Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 31 Amnesty efnir til námskeiðs NÚ IJM helgina lauk alþjóðlegri her feró á vegum Amnesty International þar sem áhersla var lögð á „mannshvarf“. Herferð þessi hefur staðið yfir síðastliðinn mánuð og tekist vel. Var almenningi kynnt sú aðferð ríkisstjórna ýmissa landa að láta fólk „hverfa". Þetta eru ekki að- eins yfirlýstir pólitískir andstæð- ingar, heldur einnig almennir borgarar sem eru yfirvöldum þyrnir í augum. Þeir, sem hafa „horfið" á þennan hátt, skipta tug- um þúsunda. Það eru helst lönd eins og Guatemala, E1 Salvador, Mexíkó, Chiie og Argentína sem hafa beitt ofangreindri aðferð. I framhaldi af þessari herferð verður haldið námskeið á vegum Amnesty International fyrir þá sem vilja kynnast starfsemi sam- takanna. Það er haldið fyrir al- menning og hvort heldur viðkom- andi vill gerast virkur meðlimur eða styrktarfélagi. NÁMSKEIÐIÐ verður haldið i Lögbergi (herbergi 101) í dag, þriðjudag, og á morgun og hefst kl. 20.30. Dagskrá fyrri dagsins er á þessa leið: Setning: Sigurður Magnússon. Saga samtakanna, skipulag og starfsemi: Hrafn Bragason. Lýsing á starfshópum: skyndi- aðgerðir, fangar mánaðarins, samviskufangahópur, séraðgerðir. Lýsing á einhverju fangatilfelli. Kaffihlé og frjálsar umræður. Erindi um bréfaskriftir, og að því loknu frjálsar umræður. Picasso gerði þessa pennateikningu fyrir Amnesty International. Bernharð Guðmundsson setur námskeiðið síðari daginn, en að því loknu verður flutt erindi um „mannshvarf". Þá verða leiðbein- ingar um bréfaskriftir vegna fanga og æfingar í bréfaskriftum. En á milli þessara þátta verða kaffiveitingar og umræður. Skrifstofa Amnesty Interna- tional að Hafnarstræti 15 er opin frá klukkan 10—18 í dag vegna þeirra sem ekki hafa tilkynnt þátttöku sína á námskeiðinu. Þátttaka er ókeypis. DODGE POWER WAGO I Eigum til afgreiöslu meö stuttum fyrirvara þessa vin- sælu Dodge Power Wagon W-200 ’79 fjórhjóladrifsbíla á M afar hagstæöu veröi. I %M m Aöeins 3 tjftar e«n 6 oyl. 225 cu in vél 8 feta skúffa 8.00 x 16.5 dekk 3 gíra kassi lituð framrúða leðurlíki á sætum • krómaðir stuðarar • krómlistar á hliðum • styrktur undirvagn • aflhemlar • litur: rauður VERÐ CA. KR. 158.955 miöaö viö gengi 15.01.82. @ Wfökull hf. Ármúla 36, símar 84366 — 84491

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.