Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 10.03.1988, Qupperneq 47

Helgarpósturinn - 10.03.1988, Qupperneq 47
FRÉTTAPÓSTUR Kjaramál Vinnuveitendasamband íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna hafa tekið ákvörðun um að vísa samn- ingamálum þeirra verkalýðsfélaga er felldu kjarasamning þann, sem vinnuveitendur gerðu við Verkamannasamband- ið, til ríkissáttasemjara. Ljóst er að fjöldi verkalýðsfólaga vildi semja við vinnuveitendur heima í héraði en ekki hjá sáttasemjara í Reykjavík og hefur ákvörðun þessi því mælst miður vel fyrir hjá verkalýðsfélögunum. Þannig höfðu fé- lögin á Austurlandi falið Alþýðusambandi Austurlands að fara með samningsumboð fyrir sina hönd. Nokkuð er því óljóst hvernig staðið verður að samningaumleitunum. Verkakonur i verkakvennafélaginu Snót í Vestmannaeyjum hafa verið í verkfalli frá þvi á laugardag. Það hefur nú lamað allt atvinnulíf í Eyjum. Verkalýðs- og sjómannafélag Vest- mannaeyja hefur boðað yfirvinnubann frá og með 15. mars. Verkakvennafélagið Framsókn í Reykjavík hefur boðað yfirvinnubann í Granda hf. frá og með næsta miðvikudegi en félagið haf ði þegar vísað samningamálum sínum til sátta- semjara. Meiri kjaramál Kennarasamband íslands og Hið íslenska kennarafélag hafa ákveðið að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu í félögun- um um hvort boða skuli verkfall. Ef af verkfallsboðun verð- ur og samningar nást ekki myndi verkfallið að öllum líkind- um koma til framkvæmda 11. apríl. Það myndi ná til um 3.200 kennara í grunn- og framhaldsskólum og lama kennslu þar algerlega. Kennarar telja að kröfur þær sem þeir vilja knýja á um séu byggðar á loforðum stjórnvalda um bætt kjör og starfsskilyrði kennara. Enn af kjaramálum Sjómannasamband íslands hefur hvatt aðildarfélög sín til þess að segja upp gildandi kjarasamningum við útgerðar- menn. Er það gert vegna óánægju sjómanna með þá ákvörð- un Verðlagsráðs sjávarútvegsins að fiskverð haldist óbreytt fram til loka maímánaðar. Óbreytt fiskverð hefur það í för með sér að laun sjómanna standa í'stað. Forystumenn þeirra telja meðferð málsins í ráðinu skrípaleik og ásaka stjórnvöld fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun fyrirfram en oddamaður ráðsins, Þórður Friðjónsson, er skipaður af stjórnvöldum. Fréttapunktar • Síðdegis á þriðjudag setti niður nokkurn snjó á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Má ætla að nærfellt 100 árekstrar hafi orðið í bænum þennan dag, langflestir í hálkunni seinnipart dags. • Jón Loftur Arnason varð sigurvegari á Reykjavíkurskák- mótinu sem lauk á sunnudag, hlaut 8V6 vinning af H mögu- legum. í öðru sæti með 8 vinninga varð ungur Grikki, Kotronias, sem kom verulega á óvart. Hannes Hlífar Stefáns- son náði sér í annan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á mótinu. • Á þriðjudag fór fram í skiptarétti munnlegur málflutn- ingur í máli manns sem freistar þess að fá ógilt loforð um hlutaf járaukningu í skipafélaginu Hafskip. Maðurinn held- ur því fram að hann hafi keypt hlutabréfin á fölskum for- sendum vegna þess að forráðamenn félagsins hafí vísvitandi gefið rangar upplýsingar um fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Fleiri mál af þessum rótum runnin munu verða flutt fyrir skiptarétti á næstunni. • Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, sem haldinn var síðasta laugardag, felldi með miklum meiri- hluta lagabreytingartiUögu þess efnis að félagar sem ganga úr félaginu og stofna nýtt geti tekið með sér hluta af eignum starfsmannafélagsins. • Jóhannes Páll páfi II heimsækir ísland í fyrrihluta júní- mánaðar á næsta ári. Heimsóknin er liður í för páfa til allra Norðurlandanna og mun hann líklega dvelja hér nætur- langt og taka þátt í kirkjulegri athöfn. Heimsókninni hafa verið valin einkunnarorð úr Markúsarguðspjalli: „Predikið fagnaðarerindið öllu mannkyni." • Danska flutningaskipið Kongsaa hefur verið kyrrsett hér á landi þar til lögð hefur verið fram 20 milljóna króna, bankatrygging útgerðarfélags skipsins vegna tjóns og björg- unarlauna Stálvíkurinnar. Skipin tvö lentu sem kunnugt er í árekstri er Stálvíkin var að bjarga danska skipinu sem var vélarvana. • Lögreglufélag Reykjavíkur hefur krafið Ríkissjónvarpið um afsökunarbeiðni vegna þáttarins um mann vikunnar 27. febrúar. Þar var rætt við Eskfirðinginn sem tvíhand- leggsbrotnaði í meðförum lögreglunnar nú nýlega. Að mati lögreglufélagsins var þar vegið vægðarlaust að æru heillar stéttar opinberra starfsmanna. • Það bar til tíðinda á síðasta fundi borgarstjórnar Reykja- víkur að 5 fulltrúar minnihlutans gengu af fundi til þess að mótmæla því að ákveðið var að ganga til samstarfs við ístak um fyrsta hluta ráðhúsbyggingar við Tjörnina. Með samn- ingunum töldu þeir að kynning á ráðhúsinu, sem stendur yfir, væri dæmd ómerk. • íslendingar á þingi Norðurlandaráðs sem stendur yfir i Osló eru 50 að tölu og kostnaður við dvöl þeirra um 1,8 millj- ónir. Þar af eru 5 ráðherrar og 7 þingmenn. Alls sækja um eitt þúsund manns þingið. • Thor Vilhjálmsson rithöfundur tók á þriðjudagskvöldið við bókmenntaverðlaunum N orðurlandaráðs fyrir ritverkið „Grámosinn glóir”. Thor er þriðji íslendingurinn sem hlýt- ur þessi verðlaun. VALUR UMFN ÚRVALSDEILD KARLA SUNNUDAGUR 13. MARS '88 KL. 20.00 KÖRFUBOLTI Á HLÍÐARENDA Hverfisgötu 33. sími: 62-37-37 Akureyri: Tölvutæki - Bókval Kaupvangsstræti 4, simi: 26100 tölvupreiifarar Tölvuprentarar frá STAR styðja þig í starfi. Þeir eru | áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrval vandaðra leturgerða. í STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum og öðrum sambærilegum. ý ; Leitin þarf ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf. eigum við ekki aðeins rétta prentarann, heldur einnig góð ráð. Nú er tíminntil aðfullkomnatölvuumhverfiðmeðgóðumprentara. Verð frá 23.500 - og við bjóðum þér góð kjör. 'V SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. HELGARPÓSTURINN 47

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.