Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 Bikarmót SKÍ í alpagreinum: Sigurður H. Jónsson farinn að keppa aftur og sigraði með miklum yfirburðum á Húsavík UM HELGINA var haldid bikarmót í aljiagreinum á Húsavík. A laugardaginn var keppt í stór svigi í biíðskapar veðri. Meðal kepp- enda í karlaflokki var Sigurður H. Jónsson, ísafirði, og sýndi hann þarna að hann hefur engu gleymt þetta rúma ár sem hann hefur ekki keppt. Sigraði hann stórsvigið með nokkrum yfírburðum. í kvennaflokki var um einvígi milli Nönnu Leifsdóttur Ak. og Tinnu Traustadóttur Ak. að ræða og lyktaði því með því að Tinna vann Nönnu með tæplega sekúndu mun. Seinni daginn var keppt í svigi. I karlaflokki sigraði Siggi Jóns með nokkrum yfirburðum. Eftir fyrri ferðina voru þeir nokk- uð jafnir hann og Guðmundur Jó- hannsson, ísafirði, en í seinni ferðinni tók Sigurður þá gjörsam- lega í kennslustund og varð þá rúmum 2 sek. á undan næsta manni. Annar varð Guðmundur Jóhannsson, Isafirði. Af 20 kepp- endum luku aðeins 7 keppni. Eftir fyrri umferð í kvenna- flokki voru þær nokkuð jafnar, Tinna og Nanna, en Hólmdís Jón; asdóttir, Húsavik, varð þriðja. í seinni ferðinni hlekktist þeim Nönnu og Tinnu á og urðu úr leik. Hólmdís Jónasdóttir „keyrði" seinni ferðina hinsvegar af miklu ðryggi og sigraði. ? i Úrslit mótsins: Stórsvig Karlar: 1. SÍL'uróur II. Jónsson, í. 2. (iuómundur Jóhannsson, í. 3. Olafur llarðarson, A. 4. Bjarni Th. Kjarnason, A. 5. Kinar Valur Kristjánsson, í. Konur: 1. Tinna Traustadóttir, A. 2. Nanna H. Leifsdóttir, A. 3. Kristín Símonardóttir, D. 4. (iuórún II. Kristjánsdóttir, A. 5. In(;i(rerdur Júlíusdóttir, D. Svi'k: Karlar: 1. Sigurður II. Jónsson, í. 2. (iuðmundur Jóhannsson, í. 3. Klías Bjarnason, A. 4. Bjarni Bjarnason, A. 5. Kinar Valur Kristjánsson, í. Konur: 1. Hólmdís Jónasdóttir, II. 2. Ingigerður Júlíusdóttir, D. 3. Kristín Símonardóttir, D. 4. (iuðrún H. Kristjánsdóttir, A. 5. (iuðrún Björnsdóttir, K. AFMÆLISMÓT JSÍ v»r í íþrótU- húsi Kennaraháskólans sunnud. 31. janúar. Úrslit urðu sem hér segir: Opinn flokkur karla 1. Sigurður Hauksson UMFK. 2. Bjarni.Friðriksson Árm. 3. Kolbeinn Gíslason Árm. Sigurður barðist af miklum krafti í öllum sinum viðureignum og vann þær allar. Flestir munu hafa spáð Bjarna sigri, en hin ákafa sókn Sigurðar virtist koma honum í opna skjöldu og brást hann ekki við af nógu öryggi. Stig- in voru jöfn, en dómarar úrskurð- uðu Sigurð sigurvegara. Styrkstig móLsins 2,17. 1. ferð 2. ferð Samtals 75,69 76,88 152,57 76,67 76,75 153,42 77,55 77,73 155,28 77,38 79,94 157,32 78,05 80,17 158,22 Styrkstig móLsins 0,00. 50,88 53,67 104,55 52,61 52,89 105,50 59,62 56,69 116,31 54,13 66,19 120,32 53,73 73,37 127,10 Styrkstig mótsins 18,50 1. ferð 2. ferð Samtals: 44,74 40,43 85,17 44,93 42,72 87,65 46,03 42,53 88,56 45,94 43,40 89,34 46,73 43,54 90,27 Styrkstig mótsins 42,06 43,45 38,12 81,57 45,14 38,05 83,19 44,52 39,40 22,14 45,45 38,97 84,42 45,77 40,42 86,19 Unglingar 15—17 ára + 75 kg 1. Valbjörn Höskuldsson Árm. 2. Gunnar Rúnarsson Breiðabl. 3. Óskar Þorgrímsson Árm. + 75 kg 1. Hilmar Bjarnason Árm. 2. Sævar Kristjánsson Gerplu. 3. Davíð Arngrímsson Árm. + 65 kg 1. Sig. Kristmundsson UMFG. 2. Karel Halldórsson Árm. 3. Rögnvaldur Guðm. Gerplu. Vel heppnaö afmælismót í judo: Bjarni tapaði óvænt í opna flokknum - Margrét sigraöi í kvennaflokki # Opinn flokkur kvenna 1. Margrét Þráinsdottir Árm. 2. Eygló Sigurðardóttir Árm. 3. Kristín Hassing Árm. + 60 kg 1. Gunnar Jónasson Gerplu. 2. Jón Egilsson Gerplu. 3. Guðm. Sigurjónsson UMFK. • Þrír efstu í opnum flokki karla á afmælismóti JSÍ sem fram fór um síðustu helgi í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Sigurvegarinn Sigurður Hauksson, IBK, er fyrir miðju, Bjarni Friðriksson, Ármanni, sem varð annar er til vinstri og Kolbeinn Gíslason, Ármanni, er varð þriðji er lengst til hægri. Ljósm. I*órarinn Kagnarsson Hess sigursæl SÆNSKI skíðagarpurinn varð um helgina fyrir þeirri óþægilegu reynslu, að einhver vitfírringur sendi honum morðhótanir með sendibréfí. Stenmark er í Austurríki um þessar mundir þar sem hann tekur þátt í heimsbikarkeppninni á skíðum. Bréfíð lýsti ekki nánar með hvaða hætti ritarinn hygðist ganga frá Stenmark, né hvenær hann ætlaði sér að gera það. Lögreglan austur ríska lét hafa eftir sér, að allt benti til þess að bréfíð væri frá veikum vitleysingja sem myndi láta sér nægja að senda bréfíð, en ekki fylgja eftir innihaldi þess. Þó lét lögreglan þess getið að hún myndi rannsaka málið og taldi sig komna á sporið. SVISSNESKA stúlkan Erika Hess var meistari í tvíkeppni á skíðum sem fram fór í Schlamding í Sviss um helgina. Perrine Pelen frá Frakklandi varð önnur, en Christine Cooper frá Bandaríkjunum þriðja. Hess sigraði í sviginu á saman- lagða tímanum 1:22,03 mínútur. Hún varð síðan í 12. sæti í bruni, en það nægði henni til að fá fleiri stig en næsti keppandi. • Hólmdís Jónasdóttir frá Húsavík sigraði í svigi kvenna • Sigurður Jónsson frá ísafírði sigraði bæði í svigi og stórsvigi á mótinu á Húsavík. Hér er Sigurður á fullri ferð í stórsviginu. Ljósm. Mbl. ÁJ. • Tinna Traustadóttir frá Akureyri sem hér fer í gegn um eitt hliðið sigraði í stórsviginu Létt hjá ÞAÐ EINA sem kom á óvart í blak- inu um helgina var sigur Þróttar Nes. á HK, allir aðrir leikir fóru eins og búast mátti við. HK sigraði í fyrstu hrinu 15—12 eftir að Þróttur hafði haft forustu 10—5. Næstu þrjár hrinur vann Þróttur frekar létt eða 15—5, 15—5 og 15—7. Bestu menn Þróttar voru þeir Ólafur Sigurðsson og Einar Jón Ólafsson, en hjá HK var fátt um fína drætti en einna skárstur var Aðal- steinn Norberg. Með þessum sigri fengu Þróttar- ar sín fyrstu stig í annari deild í vetur og nú er spurningin hvort þeim tekst að ná næstu liðum og stigum eða hvort þeir falla. Á Selfossi léku Samhygð og Þróttur 2 í annari deild og voru talsverðar sviftingar í þeim leik. í fyrstu hrinu komst Þróttur í 10—2 en þá fór allt í baklás hjá þeim og Samhygð komst í 12—10, en Þrótt- ur var sterkari á endasprettinum og sigraði 15—12. Önnur hrinan leið hægt og tíðindalaust áfram og þegar henni lauk var staðan 15—10 Þrótt í hag. í þriðju hrinu var svipað uppi á teningnum og í þeirri fyrstu, Þróttur komst í 5—1 Þrótti en Samhygð jafnaði og komst svo í 14—11 og fékk uppgjöf, en hún bar ekki árangur og Þróttur seig hægt og bítandi fram úr og vann 16—14. í heild var þetta fremur daufur leikur en ef á að nefna einhvern sem besta mann leiksins þá er það Gunnlaugur Jóhannsson í Þrótti. Einn leikur var í fyrstu deild kvenna á sunnudaginn, Þróttur sigraði KA 3—0. Fyrsta hrinan endaði 15—6, en í þeirri annarri komust KA-stelpurnar í 11—3 en þeim tókst ekki að halda þvi út hrinuna og töpuðu 13—15. Þriðju hrinuna unnu Þróttarar 15—11. Þróttar-stelpurnar léku allar ágætlega en hjá KA báru þær Gyða Steinsdóttir og Herdís Jónsdóttir af. í fyrstu deild karla voru leiknir þrír leikir um helgina. Þróttur vann UMFL á Laugarvatni með þremur hrinum gegn einni, og Víkingar bættu svo enn um betur og sigruðu þá 3—0. ÍS lék gegn UMSE á sunnudaginn og sigraði 3-0 (15-2,15-11, 15-0) í ágæt- um leik. Besti maður leiksins var nýkjörin blakmaður ársins Frið- jón Bjarnason í ÍS. SUS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.