér er verið að tala um
greiðslur fyrir eitt keppnistímabil,
án frekari skuldbindinga. Og nýr
angi þessa máls hefur gert vart við
sig að undanförriu. Þeir leikmenn
sem fá tilboð frá öðrum félögum
kanna málið, fara heim aftur og
segja sem svo: Ég get fengið þetta
mikið hjá þessu félagi, hvað viljið
þið bjóða? Það þarf ekki að taka það
fram að orðin félagsandi og -holl-
usta er búið að strika úr orðabókum
íslenskrar knattspyrnu og áhuga-
mennskan hjóm eitt. Þess má og
geta að það eru ekki lengur bara fé-
lögin sem falast eftir leikmönnum
heldur og ekki síður stuðningsmenn
þeirra sem margir eru, óbeðnir, til-
búnir að leggja fram stórar fjárfúlg-
ur til að tryggja félagi sínu snjalla
leikmenn og eftir því sem HP heyrir
eiga þeir jafnvel frumkvæðið að við-
ræðum við leikmenn oft á tíðum...
í Limasol á suðurströnd Kýpur er
fjölskrúðugt mannlíf, jafnt að nóttu
sem degi. Það er því engin tilviljun
að æ fleiri af yngri kynslóðinni telja
Kýpur einn skemmtilegasta sumar-
leyfisstaðinn við Miðjarðarhafið.
2-3 vikur, áætlunarflug um
Amsterdam, íslenskur fararstjóri.
Verð frá 40.916 kr.*
4 í fbúð 48.336 kr.
2 í íbúð 51.516 kr.
FERDASKRIFSTOFAN
NY
CDIIIAEIJCC
Wr I WmJ !■ I I ■
TOLLALÆKKUN
ALLT AÐ 40% AFSLÁTTUR
Um síðustu áramót féllu niður tollar á rafmagnsvörum
og hljómplötum. Þegar hressilegur afsláttur
Sljömubœjar kemur til viðbótar fara verðin að minna á
Fríhöfnina í Keflavík.
VERÐDÆMI
Hljómtækjasamstæða m/geislaspilara
Litasjónvörp
M L*
Cieislaspilarar
Kaffivélar
kr. 19.995
kr. 12.900
20" litasjónvarp
kr. 28.995
kr. 1.395
Sfmar
kr. 2.200
Brauðristar
Snlkeraofn
kr. 5.900
kr. 1.590
Espressó-kaffivólar
Electrolux-ísskápar
kr. 16.900
Myndbandstæki m/fjarst.
kr. 29.995
^AEG^ro^yksugm^f'^
RowsntcTgufustroujár^^\
Tvöfalt kassettuferðatæki
kr. 5.900
Vasadiskó
Sennheiser-hágæðaheyrnartól
Rakvélar
kr. 995
1000 w AEG-ryksuaa
Sendum í póstkröfu
kr. 7.690
Stjörnubær
EIÐISTORGI SÍMI 611120
HELGAR PÓSTURINN 43